Morgunblaðið - 19.11.1985, Side 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR19. NÖVEMBER1985
. >
„Fantasían
hefur alla tíð
verið mitt
uppáhald“
— segir Sólveig Eggerz Pétursdóttir sem
nú heldur málverkasýningu eftir 4 ára hlé
SÓLVEIG Eggerz Pétursdóttir heldur nú málverkasýningu í nýjum sýning-
arsal á Austurströnd 6 á Seltjarnarnesi og er þetta fyrsta sýning hennar
eftir fjögurra ára hlé. Sólveig lenti ( bflslysi fyrir fjórum árum og sagói
í samtali viö blaðamann að hún hefði alveg verið búin að sjetta sig við
að mála ekki framar þar sem sjónkerfi hennar laskaðist
„Ég að fikra mig áfram eins
og byrjandi aftur eftir slysið. Ég
á mjög erfitt með að mála án
þess að vera alveg upp i því sem
ég er að gera. Ég get ekki virt
verk mín fyrir mér ef ég er langt
frá þeim. Nú notast ég þvi mikið
við ljósmyndavélina i stað
skissublokkarinnar áður. Ég tek
myndir af þvi sem mig langar
til að vinna jafnframt þvi sem ég
styðst við sjónminni. Jafnvel
notast ég við fleiri en eina ljós-
mynd til að vinna úr endurminn-
ingunni. Ég á nú margt ólært þar
sem ég þarf að þjálfa mig upp á
nýtt en ég er tilbúin til þess þó
ég sé orðin 60 ára.“
Sólveig sagðist vera Svarf-
dælingur i báðar ættir þó hún
hafi búið viða, m.a. i Glasgow,
Kaupmannahöfn, Þýskalandi og
Vestmannaeyjum. Sólveig
kynntist manni sínum, Árna
Jónssyni, syni Jóns Guðmunds-
sonar i Belgjagerðinni, á Eng-
landi en þar bjó hún sem inn-
flytjandi árin 1946-48. Þau hjón
eiga nú fjögur uppkomin börn
og þrjú barnabörn. Tvö yngri
börn hennar eru þroskaheft.
„Auðvitað finnst mér jafnvænt
um börnin min. Ég reyni að sinna
þeim eins og ég mögulega get og
reyni að hjálpa Styrktarfélagi
vangefinna eftir mætti.“ Sólveig
hefur undanfarin ár hannað jóla-
kort sem félagið gefur út og eru
frummyndir jólakortanna að
þessu sinni, sem eru sex að tölu,
á sýningu Sólveigar jafnframt
þvi sem hægt er að kaupa kortin
þar, á aðalskrifstofu Styrktarfé-
lagsins og i Kúnst á Laugavegi.
Morgunblaðið/Ol.K. Mag.
Sóheig Eggertz og Goðmaodur Kristinsson halda á eiaai mynd Sóhreigar á sýningunni á Austurströnd 6,
Seltjarnarnesi. Þetta er nýr sýningarsahir, sem Guðmundur rekur.
„Ég er afskaplega þakklát
fyrir að vera ekki úr leik sem
málari. Þó finnst mér töluverður
viðvaningsbragur á verkunum nú
miðað við áður. Þetta er eins og
að læra að stafa upp á nýtt. Ég
veit hvernig gera á hlutina en
litirnir vilja renna saman fyrir
mér ef ég er ekki i skriffjarlægð
frá þeim. Ég byrjaði að prófa
mig áfram mikið til vegna föður
míns. Hann lést i vor og var ég
mikið hjá honum sl. vetur. Hann
rak mig eiginlega út i þetta aftur
og gerði ég það mikið til fyrir
hann að reyna. Ég er ekki nógu
ánægð með útkomuna en maður
gefst ekki upp úr þvi sem komið
er.“
Sólveig er hvað þekktust fyrir
svokallaðar fantasíur sinar, sér-
staklega þær sem málaðar eru á
rekaviðarspýtur. „Sumir halda
að spýtan hafi búið til fantas-
iuna, en í raun bjó fantasian til
spýtuna. Fantasian hefur alla tið
verið mitt uppáhald. Þetta spýtu-
ævintýri hófst eiginlega fyrir 15
árum þegar ég allt i einu fór að
hugsa um lítinn leik sem ég bjó
mér til í bernsku heima i sveit-
inni fyrir norðan þar sem ég bjó
i sjö ár. í kring um bæinn okkar
lágu oft á tiðum girðingarstaur-
ar, sem ég bjó til heilu leiksýn-
ingarnar úr fyrir sjálfa mig. Ég
hélt fyrstu spýtusýninguna árið
1969 i Danmörku og fékk þar
mjög góða dóma i blöðunum sem
opnaði mér leiðir inn i aðra sýn-
ingarsali erlendis."
Sólveig sagðist dá tvo lista-
menn öðrum fremur, þá Engil-
bert Gíslason, sem kenndi henni
í Vestmannaeyjum á unglingsár-
unum, og Ásmund Sveinsson,
myndhöggvara, en hún fór i nám
til Ásmundar eftir að börn henn-
ar voru öll komin á ról. Sólveig
var við nám i listaskóla á Eng-
landi i tvö ár og brá sér i Mynd-
listaskólann i Reykjavík fyrir
stuttu i einn vetur.
Sólveig sýndi fyrst fyrir 25
árum í Bogasal Þjóðminjasafns-
ins svo sýningin nú er einskonar
afmælissýning hennar. Þó sagð-
ist hún hafa viljað undirbúa sýn-
inguna meira en hægt hefði ver-
ið. „Ég hef t.d. aldrei haldið sýn-
ingu án þess að senda út boðskort
i tilefni opnunar fyrr en nú. Ég
er algjörlega að renna blint i sjó-
inn með þessa sýningu og vona
bara það besta,“ sagði Sólveig.
Á sýningunni eru 48 vatnslita-
myndir og nokkrar rekaviðar-
spýtur sem hún hefur málað
sínar fantasiur á. Sýningin
stendur til 24. nóvember og er
opin frá kl. 13.00 til 19.00 dag-
lega.
VIFTUREIMAR
IÐNAÐARREIMAR
optibelt
(ontinental
Þrælsterkar reimar, tenntar
og sléttar
Stærsta sérverslun landsins
með reimar
FALKINN
Suðurlandsbraut 8. sími: 91-84670
105 Reykjavík
Verslunareigendur!
Innkaupastjórar!
I áratugi hefur Söluskrifstofa KEA selt margs konar vörur til verslana, stofnana og þeirra sem vilja gera góð
innkaup á vönduðum vörum á hagstæðu verði. Við getum útvegað þér vörur frá eftirtöldum fyrirtækjum:
Frá Kjötíðnaðarstöð KEA:
Allar tegundir af kjöti - s.s. lambakjöt,
nautakjðf, hanglkjöt, svinakjöt og kjúklingar.
Einnig býður Kjðtiðnaðarstðð KEA alls konar
unnar kjötvörur, þar með taldar fjöldi
áleggstegunda. Nú getur þú fengíð kjötlð
meðhðndlað á ýmsan hátt og það kemur til þín
pakkað i lofttæmdar umbúðir.
Frá Smjörlíkisgerð KEA:
Borðsmförfíki, bðkunarsmjðrfiki, kðkossmjðr
og kökufeíti. Frá Smjödíkisgerð KEA kemur
Flöru smjðrliki, sem þegar hefur sannað
ágæti sitt. Fyrirtækið framleiðir einnig herta
sojaoliu sem notuð er til djúpsteikingar á
matvælum - s.s. kjðti, kartðtlum og laufabrauði.
Frá Efnagerðinni Flóru:
Avaxtasafi, marmelaði, sultur, steiktur laukur,
poppmaís, kakð, ýmsar kryddtegundir og
bðkunarvðrur. Flóra framleiðir einnig þrjár
tegundir af fljótandi jurtaolíum til
djúpsteikingar: Sojaoiia, SOIblómaolía og
Jarðhnetuolía,
Frá Brauðgerð KEA:
Brauðgerð KEA tramleiðir allar tegundir af
matarbrauðum - auk þess sem fyrirtækið
hefur gott úrval ai kökum og tertum,
Brauðgerð KEA hefur yfir að ráða mjög
góðum vélakosti og úrvals starfsfólki - sem
genr sitt besta til að útvega þér þær vðrur sem
þú óskar eftir
Frá Kaffibrennslu Akureyrar:
Braga katfi - frá Kaffibrennslu Akureyrar
þart vart að kynna. Vinsaaldir þess hér á landi
segja sitt um gæði framleiðslunnar. Nu siðast
kom fyrirtækið fram með Santosblöndu Hefur
þú reynt hana? Þá minnum við á Ameríku kaffi,
Koiombía katfi og koftínlausa Braga kaffið.
Frá Efnaverksmiðjunni Sjöfn:
Sjöfn framleiðir alls konar tegundir af ræsti- og
hreinsiefnum, en auk þess framleiðir Sjöfn
málningu, sem landsþekkt er fyrir gæði, og
Úretan quartz gótfefni. Hjá Sjöfn getur þú
fengið svamp af ýmsum gerðum og stærðum.
Nýlega hól Sjðfn framleMu á Bamba bleium
og dðmubindum.
Frá Mjólkursamlagi KEA:
Vantar þig fjolbreytt úrval mjólkurvara?
Þá lærðu vörurnar hjá Mjólkursamlagi KEA.
Sifeilt er verið að fitja upp á einhverju nýju
hjá Mjólkursamlagi KEA og má nefna
drykkjarjðgúrt sem dæmi. Einnig er rétt að
minna á Tropicana Þessi urvals ávaxtasafi er
einmitt framleiddur hjá Mjólkursamlagi KEA,
Þú ættir að
slá á þráðinn!
Það borqar siq!
Söluskrifstofa KEA
Hafnarstræti 91-95
602 Akureyri.