Morgunblaðið - 19.11.1985, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR19. NÓVEMBER1985
47
' A ^
AKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11.30
FRÁ MÁNUDEGI
TILFÖSTUDAGS ....
_________tJUsLÍ1
Þessir hringdu . .
Svali
keyptur upp
Guðrún Skúladóttir, Hjaröar-
haga 48, hringdi:
Mikið þótti mér það kjánalegt
hjá Davíð Scheving Thorsteins-
syni að kaupa upp allan lagerinn
af Svala í Miklagarði, eins og
skýrt var frá í DV á dögunum.
Þvi mátti verslunin ekki selja
Svalann á sérstöku tilboðsverði,
fjölda viðskiptavina til mikillar
ánægju? Eitt er víst að ég kaupi
ekki Svala hér eftir.
íbúðarlán
til 40 ára
Kristján hringdi:
Mig langar að benda á það að
hér áður fyrr voru algengustu
íbúðarlánin til 40 og jafnvel 50
ára. Því finnst mér sem verið sé
að stinga rýtingi í bakið á ungu
fólki og eyðileggja fyrir því lífs-
afkomuna, með því að lána með
þessum háu vöxtum til aðeins tíu
ára, eins og er mjög algengt
núna. Vildi ég óska þess að mál
þetta yrði tekið til mjög ná-
kvæmrar athugunar hjá ríkis-
valdinu og öðrum sem þessu
ráða, og þau tíu ára lán sem
þegar hafa verið veitt, verði
framlengd til 40 ára.
Hver orti
þessa vísu?
Kona í Nordurmýrinni hringdi:
„Ég er með vísu í huganum sem
mig langar mikið til að vita hver er
höfundur að. Hún er svona:
Sú var tíðin mér þótti þröngt
milli þungbrýnu fjallanna minna.
Nú kemst þar fyrir sú unun öll
sem óska ég helst að finna.“
Kennsluþáttur
í drykkjuskap
Kona úr Skagafirði hringdi:
Mig skortir nógu sterk orð til
að láta í ljós aðdáun mína á grein
Helga Hálfdanarsonar í Morgun-
blaðinu 13. nóvember sl. Ekkert
er svo gott til að Helgi eigi það
skilið fyrir að rita þessa grein.
Sjónvarpið mætti öllum að
skaðlausu fella niður kennslu-
þætti sína í drykkjuskap, laus-
læti og glæpum. Ef stjórnendur
fjölmiðlanna eiga ekki völ á
menningarlegra efni ættu þeir
að stytta dagskrá, hvíla sig þann
tíma sem annars tekur að sýna
þennan ófögnuð. Hvaða sæmi-
lega viti borin manneskja hefur
ánægju af að heyra og sjá hljóm-
sveitir sem virðast sérhæfðar í
að sýna viðurstyggilega tilburði
og framleiða villidýrsöskur.
Æska þessa lands er dýrmæt-
ari en svo að gera eigi leik til
að leiða hana á villigötur. Stjórn-
endur fjölmiðla taki þetta til
rækilegrar yfirvegunar. Út-
varpshlustendur og sjónvarps-
áhorfendur tökum höndum sam-
an og neitum að greiða afnota-
gjöldin verði þessi mál ekki tekin
til endurskoðunar.
Að skjóta sér
undan ábyrgð
Sveitakona hringdi:
Ég var að hlusta á fréttirnar
sl. fimmtudagskvöld og heyrði
þá m.a. viðtal við fulltrúa ey-
firskra bænda um ný fram-
leiðsluráðslög. Var það greinilegt
á þessu viðtali að eyfirskir bænd-
ur sem hafa átt einn stærsta
þáttinn í vanda landbúnaðarins,
ætla að skjóta sér undan allri
ábyrgð og láta litla bóndann bera
byrðarnar.
Ég skora á landbúnaðarráð-
herra og forráðamenn í landinu
að beita sér fyrir því að þeir sem
hafa bestu efnin á að bera byrðar
geri það. Væri ekki rétt að eitt-
hvað tillit væri tekið til hversu
margt fólk lifir af hverju búi?
Eða er það réttlátt að hjón með
tvö eða þrjú börn hafi rýmri
kvóta en tvenn hjón með sex
börn (hér á ég við félagsbú)?
Sveitafólk látið til ykkar heyra.
U nglingadansleik-
ir standi til kl. 01
Foreldri skrifar:
Ég sit hér um miðnætti og horf-
ist í augu við þá nöturlegu stað-
reynd að 14 ára gömul dóttir mín
er á „unglingadansleik" niðri í
miðbæ, sem samkvæmt dagblöðum
lýkur ekki fyrr en kl. 03. Það vakna
ýmsar spurningar.
Hvað er „unglingadansleikur"?
Við hvaða aldur er miðað og hvers
vegna er ekkert slíkt tekið fram í
auglýsingunni? Fæst virkilega
leyfi hjá lögregluyfirvöldum til
þess að stefna stórum hópi ungl-
inga á skemmtistað við Austurvöll
og láta honum ljúka á sama tíma
og hleypt er út stórum hópum fólks
af öðrum krám og skemmtistöðum
í miðborginni? Harðfullorðnu
fólki, sem ætti að kunna fótum
sínum forráð, en við vitum öll að
er oft í ömurlegu ástandi vegna
fíkniefnaneyzlu (áfengi þar með
talið þótt löglegt sé) og því miður
Bréfritara finnst að unglingadans-
leikir eigi ad standa til kl. 01 en
ekki til 03, eins og almennir dans-
leikir fyrir fullorðna.
æskileg fyrirmynd fyrir ungling-
ana, sem við viljum gjarnan að
skemmti sér án áfengis. Hvað með
lög um útivist barna og unglinga?
Er ekki of langt gengið í gróðafíkn-
inni og of lítið og of seint hugsað
um velferð barnanna okkar? Þessi
uppgjöf er geigvænleg og færi
betur að lögin væru endurskoðuð
og þeim þá breytt frekar en að
hundsa þau, því lög sem enginn fer
eftir eru verri en engin lög.
Allir foreldrar unglinga vita hve
þrýstingur frá félögum er sterkt
afl og hversu erfitt er að standa
gegn honum. Samt hefði mér liðið
mun betur og þótt eðlilegra að
dansleikur sem ætlaður er krökk-
um á aldrinum 14—17 ára stæði
eitthvað skemur en almennir dans-
leikir, til dæmis til kl. 1. Hvað
finnst ykkur kæru þjáningasystur
og -bræður? Sem dæmi um slíkan
dansleik vil ég nefna unglingaball-
ið sem Æskulýðsráð Reykjavíkur
stóð fyrir á Broadway fyrir
skömmu og var unglingum og
stjórnendum til sóma.
Hér með skora ég á eigendur
skemmtistaða að staldra aðeins
við og hugsa þetta mál til enda,
áður en efnt verður til næsta
unglingadansleiks. Einnig skora
ég á foreldra að láta heyra frá sér
um þessi þýðingarmiklu mál, aldur
og útivist.
EN H.F,
BÆJARHRAUNI 10, HAFNARFIRÐI, SIMI 651000.
ifoíco
Reiknivélar
í úrvali
RÁLL STEFÁNSSON
UMBOÐS & HEILDVERZLUN
ÖRYGGIS
HÓLF
i veggi
Örugg og odýr lausn
fyrir fyrirtæki
og heimahús
Póstsendum
litabæklinga
BLIKAHOLUM 12. R VlK
SlMI (91 (-72530
r>
0
V
BÓKATILBOÐ VIKUNNAR*
18/11-23/11
Á hverjum mánudegi til áramóta birtast i DV
ný og spennandi bókatilboð.
Spámaöur í fööurhúsi
eftir Jón Orm Halldórsson
áöur kr: 500,00 nú kr: 198,00
Elli. byggt á útvarpsþáttunum „Á Tali“
eftir Eddu Björgvinsdóttur og Helgu Torberg.
áöur kr: 545,00 núkr: 198,00
Gíslar í 444 daga. Sönn frásögn af
14 mánaða gíslingu 52 manna í íran.
áöur kr: 500,00 nú kr: 95,00
Jenny. My diary, skáldsaga.
áöur kr: 380,00 nú kr: 95,00
Coming through Slaughter.
eftir Michael Ondsstje.
áöur kr: 325,00 nú kr: 95,00
Nú er tækifærið aö gera góö kaup í jóla-
pappír og jólakortum. Aöeins þessa viku:
verulegur afsláttur af jólapappírsrúllum
100 x 150 cm og 10 jólakortum í pakka.
Einnig þessa viku: litlir raöleikir og gesta-
þrautir á ótrúlega lágu verði.
Tilvaliö í „skóinn“.
Muniö gestagetraunina - dregiö vikulega.
Sjá ný bokatilboð í DV næstkomandi Manudaga
*Á meðan birgðir endast
BÓKAVERSLUN
SNÆBJARNAR
Hafnarstræti 4 sími: 14281
/