Morgunblaðið - 19.11.1985, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR19. NÖVEMBER1985
49
Sjómaður byggir verslunarhúsnæði:
Framkvæmdasjóð-
ur Akureyrar lánar
honum 300 þúsund
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur sam-
þykkt að veita Kristjáni Gunnarssyni
300.000 króna lán úr framkvsmda-
sjóði Akureyrar vegna byggingar
húsnæðis fyrir matvöruverslun við
Móasíðu 1 þar í bæ.
„Ég sótti um lánið fyrir
skömmu, en bæjaryfirvöld sýna
því mikinn skilning að það bráð-
vantar matvöruverslun í þetta
hverfi. Verslunarlánasjóður hefur
hins vegar neitað mér um lán í
tvígang vegna byggingarinnar
þrátt fyrir að hann láni til stór-
felldrar verslunaruppbyggingar á
höfuðborgarsvæðinu, en ég trúi
ekki öðru en ég fái lán úr honum
á næsta ári,“ sagði Kristján í
samtaii við blaðamann Morgun-
blaðsins.
Kristján er sjómaður að atvinnu
— skipverji á frystitogaranum
Siglfirðingi frá Siglufirði. Versl-
unarhúsnæði það sem hann er með
í byggingu verður 772 fermetrar
að stærð. Byrjað er að steypa upp
kjallara hússins. „Það verður að
gera eitthvað meðan ég bíð eftir
láni,“ sagði Kristján. Skv. áætlun
sem Kristján lét gera verður
kostnaður við byggingu hússins 7
til 8 milljónir, en þegar hefur verið
unnið fyrir 2 milljónir króna.
Kristján sagðist bjartsýnn á að
hann gæti opnað verslunina fyrir
jól næsta ár „ef ég fæ lán úr
Verslunarlánasjóði".
Neytendasamtökin:
Neytendur séu á varðbergi
gagnvart ómerktum vörum
Morgunblaðinu hefur borist eft-
irfarandi frétt frá Neytendasam-
tökunum:
„Komið hefur fram í fréttum,
að á markaði hér hafa verið hjól-
barðar, sem búið er að má af
nafn framleiðanda og — eða
aðrar upplýsingar.
Neytendasamtökin benda
neytendum á, að vera á varðbergi
gagnvart vörum sem þannig eru
boðnar til sölu. Nafn framleið-
anda vöru er í öllum tilfellum
mikilsverðar upplýsingar fyrir
neytendur og í sumum tilfellum
ákveðin trygging fyrir gæðum.
Þetta á ekki síst við um vörur
sem varða öryggi neytenda, eins
og ástand og gæði hjólbarða.
Það verður að teljast furðuleg
framkoma seljanda gagnvart
kaupanda að má burt, eða selja
vöru sem máðar hafa verið af,
upplýsingar er koma eiga vænt-
anlegum kaupanda eða notanda
að gagni. Slíkt samrýmist varla
góðum viðskiptaháttum. Það er
kaupandi vörunnar sem greiðir
andvirði hennar og notar hana í
felstum tilvikum og tekur jafnvel
áhættuna af notkun hennar.
Neytendasamtökin ítreka enn
kröfu sína um bættar neytenda
upplýsingar og mótmæía því
harðlega að upplýsingum sem
fyrir hendi eru sé leynt, eða þær
jafnvel vísvitandi máðar burt.“
Ordsending!
til þeirra sem vilja mikið fyrir lítið:
Og nú gerð C-12 - ennþa meira fyrir lítið:
Sjalfvirk miðjusetning texta, sjálfvirk undirstrikun, sjálfvirk
niðurröðun talna, leiðréttingarminni ein lína o.fl.
( sjóferð, ert þú þá með það á hreinu hvar allur björgunarbúnaður skipsins er staðsettur og
hvort öll siglingatæki eru virk?
Það er góð regla ( upphafi hverrar sjóferðar, að glöggva sig á staðsetningu og ástandi
öryggisbúnaðar skipsins.
REYNSLAN SÝNIR AÐ EKKERT KEMUR I VEG FYRIR SLYS Á SJÓ NEMA
ÁRVEKNI, DÓMGREIND OG KUNNÁHA SJÓMANNA SJÁLFRA.
ÖRYGGISMÁLANEFND SJÓMANNA
midas