Morgunblaðið - 19.11.1985, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 19.11.1985, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR19. NÓVEMBER1985 *m.- '■****■ Í . i* * m.*:* ■ Stjómarfrumvarp: Landsvirkjun kaupir Kröflu — Verð 1.170 m.kr. — tjónáhættu skipt FRAM hefur verið lagt stjórnarfnim- varp á Alþingi sem heimilar ríkis- stjórninni að selja Landsvirkjun Kröflu, samkvæmt samningi milli ríkisstjórnarinnar og Landsvirkjunar frá í júlímánuði síðastliðnum. Með mannvirkjum Kröfluvirkjunar fylgir réttur til virkjunar og hagnýtingar á þeirri jarðhitaorku, sem fínnast kann á Kröflusvæðinu, að afli sem svarar allt að 70 MW til raforkuframleiðslu. Kaupverð, 1.170 m.kr., greiðist með Stuttar þingfréttir: Námsbrautir sjávarút- vegs í framhaldsskólum Ný þingmál NOKKUR ný og endurflutt þing- mál vóru lögð fram á þingi í gær. Meðal þeirra var tillaga átta þing- manna úr fimm þingflokkum (fyrsti flutningsmaður Skúli Alex- andersson) um skipulagningu námsbrauta á sviði sjávarútvegs. Tillagan felur ríkisstjórn og menntamálaráðuneyti, ef sam- þykkt verður, að koma upp, innan framhaldsskólakerfisins, skipu- lögðum námsbrautum á sviði sjáv- arútvegsins. „Stefnt verði að sem mestri fjölbreytni í sjávarútvegs- námi í framhaldsskólum með stutt- um námsbrautum í fiskvinnslu og sjómannafræðum, fyrri hluta námi sérskóla sjávarútvegs, þ.e. fisk- vinnslu-, stýrimanna- og vélstjóra- námi, og undirbúningsnámi fyrir þá skóla, auk námsbrautar sem lyki með stúdentsprófi. Markmið slíks náms væri að búa fólk undir 'störf í sjávarútvegi og að kynna íslenzkan sjávarútveg.“ Graskögglaverksmiðja í Flatey EGILL JÓNSSON (S) flytur til- lögu til þingsályktunar, þess efnis, að ríkisstjórnin „hlutist til um að gerðar verði nauðsynlegar ráðstafanir til að starfsemi gras- kögglaverksmiðjunnar í Flatey verði á ný komið í eðlilegt horf með framleiðslu grasköggla árið 1986.“ f greinargerð segir að afkoma verksmiðjunnar sé góð. Skattur á verzlunar- og skrifstofuhúsnæði Fram hefur verið lagt stjórn- arfrumvarp um sérstakan skatt á verzlunar- og skrifstofuhús- næði 1986. Skattur þessi var fyrst lagður á 1979, til eins árs, en hefur verið framlengdur um eitt ár í senn síðan. Tekjuáætlun fjárlagafrumvarps 1986 áætlar að skatturinn gefi 110 m.kr. í ríkissjóð 1986. Verðtrygging tjóna- og slysabóta KJARTAN JÓHANNSSON og fleiri þingmenn Alþýðuflokks hafa lagt fram tillögu til þings- ályktunar um verðtryggingu framangreindra bóta. Tillagan felur heilbrigðis- og trygginga- ráðherra, ef samþykkt verður, að „undirbúa löggjöf um verð- tryggingu tjóna- og slysabóta almennra tryggingafélaga“. í greinargerð segir að fólk geti — í verðbólgu sem nú er — orðið fyrir verulegum skakkaföllum vegna þess að bótagreiðslur tryggingafélaga séu ekki verð- tryggðar. Bann við hönnun og framleiðslu hergagna GUÐRÚN AGNARSDÓTTIR og fleiri þingmenn Kvennalista flytja tillögu til þingsályktunar um yfirlýsta andstöðu Alþingis „við hugmyndir um að íslenzkt hugvit verði nýtt til hátækniiðn- aðar sem tengist vígbúnaði þann- ig að íslendingar gerist þátttak- endur í þeim gereyðingaráform- um sem vopnaframleiðslu fylgja. Alþingi ályktar að lýsa yfir því að á Islandi verði ekki smíðuð kjarnaorkuvopn eða svonefnd varnarvopn gegn þeim ...“ „Misrétti gagnvart samkynhneigðu fólki“ KRISTÍN S. KVARAN (BJ), Guðrún Agnarsdóttir (Kvl.), Helgi Seljan (Abl.) og ólafur Þ. Þórðarson (F) flytja tillögu sem felur það í sér að Alþingi „lýsir yfir vilja sínum til að tryggja að misrétti gagnvart samkyn- hneigðu fólki eigi sér ekki stað hér á landi". Tillagan felur jafn- framt í sér að „ríkisstjórnin skipi nefnd til þess að kanna stöðu samkynhneigðs fólks á Islandi". skuldabréfi til 25 ára, verðtryggðu og með 3% vöxtum. Samningurinn felur í sér tiltekna áhættuskiptingu milli aðila í sambandi við hugsanlegt tjón á virkjuninni af völdum jarð- hræringa, eldsumbrota eða annarra náttúruhamfara. Ríkissjóður skal, ef meiriháttar tjón af þessu tagi verður, bæta Landsvirkjun skaða umfram 40 m.kr. hverju sinni eða 200 m.kr. alls. Minna tjón verður á áhættu Landsvirkjunar. Áhætta ríkisins takmarkast þó við ógreiddar eftir- stöðvar kaupverðsins hverju sinni. I tengslum við sölu Kröfluvirkj- unar og með tilliti til þess að Landsvirkjun er nú þegar eigandi og rekstraraðili að jarðgufuafl- stöðinni i Bjarnarflagi er gert ráð fyrir því að Landsvirkjun kaupi Jarðvarmaveitur ríkisins á sama stað, ef um semst, segir í greinar- gerð. Til stóð að mælt yrði fyrir frum- varpi þessu í gær. Fyrstu umræðu var hinsvegar frestað að beiðni stj órnarandstöðu. iiMnci Tillaga þingsmanns: Hitaveitur selii rafmagn í GÆR var mælt fyrir tveimur frum- vörpum, sem varða hitaveitur. Matt- hías Bjarnason, sem gegnir embætti iðnaðarráðherra, mælti fyrir frum- varpi um Hitaveitu Suðurnesja, til staðfestingar á kaupum hennar á eignum Rafmagnsveitna ríkisins á Suðurnesjum. Stefán Benediktsson (BJ) mælti fyrir frumvarpi sínu um heimildarákvæði til handa Hitaveitu Reykjavíkur til að framleiða og selja rafmagn. Hitaveita Sudurnesja Frumvarp þetta felur í sér að Keflavíkurkaupstaður eigi 38,68% í sameignarfyrirtækinu Hitaveita Suðurnesja, ríkissjóður, 20%, Nj arðvíkurkaupstaður 12,83%, Grindavíkurkaupstaður 11,17%, Miðneshreppur 6,99%, Gerða- hreppur 6,07%, Vatnsleysustrand- arheppur 3,57% og Hafnahreppur 0,69%. Sameignin ber einfalda óskipta ábyrgð á skuldbindingum. Stjórn fyrirtækisins er skipuð níu mönnum. Hvert sveitarfélag, sem hlut á að máli, skipar einn stjórnarmann, iðnaðarráðherra einn og fjármálaráðherra einn. Stjórn hitaveitunnar setur henni gjaldskrá um verð á seldri orku. Við afgreiðslu mála verður höfð hlutfallsleg atkvæðagreiðsla (mið- að við eignarhluta). Hitaveita Reykjavíkur Frumvarp Stefáns Benedikts- sonar (BJ) gerir ráð fyrir því að fyrirtækið fái heimild til þess að framleiða og selja rafmagn. Flutn- ingsmaður telur, í ljósi þess að fyrirtækið kunni senn að nýta orku frá háhitasvæði, að rétt sé að það fái jafnframt að framleiða og selja raforku, eins og Hitaveita Suður- nesja, ef slíkt þyki leiða til meiri hagkvæmni í framkvæmdum og þjónustu við höfuðborgarsvæðið. Nokkrar umræður urðu um þetta mál. Karl Steinar Guðnason (A) og Skúli Alexandersson (Abl.) lýstu stuðningi við það. Sá fyrr- nefndi taldi Landsvirkjun selja „dýrasta rafmagn í veröldinni". Ef hægt væri að tryggja almenn- ingi aðgang að ódýrara rafmagni þá á að leyfa það, sagði hann. Ragnar Arnalds: Opinn háskóli Nýting nýrrar kennslutækni „ALÞINGI ályktar ad skora á ríkis- stjórnina að undirbúa nú þegar stofnun og starfrækslu opins há- skóla sem gerir nemendum sínum kleift að stunda háskólanám í heimahúsum með aóstoð útvarps og sjónvarps, myndbanda og tölvu- tækni. Skólinn sé undir stjórn Háskóla Islands en öllum opinn án tillits til fyrri menntunar." Þannig hljóðar tillaga til þingsályktunar sem Ragnar Arnalds (Abl.) hefur lagt fram á þingi. I greinargerð er minnt á gífurlegar breytingar í vísindum og tækni og mikilvægi þess „að menntakerfið haldi í við tækni- þróun samtímans, miðli nýjustu þekkingu til fjöldans, en ekki aðeins fárra útvaldra, og nýti sér kennslutækni til fulls“. Tilgangur. er sagður að veita áhugasömu fólki, fjarri mennta- stöðvum, tækifæri til æðri menntunar; að byggja upp áfangakerfi fyrir nemendur, sem ekki uppfylla formleg menntun- arskilyrði háskóla; að byggja upp samfellt menntakerfi m.a. til endurmenntunar starfsfólks i atvinnulífi, hafa forystu um notkun fjölmiðla í fræðsluskyni og þróa kennsluaðferðir á þessu sviði. I greinargerð er vitnað til áhuga háskólarektors, dr. Sig- mundar Guðbjarnarsonar, á opnum háskóla, en framkvæmd- in sé að sjálfsögðu háð fjárveit- ingum og ákvörðun Alþingis. Nýir þingmenn ÞRÍR varaþingmenn tóku sæti á Alþingi í gær: ★ Kristjana Milla Thorsteinsson, viðskiptafræðingur, fyrsti vara- þingmaður Sjálfstæðisflokks í Reykjaneskjördæmi, í fjarveru Salome Þorkelsdóttur í opinberum erindagiörðum erlendis. ★ Kristln A. Tryggvadóttir, fræðslufulltrúi, fyrsti varaþing- maður Alþýðuflokks í Reykjanes- kjördæmi, í fjarveru Kjartans Jó- hannssonar sem er í opinberum erindum erlendis. ★ Sveinn Jónsson, verkfræðingur, fyrsti varaþingmaður Alþýðu- bandalags í Austfjarðakjördæmi, í veikindafjarveru Helga Seljan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.