Morgunblaðið - 16.07.1986, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 1986
Morgunblaðið/Júlíus
Strætisvagn ók á mann
Strætisvagn ók á mann á gangbraut við mót Lækjargötu og
Bankastrætis síðdegis í gær. Skarst maðrinn á höfði og hruflað-
ist að auki á olnboga. Ekki eru meiðsli hans alvarleg.
Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Reykjavík var stræt-
isvagninn á leið norður Lækjargötu og fór yfir gatnamótin á
grænu ljósi eins og lög gera ráð fyrir. Maðurinn, sem fyrir
vagninum varð, fór hins vegar yfir gangbraut á rauðu ljósi.
Hann mun hafa verið ölvaður.
Hemlaför strætisvagnsins mældust 6 metrar, en þá er mælt
frá byijun þeirra að afturenda vagnsins.
Uorgunblaðið/Þorkell
í golfi í Grafarholti
Fulltrúar í borgarstjórn Reylgavikur mættu í gær til leiks á
golfvellinum f Grafarholti og slógu þar hvita boltann ásamt
stjómarmönnum í Golfklúbbi Reykjavíkur og öðrum staðkunn-
ugum. Á myndinni era Davíð Oddsson, borgarstjóri, og Hannes
Guðmundsson, formaður stjórnar Golfklúbbs Reykjavíkur. Borg-
arstjóri er kampakátur enda flaug boltinn snöggtum lengra en
við fyrsta högg í keppninni á siðasta ári.
Nýtt kvæðasafn eftir
Kristján frá Djúpalæk
Nýtt stjórnkerfi Landsvirkjunar:
Almannavamir í viðbragðsstöðu;
Talið að DC-8-þota væri
með sprunginn hjólbarða
FLUGTURNINN í Keflavík bað Almannavarair ríkisins að
hefja viðbúnað vegna flugslyss um kl. 8.30 í gærmorgun. Flug-
stjóri DC-8-þotu Fiugleiða, á leið frá Chicago með 190 farþega,
taldi að hjólbarði hefði sprungið í flugtaki. Vélin lenti 10 mínút-
um fyrir átta með eðlilegum hætti. Eftir að flugvirkjar höfðu
yfírfarið þotuna hélt hún áfram til Lúxemborgar samkvæmt
aætlun.
Flugleiðaþotan var stödd um
100 sjómflur út af Keflavík þegar
flugstjórinn tilkynnti að hann
grunaði að hjólbarði hefði laskast.
Hafði hann orðið var við óeðlilegan
titring þegar tekið var á loft í
Chicago. Flugstjórinn bað um að
fá að fljúga lágt yfir völlinn svo
hægt væri að skoða hjólabúnaðinn
af jörðu niðri. Það var ekki talið
heppilegt vegna þoku. Vél á leið
frá New York var látin fljúga upp
að „Chicago-vélinni". Flugmenn-
imir könnuðu hjólabúnaðinn en sáu
ekkert athugavert.
Klukkan 7.29 barst Almanna-
vömum ríkisins beiðni um að hefja
viðbúnað vegna flugslyss, frá flug-
stjóm á Keflavíkurflugvelli.
Guðjón Petersen, framkvæmda-
stjóri Almannavama, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
12 mínútum síðar hefði allt tiltækt
lögreglulið, sjúkralið og hjálpar-
sveitir á Suðumesjum og í
Reykjavík verið í viðbragðsstöðu.
Að þessu leyti var farið á fyrsta
stig hópslysaáætlunar en engar
ráðstafanir höfðu verið gerðar á
sjúkrahúsunum. Vélin lenti síðan
kl. 7.51 án nokkurra vandræða.
Slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli
beið með alla bfla sína við flug-
brautina, og eltu þeir þotuna í
lendingu þar til ljóst var að engin
hætta væri á ferðum. Þá hættu
Almannavamir viðbragðsstöðu
sinni.
Ástvaldur Eiríksson, vara-
slökkviliðsstjóri á Keflavíkurflug-
velli, sagði að útköll af þessu tagi
væru algeng. í fæstum tilfellum
tengjast þau farþegaflugi. Vamar-
liðið hefur það fyrir reglu að biðja
um aðstoð ef minnsti grunur leikur
á að bilun sé í herflugvél. Að sögn
Sæmundar Guðvinssonar, blaða-
fulltrúa Flugleiða, á það ekki að
skapa hættu ef hjólbarði springur
á farþegaþotu. DC-8-þotumar em
á 8 hjólum, og hafa lent heilu og
höldnu þótt loft hafi farið af ein-
hveijum þeirra.
SKJALDBORG á Akureyri
hefur gefíð út kvæðasafnið
„Dreifar af dagsláttu" eftir
Kristján frá Djúpalæk. Skáld-
ið verður sjötugt í dag, 16.
júlí. í bókinni er að fínna sýn-
ishora úr fimm síðustu ljóða-
bókum Kristjáns og handriti
ljóða sem ort hafa verið eftir
að síðasta bókin „Fljúgandi
myrkur" kom út árið 1981.
í fréttatilkynningu frá út-
gáfunni segir að Kristján Krist-
jánsson hafí valið kvæðin í bókina
en Gísli Jónsson riti ítarlegan
formála. Árituð og tölusett eintök
hafa þegar verið send 500 manns
sem skrifuðu nöfn sín á „Tabula
Gratulatoria“. Skráin er birt
fremst í bókinni. Kristján frá
Djúpalæk hefur nú gefíð út 20
bækur, þar af 16 í bundnu máli.
Hæstutilboð 115—147
millj. undir áætlun
ÖLL TILBOÐ sem bárust í nýtt
stjórakerfi Landsvirkjunar, voru
að minnsta kosti rúmlega hundr-
að milljónum króna undir kostn-
aðaráætlun ráðunauts fyrirtæk-
isins. Svissneskt fyrirtæki átti
lægstu tilboðin.
Borgarráð:
Uppsögnum meina-
tækna frestað
BORGARRÁÐ samþykkti á fundi
sínum í gær að fresta uppsögnum
40 meinatækna á Borgarspítal-
anum iim þijá mánuði, eða til 1.
janúar nk.
Um 40 meinatæknar í 30 stöðum
á Borgarspítalanum höfðu sagt upp
störfum um síðustu mánaðamót og
hugðust láta af þeim frá og með
1. október í haust.
Þá var Ragnar Júlíusson kosinn
formaður skólanefndar og fræðslu-
ráðs á fundinum en kjöri formanns
var frestað á fundi borgarstjómar
þann 19. júní sl. Auk Ragnars skipa
nefndina þau Siguijón Fjeldsted,
Guðrún Zoega, Þorbjöm Broddason
og Kristín Amalds.
Um var að ræða tilboð í nýjan
kerfiráð til fjarstýringar og fjar-
gæslu á raforkukerfi Landsvirkj-
unar. Samkvæmt því, sem segir
í fréttatilkynningu frá Lands-
virkjun, var miðað við þijá
eftirtalda valkosti:
2. Westinghouse Systems Ltd., England
3. CAE Electronics Ltd., Kanada
4. Harris Corporation, USA
5. ASEA, Svíþjóð
6. Brown Boveri & Cie, Sviss
Kostnaðaráætlun rádunauts
Valkostur B:
1. Landis & Gyr AG, Sviss
2. CAE Electronics Ltd., Kanada
3. ASEA, Svfþjóð
Kostnaðaráætlun ráðunauts
Valkostur C:
1. Landis & Gyr AG, Sviss
2. Westinghouse Systems Ltd., England
3. Harris Corporation, USA
4. CAE Electronics Ltd., Kanada
5. ASEA, Svíþjóð
Kostnaðaráætlun ráðunauts
Kostnaðaráætlun ráðunauts er
miðuð við föst verð, en tilboðsverð-
in em væntanlega meira eða minna
háð verðbreytingarákvæðum. Jafn-
framt er vakin athygli á því að hér
þarf ekki að vera um að ræða end-
anlegar niðurstöðutölur eða röð
tilboða, þar sem Landsvirkjun á
eftir að kanna þau með tilliti til
útboðsgagna og bera þau endanlega
saman.
Kr. 237.390.200 60,9%
Kr. 247.078.677 63,4%
Kr. 389.866.440 100,0%
Kr. 134.510.347 42,0%
Kr. 188.906.235 58,9%
Kr. 205.377.678 64,1%
Kr. 320.518.000 100,0%
Kr. 152.778.603 43,7%
Kr. 159.707.893 45,7%
Kr. 185.401.926 53,0%
Kr. 201.117.924 57,6%
Kr. 210.606.201 60,2%
Kr. 349.656.000 100,0%
Tilboðin verða nú könnuð í ein-
stökum atriðum og borin endanlega
saman. Að því búnu mun stjóm
Landsvirkjunar taka afstöðu til
þeirra og skýra frá niðurstöðum
sínum í því efni, segir að lokum í
fréttatilkynningu frá Landsvirkjun.
A: Stjómkerfi með 2 stjórnstöðvum staðsettum í
samanburður við kostnaðaráætlun ráðunauts Landsvirkjunar.
Valkostur A:
1. Landis & Gyr AG, Sviss Kr. 158.640.603 40,7%
Kr. 168.100.979 43,1%
Kr. 221.780.553 56,9%
Kr. 227.089.996 58,2%
Nefnd fjallar um launagreiðsl-
ur til stórmeistara 1 skák
SVERRIR Hermannsson, menntamálaráðherra, hefur skipað þriggja
manna nefnd til að semja reglur um launagreiðslur til stórmeistara
I skák. Sú veiya hefur skapast frá því að Friðrik Ólafsson varð stór-
meistari að skákmenn þægju laun samkvæmt taxta menntaskólakenn-
ara þegar þeir hafa náð stórmeistaratitli. Engar reglur hafa þó verið
til um þessar launagreiðslur.
í nefndinni eiga sæti Halldór
Blöndal alþingismaður, sem er for-
maður, Baldur Möller ‘ fyrrverandi
ráðuneytisstjóri og Knútur Hallsson
ráðuneytisstjóri í menntamálaráðu-
neytinu. Knútur Hallsson sagði f
samtali við Morgunblaðið að hlut-
verk nefndarinnar væri að semja
reglur sem kvæðu á um réttindi og
skyidur þeirra skákmanna sem
þægju launin, og hversu lengi þeir
ættu rétt á þeim. En engar slíkar
reglur eru til. Nefíidin mun koma
saman næstkomandi fímmtudag.
Stórmeistarar á íslandi eru nú sex
og þiggja þrír þeirra umrædd laun,
þeir Guðmundur Siguijónsson, Helgi
Ólafsson og Jóhann Hjartarson.
Guðmundur hefur þegið launin frá
því hann varð stórmeistari árið 1974,
en þeir Helgi og Jóhann bættust í
stórmeistarahópinn á síðasta ári og
hafa þegið launin frá því þeir voru
formlega útnefndir stórmeistarar á
síðasta þingi FIDE. Friðrik Ólafsson
þiggur Iaunin ekki lengur og Mar-
geir Pétursson og Jón L. Amason
hafa ekki komist á launaskrá hjá
menntamálaráðuneytinu énn, en þeir
verða báðir útnefndir stórmeistarar
á þingi FIDE í haust.