Morgunblaðið - 13.03.1986, Side 46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR13. MARZ1986
Minning:
Aðalsteinn Skúlason
frá Hornstöðum
Fæddur 9. september 1904
Dáinn 3. mars 1986
Útför Aðalsteins Skúlasonar frá
Homstöðum fór fram frá Hjarðar-
holtskirkju laugardaginn 8. mars
sfðastliðinn að viðstöddu miklu fjöl-
menni. Það var að morgni mánu-
dagsins 3. mars að Aðalsteinn
andaðist á Vffilsstaðaspítala eftir
nokkurra mánaða legu þar.
Sú frétt að Aðalsteinn væri dáinn
átti ekki að koma okkur er til
þekktum á óvart, því heilsu hans
hafði hrakað mjög sfðustu vikumar.
En þó er það ætfð svo að þegar
kallið kemur, þá virðist það svo
óvænt. Aðalsteinn fæddist að Hom-
stöðum f Dalasýslu og ólst þar upp
í foreldrahúsum. Hann var elstur 5
systkina er upp komust en 4 dóu
þegar á unga aldri. Það var snemma
hlutskipti Aðalsteins að taka við
umsjón búskapar á Homstöðum.
Var þar um að kenna heilsuleysi
föður hans, Skúla Guðbrandssonar.
í fyrstu vann hann þetta verk ásamt
móður sinni, Helgu Markúsdóttur,
en er fram liðu stundir þá tók
Guðjón bróðir Aðalsteins við bú-
skapnum með honum. Sú mikla
ábyrgð er lögð var á ungar herðar
Aðalsteins, að taka við búskapnum
og sú mikla vinna er þvf fylgdi,
hefur eflaust markað sín spor f
persónuleika Aðalsteins er gerðu
hann svo sérstakan. Oft er það að
andstæðumar gefa okkur hið fagra
og eftirsóknarverða í lffinu og
þannig minnist ég Aðalsteins á
Homstöðum. Vegna lfkamlegrar
fötlunar var hann ekki mikill fyrir
mann að sjá. En það var persónan,
hún var stór og hún bjó yfir þvf
ríkidæmi sem eftirsóknarvert er
hveijum hugsandi manni.
Vegna sinna góðu mannkosta þá
valdist Aðalsteinn til margvíslegra
trúnaðaretarfa fyrir sveitarfélag
sitt og má þar nefna setu hans f
hreppsnefnd og sjúkrasamlagi
ásamt ýmsum öðrum trúnaðaretörf-
um er ekki verða rakin hér nánar.
Já, þannig var Aðalsteinn, hann
naut trausts og virðingar þeirra er
hann þekktu.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi
að kynnast þeim bræðrum Aðal-
steini og Guðjóni fljótlega eftir að
ég tengdist inn í fjölskyldu þeirra.
Þær voru margar ferðimar sem við
Anna kona mín, systurdóttir þeirra,
áttum vestur f Dali til að hitta
bræðuma og Lóu á Homstöðum.
Hvað það var sem dró okkur ungu
hjónin úr höfuðborginni og vestur
að Homstöðum sumar eftir sumar
er auðvelt að skýra. Það var sér-
stakur blær yfir því að koma til
þeirra bræðra, Aðalsteins og Guð-
jóns. Viðmót þeirra og skilningur á
þörfum og hugsanagangi yngri
kynslóðarinnar gerði það að verkum
að ungt fólk og þá ekki sfður böm
hændust að þeim bræðrum. Ég er
t
Eiginmaöur minn,
ÞÓRHALLUR STEINÞÓRSSON,
Heiðmörk 38,
Hverageröi,
lést á heimili sinu 9. mars sl. Jarösett verður frá Hveragerðis-
kirkju laugardaginn 15. mars kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast
hins látna er bent á Garöyrkjuskóla ríkisins.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Steinunn G. Helgadóttir.
t
Móðirokkar,
KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR OLSEN
áður búsett Bergholti, Vestmannaeyjum,
er látin.
Börn hinnar látnu.
t
Eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaöir og afi,
VILHJÁLMUR PÁLMASON,
Sœviðarsundi 18, Reykjavfk,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. mars kl.
13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþökkuö, en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Landssamtök hjartasjúklinga.
Margrét Sigurðardóttir,
Jórunn Guðmundsdóttir,
Auður Vilhjálmsdóttir, Sigurður Einarsson,
Erla Vilhjálmsdóttir, Magni Blöndal Pótursson,
Pálmi Vilhjálmsson,
Sigriður Vilhjálmsdóttir, Jóhann Bjarnason
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
GESTS JÓNASSONAR,
Álfagerði,
Mývatnssveit,
Kristfn Jónsdóttir,
Jónas Gestsson, Helga Kristvinsdóttir,
Lovfsa Gestsdóttir, Hólmgeir Hallgrfmsson,
Jóhann Gestsson
og barnabörn.
sannfærður um að fleirum hefur
verið líkt farið og okkur að eftir
heimsókn að Homstöðum fóru þeir
heim með nýjan fjárejóð hið innra.
Rfkidæmi Aðalsteins var ekki af
gulli og silfri heldur af þeim gjöfum
Guðs sem bestar eru, bróðurelska
og kærleikur til alls er lifir. Aðal-
steinn átti auðvelt með að setja sig
f spor annarra og ekki síst ef erfið-
leikar voru þar til staðar. Hann
sjálfur hafði ekki farið varhluta af
þeim á yngri árum. óspar miðlaði
hann af reynslu sinni og þekkingu.
Ég hygg að sveitungar Aðalsteins
hafi notið góðrar liðveislu hans til
lausnar ýmsum málum f héraði,
meðan kraftar og heilsa leyfðu.
Aðalsteinn var vel greindur og
minnugur með afbrigðum oggiögg-
ur að koma auga á fareælustu
lausnimar hveiju sinni. Var þá
sama hvort málið varðaði búskapinn
heima við eða heill sveitungans
hvort tveggja var honum jafn kært.
Það sem ég man einna gleggst eftir
frá fyretu ferðum okkar að Hom-
stöðum var það hvemig samskipt-
um þeirra bræðra var háttað. Það
var sem einn hugur og ein hönd
væri þar að verki, svo samstíga
vom þeir á öllum sviðum. Að sjálf-
sögðu greindi ég það strax að það
var annar bræðranna sem tók
ákvörðunina í hveiju máli, eins og
vera ber en hún var aldrei tekin
nema með samþykki hins. Ég er
sannfærður um að aldrei hefur
skugga borið á samstarf þeirra
bræðra Aðalsteins og Guðjóns öll
þeirra búskaparár og mætti margur
þar af læra. Samviskusemi og fóm-
fysi fyrir bústofninum var þeirra
aðalsmerki. Ég man að einhveiju
sinni sátum við Aðalsteinn saman
og ræddum landsins gagn og nauð-
synjar eins og gerist og gengur á
góðri stund. Þá sagði hann þessi
orð sem í raun segja allt um þennan
látna heiðuremann: „Við höfum
aldrei lagt kapp á að hafa bústofn-
inn stóran, heldur nýta þeim mun
betur það sem við höfum." Að skapa
foreendur fyrir góðri afkomu á
skepnum og jörð var þeim brasðrum
metnaður. Það var þeim bræðrum
mikið áfall er þeir fyinr allnokkrum
árum urðu að skera niður allt sitt
fé vegna riðuveiki. Ég hygg að þótt
þeir hafi ekki haft hátt um þá hluti
þá hafi þeim fundist fótum undan
sér kippt. Æmar voru sem hluti
af þeim sjálfum, eins og hjá flestum
góðum bændum, svo ekki hefur það
verið sársaukalaust að horfa á eftir
góðum fláretofni er mörg ár hafði
tekið að rækta upp. En þessu sem
öðru var tekið með æðruleysi. Þeir
höfðu mætt mótlæti fyrr. Þar sem
aldurinn færðist yfir og þeir gerðu
sér það ljóst að heilsunnar vegna
gætu þeir ekki búið á Homstöðum
öllu lengur, þá vaknaði sú von I
bijóstum þeirra bræðra að þeir
fengju inni á Dvalarheimili aldraðra
í Búðardal sem nú er nýlega risið.
Svo sá draumur mætti rætast þá
styrktu þeir byggingu þeirrar stofii-
unar sem mest þeir máttu. Það sem
þeir bræður þráðu hvað mest var
að þeir mættu eyða ævikvöldinu í
nálægð hvore annare heima í sveit-
inni sinni. Aðalsteinn naut þess alla
tíð að eiga sem mest og best sam-
skipti við annað fólk. Að sitja með
vinum og rifla upp atburði liðsins
tíma var Aðalsteini afar kærkomið.
Minni hans var flárejóður af fróðleik
um fólk og málefni og skipti þá
ekki máli hvort rætt var um nútlð
eða þátíð. Aðalsteinn fylgdist vel
með öllu til hinstu stundar. Það átti
ekki fyrir honum né Guðjóni að
iiggja að flytjast inn (Dvalarheimili
aldraðra I Búðardal. Heilsan var
brostin hjá þeim bræðrum báðum.
Guðjón andaðist þann 12. janúar
síðastliðinn á sjúkraháuinu á Akra-
nesi eftir stranga sjúkralegu. Það
liðu ekki tveir mánuðir á milli
andláts þeirra bræðra.
Já, þeir voru svo samstíga í öllum
hlutum og það er eins og hinn
Himneski faðir sem kallið gefur
hafi ekki viljað raska þeim sam-
hljóman er var með þeim alla tíð.
Það er gæfa hvere manns að mega
höndla hið góða í lífinu og rækta
það svo aðrir megi af njóta.
Þetta gerðu bræðumir á Hom-
stöðum. Þeir veittu af auðlegð
hjartans, kærleika, fómfysi, gleði
og visku. Allir er þá þekktu nutu
þessa. Góðar minningar eru það
dýrmætasta sem við eigum um
látna vini. Þegar við sem eftir
stöndum lftum f þeirra gengnu spor,
þá fyllast hjörtu okkar þakklæti tií
Guðs fyrir allt það er Hann gaf
okkur í þeim bræðmm.
Megi blessun Guðs varðveita góð-
ar minningar og ævistarf þeirra
heima f Laxárdal.
Gísli H. Árnason
Aðalsteinn Skúlason var til mold-
ar borinn frá Hjarðarholtskirkju í
Laxárdal f Dölum, laugardaginn 8.
febrúar. Hann andaðist á lungna-
deild Vífilsstaða, eftir nokkurra
mánaða legu þar.
Aðalsteinn fæddist 9. september
1904 og ólst upp í foreldrahúsum
ásamst systkinum sínum, að Hom-
stöðum í Dölum. Foreldrar hans
voru Skúli Guðbrandsson og Helga
Markúsdóttir. Systkini hans voru
María, Sigríður, Guðmundur og
Guðjón, sem er nýlátinn.
Þeir bræður, Aðalsteinn og Guð-
jón, bjuggu að Homsstöðum fyret
í stað með foreldrum sínum og eftir
þeirra dag bjuggu þeir einir eða
höfðu ráðskonur, allar sómakonur.
Lengst var hjá þeim Ólöf Gísladótt-
ir, henni kynntist ég best, er ég
dvaldi að Homsstöðum í 2 sumur
á unglingsámm mínum. Oft dvaldi
ég með fjölskyldu mína að Homs-
stöðum, hjá Aðalsteini, Guðjóni og
Ólöfu, þau vom svo samvalin í því
að láta okkur líða vel hjá sér að
einstakt er.
Böm mín og annarra nutu kær-
leika þeirra og skilnings. Mér hefur
stundum dottið í hug að þau hefðu
yfir að ráða einstökum eiginleika í
að umgangast böm, að þó þau
hefðu lært alla þá uppeldis- og sál-
arfræði sem þekkt er í dag, gætu
þau ekki hafa gert betur.
Þeim bræðmm fór búskapurinn
einstaklega vel úr hendi. Skepnur
þeirra vom oftast með mestu nyt-
ina, það var ekki oft sem þeir
bræður misstu lamb við sauðburð,
enda var alltaf sofið í fjárhúsunum
þennan annatíma yfir sauðburðinn.
Snyrtimennskan á Homsstöðum
var orðlög. Þeir byggðu upp allan
húsakost á jörðina, einnig ræktuðu
þeir mikið land. Homsstaðir er í
dag góð til ábúðar. Þeir urðu fyrir
því mótlæti á sínum búskaparámm
að tvisvar var allt þeirra fé skorið
niður vegna mæðuveiki, í seinna
skiptið fyrir nokkmm ámm.
Þeir tóku niðurskurðinn mjög
nærri sér, bræðumir höfðu komið
sér upp góðu sauðfjárkyni. Hver
skepna var þeim mikils virði. Mesta
mótlæti þeirra var er allt þeirra
sauðfé var skorið niður vegna riðu-
veiki. Þeir vonuðust lengi vel eftir
að þeim auðnaðist að hafa fáeinar
kindur til að annast. En það dróst
vonum framar að til þess fengist
leyfi. Fyrir fjómm ámm urðu þeir
bræður að bregða búi vegna van-
heilsu. Þeir vom búnir að fá íbúð
á dvalarheimili aldraðra í Búðardal,
en þeir höfðu ekki heilsu til að njóta
þeirra vistar. Aðalsteinn naut um
tíma þess að dvelja hjá grönnum
sínum í Engihlíð. Mér er vel kunn-
ugt að þar leið honum vel.
Alltaf var hann aufúsugestur á
heimili systra sinna, einkanlega lét
María systir hans sér annt um hann.
Hann dvaldi tíma hjá Ólafi Finn-
bogasyni og Maríu.
Aðalsteinn var einn af þeim
meðbræðmm okkar sem gera dag-
legt Iíf auðugra fyrir samferðafólk
sitt. Þolinmæði og skapfesta var
lyndiseinkunn hans. Sá einstaki
hæfileiki hans að taka þátt f kjörum
annarra, sérstakt var hvesu létt
hann átti með að setja sig í spor
ungs fólks, og skipti það ekki máli
hvort það vom borgarböm eða böm
úr hans nánasta umhverfi.
Aðalsteinn var greindur maður,
vel lesinn og fróður, þess fróðleiks
naut ég vel. Hann var mikill sam-
vinnumaður og þeim hugsjónum
ávallt trúr.
Aðalsteinn gegndi mörgum trún-
aðaretörfum fyrir sveit sína. Hann
sat í hreppsneftid, og annaðist
sjúkrasamlag Laxdælinga um lang-
an tíma. Éinnig sá hann um laxeldi
í Laxá. Aðalsteinn átti trúnað allra
þeirra sem honum kynntust. Fyrir
mig sem ungling var það ómetan-
legt að kynnast þeim mætu mönn-
um, sem Homstaðabræður vom.
Af þeim lærði ég margt sem hefur
verið mér til þroska á lífsieiðinni,
það fæ ég seint fullþakkað. Um
leið og við hjónin kveðjum kæmm
vin okkar hinstu kveðju votta ég
eftirlifandi systkinum hans og öðr-
umn aðstandendum mína innleg-
ustu samúð.
Sólveig Þórðardóttir
ísafjörður:
Prófkjör hjá Alþýðuflokknum
ísafirði, 11. mars.
PRÓFKJÖR Alþýðuflokksins á
ísafirði vegna bæjarstjómar-
kosninganna fór fram um síðustu
helgi. Fimm menn gáfu kost á
sér til prófkjörs, þau Kristján
Jónasson framkvæmdastjóri,
sem nú er í fyrsta sæti listans,
Snorri Hermannsson skólastjóri,
sem nú situr í öðru sæti auk
þeirra Halldórs Guðmundssonar
forstöðumanns, Ingibjargar
Ágústsdóttur húsmóður og Sig-
urðar R. Ólafssonar formanns
Sjómannafélags ísfirðinga, en
ekkert þeirra er á núverandi
lista.
Úrslit urðu þau að Kristján Jón-
asson hlaut flest atkvæði í fyreta
sæti 123 og 204 atkvæði samtals.
Halldór Guðmundsson hlaut 144
atkvæði í fyreta og annað sæti, alls
213. Ingibjörg Agústdóttir 154
atkvæði í þijú fyretu sætin, alls 200
og Snorri Hermannsson alls 155
atkvæði í íjögur sætin. Kosið var
um flögur sæti og fengu þessi öll
bindandi kosningu.
Það vekur athygli að Sigurður
Ólafsson formaður Sjómannafélags
fsfirðinga náði ekki kjöri en hann
hlaut samtals 140 atkvæði.
237 tóku þátt í prófkjörinu, en
fyrir síðustu kosningar fékk flokk-
urinn 178 atkvæði í sameiginlegu
prófkjöri flokkanna á ísafirði. Al-
þýðuflokkurinn á nú tvo fulltrúa í
bæjaretjóm og myndar meirihluta
með Alþýðubandalaginu, Fram-
sóknarflokki og lista óháðra kjós-
enda.
Úlfar.