Morgunblaðið - 13.03.1986, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 13.03.1986, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR13. MARZ1986 Raunsæ ævintýri eftir Armann Kr. Einarsson Þessa bók verður þú að lesa. Er hún svona „spennó"? Þú átt við að hún sé skemmtileg, sagði afí og brosti. Já, já, auðvitað, svaraði dóttur- dóttirin svolítið óþolinmóð. Bókin er ekki einungis skemmti- leg, héit afí áfram, heldur er hún líka hafsjór af fróðleik. Hvað er hafsjór af fróðleik? Þetta er huglæg merking, svar- aði afí íhugandi, og þýðir geysimik- ill fróðleikur. Getur það verið um hvað sem er? Já, um allt milli himins og jarðar. Um borðtennis? Aha, ég er nú hræddur um það, sagði afi glaðbeittur. Þetta er samt ekki bók um íþróttir, heldur raunsæ ævintýri úr sveitinni, saga um leiki og störf, húsdýrin og margt, margt fleira. Gaman, gaman, hrópaði dóttur- dóttirin. Eg fékk að ríða Skjóna þegar ég var í sveitinni hjá Nonna frænda. Og Kolur var svo skemmti- legur og elti mig hvert sem ég fór. Gott hjá þér, sagði afí og það var ánægjuhreimur í röddinni. Þú veist greinilega hvaða skepnur eru kölluð húsdýr. Ég hlakka til að lesa bókina. Þú verður ekki svikin _ af því, svaraði afí með áherslu. Áreiðan- lega verðurðu margs vísari. Sigurður Gunnarsson Framangreint samtal átti ég fyrir skömmu við dótturdóttur mína tólf ára. Ég hafði þá nýlega lokið við að lesa bama- og unglingabókina „Lífið allt er ævin<ýr“ eftir Sigurð Gunnarsson. Bókin kom út fyrir jólin hjá ísafold. Þetta er þriðja og siðasta bindið í samstæðum bókaflokki. Fyrri bækumar heita „Ævintýrin allt um kring“ og „Ævintýraheimar". Umræddar bækur em skrifaðar í samræðuformi og aðalpersónumar þær sömu í öllum sögunum, þó að hver bók sé sjálfstæð heild. Aðal- persónumar em hin greindu og fróðleiksfúsu systkin, Sigga og Svenni og frændi þeirra, þ.e.a.s. höfundurinn sjálfur. Einkar greinargóðar og skemmtilegar em lýsingar frænda á æskuheimili sínu, umhverfí, bú- skaparháttum, störfum fólks og leikjum bama, að ógleymdu §öl- breyttu dýralífi. Einnig er að fínna í bókinni nokkra sögulega þætti, sem ótví- rætt er mikill fengur að. Má þar nefna, Hvers vegna komu land- námsmenn hingað? Trúarskiptin, Kristni lögtekin, Landafundir ís- lendinga og Hvenær barst ritlistin til ísiands? Bækumar þijár í bókaflokknum em mjmdskreyttar, bæði ljósmynd- um og teikningum. Flestar teikn- ingamar em eftir Bjama Jónsson. Myndir auka vissulega gildi bama- og unglingabóka, glæða lestrar- lögnun og örva hugarflugið. Höfundinn, Sigurð Gunnarsson þarf raunar ekki að kynna. Hann er þekktur skólamaður og mikil- virkur rithöfundur. Auk framangreindra barnabóka hefur Sigurður ritað fjölmargt um uppeldis- og fræðslumál, má þar nefna bókina „Orlofsför", sem kom út 1984, mikið rit á fjórða hundrað síður. Þá hefur hann samið flöl- marga ferðaþætti, sem ýmist hafa verið prentaðir eða fluttir í útvarp. Ótalin em umfangsmestu ritstörf Sigurðar, en það em þýðingar hans. Alls mun hann hafa þýtt um 70 bækur, aðallega fyrir böm og unglinga. Sigurður er fyrir löngu viðurkenndur sem snjall þýðandi, enda er hann íslenskumaður góður. Margar þýðingar sínar hefur hann lesið í útvarp. Ég hvet foreldra og aðra sem velja lestrarefni fyrir ungu kynslóð- ina að gefa gaum að bók Sigurðar „Lífið allt er ævintýr". Betri bók er varla hægt að velja fróðleiksfúsu bami. Naumast þarf að taka fram að flokkur hinna raunsæju ævintýra- bóka er kjörið lesefni fyrir nemend- ur gmnnskóla. í fyrmefndar bækur er hægt að sækja skemmtilegt og áhugavekjandi viðbótarefni í nátt- úmfræði og sögu. Ekkert skóla- bókasafn má láta bókaflokk Sigurð- ar vanta í bókakostinn. Höfundur er rithöfundur. Dalvík: Nýr kjara- samning- ur undir- ritaður Dalvík 11. mars. Sunnudaginn 9. mars var undirritaður nýr kjarasamn- ingur milli Dalvíkurbæjar og starfsmannafélags Dal- víkur og Dalbæjar. Þetta er fyrsti aðalkjarasamningur sem starfsmannafélagið gerir en féiagið var stofnað í júní 1985. Félagar eru á miili 50 og 60 talsins, starfs- menn Dalvíkurbæjar og Dalbæjar, dvalarheimilis aldraðra á Dalvík. Á siðastliðnu hausti samþykkti félagið að kjarasamningur BSRB yrði látinn gilda fyrir félagsmenn og jafnframt var þá samið um að fram færi starfsmat á vegum bæj- arins. Unnið var að þessu starfsmati í vetur og var því að mestu lokið nú um áramót. Við gerð sérkjara- samninga síðar á þessu ári verður stuðst við niðurstöður þessa mats. Launanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga sá um samningsgerð- ina fyrir hönd Dalvíkurbæjar. Að sögn Einars Emilssonar formanns SDD, er samningurinn í megin- dráttum unninn upp eftir kjara- samningum Reykjavíkurborgar og Akureyrar. Væru heimilisstörf nú í fyrsta skipti metin til starfsaldurs. Tekist hefði að fá það samþykkt hjá Dalvíkurbæ að meta þau til hálfs án tillits til þess um hvaða starf væri að ræða. Fréttaritarar I kvöld verður boð Bíóhallarinn- ar vegna Spies Like Us SIMOX skartar sinu fegursta / i Opið öll kvöld. YPSILON 1A// II H II M l' MANUDAG 17. MARS KL. 21.00 Eddie Harris trio Forsala aðgöngumiða í Karnabæ, Austurstræti og við innganginn. Tískusýning íkvöld kl. 21.30. Modelsamtökin * sýna vortísk- una frá Pophúsinu jjHOTEL ESJU ALltaf á föstudögiuii Skrifstofur - hönnun húsnæðis og starfsaðstaða Undirbúningur efri ára Myndbandasíða Kvöldfatnaður á karlmenn Neytendamál Föstudagsblaðid ergott forskot á helgina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.