Morgunblaðið - 19.11.1985, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR19. NÓVEMBER1985
53
Kjaramálaályktun Verkamannasambandsþingsins:
Allir sjálfkjörnir í
stjórn og varastjórn
ALLAR tillögur kjörnefndar um fulltrúa í stjórn og varastjórn Verka-
mannasambands Islands voru samþykktar mótatkvæóalaust á 12. þingi
sambandsins um helgina. Þriggja manna kjörnefnd var önnum kafin
allan þingtímann við að stilla upp lista um stjórnarmenn og var talsvert
fyrir því haft að koma í veg fyrir að innbyrðis deilur landssambanda
og fjórðungssambanda leiddu til kosninga um cinstaka menn. Guðmund-
ur J. Guðmundsson formaður Dagsbrúnar var endurkjörinn formaður
til næstu tveggja ára, Karl Steinar Guðnason formaður Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur var endurkjörinn varaformaður, Ragna Berg-
mann formaður Framsóknar í Reykjavík var endurkjörin ritari og Jón
Kjartansson formaður Verkalýðsfélags Vestmannaeyja var endurkjörinn
gjaldkeri sambs.ndsstjórnarinnar.
í sambandsstjórnina var að
auki kosinn 21 fulltrúi, þar af
fimm nýir. Hinir nýju eru Haf-
þór Rósmundsson í Vöku á Siglu-
firði, sem tekur sæti Kolbeins
Friðbjarnarsonar formanns fé-
lagsins, Hrafnkell Jónsson for-
maður Árvakurs á Eskifirði tek-
ur sæti Sigurðar Hannessonar
fyrrum formanns Jökuls á Höfn,
Sigrún Clausen frá Akranesi
færðist úr varastjórn í aðal-
stjórn, Sigurður óskarsson for-
maður Alþýðusambands Suður-
lands tekur sæti Hilmars Jóns-
sonar fyrrum formanns verka-
lýðsfélagsins á Hellu og Sævar
Frímannsson í Einingu á Akur-
eyri tekur sæti Jóns Helgasonar
formanns Einingar.
Aðrir sambandsstjórnarmenn
voru endurkjörnir en það eru:
Aðalheiður Þorleifsdóttir Akur-
eyri, Dagbjört Sigurðardóttir
Stokkseyri, Einar Karlsson
Stykkishólmi, Elína Hallgríms-
dóttir Reykjavík, Guðríður El-
íasdóttir Hafnarfirði, Guðrún
Ólafsdóttir Keflavík, Guðmund-
ur J. Hallvarðsson Reykjavík,
Halldór Björnsson Reykjavík,
Hallgrímur Pétursson Hafnar-
firði, Jóhanna Friðriksdóttir
Vestmannaeyjum, Jón Karlsson
Sauðárkróki, Kristján Ásgeirs-
son Húsavík, Páll Jónsson Vík,
Pétur Sigurðsson ísafirði, Sig-
finnur Karlsson Neskaupstað og
Sigrún Elíasdóttir Andakíl.
Varamenn í sambandsstjórn-
ina voru kosin þau Þorbjörg
Samúelsdóttir Hafnarfirði, Kar-
ítas Pálsdóttir ísafirði, Hall-
steinn Friðþjófsson Seyðisfirði,
Garðar Steingrímsson Reykja-
vík, Jóhann Möller Siglufirði,
Anna María Hafsteinsdóttir
Sauðárkróki, Bárður Jensson ól-
afsvík, Helga Jóhannesdóttir
Stöðvarfirði og Matthildur Sig-
urjónsdóttir Akureyri. Þau fjög-
ur síðastnefndu eru ný í vara-
stjórninni.
Endurskoðendur sambandsins
voru einnig endurkjörnir en það
eru þau Benedikt Franklínsson
Selfossi og Snjólaug Kristins-
dóttir Reykjavík. Varaendur-
skoðandi er Sæmundur Valdi-
marsson Reykjavík.
Hin eiginlega valdastofnun
Verkamannasambandsins er
framkvæmdastjórn þess. f hana
eru sjálfkjörin formaður, vara-
formaður, ritari og gjaldkeri en
síðan kýs sambandsstjórnin
fimm til viðbótar. Á fyrsta fundi
nýju stjórnarinnar, sem haldinn
var strax að loknum þingstörfum
á sunnudagskvöldið, voru kosin
í framkvæmdastjórnina þau
Guðríður Elíasdóttir, Halldór
Björnsson, Jón Karlsson, Sig-
finnur Karlsson og Sævar Frí-
mannsson. Fram komu einnig
tillögur um þær Sigrúnu Clausen
og Sigrúnu Elíasdóttur en hvor-
ug náði kosningu.
Morgunblaöiö/Emilía
Guðmundur J. Guðmundsson endurkjörinn formaður til næstu tveggja
ára.
Kaupmáttartrygging — en ekki
endilega gamla vísitölukerfið
— fjölskyldur leysast upp og hrekjast á vergang
TILLAGA um að gera kröfu um 22 þúsund króna lágmarkslaun í kom-
andi kjarasamningum var felld með öllum atkvæðum gegn fjórum á þingi
VMSÍ um helgina. Líklega hafa flestir þingfulltrúar hugsað á sama veg
og Guðríður Elíasdóttir, formaður Framtíðarinnar í Hafnarfirði og 2.
varaforseti Alþýðusambandsins, sem sagði í umræðum um kjaramál að
þegar gerðar hefðu verið samþykktir um ákveðna krónutölu „þá höfum
við aldrei náð því fram“
í inngangi ályktunarinnar
segir: „Mikil umskipti hafa átt
sér stað í afkomu almennings
undanfarin þrjú ár. Annars veg-
ar hefur samningsbundinn kaup-
f kjaramálaályktuninni, sem
samþykkt var eftir miklar um-
ræður, segir meðal annars:
„Verkamannasambandið gerir
kröfur um kaupmáttartryggingu
og bætt lífskjör og er reiðubúið
til viðræðu um nýjan kjarasamn-
ing án þess að gera kröfur um
að gamla vísitölukerfið verði
aftur upp tekið. Ástand, þar sem
allt er í reynd verðtryggt nema
vinnulaun, verður ekki þolað.
Aukning og trygging kaup-
máttar er krafa okkar og til þess
að svo geti orðið þarf ríkisstjórn-
in að gerast ábyrgðaraðili að
samningunum. Óþolandi er að
hið opinbera gangi á undan í
verðhækkunum, eins og tíðkast
hefur um árabil.“
Auk kaupmáttartryggingar-
innar verður meginkrafa Verka-
mannasambandsins í komandi
kjarasamningum að miða við að
ná meðalkaupmætti ársins 1983
en í síðari áföngum verði náð
kaupmætti ársins 1980. Gert er
ráð fyrir að launastiganum verði
breytt þannig, að mestar hækk-
anir verði á lægstu töxtunum,
framfylgt verði lögum um launa-
jafnrétti karla og kvenna og
gerðar verða þær kröfur til ríkis-
valdsins, „að það gangi milli bols
og höfuðs á okurlánamarkaðnum
og komi skipulagi og eftirliti á
„frjálsa" peningamarkaðinn".
Um kröfugerð segir ennfremur
að almennt þurfi að lækka vexti
frá því sem nú sé og setja á stig-
hækkandi eignaskatt, afnema
beri aila gjaldtöku á sjúklinga
og leggja niður sjúkratrygginga-
gjald, sérstakt átak verði gert í
þágu aldraðra, afnema beri
tekjuskatt af almennum launa-
tekjum, gera þurfi verulegt,
sameiginlegt átak i húsnæðis-
málum með aukningu félagslegra
íbúðabygginga og ráðstafanir
þurfi að gera til að bjarga tekju-
lágu fólki, sem nú sé að missa
íbúðir sínar vegna óhagkvæmra
lána og hárra vaxta og gerð er
krafa um að opinberir aðilar
leggi fram mun meira fé til
stofnunar og rekstrar barna-
heimila.
MorjjunbladiÖ/Emilía
Austfirðingarnir fylgjast með umræðum. Flutningsmaður tillögunnar um
uppsögn bónussamninga, Hrafnkell A. Jónsson, er lengst til hægri.
Bónussamningum sagt
upp fyrir 1. desember
„Hlutdrægni“
sjónvarpsins
mótmælt
FRETTASTTOFA sjónvarpsins
naut ekki mikilla vinsælda á
þingi VMSÍ um helgina. Þingið
samþykkti samhljóða ályktun-
artillögu frá Hreini Erlends-
syni, formanni Þórs á Selfossi,
þar sem harðlega er mótmæít
„hlutdrægri frásögn sjónvarps-
ins af störfum þingsins", eins
ogþað er orðað.
I ályktuninni segir enn-
fremur: „I aðalfréttatíma
sjónvarpsins á laugardags-
kveldið var meginfrásögn frá
störfum þingsins viðtðl við
tvo talsmenn atvinnurek-
enda, sem boðið var að halda
fyrirlestra á þinginu, og í
fréttayfirliti í dagskrárlok
var sú frásögn ein frá þing-
inu, að annar þeirra atvinnu-
rekenda teldi að vinnusvik
hefðu aukist í fiskiðnaði en
væru þó meiri í öðrum at-
vinnugreinum."
Ásamt Hreini stóðu að til-
lögunni þau Ingibjörg Sig-
tryggsdóttir úr Þór, Dagbjört
Sigurðardóttir formaður
Bjarma og Vestmanneying-
arnir Jóhanna Friðriksdóttir
og Jón Kjartansson.
máttur launa rýrnað um 30% og
er nú sá lægsti um áratuga skeið.
Vegna þessara lélegu lífskjara
hefur atvinnuþátttaka kvenna og
barna farið vaxandi um leið og
vinnutími almennt hefur lengst.
Er nú svo komið, að íslenskt
verkafólk býr í senn við einhver
lélegustu launakjör (lífskjör) og
mesta atvinnuþátttöku allra
þjóða á norðurhveli jarðar.
Rangsnúið húsnæðismálakerfi
og allt of háir vextir gera fólki
ómögulegt að koma sér þaki yfir
höfuðið og þeir, sem það reyna,
hrekjast á vergang fyrr en síðar.
Við blasir hörmuleg mynd, þar
sem fjölskyldur leysast upp og
heimili eru eyðilögð.
Á hinn bóginn er það hinn
hluti þjóðarinnar — lúxusstéttin
— sem á valdatíma núverandi
ríkisstjórnar hefur fengið frelsi
til að ákveða kjör sín sjálf, án
þess að vera bundin á klafa
fastra samninga.
Skattaívilnanir og skattsvik,
frjálst verðlag og okurlán ein-
kenna veröld þessarar nýju stétt-
ar. En á sama tíma sér þjóðin
fram á nýtt aflamet og útflutn-
ingsverðlag er hátt. Andstæður
í lífskjörum þjóðarinnar eru
hrikalegri en um margra áratuga
skeið. Þessum ójöfnuði verður að
linna."
í lok kjaramálaályktunar
Verkamannasambandsþings er
heitið á allt verkafólk að standa
þétt að baki stéttarfélögum sín-
um í komandi samningum og
treysta stöðu þeirra. Verkalýðs-
félögin „eru okkar vopn og þau
geta bitið sárt ef vel er brýnt",
segir í ályktuninni.
Enginn fögnuður yfir
áformum um útvarpsstöð
UMRÆÐUR og deilur um bónus-
samninga, sem svo mjög hefur
borið á undanfarnar vikur, fóru
ekki hátt á þingi Verkamannasam-
bandsins í Reykjavík um helgina.
í kjaramálaumræðunni kom
m.a. fram í máli Guðmundar J.
Guðmundssonar formanns sam-
bandsins, að samkomulag hefði
verið gert um að gera ekki mikið
úr ágreiningi um þau mál á þing-
inu og í raun var ekki mikið talað
um bónussamninga eftir að
þeirra var getið í umræðum um
skýrslu stjórnar í upphafi þings-
ins.
Þingið samþykkti hinsvegar
samhljóða tillögu frá Hrafnkeli
A. Jónssyni, formanni Árvakurs
á Eskifirði, þar sem því er „beint
til aðildarfélaga að segja upp
gildandi bónussamningum ekki
síðar en 1. des. nk., þannig að
samningar verði lausir ekki síðar
en 1. júlí 1986. Felur þingið fram-
kvæmdastjórn að beita sér fyrir
samræmdri kröfugerð og samn-
ingaviðræðum á heildargrund-
velli," eins og segir í samþykkt-
inni.
Þar segir einnig, að megin-
markmið komandi bónussamn-
inga verði að „breyta hlutfalli
fastakaups og bónusálags á þann
veg, að fastakaupið verði stór-
aukinn hluti heildarlauna“.
„VIÐ SEM búum á landsbyggðinni
lifum á fiski og aftur fiski. Við
lifum hvorki á sjónvarpi né blöðum.
Ef við ættum að geta fylgst með
öllum fjölmiðlum þá þyrftum við
einfaldlega að hætta að vinna,“
sagði Daði Guðmundsson, varafor-
maður Verkalýðs- og sjómannafé-
lags Bolungarvíkur, í umræðum um
fræðslumál á þingi VMSÍ.
Daði var ásamt mörgum öðr-
um andvígur klausu í áliti
fræðslunefndar þingsins, þar
sem lagt var til að lýst væri yfir
fögnuði yfir fyrirætlunum verka-
lýðssamtakanna um rekstur út-
varpsstöðvar og bent á mikilvægi
þess að nýta þá starfsemi til
upplýsinga og fræðslu innan
verkalýðshreyfingarinnar. í af-
greiðslu þingsins var þessi
klausa felld út úr ályktuninni.
I samþykkt um fræðslumál er
hvatt til áframhaldandi erind-
rekstrar sambandsins og frekari
uppbyggingar og eflingar trún-
aðarmannakerfis aðildarfélag-
anna. Fagnað er áætlunum um
starfsmenntunarnámskeið fisk-
vinnslufólks og því lýst yfir að
hefja verði markvissa fullorðins-
fræðslu og kynningu til þeirra,
sem koma nýir út á vinnumark-
aðinn. Þá styður þingið fyrir-
huguð námskeið fyrir heima-
vinnandi húsmæður er hyggja á
vinnu utan heimilis og telur að
hér sé um merkt framtak að
ræða, eins og segir í ályktuninni.
Málefni Félagsmálaskóla al-
þýðu bar nokkuð á góma og kom
fram í máli manna að þeir hefðu
áhyggjur af hve illa námskeið
skólans væru sótt. Var því ítrek-
uð áskorun til aðildarfélaganna
um að sem flestir félagsmenn
sæktu félagsmálaskólann og
sambandið hvatt til að styrkja
minnstu félögin til þátttöku í
honum. Þá var framkvæmda-
stjórn sambandsins hvatt til að
„gefa fleirum tækifæri en verið
hefur til að sækja ráðstefnur og
námskeið, sem haldin eru í er-
lendu samstarfi".