Morgunblaðið - 19.11.1985, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR19. NÓVEMBER1985
15
Grímudansleikur
Tónlist
Jón Asgeirsson
Grímudansleikurinn eftir Verdi
hefur verið tekinn upp aftur eftir
smá hlé og nú syngur Hrönn
Hafliðadóttir hlutverk spákon-
unnar. Hrönn hefur sérkennilega
rödd, einkum á lágsviðinu og
feikna volduga hárödd. Þessi tví-
skipting raddarinnar, sem trúlega
var meira áberandi vegna reynslu-
leysis og sem byrjandaóró, setti
sérkennilegan svip á söng Hrann-
ar. Þrátt fyrir að hlutverk spákon-
unnar sé frekar lítið og taki aðeins
yfir einn þátt, hefur það mikla
þýðingu fyrir „drama" verksins,
því mitt í alvöruleysinu er spáð
fyrir um ógæfu elskendanna. Fyrri
hluta þáttarins er framkoma spá-
konunnar þóttafull en er hún verð-
ur þess vísari, að hafa spáð kon-
unginum ógæfu, snýr hún blaðinu
við og aðvarar konunginn af ein-
lægni um yfirsteðjandi lífshættu.
Hrönn skilaði þessu mikilvæga
hlutverki ágætlega, bæði í söng og
leik og féli vel inn í heildarsvip
sýningarinnar.
í heild var þessi sýning, sem
undirritaður hefur séð nokkrum
sinnum, „dúndur“sýning og er þar
einnig til að taka, sem vel er gert,
að Kristinn Sigmundsson, Elísabet
Eiríksdóttir, Katrín Sigurðardótt-
ir, Robert Becker, Viðar Gunnars-
son og allir sem tóku þátt í sýning-
unni, stóðu sig með prýði, ekki þá
síst Kristján Jóhannsson, sem
söng frábærlega vel, einkum ar-
íuna á undan grímuballinu og
lokasönginn. Elísabet var mjög góð
í „miðnætursenunni" og svo í ar-
íunni með Kristni í næsta þætti
en þar var söngur Kristins frábær.
Sýningin í heild hafði vaxið og
sviðsetning hennar, frá hendi
Sveins Einarssonar, er því betri
sem oftar er hlýtt á verkið.
Samspil hljómsveitar og söngv-
ara var, utan á nokkrum stöðum,
mjög gott og hljómsveitin, sem er
einn mikilvægasti burðarás sýn-
ingarinnar, var góð undir stjórn
ítalska stjórnandans Barberini.
Það er ekki ofsögum sagt að telja
Grímudansleikinn í uppfærslu
Þjóðleikhússins stórsýningu, enda
kunna áheyrendur að meta slíkt
og var fögnuður þeirra einstaklega
kraftmikill og innilegur.
Uppáhaldsplata
a húsbyggjandans!
Milliveggjaplötur frá B.M. Yallá hf.
Stærðir:
50x50x5 cm 50x50x10 cin
50x50x7cm 35x50x10cm
Fáanlegar úr vikri eða gjalli —
hagstætt veið og ókeypis heimsending
innan höftiðborgarsx'ærtsins.
Steinaverksmiðja D U IIII I í H
Pantanir og afgreiðsla D.m. VrÍLLflf
Breiðhöfða 3, 110 Reykjavík
Sími: (91) 685006
ÞjóAleikhúHð/Jóhanna Ólnfadúttir
Hrönn Hafliðadóttir f hlutverki spá-
konunnar.
JOLATILBOÐ NR.1
METSÖLUSAMSTÆÐAN FRÁ TECHNICS
SYSTEM Z-100 er mest selda Teclmics
hljómtækjasamstæðan á íslandi í dag.
Ástæðurnar fyrir vinsældum hennar eru margar
og augljósar.
Plöstuspilarinn er með hinu fullkomna og
nákvæma 4TP pick-up kerfi.
Kröftugur 70 watta magnari, útvarp með
FM-steríó, LB, MB, kassettutækið er með
snertitökkum, nákvæmum fluorcent mælum og að
sjálfsögðu Dolby kerfi.
Tveir 100 watta hátalarar sjá svo um hljóminn.
Ekki spillir glæsilegt útlit en tækin eru í
vönduðum skáp með lituðu gleri og á hjólum.
Nú gefst ykkur enn tækifæri til þess að eignast
þessa frábæru hljómtækjasamstæðu á einstöku
jólatilboðsverði.
Rétt verð 48.370,-
JÓLATILBOÐ 35.930,-
•JAPIS
BRAUTRHOLT 2 SÍMI 27133
SJÚGA EINNIG VATN
HAGSTÆTT VERÐ
Skeljungsbúöin
SÍÖumúla33
símar 81722 og 38125
RYKSUGUR
LÉTTAR - HANDHÆGAR