Morgunblaðið - 14.02.1986, Page 4

Morgunblaðið - 14.02.1986, Page 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR14. FEBRÚAR1986 Umsjón/Sigurður Sigurðarson Að undanfömu hefur nokk- uð borið á þvi að hugtakið „útsala" sé misnotað í verslunum á höfuðborgarsvæð- inu. Um er að ræöa auglýsingu um útsölu, sem þegar á reynir er engin útsala heldur minni hátt- ar verðlækkun, verðlækkun á mjög fáum vörum í verslun og ósönn lækkun á vöruverði. Þess skal þó getið að hér er um að ræða undantekningar sem ber að varast. Nefna má að í stórmarkaðnum Miklagarði var í síðustu viku boðið upp á útsölu á þvottavélum að gerðinni „Zerovatt 5304". Fram kom að útsöluverðið var kr. 19.995 miðað við stað- greiðslu, en 21.998 kr. miðað við afborgunarkjör. Ekki 1<om fram hvert var hið upprunalega verð þvottavélarinnar. Starfsfólki verslunarinnar var jafnvel ókunn- ugt um gamla verðið. Atvikið var tilkynnt til Neytendasamtakanna og fóru fulltrúar þeirra á staðinn og gaf verslunarstjóri umbeðinn þær upplýsingar að upprunalegt verð þvottavélarinnar hafi verið kr. 21.995 kr. Ljóst er að hér er aðeins boöið upp á 9% afslátt og er það dómur margra að sá afsláttur sé of lítill til að Mikligarður geti kynnt hann sem útsölu. í lögum segir aö auglýsa megi „útsölu eða aöra sölu, þar sem selt er á lækkuðu verði" verði að vera um „raun- verulega verðlækkun að ræða". Forráðamenn Miklagarðs urðu við kröfu fulltrúa Neytendasam- takanna og fjarlægðu tilkynningu um útsölu á áðurnefndri þvotta- vél. í könnun sem Neytendafélag Reykjavíkur og nágrennis gerði í síðustu viku kom í Ijós að víðast var pottur brotinn hvað varðar verðmerkingar á útsölum á höf- uðborgarsvæðinu. Eina verslunin sem könnuö var og reyndist hafa verðmerkingar sínar í góðu lagi, innandyra jafnt sem í verslunar- gluggum, var verslunin Hagkaup í Lækjargötu. Þar var hvort tveggja getið um upprunalegt verð sem og útsöluverð. Astæða er til þess að vara neytendur við verslunum sem verðmerkja vörur sínar illa, og er hér hvort tveggja átt við vörur í sýningargluggum sem og innan dyra. Víða eru útsölur verslana mjög fátæklegar og Ijóst að útsalan stendur engan veginn undir nafni. Oft eru mjög áberandi auglýsingar í verslunargluggum um ríflegan útsöluafslátt. Þegar inn er komið er útsalan ansi fá- tækleg, aðeins ein hilla, eða einmana skógrind úti í horni. Sem dæmi um verslanir sem buðu í síðustu viku upp á álíka lélega útsölu er Skóverslun Kópavogs. Á öllum þeim vörum sem kannaðar voru reyndist vanta upprunalegt verð. Með öllu ólöglegt er að hækka verð á vöru áður en hún er sett á útsölu. Neytendasamtökunum berast ætíð kvartanir um slíkt, án þess þó að neytendur hafi í höndunum beinar sannanir um að útsöluverðið sé mjög svipað og það var nokkrum dögum eða vikum áður. Skipti eru ekki sjálfsögð Þær verslanir fyrirfinnast sem heimila að ógallaðri vöru sé skipt í staðan fyrir sams- konar. Einkum er hér um að ræða fatnað, sem við nánari athugun passar ekki kaupandan- um eða þeim sem fötin voru ætluð. Engin lög skylda verslanir til þessa, heldur má þetta flokk- ast undir þjónustu verslana, sem þó er engan vegin sjálfsögð. Það er ekki hægt að ætlast til þess, að verslanir taki við ógölluðum vörum. Þegar kaup hafa á annað borð farið fram og varan reynist ógölluð er verslunin laus allra mála. Útilokað er fyrir verslun að eiga það yfir höfði sér að þurfa að skipta á vöru af þeirri ástæðu einni, að neytandinn gerði þau mistök að kaupa vöru, sem honum hentaði ekki. Verslun getur ekki borið ábyrgð á mistök- um neytenda, svo framarlega sem vörur verslunarinnar eru hættulausar eða leiðbeiningar á íslensku fylgja notkun þeirra. í mörgum tilfellum er viss kostur í þvi fólginn fyrir verslun, sérstaklega fataverslanir, að gefa kaupendum kost á skiptum. Slíkt getur örvað viðskipti, komið til móts við þarfir neytenda og aflað versluninni velvildar. Sé hins vegar galli á vörunni ber versluninni annað hvort að bæta gallann með annarri vöru sambærilegri eða endurgreiða vöruna. í þvi tilfelli er það sjálf- sögð skylda neytandans að skila vörunni jafnskjótt og uppvíst verður um gallann. Setjum upp dæmi til úrlausn- ar. Maður nokkur kaupir úlpu handa syni sínum. Áður en hann festir kaup á úlpunni spyr hann verslunarmanninn, hvort honum sé heimilt að skila úlpunni og fá nýja reynist hún ekki mátuleg. Verslunarmaðurinn kveður það velkomið, enda slíkt ekki óal- gengt. Nokkru síðar kemur maðurinn aftur í búðina, biður um að fá stærri úlpu í skiptum. Stærri úlpa er ekki fáanleg, og það sem meira er, úlpurnar eru komnar á útsölu og hafa lækkað í verði um helming. Verslunar- maðurinn býður þá endur- greiðslu á útsöluverði. Hver skyldi vera réttur neytandans í þessu tilviki? „Útsölu eða aðra sölu, þar sem selt er á lækkuðu verði, má því aðeins auglýsa eða tilkynna, að um raunverulega verðlækkun sé að ræða. Þess skal gætt, að greinilegt sé með verðmerkingum, hvert hið upprunalega verð vörunnar var.“ 36. gr. laga nr. 56/1978 um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti. Eiturefni Fyrir 11 mánuðum gaf heil- brigðis- og tryggingaráð- herra út reglur um merkingu nauðsynjavara, sem innihalda eiturefni, hættuleg efni eða önn- ur efni sem geta verið skaðleg heilsu manna. Reglurnar öðluð- ust þá þegar gildi. ( þeim var margt nýmæla og fögnuðu flestir setningu reglanna. Hins vegar hefur þaö nokkuð vafist fyrir heilbrigðisyfirvöldum hvort og hvernig ætti aö framkvæma reglurnar. Enn hafa þessar reglur ekki komist að fullu til fram- kvæmda og verður líklega að bíða þar til svo verður, nema stjórnvöld taki af skarið. í 1. grein reglanna segir: „flát og ytri umbúðir fyrir vörur, sem boðnar eru til sölu eða noktunar og innihalda eiturefni eða hættu- leg efni, skal merkja samkvæmt ákvæðum reglugerða um merk- ingu iláta fyrir hættuleg efni og eiturefni, nr. 479/1977 og 77/ 1983." Sömu kröfur eru gerðar til innlendrar framleiðslu og inn- fluttrar vöru." ( annarri grein segir: „Innflutt- ar vörur, sem innihalda eiturefni eða hættuleg efni og merktar eru með varnaðarorðum/-merkjum á . erlendum tungumálum, skulu jafnframt merktar á íslensku ...“ Að auki er í reglunum kveðið á um að árita skuli notkunarregl- ur og nauösynlegar leiðbeiningar um hvað gera skuli, ef slys eða eitrun af völdum efnisins ber að höndum. Þrátt fyrir að svo langur tími sé liðinn frá setningu þessarar reglugerðar, bólar ekkert á því að henni sé framfylgt. Veldur þar mestu um sá kostnaður sem samfara er merkingu eiturefna. Verður það þó að teljast minni- háttar miðað við þá hættu sem getur stafað af misnotkun þess- ara efna. i reglugerð þessari segir að vörur sem innihalda eiturefni eöa hættuleg efni og boðnar eru til sölu en eru vanmerktar, skulu merktar samkvæmt ákvæðum íslenskra laga. Hér er um fortaks- laust ákvæöi að ræða og með tilliti til tíðra slysa á börnum, sem neytt hafa algengra efna á borð við þvottaefni, þá er Ijóst að úr- bóta er þörf. Fyrsta ráðið er þó að geyma ekki hættuleg efni í seilingarfjarlægð barna. í eftir nokkur ár, en „cologne" eða steinkvatn (eau de toilette) er ekki ráðlegt að geyma lengur en 1—2 áróopnað. Lítið og handhœgt Sparitöskur eru oftast ekki eins stórar og þær sem notaðar eru dags daglega og því ekki hægt að vera nema með fáa hluti í þeim. Lítið snyrtihylki, þar sem allt er í sem að snyrtingu lýtur, er komið á markað erlendis. Þess verður sjálfsagt ekki lengi að bíða að slíkir gripir verði fluttir inn af einhverjum framtakssömum að- ila. En í þessu litla hylki eru vara- litur, augnskuggar, „liner", augn- háralitur og kinnalitur. Utan á er lítill spegill til að nota við eftirlitið, þ.e. til að sjá hvort allt er eins og það á að vera í andlitinu. Er ekki að efa að hylki, eins og það sem hér sést á mynd, er afar handhægt ekki síst fyrir þær, sem vilja vera viðbúnar því að hressa upp á andlitssnyrtinguna, Heimilishom Bergljót Ingólfsdóttir Sitt lítið Brún meðalaglös Brún meöalaglös með skrúf- uðu loki, eru hinar bestu umbúðir fyrir krydd og kryddjurtir. Brúni liturinn gerir það að verkum að Ijós kemst ekki að og ilmur og bragð helst því vel. Glösin þarf að sjálfsögðu að þvo vel, og fjar- lægja miöann, nýr miði með upplýsingum um innihaldið síðan settur á. af hvoru Ilmvatnið geymt llmvatn er mikið keypt til gjafa, það er eitt af því sem allar konur hafa ánægju af að fá. Ef svo hefur viljað til að fleiri en eitt glas hefur borist í jóla- eða afmælis- gjöf er best að nota aðeins eitt í einu, Ijúka við hvert fyrir sig áður en það næsta er opnað. Ilm- vatnsglös er best að geyma lok- uð, eins og þau komu frá fram- leiðanda, i öskjunni, á fremur köldum og dimmum stað. Kæli- skápur er of kaldur en það mætti miða við „svefnherbergishita- stig". Hreint ilmvatn, sem ekki hefur verið opnað, getur verið jafngott ef eitthvað hefur farið úrskeiðis á miðju kvöldi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.