Morgunblaðið - 13.03.1986, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1986
33
94 rithöfundar
hlutu starfslaun
— Sljórn Launasjóðs rithöfunda
bárust umsóknir frá 161 höfundi
LOKIÐ ER uthlutun starfslauna úr Launasjóði rithöfunda fyrir árið
1986. í lögum og reglugerð sjóðsins segir að árstekjum hans skuli
varið til að greiða íslenskum rithöfundum starfslaun samsvarandi
byrjunarlaunum menntaskólakennara. Þessi laun eru nú kr. 29.618
á mánuði, segir í frétt frá stjórn Launasjóðs rithöfunda.
Alls bárust stjóminni að þessu
sinni umsóknir frá 161 höfundi og
sóítu þeir um því sem næst 804
mánaðarlaun auk mánaðarlauna til
ótiltekins tíma frá 10 rithöfundum.
Fjárveiting til sjóðsins nam hins
vegar aðeins 283 mánaðarlaunum.
Starfslaun til sex mánaða hlutu
að þessu sinni 4 rithöfundar, til
fímm mánaða 8 höfundar, fjögurra
mánaða laun hlutu 16 höfundar,
þriggja mánaða laun hlutu 24 höf-
undar og tveggja mánaða laun
hlutu 42 höfundar. Alls hefur því
verið úthlutað starfslaunum til 94
rithöfunda.
Starfslaun era veitt samkvæmt
umsóknum. Höfundur sem sækir
um og hlýtur starfslaun til þriggja
mánaða eða lengur skuldbindur sig
til að gegna ekki fastlaunuðu starfí
meðan hann nýtur starfslauna.
Tveggja mánaða starfslaun má
veita vegna verka sem birst hafa á
næsta almanaksári á undan og þeim
fylgir ekki kvöð um að gegna ekki
fastlaunuðu starfí.
Öllum umsóknum hefur verið
svarað og skrá um úthlutun verið
send menntamálaráðherra, segír í
fréttinni frá stjóm Launasjóðs rit-
höfunda.
6 mánaða starfslaun hlutu 4 rit-
höfundar: Einar Kárason, Pétur
Gunnarsson, Steinunn Sigurðar-
' dóttir, Þorgeir Þorgeirsson.
5 mánaða starfslaun hlutu 8 rit-
höfundar: Birgir Sigurðsson, Einar
Már Guðmundsson, Guðbergur
Bergsson, Kristján Karlsson, Ólafur
Haukur Símonarson, SvavaJakobs-
dóttir, Thor Vilhjálmsson, Þorsteinn
frá Hamri.
4 mánaða starfslaun hlutu 16
rithöfundar: Andrés Indriðason,
Fríða Á. Sigurðardóttir, Guðlaug
Richter, Guðlaugur Arason, Guð-
mundur (Gíslas.) Steinsson, Hafliði
Yilhelmsson, Jón úr Vör, Jónas
Árnason, Nína Björk Ámasdóttir,
Ólafur Gunnarsson, Sigurður A.
Magnússon, Sigurður Pálsson, Stef-
án Hörður Grímsson, Steinar Sigur-
jónsson, Vigdís Grímsdóttir, Þórar-
inn Eldjám.
3 mánaða starfslaun hlutu 24
rithöfundar: Ármann Kr. Einarsson,
Ámi Ibsen, Auður Haralds, Eðvarð
Ingólfsson, Einar Bragi, Geirlaugur
Magnússon, Guðbjörg Þórisdóttir,
Guðjón Sveinsson, Guðmundur
Daníelsson, Gyrðir Elíasson, Hann-
es Pétursson, Hjörtur Pálsson, ísak
Harðarson, Jón Óskar, Kristján frá
Djúpalæk, Magnea J. Matthías-
dóttir, Magnús Þór Jónsson, Oddur
Bjömsson, Ólafur Jóhann Sigurðs-
son, Sigfús Daðason, Sigfús Bjart-
marsson, Sigrún Eldjám, Svein-
bjöm I. Baldvinsson, Valdís Óskars-
dóttir.
2 mánaða starfslaun hlutu 42
rithöfundar: Aðalheiður Karlsdóttir,
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson,
Agnar Þórðarson, Ámi Bergmann,
Atli Ingólfsson, Baldur Óskarsson,
Birgir Svan Símonarson, Birgitta
H. Halldórsdóttir, Bolli Gústavsson,
Einar Ólafsson, Eiríkur Brynjólfs-
son, Elías Mar, Elín Pálmadóttir,
Elísabet Þorgeirsdóttir, Filippía
Kristjánsdóttir (Hugrún), Friðrik
Guðni Þórleifsson, Guðmundur
Björgvinsson, Gunnar Dal, Hannes
Sigfússon, Ingimar Erl. Sigurðsson,
Indriði Úlfsson, Jóhann Hjálmars-
son, Jóhannes Óskarsson (Jóham-
ar), Jón Hnefíll Aðalsteinsson, Jón
Bjamason, Jónas E. Svafár, Krist-
inn Reyr, Kristín Bjamadóttir, Ólaf-
ur Ormsson, Olga Guðrún Áma-
dóttir, Sigrún Davíðsdóttir, Sigur-
jón Birgir Engilbertsson, Siguijón
Birgir Sigurðsson (Sjón), Snjólaug
Bragadóttir, Steingerður Guð-
mundsdóttir, Vésteinn Lúðvíksson,
Vilborg Dagbjartsdóttir, Þór Eldon,
Þór Whitehead, Þorri Jóhannsson,
Þorsteinn Antonsson, Þorsteinn
Marelsson.
Við hjá Veisluréttum tökum að okkur að sjá
um veislur, bæði stórar og smáar, svo sem
fermingarveislur, afmælisveislur og fl. og fl.
Nánari uppl. í símum 19969 — 10340
VEISLUR ETTIR
Geymið auglýsinguna
Eddie Harris
til Islands
EINN vinsælasti jazzleikari
Bandaríkjanna, Eddie Harris,
kemur til íslands þann 16. mars
ásamt triói sínu og mun leika í
Svartfugli í Nýja Alþýðuhúsinu
á Akureyri þann dag og í Broad-
way í Reykjavík þann 17. mars.
Það eru Jazzklúbbur Akureyrar
og Jazzvakning sem standa að
komu triós Eddie Harris.
Ekidie Harris fæddist árið 1934
í Chicago og byrjaði að syngja í
kirlqukóram fímm ára gamall.
Ungur lærði hann á píanó og víbra-
fón en síðan á básúnu, trompet og
saxafón. Hann lék um tíma með
hljómsveit tenórsaxafónleikarans
Gene Ammons, en stofnaði síðan
eigin hljómsveit. Hann varð heims-
frægur er hannlék lagið úr kvik-
myndinni Exodus inná litla plötu,
og seldist hún í yfír milljón eintök-
um í Bandaríkjunum. Eddie hefur
alltaf haft mikinn áhuga á raf-
magnstónlist og hann var fyrstur
manna til að rafmagna saxafón og
er rafmögnun blásturshljóðfæra
byggð á tilraunum hans. Eddie
hefur líka brallað margt með venju-
leg hljóðfæri. Hann blæs stundum
í saxafóninn með básunumunn-.
stykki og í trompetinn blæs hann
alltaf með saxafónmunnstykki.
Eddi er góður söngvari og auk þess
að syngja venjulega og í falsettu
syngur hann oft í gegnum saxafón-
inn. Hann er frábær grínisti og
reytir brandarana af sér milli laga.
Að því leyti minnir hann á gömlu
meistarana: Louis Amstring og
Fats Waller. Tónlist hans er mjög
fjölbreytt og á rætur sínar í bíl-
boppi, blús og gospeltónlist. Hann
kann þá list öðram fremur að
skemmta fólki konunglega án þess
að það bitni á gæðum tónlistarinn-
ar.
Það era engir smákallar er koma
með honum hingað. Rafbassaleikar-
inn Ralph Amstrong og trommarinn
Sherman Ferguson. Ralph er í hópi
fremstu rafbassaleikara heims og
varð frægur er hann ver bassaleik-
ari í hljómsveit John McLaughlis:
Mahavishnu Orchestra. Hannlék
líka með hljómsveit fíðlarans Jean-
Luck Ponty: Experinence. Ferguson
Iék mjög lengi með gítaristanum
Kenny Burrell.
Þess má að lokum geta að Eddie
Harris var fyrsti jazzleikarinn er
seldi breiðskífu í yfír milljón ein-
taka. Það var Swiss Moments er út
kom árið 1969.
Fréttatilkynning frá Jmvakningu
Eiríkur Finnur efstur
í prófkjöri á Flateyri
Flateyri, ll.mars.
EIRÍKUR Finnur Greipsson
oddviti varð efstur í prófkjöri
sjálfstæðismanna á Flateyri sem
fram fór um helgina. Fékk hann
59 atkvæði i 1. sætið og 69 at-
kvæði alls. 74 tóku þátt i próf-
kjörbiu og eru það 72% þeirra
sem rétt höfðu til þess. 71 at-
kvæði vargilt.
I öðra sæti í prófkjörinu varð
Guðmundur Finnbogason fískiðnað-
armaður með 27. atkvæði í 1.-2.
sætið og 45 atkvæði alls. í þríðja
sæti varð Guðmundur Helgi Krist-
jánsson skipstjóri með 27 atkvæði
í 1.-3. sætin og 51 atkvæði alls. í
fjórða sæti varð Sigriður Sigur-
steinsdóttir umboðsmaður með 27
atkvæði í 1.-4. sæti og 45 atkvæði
alls.
Níu gáfu kost á sér í prófkjörinu
og hlutu 4 þeir efstu bindandi
kosningu.
Sjálfstæðisflokkurinn er með
hreinan meirihluta í hreppsnefnd-
inni á Flateyri, 3 menn af 5. Við
síðustu kosningar var Eiríkur Finn-
ur í 1. sæti listans. Kristján J. Jó-
hannesson núverandi sveitarstjóri
var í 2. sæti. Hinrík Kristjánsson
verkstjóri var í 3. sætinu. Magnús
T. Benediktsson var í 4. sætinu og
fastur maður í hreppsnefnd síðan
Kristján tók við sveitarstjórastarf-
inu. Eirfkur Finnur er sá eini af
þessum mönnum sem gaf kost á
sér í prófkjörið að þessu sinni.
Fréttaritari.
IBM System/36
DISPLAYWRITE/36
Displaywrite ritvinnslukerfið er hannað með
Displaywriter ritvinnslutölvuna sem fyrirmynd. Þetta
kerfi, sem verður notað jafnt á IBM-4300 tölvur,
IBM System/36 tölvur og IBM-PC tölvur,
er nú tilbúið á S/36.
____________________Markmið:______________________
Tilgangur þessa námskeiðs er tvíþættur. Annars
vegar að þjálfa þátttakendur í notkun Displaywrite/36
og hins vegar að kenna uppsetningu skjala
og bréfa með sérstöku tilliti til þeirra möguleika
sem DW/36 býður upp á.
_______________________Efni:______________________
Valmyndir S/36 • Skipanir kerfisins • /Efingar ■
íslenskirstaðlar • Prentun ■ Útsending dreifibréfa
með tengslum við Query/36 • Tengsl við önnur kerfi.
Þátttakendur:
Námskeiðið er ætlað öllum notendum IBM tölva
sem áhuga hafa á að kynnast þessu nýja kerfi og
möguleikum sem það býður upp á.
Tími og staður:
21. og 24.-26. mars kl. 13.30-17.30
Ánanaustum 15
Leiöbeinandi:
fíagna Siguröardóttir,
Guöjohnsen.
▲Stiórnunarfélaa islands
Ánanaustum 15 Símii 6210 66