Morgunblaðið - 13.03.1986, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR13. MARZ1986
Gengi
gjaldmiðla
ið í hina áttina
Osló, 12. mars. Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsins.
NORSKI sjómaðurinn Einar Geir Einarsen fannst á reki á
báti sínum á miðju Atlantshafi á laugardag eftir að hans
hafði verið saknað tæpa sjö mánuði. Vélin í bátnum var í
lamasessi og fjóra mánuði hafði hann rekið stjórnlaust.
Olíuskip frá Líberíu fann Einarsen og fékk hann vatn og
mat um borð. Hann viidi ekki þiggja far með skipinu til
Evrópu, því að hann er á leið í þveröfuga átt: Til Trinidad.
Móðir Einarsen í Björgvin og
kona hans, Vera, sem stödd er
á Trinidad, höfðu nánast gefið
upp alla von um að Einarsen
væri á lífi og fögnuðu ákaft
þegar þær fregnuðu að hann
væri á lífi.
Einarsen lagði upp frá Lissa-
bon, höfuðborg Portúgal, 31.
ágúst. Hann ákvað að sigla til
Trinidad vegna þess að of dýrt
yrði að senda bátinn þangað í
pósti. í janúar fór fjölskylda
hans til norsku lögreglunnar og
gert var viðvart um ailan heim
að Einarsens væri saknað.
Á laugardag fékk Qölskyldan
að vita að þessi harðgeri sjómað-
ur væri á lífí. Hann hefði náð
talstöðvarsambandi við gasflutn-
ingaskip, sem sigldi undir merkj-
um Líberíu, og fengið að fara
um borð. Þar baðaði hann sig
fyrsta sinni frá því að ferðin
hófst; hann þorði ekki í sjóinn
af ótta við hákarla.
Áhöfn skipsins reyndi að gera
við vél bátsins. Þegar það tókst
ekki hafnaði Einarsen boði um
far til Evrópu. Aftur á móti þáði
hann vistir. Vistir hans hafði
þrotið fyrir fjórum mánuðum og
síðan hafði Endresen veitt sér
Verdens Gang/Simamynd
Einar Geir Einarsen kemur ekki
á leiðarenda fyrr en eftir mánuð.
Schliiter kemur á óvart
með stj órnarbreytingxmni
til matar og drukkið regnvatn.
Þess má vænta að ferð Einar-
sens til Trinidad taki um mánuð
og það er víst að kona hans,
Vera, ætlar að taka á móti
honum með kostum og kynjum.
Nordfoto/Símamynd
Nýju ráðherramir í stjórn Pauls Schliiters að loknum rikisráðsfundi. Á myndinni eru (f.v.) Thor Peder-
sen húsnæðismálaráðherra (V), Niels Wilhjelm iðnaðarráðherra (í)> Svend Erik Hovmand orkumálaráð-
herra (V), Paul SchlUter forsætisráðherra, Henning Dyremose atvinnumálaráðherra (í), Lars P. Gamm-
elgárd sjávarútvegsráðherra (í) og H.P. Clausen menningarmálaráðherra.
neytingu verður Knud Enggárd,
fymim orkuráðherra. Hann var
innanríkisráðherra frá 1978 til
1979 og hefur verið mikilvirkur á
sviði norrænnar samvinnu.
Mimi Stilling Jakobsen var einnig
færð til, úr menningarmálaráðu-
neytinu í félagsmálaráðuneytið.
Hún nýtur virðingar og þykir dug-
mikill ráðherra.
Christian Christiansen heldur
stól sínum sem umhverfismálaráð-
herra og ráðherra norrænna mál-
efna. Utanríkisráðherrann hefur
heldur ekki stólaskipti og hið sama
er að segja um Palle Simonsen, fjár-
málaráðherra, Mette Madsen,
kirkjumálaráðherra, Erik Ninn
Hansen, dómsmálaráðherra, Hans
Engell, vamarmálaráðherra, Tom
Höyem, Grænlandsmálaráðherra,
Isi Foighel, skattamálaráðherra,
Bertel Haarder, menntamálaráð-
herra og Anders Andersen, efna-
hagsmálaráðherra. Á óvart kemur
að honum skuli hlíft þar sem hann
er 73 ára og fyrir löngu dottinn út
af þingi. Reynsla hans, m.a. á sviði
landbúnaðarmála, mun hafa ráðið
því að hann situr áfram.
Schluter kemur á óvart
Poul Schluter, forsætisráðherra,
er gjamt að koma mönnum í opna
skjöldu og var svo einnig nú. Hann
tilkynnti stjómarbreytingamar rétt
fyrir miðnætti í gærkvöldi og það
eitt olli hálfgerðri ringulreið á
dönsku morgunblöðunum, sem urðu
að gerbreyta síðum sínum til að
geta flutt fréttina. Eftir breyting-
una hefur ráðherrum íhaldsflokks-
ins flölgað úr 8 í 9. Fjölgunin er á
kostnað Miðdemókrata, en ráð-
herrum þeirra fækkaði úr fjórum í
þijá. Ráðherrar Venstre em 8 sem
fyrr og Kristilegi þjóðarflokkurinn
hefur áfram einn ráðherra, en
flokksmenn munu súrir yfir því að
hafa ekki fengið fjölgun.
Margrét Danadrottning er í leyfi
í Noregi ásamt Sonju krónprinsessu
og kom það því í hlut drottningar-
móðurinnar, Ingiríðar drottningar,
að stjóma ríkisráðsfundi þar sem
hinir burtgengnu ráðherrar vom
kvaddir og nýir settir í embætti.
Kaupmannahöfn, 12. marz. Frá Ib Björnbak fréttaritara Morgunblaósins.
PAUL Schlilter, forsætisráðherra, hefur gert umfangsmiklar breyt-
ingar á stjóm sinni. Sex ráðherrar vom látnir víkja fyrir nýum
mönnum og þrír ráðherrar vom látnir skipta um ráðuneyti. Langt
er síðan gerðar hafa verið jafn stórtækar breytingar á danskri ríkis-
stjóra.
Það er greinilegt að Schliiter og
Uffe Ellemann-Jensen, utanríkis-
ráðherra, sem er formaður næst
stærsta stjómarflokksins, Venstre,
telja pólitíska stöðu sína sterkari
eftir sigurinn í þjóðaratkvæða-
greiðslunni um breytingar á stofn-
skrá Evrópubandalagsins. Forsæt-
isráðherrann hefur ekki farið dult
með það í dag að takmarkið með
breytingunum er að styrkja sam-
starf stjómarflokkanna fjögurra
þannig að það vari fram á næsta
áratug a.m.k. Telur hann flokkana
sigurstranglega í næstu kosning-
um. „Við höfum unnið okkur fram
úr mestu efnahagsörðugleikunum
og getum því litið tvíefldir fram á
við,“ sagði Schlúter. í þessu sam-
bandi má þó minna á að greiðslu-
halli Dana gagnvart útlöndum er
mikill og innan tíðar er að vænta
aðgerða af hálfu ríkisstjómarinnar,
sem hyggst reyna að rétta af hall-
ann á utanríkisverzluninni með því
að skerða kaupmáttinn. Skerðingin
er í krónum talið metin á 10 millj-
arða danskra króna, eða 50 millj-
arða ísl. kr.
Breytingamar á stjóminni komu
á óvart og athygli vekur að þrír
hinna nýju ráðherra em ekki þing-
menn. Hér er um að rasða Nieis
Wilhjelm, iðnaðarráðherra, sem
gegndi formennsku í landsamtökum
iðnaðarins, Henning Dyrmose, at-
vinnumálaráðherra, sem var sölu-
stjóri hjá lyfjafyrirtækinu Novo, og
H.P. Clausen, menntamálaráð-
herra, fyrrv. prófessor og ríkis-
bókavörður. Fyrsta viðfangsefni
hans verður að vinna áformum
stjómarinnar um aðra rás vð
danska sjónvapið meirihlutafylgi.
Auk þessara var skipt um sjávarút-
vegsráðherra, sem verður nú Lars
P. Gammelgárd, orkuráðherra, sem
verður Sv. E. Hovmand, og ráð-
herra húsnæðismála, sem verður
Thor Pedersen. Þeir eiga sæti á
þingi.
Konur víkja
Tvær konur voru látnar vílqa úr
stjóminni, Grethe Fenger Möller,
atvinnumálaráðherra, og Elsebeth
Kock-Petersen, félagsmálaráð-
herra. Brottför Grethe Fenger
Möller, sem er 38 ára, kemur ekki
á óvart, því hún á senn von á sínu
fyrsta bami. í sárabætur verður
hún gerð að talsmanni þingfiokks
íhaldsmanna. Hins vegar kemur á
óvart að Kock-Petersen er látin
víkja. Henni var boðið að taka við
húsnæðismálaráðuneytinu en hún
hafnaði því.
Þá kemur vemlega á óvart að
Henning Grove, sjávarútvegsráð-
herra, og Niels Anker Kofoed, land-
búnaðarráðherra, skyldu látnir
víkja fyrir nýjum mönnum. Brottför
Niels Bolmann, húsnæðismálaráð-
herra, kemur hins vegar ekki á
óvart því hann tekur senn við for-
mennsku í þingflokki Miðdemó-
krata, og Ib Stetter, iðnaðarráð-
herra, varð að víkja vegna aldurs.
Færðirtil
Britta Schall Holberg, sem var
innanríkisráðherra þar til í dag,
naut lítilla vinsælda meðal stjóm-
enda amta og meðal bæjar- og
sveitarstjóma; þykir hranaleg og
höstug. Hún hefur verið færð til
og tekur við landbúnaðarmálunum.
Eftirmaður hennar í innanríkisráðu-
Verdens Gang/Símamynd
Frá minningarathöfninni um hermennina sextán, sem fórast í sqjóskriðu í Norður-Noregi fyrir viku.
Noregnr:
London, 12. mars. AP.
Bandaríkjadollari hækkaði
í dag gagnvart öUum helstu
gjaldmiðlum utan sterlings-
pundinu á gjaldeyrismörkuð-
um í Evrópu.
í Tókýó kostaði dollarinn
180,10 japönsk jen (180,2)
þegar gjaldeyrismarkaðir lok-
uðu.
í London kostaði sterlings-
pundið 1,4700 dollara (1,4600).
Gengi annarra helstu gjald-
miðla var á þann veg að dollar-
inn kostaði: 2,2770 vestur-þýsk
mörk (2,2640), 1,92725 svissn-
eska franka (1,9210), 7,0000
franska franka (6,9650), 2,5670
hollensk gyllini (2,5520),
1.549,00 ítalskar límr
(1.539,50) og 1,3980 kanadíska
dollara (1,39775).
Mmmngarathöfn haldin í flugskýli
ObIó, 12. mars. Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsins.
Minningarathöfn um her-
mennina sextán, sem létust er
féll á þá snjóskriða í Vassdal i
Norður-Noregi fyrir viku, var
haldin í Bardufoss, flugstöð
hersins, I dag. Ólafur Noregs-
konungur, Káre Willoch, forsæt-
isráðherra, og æðstu yfirmenn
norska hersins komu til að votta
hinum Iátnu virðingu sína.
í flugskýlinu voru sextán líkkist-
ur, Qórir kransar við hveija. Fimm-
tíu og fimm nánustu ættingjar
hermannanna komu flugleiðis til að
vera viðstaddir athöfiiina. Þama
voru einnig flestir þeir hermenn,
sem lifðu skriðuna af.
ERLENT
Norskur sjómaður finnst á reki:
Þáðiekkifar,
f örinni var heit-