Morgunblaðið - 13.03.1986, Side 30

Morgunblaðið - 13.03.1986, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR13. MARZ1986 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1986 31 Útgefandi [jMafoíífo Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 450 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 40 kr. eintakið. Bjórinn Talið er að einn af hvetjum tíu, sem neytir áfengis að staðaldri, verði áfengissjúkling- ur. Sjúkdómur af þessu tagi er ekki einvörðungu persónubund- inn heldur bitnar oftar en ekki á fjölskyldu, ættmennum og vinum, að ekki sé talað um ýmsa þætti samfélagsins, svo sem atvinnulífið og heilbrigðiskerfið. Það er því ekki að ástæðuiausu, heldur ríku tilefni, sem sam- félagið, félagasamtök og ein- staklingar telja nauðsynlegt að stórauka almenna fræðslu um skaðsemi ofneyzlu áfengis. Hinsvegar fínnst ýmsum skjóta skökku við, að banna sölu veik- ustu tegundar áfengis, bjórsins, á sama tíma og leyfð er sala allra annarra áfengistegunda, allt frá léttum vínum, með svip- að eða iitlu meira alkahólinni- hald en bjórinn, upp í sterkustu drykki á áfengismarkaðinum. Alþingi íslendinga hefur oft- sinnis fjallað um, hvort leyfa eigi bruggun, innflutning og sölu bjórs. Fá mál hafa fengið meiri umræðu eða umfjöllun í þinginu, síðast á næstliðnu þingi. Alþingi hefur jafnan heykst á því að taka afgerandi afstöðu í málinu. Lögmæt bjór- neysla hér á landi er bundin því, að menn fari til útlanda og kaupi bjór þar eða í fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli. Nú er enn komið fram frum- varp sem felur í sér heimild til bruggunar og sölu öls á styrk- leikabilinu 4-5% að rúmmáli. Bjór á einungis að selja í útsöl- um Áfengisverzlunar ríkisins. Hluta skatttekna ríkissjóðs af sölu bjórsins skal síðan veija til fræðslu um skaðsemi áfengis yfirhöfuð. Afgreiðsla Alþingis er hins vegar skilyrt: lög um heimild til sölu bjórs komi ekki til framkvæmda, þó samþykkt verði, „nema þau hafi áður hlotið samþykki meirihluta atkvæða í þjóðaratkvæðagreiðslu, sem fari fram eigi síðar en 31. desember 1986“. Hefð er fyrir því hér á landi að íbúar einstakra sveitarfélaga taki afstöðu til þess í almennri atkvæðagreiðslu, hvort opna skuli eða loka áfengisútsölu. Þjóðaratkvæði var og viðhaft um áfengisbannið á sinni tíð. Morgunblaðið hefur margbent á, að eðlilegt sé að þjóðin greiði atkvæði um bjórmálið. I umræð- um um bjórinn á þingi sl. vor kom meðal annars fram sú röksemd, að ekki væri unnt að skjóta málinu til þjóðarinnar, af því að umræða um það „yrði ekki holl“. í því sambandi má spyija: Hafa umræður um bjór- inn á Alþingi verið „hollar“? Alþingismönnum hefur tekist að þvæla bjórmálinu á þann veg, að furðu sætir. Þeir ættu að geta tekið afstöðu til þessa nýja frumvarps á tiltölulega stuttum tíma, ef vilji stendur til. Og þar sem frumvarpið er skilyrt, það er háð samþykki meirihluta þjóðarinnar, kemur það ekki til framkvæmda nema hann sé til staðar. Spumingin er einfaldlega sú, hvort háttvirt- ir alþingismenn vilji selja um- bjóðendum sinum, almenningi, sjálfdæmi í málinu. Popp- pólitík Islenzkir handknattleiksmenn hafa gert garðinn frægan að undanfömu. Frækileg frammi- staða þeirra hefur snortið streng í bijósti sérhvers íslendings. Enginn vafi er á því að þorri þjóðarinnar telur þá verðuga vaxandi almenns stuðnings. Það fer hinsvegar betur á því, að sá stuðningur komi fram í „fijálsri skattheimtu", það er almennum framlögum í einni eða annarri mynd, en aukafjárveitingu úr ríkissjóði, að fjárlögum af- greiddum. Nú liggur fýrir Alþingi tillaga til þingsályktunar um 5 m.kr. aukafjárveitingu, umfram fjár- lagafjárveitingu, til Handknatt- leikssambands íslands. Kristín Halldórsdóttir (Kl.-Rn.) gat þess í umræðu um tillöguna, að fjár- lagafjárveiting til ISÍ væri 22,5 m.kr. Auk þess fengi Ólympíu- nefnd 1,5 m.kr. Fyrrverandi fjármálaráðherra hafi og veitt aukaijárveitingu upp á 2 m.kr. til að styrkja íslenzka hand- knattleiksliðið í heimsmeistara- keppninni. Tillaga um 5 m.kr. aukafjárveitingu til viðbótar, sem kæmi nú í kjölfar fjárlaga, væri „popp-pólitík“ og varhuga- verð sem slík. Ástæðulaust er að vísu að draga í efa að góður vilji standi á bak við þessa tillögugerð. Skyndiákvarðanir af þessu tagi eru samt sem áður vafasamar. Rétt er hinsvegar að hvetja allan almenning til þess, ef Hand- knattleikssambandið fer að ábendingu Kristínar Halldórs- dóttur, og efnir til almennrar söfnunar á gíróreikning sinn, í tilefni sigurgöngu íslenzka liðs- ins, að bregðast fljótt og vel við. Það væru verðug viðbrögð eftir það sem á undan er gengið. Háskóli hér o g háskóli hvar eftir JúJíus Sólnes Háskóli íslands á 75 ára afmæli á þessu ári og verður það haldið hátíðlegt með ýmsum hætti í októ- ber nk. Stofnun Háskóla íslands 17. júní árið 1911 tengist sjálfstæð- isbaráttu íslendinga og þeirri þjóð- emisvakningu, sem varð um og fyrir síðustu aldamót. Islenzk menning, íslenzk tunga og Háskóli Islands hafa síðan tengzt óijúfan- legum böndum. Þannig hefur há- skólanum verið ætlað það hlutverk m.a. að standa vörð um menningar- arfleifð okkar og tryggja okkur sess meðal hinna upplýstu og vel- menntuðu þjóða Vestur-Evrópu. Háskóli íslands hefur þess vegna gegnt þýðingarmiklu hlutverki í þjóðlífinu þessi 75 ár og reyndar orðið einn af homsteinum þess. Hvað er háskóli? Flestum íslendingum finnst það vera sjálfsagður hlutur, að hér sé öflugur háskóli. Reyndar heyrast nú þær raddir, að fyrir löngu sé kominn tími til að flölga „háskól- um“ á Íslandi. Ber þar hæst rödd hæstvirts menntamálaráðherra, sem vill stofna „háskóla" á Akur- eyri í einum grænum hvelli. Og ekki munu menn láta þar við sitja, heldur hugsa til hreyfings á ísafirði, í Vestmannaeyjum og víðar á landinu. Annars staðar í heiminum em menn ekki eins sannfærðir um, að svo fámenn þjóð geti staðið undir sjálfstæðum háskóla. Til dæmis er enginn háskóli í Luxemburg-ríki, sem þó telur fleiri íbúa en Island. Ég hef viljandi sett orðið háskóli innan gæsalappa. Er ekki rétt að velta fyrst fyrir sér þeirri spumingu hvað er háskóli? í hugum flestra íslendinga er háskóli skóli, þar sem fer fram kennsla á svokölluðu há- skólastigi. Er það eitthvert óskil- greint hugtak, sem ef til vill er hugsað þannig, að kennslan og námið sé byggt upp með svipuðum hætti og í mennta- og framhalds- skólunum, nema hvað námsefni og kennslubækur séu hafðar erflðari. Einnig er ætlazt til, að kennaramir gutli eitthvað við rannsóknir, en þær mega ekkert kosta og eiga helzt að vinnast í frístundum þeirra. Það er til dæmis ekki óalgeng spuming, sem háskólakennari fær oft, átt þú ekki frí í þijá mánuði á hveiju sumri? Þessi túlkun á hugtakinu háskóli er mjög almenn, en er byggð á regin misskilningi. Þeim sem hafa kynnzt hinum miklu menntastofnunum erlendis, til dæmis háskólunum í Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum, er ljóst, að kennsla er aðeins lítill hluti af starfsemi þeirra. Viðamikil rannsóknarverkefni, þekkingaröfl- un og alls kyns þjónustustörf fyrir atvinnulíf og opinbera aðila er lang- stærsti hlutinn af starfseminni. Upp úr þessum jarðvegi sprettur svo grundvöllur fyrir uppfræðslu og menntun þeirra stúdenta, sem stunda nám við háskólann. Ekki sízt, þar sem þeir fá að taka virkan þátt í rannsóknarstörfunum á seinni námsárum sínum. Háskóli, þar sem einungis fer fram kennsla og upp- fræðsla stúdenta er dauð stofnun. Þetta þýðir, að háskóli þarfnast mikils starfsliðs og aðstöðu, bæði húsnæðis og dýrra rannsóknar- tækja. Dæmi um þetta er Verk- fræðiháskólinn í Kaupmannahöfn, þar sem flestir íslenzkir verkfræð- ingar hafa hlotið menntun sína. Greinarhöfundur starfaði þar í nærri 10 ár við kennslu og rann- sóknir og er honum sá skóli því vel kunnugur. Fjöldi stúdenta við Verk- fræðiháskólann í Kaupmannahöfn er svipaður og við Háskóla íslands. Samt sem áður ræður Verkfræðihá- skólinn yfírum tífalt meira húsnæði en Háskóli íslands og um tíu sinnum fleiri starfsmönnum. Einnig er hann vel búinn tækjum. Við Háskóla ís- lands eru tveir fastráðnir kennarar, sem sinna kennslu og rannsóknum í burðarþolsfræði og hönnun mann- virkja í byggingarverkfræðideild. Engir aðrir starfsmenn eru þeim til aðstoðar. Við samskonar deild við Verkfræðiháskólann í Kaupmanna- höfn eru um 30 fastráðnir kennarar, 10 starfsmenn á skrifstofu og 20 starfsmenn í tilraunasal, smiðir og tækjamenn. Stúdentaíjöídinn er að vísu 5—6-falt meiri, en tölumar sýna samt greinilega aðstöðumun- inn. Svipaða sögu er að segja um allar aðrar deildir Háskóla íslands. Staða Háskóla íslands Flestir munu segja, að dæmið að ofan um aðstöðuleysið við Háskóla íslands sé ekki sanngjamt. Við getum ekki borið okkur saman við stórþjóðimar, ekki einu sinni Norð- urlöndin. Við verðum að sætta okkur við, að allt sé smærra í snið- um hér en hjá öðrum og stærri þjóð- félögum. Þess vegna megi Háskóli íslands vel við una og sé ekki verr settur en aðrar stofnanir í þessu þjóðfélagi. í þessu tilliti vill oft gleymast, að sú menntun, sem þjóð- Júlíus Sólnes „Ég hef viljandi sett orðið háskóla innan gæsalappa. Er ekki rétt að velta fyrir sér þeirri spurningn hvað er há- skóli?“ in sækir til háskólans, á að duga henni í harðri samkeppni við ná- grannalöndin hvað varðar þekk- ingu, menningarlíf og afkomu. Há- skóli Islands verður því að vera jafngóður skóli og beztu háskólar Evrópu ef við ætlum ekki að daga hér uppi í norðrinu sem eitthvert þriðja flokks þjóðfélag í samfélagi Evrópuþjóðanna. En er þá Háskóli íslands ekki góður skóli? Því má svara, að há- skólinn sé eins góður skóli og hann getur verið, miðað við þá aðstöðu, sem honum er búin. Hins vegar er Háskóli íslands langt frá því að vera fullgildur háskóli. Hann er í bezta falli vísir að háskóla. Þetta geta allir sannfærst um ef þeir kynna sér stöðu hans. Við háskól- ann er til dæmis ekkert kerfís- bundið nám, sem leiðir til doktors- prófs eða áþekkrar námsgráðu. Einungis í nokkram deildum er boðið upp á hefðbundið langt há- skólanám, sem lýkur með jafngildi meistaraprófs. Er helzt um að ræða slíkt nám í læknadeild, guðfræði- deild, lögfræðideild og að hluta til í heimspekideild. Er það athyglis- vert, að þetta era einmitt hinar gömlu deildir háskólans. í hinum deildunum er aðeins boðið upp á stutt háskólanám, sem samsvarar „bachelor“-gráðu frá bandarískum háskólum. Slíkt háskólanám er alls ekki talið fullgilt í Evrópulöndun- um, þar sem 5—7 ára háskólanám að lokaprófí er talið eðlilegt. Um 70% af þeim stúdentum, sem út- skrifast frá Háskóla íslands, taka lokapróf eftir þijú ár. Námsbraut- um með tveggja og þriggja ára námslengd hefur verið fjölgað mjög á síðustu áram við háskólann. Litlir tilburðir hafa verið í þá átt að lengja námið eða bjóða upp á framhalds- menntun til meistaraprófs eins og tíðkast við alla háskóla, sem standa undir nafni. í verkfræði- og raunvísindadeild- um era tæplega 900 stúdentar, sem hýrast í húsnæði, sem er um fjórð- ungur af húsnæði Verzlunarskóla Islands. Þeir eiga einungis kost á því að ljúka þar þriggja ára námi í raunvísindum, stundum er hægt að bæta ijórða námsárinu við, og íjögurra ára námi í verkfræði. Engir framhaldsmenntunarmöguleikar era við þessar deildir. Þriggja ára nám í raunvísindum er engan veginn fullgilt háskóla- nám. Því verða nemendur að leita erlendis til framhaldsnáms. Sama á við um verkfræðimenntunina. Hvergi á hinum Norðurlöndunum er fullgilt verkfræðinám jafnstutt. Þetta gerir nú ekki mikið til hugsa flestir. Nemendur hafa gott af því að leita til útlanda og halda menntun sinni áfram þar. Það er vissulega rétt, en fyrir vikið era rannsóknir við þessar deildir í mol- um. Það era nefnilega stúdentar í framhaldsnámi, sem bera uppi rannsóknir við alla erlenda háskóla. Víða er pottur brotinn í háskólan- um. Aðstöðuleysi, léleg laun kenn- ara, húsnæðisskortur og áberandi sinnuleysi yfirvalda, einkum það sem lýtur að fjárveitingum til skól- ans, hefur haft þau áhrif, að margir kennaranna gefast hreinlega upp. Kennslan mallar áfram ár eftir ár, og lítil sem engin þróun á sér stað. Kennaramir era margjr svo önnum kafnir við að afla sér aukatekna, svo þeir geti framfleytt fjölskyldum sínum, að þeir hafa engan tíma til þess að sinna nemendum sínum. Skortur á rannsóknaraðstöðu er einnig til þess fallinn að drepa allan áhuga kennara á því fagi, sem þeir era í forsvari fyrir. Sem dæmi má nefna, að fyrir byggingarverkfræði- deild vora keypt fullkomin rann- sóknartæki til styrkleikaprófunar á steinsteypu árið 1976. Þau hafa nú legið óhreyfð í kössunum í 10 ár, en hvergi er einn fermetri húsnæðis aflögu til þess að hægt sé að nota þau og þannig gefa stúdentum kost á því að kynna sér betur þetta mikilvæga byggingarefni lands- manna. Háskóli á Akureyri Hugmyndina, að koma upp sjálf- stæðum háskóla á Akureyri, verður að fjalla um í ljósi þessara stað- reynda. Margir munu spyija, er ekki réttara að koma upp einum frambærilegum háskóla í landinu áður en farið er að stofna háskóla hér og hvar? Nú stendur það síst á mér að styðja ekki hvers kyns hugmyndir um skólahald á Akur- eyri. Eg hef margbent á, að nauð- synlegt sé að efla byggð á Akur- eyri, m.a. með öflugum mennta- stofnunum, til að skapa mótvægi við höfuðborgarsvæðið. En það verður ekki gert með því að koma þar upp stofnun, þar sem kennsla færi fram á „háskólastigi", og kalla hana svo háskóla. Miklu nær væri að efla þá skóla, sem þegar era á Akureyri, svo sem menntaskólann og verkmenntaskólann. Gera þeim kleift að halda uppi öflugri eftir- menntun og fullorðinsfræðslu. Einnig hefur verið rætt um þá hugmynd, að hefja kennslu á Akur- eyri í ýmsum undirstöðugreinum við sumar deildir Háskóla íslands og þá á hans vegum, Þó má ef til vill spyija fyrir hveija; við nánari athugun fer ekki mikið fyrir stúd- entum frá Menntaskólanum á Akureyri í Háskóla íslands,að minnsta kosti ekki í verkfræði- og raunvísindadeild. Undanfarin fímm ár hafa 6—8 nemendur frá MA skráð sig árlega til náms í verk- fræði, eðlisfræði og stærðfræði. Þar af hafa 2—4 staðist próf upp á 2. ár. Nemendur skráðir í aðrar raun- vísindagreinar hafa verið 9—17. Af þeim hafa 4—9 staðist próf upp á 2. ár. Svipaður árangur er hjá nemendum úr öðram mennta- og fjölbrautaskólum. í haust sá ég sjónvarpsþátt, þar sem forsætisráðherra og mennta- málaráðherra sátu fyrir svöram. Spyijendur vora ungt fólk víðs vegar að af landinu. Held ég að allir hafi verið sammála um að unga fólkið kom vel fyrir, virtist þrótt- mikið og sjálfstætt í skoðunum sín- um. Einkum man ég eftir ungum Akureyringi, sem spurði mennta- málaráðherra spjöranum úr varð- andi háskóla á Ákureyri. Vora þeir báðir sammála um, að hann skyldi verða sjálfstæður háskólj, ekki útibú frá Háskóla íslands. Eg velti því þá fyrir mér, skýldi þessi ungi maður hyggja á nám við háskóla á Akureyri. Það rifjaðist nefnilega upp fyrir mér, þegar ég gekk um götur Akureyrar fyrir 30 áram með hvítan koll, nýútskrifaður stúdent. Ég held að bæði ég og aðrir fé- lagar mínir frá Akureyri, sem út- skrifuðumst frá MA vorið 1955, hefðum talið það síðasta og versta kostinn að innritast í háskóla á Akureyri þá um haustið. Nei, okkur lá mikið á að komast suður og helst eitthvað út í lönd til þess að takast á við nýja hluti. Ég yrði mjög hissa ef ungi maðurinn, sem ég gat um áðan, hefði ekki sömu hugmyndir og við fyrir 30 áram. Fræðasetur íslands En fyrir hveija er þá háskóli á Akureyri? Er hann ef til vill hugsað- ur fyrir þá sem hafa tekið stúdents- próf úr öldungadeild MA og vilja fá tækifæri til þess að halda áfram námi án þess að þurfa að segja upp vinnu sinni á Akureyri eða krefjast þess, að fjölskyldan flytji suður. Hér er verið að ragla saman háskólanámi og eftirmenntun. Há- skólanám er í því fólgið, að viðkom- andi aðili sé reiðubúinn að fara hvert á land sem er, til fjarlægra landa ef ekki er annarra kosta völ, og dveljast þar í 4—6 ár við sult og seyra uns takmarkinu er náð. Að vísu efast margir um þetta með sultinn og vitna þá til umræðu um há námslán. Námskeið á háskóla- stigi við einhvern skóla, til dæmis skóla á Akureyri, sem fólk gæti tekið og síðan fengið viðurkennt, þegar raunveralegt háskólanám væri hafið við alvöraháskóla, eða einfaldlega til þess að afla sér frek- ari þekkingar, er allt annar hlutur. Orðið Háskóli yfír latneska heitið Universitatis er án efa óheppilegt orð. Orðið sjálft gefur til kynna að hér sé um hástig allrar menntunar að ræða, en svo þarf í raun og vera ekki að vera. Í Bandaríkjunum er t.d. „high school" fjölbrautaskóli. Háskólanám fer síðan fram í Col- lege, undirbúningsnám fyrir raun- veralegt háskólanám, og Univers- ity, þar sem hið raunveralega há- skólanám fer fram. Á Norðurlönd- unum var tekið upp orðið hojskole, þegar tækniháskólamir tóku þar til starfa á síðustu öld. Það var því engin tilviljun, að háskólanum var gefíð þetta nafn þegar hann tók til starfa haustið 1911. Við stofnun Háskóla íslands vora nokkrir sér- skólar, þ.e. Læknaskólinn, Presta- skólinn, Lagaskólinn og Lærði skól- inn, sameinaðir. Hefði nafn síðasta skólans ef til vill hentað betur. Til dæmis kalla Færeyingar sinn vísi að háskólanámi Fróðskaparsetur Færeyja. Væri ekki snjallt, til þess að fyrirbyggja allan misskilning í framtíðinni, að skipta um nafn á Háskóla íslands á 75 ára afmælinu og kalla hann Fræðasetur íslands. Þau orð lýsa miklu betur þeirri starfsemi, sem fer fram við háskól- ann. Síðan geta menn keppst við að koma upp háskólum hér og há- skólum hvar. Höfundur er prófessor við Háskóla íslands. Heima er best eftir Ólaf Ólafsson Samkvæmt niðurstöðum fjöl- margra kannana hér á landi kjósa allflestir aldraðir að dveljast sem lengst í heimahúsum. Stoftianavist- un er í flestra augum næsta ill nauðsyn. Eigi að síður er svo komið að hlutfallslega dveljast hér á landi milli 20—40% fleiri á vistunarstofn- unum fyrir aldraða, 65 ára og eldri, en í næstu nágamnalöndum (Nor- ræna tölfræðihandbókin 1984). í ofanálag era yfír 60% sjúklinga er vistast í sjúkrahúsum úti á lands- byggðinni „dvalarheimilis- og hjúkranarsjúklingar" (skýrsla land- læknisembættisins 1979). Við þetta bætist að samkvæmt könnun land- læknisembættisins 1986 bíða um 2.000 manns í landinu eftir plássi á stofnun fyrir eldra fólk, en þar af um 80% eftir dvalarheimilispláss- um. Það er að vísu mótsagna- kennt að samtímis skortir pláss fyrir hjúkrunarsjúklinga! Ef reisa á stofnanir fyrir þetta fólk verðum við fljótlega með hátt í helmingi fleiri vistunarpláss fyrir aldraða en almennt gerist í ná- grannalöndunum. Eðlilegt að spurt sé. Er íslensk þjóð að þrotum komin vegn lélegs heilsufars? Heilsufar eldra fólks Niðurstöður flestra kannana benda þó til þess að flest gamalt fólk sé við góða heilsu vel fram á áttræðisaldurinn. Niðurstöður könnunar heilsu- gæslulækna í Kópavogi (þátttaka yfír 50%) fyrir nokkram áram leiddu í ljós að um 65% fólks á aldrinum 67—82 ára var „á eigin vegum“ og stundaði vinnu. Tæp 30% treystu sér vel til að dveljast í heimahúsum svo framarlega sem þau fengju noklcra aðstoð með innkaup, þvott og önnur heimilis- verk. Samkvæmt hóprannsókn Hjarta- vemdar 1979—81 á Reykjavíkur- svæðinu reyndust nær 90% karla á aldrinum 60—73 ára stunda vinnu. Um 70% þeirra störfuðu yfír 40 klst. á viku og yfír 20% 50 klst. eða lengur. Um helmingur karla 60—73 ára vora undir læknis- hendi og tóku jafnframt einhver lyf en aðeins tæp 2% höfðu verið fjar- verandi í mánuð eða lengur á árinu. Athyglisvert var að minna var um fjarvistir og kvartanir um streitu meðal elstu þátttakendanna en þeirra yngri. Vissulega má færa rök fyrir því að vinnuálag sé óhóflega mikið - O - sjá mynd I - O - og nægir þar að nefna sjómenn, erfíðisvinnumenn, leigubílstjóra og stóratvinnurekendur. Háskóla- menntaðir menn, kennarar og margir skrifstofumenn virðast geta dregið úr störfum fyrr en aðrir og bendir það m.a. til betri „lífeyris- sjóðsréttinda". (Hóprannsókn Hjartavemdar.) Mikil atvinnuþátt- taka eldra fólks á íslandi borið saman við önnur Norðurlönd bendir þó ekki til þess að heilsufar sé slæmt. Vinnuþátttaka eldra fólks er yfir- leitt mun meiri en í nágrannalönd- um enda er atvinnuleysi mun meira þar. I könriun Jóns Bjömssonar fé- lagsfræðings kom í ljós að flest eldra fólk virðist hverfa úr launa- vinnu af „illri nauðsyn" en ekki samkvæmt eigin ósk og heldur í vinnuna dauðahaldi af ýmsum ástæðum. Bætur almannatrygg- inga virðast ekki hafa dugað til viðurværis nema við bestu að- stæður. Margir óttast einangranina þegar látið er af starfí, sakna vinnu- félaga, tilbreytingar og þeirrar lífs- fyllingar sem vinnan gefur — enda af vinnusamri kynslóð. Án efa er hófleg vinna öldraðu fólki holl og stuðlar að líkindum að langlífi. Stefna þarf að sveigjanlegri eftir- launaaldri en nú er. Sumir þurfa ekki á lífeyri að halda fyrr en nokkra vel eftir sjötugt á meðan aðrir þurfa að hætta að vinna um 65 ára aldur. Ólafur Ólafsson „Vistun sæmileg'a ról- færs fólks, eldri sem yngri, á dvalar- eða meðferðarheimilum er ekki lengur tilhlýðilegf frá læknisfræðilegfu sjónarmiði.“ Tafla I. Atvinnuþátttaka eldri karla og kvenna á Norðurlöndum 1975—1979. (80,81,82) Hlutfall (%) í einstökum aldurshópum 60-64 66-74 Karlar Konur Karlar Konur ísland* ... >90 >40 >90 >40 Danmörk... 60 31 25 8 Noregur 77 42 35 16 Svíþjóð 67 38 14 4 Finnland 31 21 5 3 □ 40-49 klst. á viku □ Breytt viðhorf Áður fyrr mæltu læknavísindi með því að eldra fólk „settist í helgan stein". Af eðlilegum ástæð- um mótaði þetta viðhorf huga margra eigenda og stjómenda stofnana. Á þeim tímum þegar heimilisþjónusta var af skomum skammti vora margir þessara manna bjargvættir margs aldraðs fólks. Nú eru viðhorfin allt önnur. Að vísu er bágt að tefja fyrir ellinni en frá læknisfræðilegu sjónarmiði er ljóst að til þess að viðhalda lík- amlegu og andlegu atgervi er haldbesta ráðið að taka þátt í daglegu amstri sem lengst. Nauð- synlegt er einnig að sem flestir eigi sér verðug viðfangsefni sem hvetja til lífsfyllingar og hamingju. Nægir í þessu efni að benda á niðurstöður Hjartavemdar um að mun minna ber á kransæðasjúkdómum meðal þeirra er stundað hafa íþróttir reglulega en hinna er hreyfa sig lítið. Vissulega fínnast hér undan- tekningar eins og frá öllum reglum. Af framangreindu má leiða að því líkur að íslensk þjóð sé síður en svo að þrotum komin enda er tíðni langvinnra sjúkdóma um 20—25% lægri meðal 75 ára og eldri hér á landi en í nágrannalöndum (Norræna tölfræðibókin 1984). Sjátöflu II Taflall. Dánartíðni v. langvinnra sjúkdóma á 100.000 íbúa á Norðurlöndum 1976—80. Mynd I. Fjöldi karla á aldrinum 60-69 ára sem starfa 40-49 og ^50 klst. á viku í Reykjavík 1974-1976. Fjöldi 954. ^ 50 klst. á viku HÁskólamennuðir Bókarar / gjaldkerar Opinbcrir atarfam. / veralunar- og skrif- stofumenn Iðnverkamenn Sm&atvinnurekendur Smiatvinnurekendur (kaupaýMÍa) VOrubilatjórar iðnaður) Stóratvinnurekendur LeignbllHtjórar Erfiðiavinnumenn H)arta-/æðasjúkdómar Illkynja æxli Aðrir sjúkdómar N 9100 11500 12400 11100 11500 *) Reykjavfk, karlar 60—69. Akranes, konur 67—74. Sú staðhæfíng margra að orsök mikillar ásóknar þeirra eldri í dval- arheimili hér á landi sé sú að fjöldi manns sé að þrotum kominn vegna vinnu, fær því vart staðist. Ýmsir sjá stofnanaþjónstu sem einasta ráð úr vanda okkar — enda var lítið sem ekkert minnst á þjónustu við aldraða utan stofn- ana á ráðstefnu um stofnanaþjón- ustu sem nýlega var haldin hér í Reykjavík. Hver er þá ástæða fyrir mikilli stofnanavistun aldraðra á íslandi? I. Framfærsluvandamál. Aukin sókn eldra fólks á stofnan- ir virðist m.a. mega rekja til fjár- hagsvanda þess, samkvæmt upplýs- ingum frá fólki, sem starfar við félagsmálastofnanir. Bætur Al- mannatiygginga duga ekki til við- urværis nema við bestu aðstæður. Það á ekki að leysa einfalt fram- færsluvandamál fólks með þvi að leggja það inn á stofnanir. Við höfum ekki ráð á slíkum rekstri. II. Röng forgangsröðun. Aðstoð við eldra fólk í heimahús- um á að hafa forgang fram yfír stofnanaþjónustu en þessari reglu hefur verið snúið við á íslandi. En heimaþjónusta sem veitt er á íslandi er mun fábreyttari en víða gerist. TaflalII. Heimilisaðstoð á Norðurlöndum 1981 -1982 Önnur ísl. Norðurt. - + 40-80% - +40-95% Matardreifing... Dreifing... Farþjónusta... — + Fataþjónusta ... — + 50-60% Baðþjónusta... — + Simaþjónusta... + + 40-60% Leikfimi fyrir elli- lífeyrisþega ... — + 30-90% Tómstundir... — + 67-90% Leshringir... — + 40-95% Sveitarfélögin sjá fyrir þess- ari þjónustu. (Tafla III (Social security in the Nordic States, Helsinki 1984.) Að vísu hafa orðið veralegar úrbætur á þessari þjónustu á allra síðustu áram en við búum í landi mótsagna, þar sem auðveldara virðist vera að fá rekstrarfé til stofnana en til heimaþjónustu. E.t.v. þarf að breyta lögum á þessu sviði. Ótal niðurstöður liggja nú fyrir er sýna Sjá næstu síðu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.