Morgunblaðið - 14.02.1986, Qupperneq 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
FÖSTUDAGUR14. FEBRÚAR 1986
BLAÐ
Útvarp og sjónvarp næstu viku 8/10
Barnadauði2/3
Neytendamál 4/5 Linsur4/5 Heimilishorn 4/5
Búðahnupl 11/13
Medau-kerfið 6/7
Hvað er að gerast um helgina 14/15
MEDAU-
KERFIÐ
Morjfunblaðið/Ámi Sæberg
BÚÐA
HNUPL
Búðahnupl er sú tegund vörurýrnunar
sem við fræðumst um í dag í grein
þar sem rætt er við ýmsa aðila sem
málinu tengjast og reynt að gera grein
fyrir stöðu þessara mála í dag. Tals-
verð aukning hefur orðið á tilkynn-
ingum um hnupl til lögreglunnar í
Reykjavík á undanförnum árum og
var tilkynnt um hátt á annað hundrað
slík tilvik 1985. Það kann að virðast
mikið, en vex þó enn þar sem talið
er að um 10% alls búðahnupls í borg-
inni sé tilkynnt og þar fyrir utan getur
ein tilkynning komið upp um talsvert
fleiri stuldi framkvæmda sama dag-
inn. Öryggismál og viðhorf verslunar-
manna til málsins eru með í dæminu,
auk þess sem við ræðum við geðlækni
um þann þátt hnuplsins sem hefur
allnokkra sérstöðu í þessu máli —
stelsýki. Nánar um málið á innsíðum.
11B
DAUÐINN
SÉÐURMEÐ
BARNSAUGUM
„Fólk deyr, erþaö
ekki mamma?" Vafa-
litiÖ hafa margar
mceöur þurft aö svara
börnum sínum s/ík-
um spurningum, en
viöhorfbarna til
dauðans ogskilning-
ur er til umfjöllunar
i dag og er þá bœöi
um að rceöa viöhorf
til eigin dauða og
annarra. Nánar um
þaÖ.
Líkamsrækt og slökun í
takt við tónlist er ekkert
nýmæli, en eftir sem
áður ætlum við að segja
í dag frá einu slíku lík-
amsræktarkerfi, Med-
au-kerfinu, sem var sett
saman snemma á þess-
ari öld. Svo er bara að
koma sér í form án þess
að það taki á taugarnar.
AUGNLINSUR
Fyrir skemmstu fjölluðum
við um sjónheilsu og augn-
sjúkdóma hér í blaðinu, í
viðtali við Ólaf Grétar
Guðmundsson, augnlækni.
f framhaldi af þeirri um-
fjöllun birtum við í dag
greinarstúf um augnlinsur,
þar sem fram koma ýmsar
efasemdir um ágæti þeirra.