Morgunblaðið - 19.11.1985, Síða 52

Morgunblaðið - 19.11.1985, Síða 52
Tll DAGIIGRA NOTA V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 35 KR. íslenzka skipafélagið kaupir eignir Hafskips: Vörn gegn erlendum kröfu- höfum — greiðslustöðvun Kyrrsetning skipa í erlendum höfnum hefur vofað yfir. Aætlunum breytt af þeim sökum NÝTT SKIPAFÉLAG, fslenzka skipafélagið hf., var stofnað í fyrradag og skráð í gærmorgun. Keypti félagið skip og aðrar eignir sem tilheyra íslands- rekstri Hafskips hf. og fékk Hafskip hf. greiðslustöðvun til þriggja mánaða frá og með deginum í gær. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Morgun- blaðsins er fyrirtækið stofnað til þess að forða því að erlendir kröfuhafar á Hafskip geti gengið að eigum fyrirtækisins, en kyrrsetning skipa Hafskips f erlendum höfnum hefur vofað yfir skipum félagsins síðustu daga. Mikill fréttaflutningur að und- anförnu um fjárhagsstöðu Haf- skips hefur gert það að verkum að erlendir kröfuhafar hafa ókyrrst verulega og hafa stjórn- endur Hafskips og Utvegsbankans því óttast að almennar kröfur þeirra yrðu að forgangskröfum, ef um kyrrsetningu skipanna yrði að ræða. Nýja félagið hefur því yfir- tekið fslandsrekstur Hafskips og skuldbindingar félagsins. Stofnun þessa fyrirtækis, sem viðmælend- ur Morgunblaðsins hafa nefnt „pappírsfyrirtæki" gerir það að verkum að ekki er hægt að ganga að eigum fyrirtækisins. „tltvegsbankanum voru kynnt þessi viðhorf nú um helgina og þetta var gert í samráði við bank- ann. Við erum með stofnun þessa fyrirtækis að búa í haginn fyrir þá starfsemi, sem vonandi nást samningar um að hefjist í sam- vinnu við SÍS, síðar í þessari viku,“ sagði Ragnar Kjartansson, stjórn- arformaður Hafskips hf., þegar blaðamaður Morgunblaðsins spurði hann í gær hvað lægi að baki stofnun þessa nýja félags. Ragnar sagði að það hefði bráðleg- ið á að stofna nýtt félag, þar til samningar hefðu tekist um fram- tíðarskipan mála. Hann sagði að Fékk 1350 þús. í Getraunum „ÞETTA er ótrúlegt og ég trúi þessu varla enn,“ sagði Marjan Zak, Júgóslavíu, sem búið hefur á Islandi í átta ár, skömmu eftir að honum var tilkynnt að hann hefði unnið 1.350 þúsund krónur í íslenzku getraununum í gær. Þessi vinningur er sá hæsti, sem einstaklingur hefur unnið í get- raunum hérlendis. Sjá nánar á íþróttasíðum á B1 og B12. _____________ Marian Zak. Marcelo Houseman í búningi KR. Argentínu- menn í KR Argentínumennirnir Rene og Marcelo Houseman hafa gert samning við Knattspyrnudeild KR. Munu þeir leika með félag- inu næsta sumar og einnig þjálfa yngri knattspyrnuflokka KR. Báðir hafa þeir leikið 1 landsliði Argentfnu og Rene er einn af heimsmeisturunum frá 1978. þeir erfiðleikar sem skip Hafskips hafa lent í erlendis að undanförnu spiluðu þarna inn í. Meðal annars hefðu stjórnendur fyrirtækisins þurft að gera lítilsháttar breyting- ar á áætlun skipanna. Ragnar sagði að ekki væri hægt að upplýsa hversu mikið hlutafé væri í nýja félaginu, né á hvað eigur Hafskips hefðu verið seldar. Stofnendur Islenzka skipafé- lagsins eru Sveinn R. Eyjólfsson, Páll G. Jónsson, Hörður Einars- son, Jón G. Zoéga og ólafur B. Ólafsson. Framkvæmdastjóri fé- lagsins er Þórður H. Hilmarsson. Stofnendur nýja félagsins og stjórn Hafskips munu á næstu dögum standa í samningaviðræð- um við fulltrúa SÍS um hugsanlega sameiningu íslenzka skipafélags- ins og Skipadeildar Sambandsins samkvæmt því sem Ragnar upp- lýsti. Valur Arnþórsson, stjórnar- formaður Sambandsins, sagði í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins í gær að hann ætti von á því að þetta mál yrði kynnt á sambandsstjórnarfundi í dag, en hann taldi ólíklegt að niðurstaða fengist í dag. Þó sagði hann að niðurstaða yrði að liggja fyrir innan fárra daga. „Andinn um borð er nú svona og svona. Menn eru auðvitað ekk- ert hressir með þá óvissu sem ríkir í málefnum félagsins, en allir vonum við að þetta fari vel,“ sagði óskar Gíslason skipstjóri á Skaftá, einu flutningaskipa íslenzka skipafélagsins hf., þegar blaða- maður hafði samband við hann í gærkvöldi en skipið var þá að nálg- ast Elbu á leið frá Islandi til Hamborgar. Óskar sagði að áætlun Skaftár hefði ekki verið breytt og þeir ekki orðið fyrir neinum töfum síðustu daga vegna erfiðleika fé- lagsins. Þegar haft var samband við óskar í gærkvöldi vissi hann ekki um hvað gerst hafði í málefn- um Hafskips í gær, m.a. að hann væri farinn að vinna hjá nýju fyrirtæki. Hann sagðist eiga að hafa samband heim í dag og fengju þeir þá nánari fréttir af málunum. Björgunarsveitarmenn viA leit (höfninni (Vestmannaeyjum. 23 ára maður drukknar í Vestmannaeyjahöfn Lík 23 ára skipverja, sem féll í Vestmannaeyjahöfn aöfaranótt mánu- dags, fannst um miðjan dag í gær. Maðurinn mun hafa verið á leið i skip sitt, sem lá í Friðarhöfn, þegar hann féll í höfnina. Hjálparsveit skáta og björgunarsveit Slysavarnafélagsins hófu leit um þrjúleytið um nóttina. Lík mannsins fannst síðan um hálfþrjú leytið í gær. Ekki er hægt að skýra frá nafni hins látna að svo stöddu. Selur Akureyri hlut sinn í Landsvirkjun? Tillaga fyrir bæjarstjórn um að kanna möguleika á því SIGURÐUR J. Sigurðsson, Sjálf- stæðisflokki, leggur í dag fram til- lögu í bæjarstjórn Akureyrar þess 33 eignir á Suðurnesjum seldar á uppboðum í ár Stærstu málin gjaldþrot tveggja fiskvinnslufyrirtækja og Víkurbæjar ÞAÐ SEM af er árinu hafa 33 eignir verið seldar á nauðungaruppboðum á Suðurnesjum. Stærstu málin eru gjaldþrot tveggja fiskvinnslufyrir- tækja og verslunarinnar Víkurbæjar. Þrjár eignir voru seldar þegar fi.sk- vinnslufyrirtækið Heimir hf. í Kefla- vík var gert upp og fjórar eignir físk- vinnslufyrirtækisins Suðurnes hf. ( Garði; tvö fískverkunarhús og tvö einbýlishús eigenda. Allt árið í fyrra voru 15 eignir seldar á nauðungar- uppboðum á Suðurnesjum. Seldar hafa verið eignir í Keflavík og Njarð- víkum, Grindavík, Garði, Vogum og Sandgerði. „Erfiðleikar steðja að Suður- nesjum og aðeins er seldur lítill hluti eigna, sem auglýstur er á nauðungaruppboðum. Við auglýs- um á milli 30 og 40 nauðungarupp- boð í viku hverri," sagði Jón Ey- steinsson, bæjarfógeti í Keflavik og sýslumaður Gullbringusýslu, í samtali við Morgunblaðið. Jón sagði, að flestar eignir ein- staklinga, sem seldar hefðu verið, væru lélegar, kjallarar og hús í niðurníðslu. Hús í byggingu eða nýleg hefðu ekki verið seld, þó vandi húsbyggjenda væri áreiðan- lega mikill. Þá sagði hann, að ýmis þjónustufyrirtæki hefðu farið illa út úr erfiðleikum sjávarútvegs- fyrirtækja. efnis, að bæjarráði verði falið að kanna möguleika á að selja sam- eignaraðilum Akureyrarbæjar í Landsvirkjun, eða öðrum, eignar- hluta bæjarins ( Landsvirkjun. Þetta verði gert með það í huga að fjár- magn sem bundið er í eignarhluta bæjarins verði fíutt til Hitaveitu Akureyrar sem eigið fjárframlag Akureyrarbæjar í það orkufyrirtæki. „Mín hugmynd er fyrst og fremst sú, að þessi möguleiki verði skoðaður í sambandi við ýmis vandamál Hitaveitu Akureyrar. Skuldir hennar nú eru yfir 1700 milljónir króna og þarna gæti verið um skynsamlega lausn að ræða,“ sagði Sigurður í samtali við Morgunblaðið í dag. Eignarhluti Akureyrarbæjar í Landsvirkjun er 4,475%, en Sig- urður sagði málið engan veginn það langt komið, að hægt væri að gera sér hugmynd um hver hugs- anlegur kaupandi yrði. Ríkið á 50% í fyrirtækinu og Reykjavíkur- borg 44,525%. Sigurður sagðist halda menn sammála um að gjaldskrá Hita- veitu Akureyrar væri á því stigi að „frekar verði ekki stigið skref til hækkunar á henni. Tekjur Hita- veitunnar af orkugjöldum nú duga fyrir fjármagns- og rekstrarkostn- aði — en á hverju ári i þau 10 ár síðan fyrirtækið var stofnað hefur þurft að taka viðbótarlán vegna framkvæmda; til að fyrirtækið gæti staðið við skuldbindingar sínar." Sigurður sagði ljóst, að yrði ekkert gert fljótlega til lausnar vanda Hitaveitunnar þyrftu bæj- arbúar að búa við hátt orkuverð um langa framtíð. „Það gæti haft slæm áhrif á búsetuskilyrði hér í bænum og eru það meginrökin fyrir tillögunni. Það er skylda bæjarstjórnar að leita lausnar á vandanum." Aðspurður sagði Sigurður ót- ímabært að nefna nokkra tölu um hugsanlegt söluverð Akureyrar- bæjar í Landsvirkjun, en þess má geta að eigið fé fyrirtækisins var 9 milljarðar um síðustu áramót.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.