Morgunblaðið - 19.11.1985, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.11.1985, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR19. NÓVEMBER1985 Bandarísku gíslarnir: Náttúruhamfarirnar í Kólumbíu Miðaði áleiðis í viðræð- um við mannræningjana — sagði sendimaður biskupsins af Kantaraborg London, 18. nóvember. AP. TERRY Waite, sérlegur sendimaöur erkibiskupsins af Kantaraborg, kom í gaer, sunnudag, heim úr for sinni til Beirút, þar sem hann átti leynilega fundi með mannræningjunum, sem hafa bandarísku gíslana fjóra í haldi. I gærkvöldi gaf hann Robert Runcie erkibiskup skýrslu um ferð sína til Líbanons og í dag ræðir hann við bandaríska embættismenn. Larry Speakes, blaðafulltrúi við mannræningjana, en líf gísl- Bandaríkjastjórnar, sagði í gær í Genf, að vonir væru bundnar við, að árangur yrði af ferð Waites. Hann lagði þó áherslu á, að banda- ríska stjórnin væri ekki til viðræðu um neinar tilslakanir við mann- ræningjana. A sunnudag sagði Waite við fréttamenn, er hann kom til Heath- row-flugvallar, að honum hefði .miðað áleiðis" í viðræðum sínum anna væri enn í hættu. „Við höfum enn tækifæri, en ég veit ekki hversu lengi það stendur," sagði hann. Bandarísku gíslarnir fjórir hafa verið í haldi hjá öfgasamtökunum „Heilagt stríð" í 4-10 mánuði og hafa samtökin lýst yfir, að þau hafi tekið af lífi bandaríska stjórn- arerindrekann William Buckley, sem saknað hefur verið. Læknar fínna nýjan vírus: Gæti verid kveikjan ad heila- og mænusiggi New York, 12. nóvember. AP. LÆKNAR komust nýverið að því að áður óþekktur vírus leynist í blóði og heilavökva sjúklinga, sem þjást af mænu- og heilasiggi (MS). Þeir útiloka ekki að vírus þessi gæti verið ein kveikjan að hinum óskýrða sjúkdómi. Ekki hafa enn verið borin kennsl á vírusinn, en hann er sagður svipaður HTLV-I, vírusi, sem veldur óalgengu afbrigði af hvítblæði í mönnum. Læknar hafa rekist á gen úr nýju veirunni í T-frumum, einni gerð hvítra blóðkorna, í sýnum teknum úr heila- og mænuvökva. Vökvi þessi umlykur heila og mænu. Heila- og mænusigg leggst á heilann og taugakerfið og ræðst á mýelínið. Mýelín er hvítt fitu- ríkt slíður, sem umlykur síma margra taugafrumna. Sjúk- dómurinn veldur því að tauga- frumur harðna, það safnast á þær sigg. „Þau, sem fundu vírusinn, eiga skilin Nóbelsverðlaun, ef allar niðurstöður standast," segir dr. Wallace Tourtellotte, taugafræð- ingur og sérfræðingur í heila- og mænusiggi við Wadsworth sjúkrahúsið í Los Angeles. Elaine Defreitas var meðal þeirra, sem fundu vírusinn. Hún segir: „Við höldum ekki fram að hér sé komin orsökin að heila- og mænusiggi. Enda höfum við ekkert í höndum til að styðja slíka fullyrðingu." Auk hennar starfaði Magnhild Sandberg- Wollheim frá Svíþjóð við rann- sóknirnar. Sjúklingarnir, sem skoðaðir voru, eru frá Svíþjóð og Key West í Flórída. Heila- og mænu- sigg er mjög algengt í Svíþjóð og á eynni Key West ganga 37 menn með sjúkdóminn. Aðeins 27.000 manns búa á eynni. Um 250 þúsund Bandaríkja- menn þjást.af heila- og mænu- siggi. Einkenni sjúkdómsins eru misjöfn, eftir því hvaða heila- og taugafrumur verða fyrir barð- inu á honum. Sumir eiga við hreyfingarörðugleika að stríða, en aðrir lamast og missa mál, sjón og hugsun. 37 prósent rannsakaðra sjúkl- inga gengu með vírusinn. Mót- efni gegn vírusnum var mun meira í 50 til 60 prósent sjúkl- inga, en í fólki, sem ekki er með heila- og mænusigg eða á við aðra heilasjúkdóma að stríða. Enn hefur ekki verið greint frá rannsóknum á nýja vírusnum í heild sinni, en grein um þær birtist í tölublaði breska vísinda- tímaritsins Nature, sem kemur út í þessari viku. Farið hefur verið fram á það við sérfræðinga um heila- og mænusigg að þeir hefji rann- sóknir á vírusnum sem fyrst. í JÓLAFÖNDRIÐ Ódýrar skálar, pottar, bakkar og múkur leir. PÓSTSENDUM. A fréttamannafundinum á sunnudag kvaðst Waite þess full- viss, að átta breskum gíslum, sem verið hafa í haldi í Líbýu og Iran, yrði sleppt. „Eg skil vel, hvernig fólki er innanbrjósts, þegar ástvinir þess eru teknir í gislingu," sagði hann. „Það er erfitt að sætta sig við svo harkalega staðreynd. En ég hvet þetta fólk til að glata ekki voninni. Eg er sjálfur vonbetri en ég var áður en ég fór til Beirút og það er margt prýðisfólk, sem mun gera allt, sem í þess valdi stendur til að leysa málið." Á þessari loftmynd má sjá farveg eyðileggingarinnar niður eldfjallið Nevado del Ruiz að þorpinu Armero. „Guð minn góður, hann er á lífi“ Blaðaljósmyndari bjargar mannslífi Armero, Kólumbíu, 18. nórember. AP. GUILLERMO Perez lá 60 klukkustundir hálfgrafinn í aurskriðu, sem hrifs- aði með sér fjölskyldu hans og fæðingarborg. Þessi fjögurra ára gamli strák- ur var orðinn úrkula vonar um að björgun bærist þegar Jorge Parga, Ijós- myndari dagblaðsins E1 Tiempo, kom honum til hjálpar. Parga fór með björgunarþyrlu á sunnudag og ætlaði að taka mynd- ir fyrir blað sitt. Hann kom skyndilega auga á lítinn dreng liggja nakinn á hliðinni, andlit hans að hluta á kafi í eðju. Parga hélt að hann hefði fundið enn eitt fórnarlamb aurskriðunnar, sem vall yfir Armero-dal á miðvikudag. Hann bað flugmanninn að fljúga GLIT HÖFÐABAKKA 9 - S(MI 685411 ■ REYKJAVlK / yfir drenginn og fór að taka mynd- ir: „Hendur drengsins voru milli fóta honum. Hann lá í hnipri og skelfingu mátti lesa úr augum hans,“ skrifaði Parga í E1 Ti- empo á sunnudag. „Skyndilega greindi ég hreyfingu og ég hrópaði til flugmannsins: „Guð minn góð- ur, hann er á lífi.“ Flugmaðurinn lækkaði flugið og drengurinn Guillermo leit upp til hinnar feiknlegu vélar, sem hnit- aði hringa yfir sér, og hóf hendur til himins. Strákhnokkinn var dreginn upp í þyrluna og rakti hann raunir sínar: „Ég þreyttist á að biðja bjargar og að tveimur nóttum og tveimur dögum liðnum fór ég að gráta. Og ég kastaði mér flötum í drulluna til að deyja eins og pabbi, bræður mínir báðir og frænkur mínar," sagði Guillermo og bætti við: „Ég er svangur." Áhöfn þyrlunnar horfði þegj- andi á drenginn háma í sig brauð- sneið og allt í einu tók Parga eftir því að þeir grétu: „Og það var ekki að ástæðulausu," sagði ljósmynd- arinn. En björgunarstarfið hefur líka sínar skuggahliðar. Björgunar- menn höfðu reynt í tvo daga að bjarga tólf ára stúlku, sem festist undir rústum, eðju og líki móður sinnar, sem einnig var undir vatn- inu, að sögn vitna og björgunar- manna. Aðeins höfuð stúlkunnar, Omayra Sanchez, stóð upp úr vatn- inu og var hún með meðvitund meðan reynt var að bjarga henni. En stúlkunni hafði blætt mikið og lést hún á laugardag áður en tókst að ná henni lausri. Maður nokkur lifði hamfarirnar af, en festist í rústum húss síns og drullu og eðju og missti fæturn- ar. Björgunarsveitir reyndu mikið að bjarga honum, en allt kom fyrir ekki. Fylltist maðurinn slíku von- leysi að hann greip hníf og stakk sigtil ólífis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.