Morgunblaðið - 19.11.1985, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR19. NÓVEMBER1985
Fangar mánaðarins
Stjórn Kvennadeildar Reykjavíkurdeildar RKí afbendir lieknum Borfanpftak taekiA.
Borgarspítalinn:
Fært að gjöf tæki til
rannsókna á vélinda
Mannréttindasamtðkin Amn-
esty International vilja vekja at-
hygli almennings á máli eftirfar-
andi samviskufanga í nóvember.
Jafnframt vonast samtökin til að
fólk sjái sér fært að skrifa bréf til
hjálpar þessum föngum og sýna
þannig í verki andstöðu sína við
að slík mannréttindabrot eru
framin.
Eþíópía: Mengesha Gebre-Hiwot
er 55 ára sérfræðingur i kennslu-
málum, fyrrum aðstoðarmaður
menntamálaráðherra og starfs-
maður SÞ. Hann er einn úr hópi
18 manna sem hafa verið i haldi
síðan í desember 1983 vegna
meintrar aðildar að stjórnmála-
flokki (EPDA) sem hefur gagnrýnt
samband rikisstjórnarinnar við
Sovétríkin. Þeim er gefið að sök
að hafa dreift „andbyltingarsinn-
uðum“ flugritum „sem lið í tilraun
heimsvaldasinna til að kæfa eþí-
ópsku byltinguna". Ekkert virðist
benda til að flokkur þessi hafi beitt
eða hvatt til ofbeldis. 18-menning-
arnir hafa að sögn verið beittir
pyntingum í yfirheyrslum, m.a.
með höggum á iljar. Samkvæmt
upplýsingum AI hefur Mengesha
Gebre-Hiwot misst annan fótinn
af þessum sökum. Nú er óttast um
líf hans, þar sem fjölskyldu hans
er ekki íengur leyft að senda hon-
um mat, en það var leyft á fyrri
helmingi þessa árs.
Haiti: William Josma er 37 ára
gamall verkfræðingur sem haldið
hefur verið án ákæru eða dóms
síðan í april 1981. í tilkynningu
frá stjórnvöldum frá því í febrúar
1984 er hann sakaður um hryðju-
verkastarfsemi, en formleg ákæra
hefur ekki verið lögð fram og yfir-
völd hafa hvorki réttað í máli hans
né lagt fram sannanir máli sinu
til stuðnings. AI telur Josma i
haldi vegna friðsamlegrar and-
stöðu hans við stjórn Jean-Claude.
Duvalier. Josma bauð sig fram á
eigin vegum til þings árið 1979 en
dró framboð sitt til baka vegna
þrýstings frá stjórnvöldum. Þrátt
fyrir ákvæði í stjórnarskránni um
frelsi til að bindast stjórnmála-
samtökum eru þeir sem reyna að
stofna stjórnarandstöðuflokka tíð-
um fangelsaðir eða verða að sæta
yfirgangi af ýmsu öðru tagi. Will-
iam Josma var ekki í hópi 37 póli-
tískra fanga sem hlutu náðun i
apríl 1985 og vegna fullyrðinga
yfirvalda um að „enginn sé lengur
í haldi vegna afbrota af pólitiskum
toga“ er óttast um afdrif hans.
Malaysía: Loo Ming Leong er 42
ára verkamaður á gúmmíplantekr-
um, sem hefur verið i haldi í 13 ár
án ákæru eða dóms, vegna meintr-
ar aðildar hans að Kommúnista-
flokki Malaysiu sem er bannaður.
Fangelsun hans styðst við hæpnar
lagagreinar sem heimila stjórn-
völdum að hafa i haldi i tvö ár i
senn fólk sem þau telja hættulegt
öryggi landsins. Aðbúnaður í fang-
elsisvistinni hefur verið afar
slæmur. Pólitískir fangar i Batu
Gajah-fangelsinu, þar sem Leong
var til skamms tíma, máttu þola
einangrun i 22 klst. á sólarhring
og i Taiping-fangelsi, þar sem
hann er núna, er föngum haldið í
heitum og illa loftræstum fanga-
klefum, og er hreyfing og læknis-
hjálp ónóg. Loo Ming Leong er
sagður þjást af nýrnabilun og
háum blóðþrýstingi.
Þeir sem vilja leggja málum
þessara fanga lið, og þá um leið
mannréttindabaráttu almennt,
eru vinsamlegast beðnir að hafa
samband við skrifstofu íslands-
deildar Amnesty, Hafnarstræti 15,
Reykjavik, simi 16940.
KVENNDADEILI) Reykjavíknr-
deildar Rauóa kross íslands færói
Lyflækningadeild Borgarspítalans
nýlega aó gjöf tæki til sírítunar
sýrustigs í vélinda.
í frétt frá Borgarspítalanum
segir að tæki þetta gefi mögu-
leika á að rannsaka þátt maga-
sýru í einkennum sjúklinga, ss.
brjóstverkjum sem ekki skýrist
af hjartasjúkdómum o.fl. Einnig
nýtist tækið við mat á því hvort
aðgerð við þindarsliti sé líkleg
til árangurs. Tækið mæli sýru-
stigsbreytingar í vélinda sjúkl-
ings yfir heilan sólarhring og
skrái niður á tölvu. Þessa rann-
sókn sé unnt að gera jafnt á
sjúklingum utan spítala sem
innan og muni því nýtast öllum.
í frétt Borgarspítalans segir
ennfremur að tæki þetta sé
fyrsta sinnar tegundar á íslandi
og gefi möguleika á rannsóknar-
tækni sem ekki hafi verið unnt
að framkvæma hér til þessa en
víða verið notuð erlendis.
" S
■>
5 STJÖRNUKVÖLD
MAGNÚS ÞÓR
EINARJÚLÍUSSON
^ *
JÓHANN HELGASON
PÓNIK OG EINAR
LEIKA
FYRIR DANSI
SIGMUNDSSON
ANNA VILHJÁLMSDÓTTIR
* JÓHANN G. JÓHANNSSON
JÚLÍUS BRJÁNSSON
KYNNIR
ÞORSCAFE
FÖSTUDAGS- OG LAUGARDAGSKVÖLD • HÚSIÐ OPNAÐ KL. 19°°
STÓRKOSTLEG ÞRÍRÉTTUÐ MÁLTÍÐ • ÓLI OG JÚLLI SJÁ UM DISKÓTEK3Ð
ÖRYCCI
í VETRARAKSTRI
Á GOODYEAR VETRARDEKKJUM
Öruggari akstur cott grip l brekkum Góðlr aksturselginleikar
á isllogðum vegum meö lausum snjó á ójófnum vegum
Stóðuglelkl
i hálku
Cóðir hemlunareiginlelkar
viö erflöar aöstæður
GOODYEAR vetrardekk eru gerð ur sér-
stakrl gúmmíblöndu og með mynstri
sem gefur dekkinu mjög gott veggrlp.
CODOYEAR vetrardekk eru hljóðlát og
endingargóð.
Fullkomin hjólbarð
Tðlvustyrð Jaf
GOOD0EAR
GEFUR ^RÉTTA GRIPIÐ