Morgunblaðið - 13.03.1986, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR13. MARZ1986
Hefurðu prófað
*
C
hebetlo
hársnyrtivörurnar?
HOLLENSKAR GÆÐAVORURÁ GÓÐÚ VERÐI
Milt
VÍ0TÖ35 ShclTTl1 OOO
serri nota má daglega
Hárnæring
Barnashampoo
ertir ekki augun
Heildsölubirgðir:
VILHJÁLMSSOW SF., Sundaborg 1, sími: 631814
Georg Oddner við eina mynda sinna. Morgunbiaðíö/RAX
Norræna húsid:
Þar sem fagmennirnir
versla
erþéróhætt
KÓPAVOGI
BVICCl slmi 41000
HAFNARFIRÐI
símar 54411 og 52870
Úrvalið með allra mesta móti.
Réttu efnin og verkfærin einfalda flísalagninguna.
Það er allt á einum stað - í BYKO.
FLÍSAR
- á veggi og gólf,
inn,
Georg Oddner með
lj ósmyndasýningn
NÚ STENDUR yfir í Norræna
húsinu sýning sænska ljósmynd-
arans Georgs Oddner. Hér er á
ferðinni farandsýning, sem Lou-
isiana-safnið efndi til msð stuðn-
ingi frá Norræna menningar-
málasjóðnum.
Georg Oddner er einn af þekkt-
ustu ljósmyndurum á Norðurlönd-
um og spannar sýningin þrjátíu ár
af ferli hans, elstu myndimar eru
frá 1955 ogþæryngstu frá 1985.
Oddner er 63 ára gamall. Hann
hefur ferðast vítt og breitt um
heiminn síðan hann snéri sér að |jós-
myndun árið 1951. Á sýningunni í
Louisiana-safninu vom u.þ.b. 140
ljósmyndir en þær komust ekki allar
fyrir í Norræna húsinu. George
Oddner kom sjálfur til landsins til
þess að velja úr myndunum og setja
þærupp.
„Ég hef ekki talið myndimar hér
en þama eru 625,“ segir ljósmynd-
arinn og bendir á samsafn lítilla
mynda sem gera eitt stórt safnverk,
stærstu mynd sýningarinnar.
Þegar sýningunni lýkur hér 23.
mars nk. mun hún fara áfram um
Norðurlöndin, fyrst til Færeyja og
síðan til Finnlands og Svíþjóðar.
Sýningin er opin á venjulegum
opnunartíma Norræna hússins, kl.
9—19 alla daga nema sunnudaga,
þá frá kl. 12 til 19. Henni lýkur
23. mars eins og áður sagði.
Atvlnnulauslr: —1
SV*ÐI: 1982 1983 1984 1985 1986 1
I Höfuöborgarsvaóiö 341 667 914 402 363 I
I Vesturland 126 112 136 114 72 I
I Vestfiröir 13 21 31 38 14 I
[ Noröurland vestra 45 174 216 87 108 I
I Noróurland eystra 166 294 543 208 192 I
I Austurland 53 89 176 77 69 1
I Suöurland 60 162 198 201 153 I
I Suöurnes 141 157 399 252 128 1
1 Landiö allt: 944 1.676 2.606 1.378 1.099 I
1 Atvinnulausir, sem hlutfall af mannafla:
0,9 1,6 2,3 1,2 0,9 1
Betra atvinnuástand í
febrúar en 3 síðustu ár
ATVINNIJÁSTAND á landinu
var betra í febrúarmánuði síðast-
liðnum en i sama mánuði síðustu
þijú árin. Alls voru atvinnuleysis-
dagar skráðir 24 þúsund á
landinu öllu. Þetta jafngildir því
að 1100 manns hafi veríð á at-
vinnuleysisskrá allan mánuðinn,
en það svarar til 0,9% af áætluð-
um mannafla á vinnumarkaði
samkvæmt spá Þjóðhagsstofnun-
ar.
í frétt frá Vinnumálaskrifstofu
félgsmálaráðuneytis segir að at-
vinnuleysisdögum hafi fækkað frá
janúarmánuði um 27 þúsund og
atvinnulausum um 1300 manns, en
í þeim mánuði var skráð atvinnu-
leysi 2% af mannafla. í febrúarmán-
uði í fyrra voru skráðir 30 þúsund
atvinnuleysisdagar, sem jafngildir
1400 manns eða 1,2% af mannafla.
Verst var atvinnuástandið á Norð-
urlandi eystra og þá einkum, á
Akureyri og Húsavík, en athygli
vekur einnig mikið atvinnuleysi á
Sauðárkróki í febrúarmánuði. í
fréttinni frá ráðuneytinu segir að í
heildina verði að telja atvinnu-
ástandið viðunandi.
I meðfylgjandi töflu er yfirlit yfír
fjölda atvinnulausra í febrúarmán-
uði 1982-1986.