Morgunblaðið - 16.07.1986, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 1986
Nixon í einkaheimsókn í Moskvu:
Ræddi við Gromyko
á þriðju klukkustund
Moskvu, AP.
RICHARD M. NIXON, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna,
ræddi í gær við Andrei A. Gromyko, forseta Sovétríkjanna,
í hálfa þriðju klukkustund. Nixon kom á laugardag til Sov-
étríkjanna í sex daga einkaheimsókn. Blaðafulltrúi Nixons
sagði að för hans væri á engan hátt opinber.
Nixon, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, veifar hér til blaða-
manna, þar sem hann stfgur út úr flugstöðvarbyggingunni í Moskvu.
Ákveðið var fyrirfram að ekki
yrði skýrt efnislega frá viðræðum
Nixons við sovézka ráðamenn.
Pyrir fundinn með Gromyko ræddi
hann við Georgy A. Arbatov, helzta
ráðgjafa Kremlarleiðtoganna um
bandarísk málefni. Þá hélt hann
20 mínútna fyrirlestur um sam-
skipti stórveldanna í stofnun, sem
ljallar um bandarísk og kanadísk
málefni og svaraði fyrirspumum
10 nunnum og trúboða rænt á Filipseyjum:
Stjórn Aquino neitar
að greiða lausnargjald
ManUa, AP.
STJÓRN Corazon Aquino, forseta Filippseyja, hafnaði í dag
kröfum mannræningja, sem krefjast jafnvirði 100.000 Banda-
ríkjadala í lausnargjald fyrir bandariska trúboðann Brian
Lawrence og 10 nunnur, sem rænt var á Filippseyjum fyrir
helgina
Mannræningjamir krefjast þess
jafnframt að múhameðstrúar-
mönnum á Filippseyjum verði veitt
sjálfsforræði og að þeim verði út-
hlutað landi syðst í eyjaklasanum.
Að sögn talsmanns bandaríska
sendiráðsins verður ekki orðið við
kröfum ræningjanna um lausnar-
gjald og fílippeyskum yfirvöldum
treyst til þess að leysa málið með
friðsamlegum hætti.
Ræningjamir segja í bréfí, sem
afhent var vamarmálaráðuneyt-
inu, að Brian Lawrence hafi verið
rænt til þess að mótmæla því að
ekki náðust samningar um lausn
franska prestsins Michel Gigord,
sem rænt var í júní og hafður í
Yasser Arafat í viðtali við Der Spiegel:
Sameinuðu þjóðirn-
ar taki við stjórn á
V esturbakkanum
Hamborg, Vestur-Þýskalandi, AP.
YASSER Arafat, leiðtogi Frelsissamtaka Palestínu-Araba, PLO, sagði
í viðtali, sem birtist í tímaritinu Der Spiegel á mánudag, að hann
legði til, að Vesturbakkinn, sem ísraelar hernámu í sex daga stríðinu
1967, yrði settur undir stjóm Sameinuðu þjóðanna. Sagði hann, að
þetta gæti orðið fyrsta skrefið í þá átt að leysa deiluraar fyrir botni
Miðjarðarhafs.
»Ei
gislingu í þrjár vikur. Samtök
múhameðstrúarmanna stóðu á bak
við ránið á Gigord.
Lawrence var rænt á heimili
hans í borginni Marawi á laugar-
dagskvöld. Um 20 vopnaðir
múhameðstrúarmenn réðust inn í
íbúðina og námu hann á brott.
Daginn áður var 10 nunnum rænt
úr Karmelklaustrinu, sem stendur
á fjallstindi rétt fyrir utan Marawi.
Múhameðstrúarmenn eru í miklum
meirihluta í Marawi.
Bréfíð, þar sem krafan um
lausnargjald kemur fram, var und-
irritað af Aragasi Pasandalan, sem
gengur undir nafninu „Rommel
ofursti". Leiðtogi samtakanna,
sem stóðu að ráninu, er Ismael
Dimaporo, bróðursonur Ali Dimap-
oro fyrrum landsstjóra í Lanao del
Sur, en hann er mjög dyggur
stuðningsmaður Marcosar, fyrrum
forseta.
að því loknu í hálftíma.
Anatoly F. Dobrynin átti að vera
gestgjafí Nixons í Moskvu, en hann
þurfti skyndilega að fara til Víet-
nam að votta Le Duan, fyrrum
leiðtoga Víetnam, virðingu sína.
Dobrynin er væntanlegur á mið-
vikudag, eða fímmtudag, og mun
hann þá hitta Nixon.
Dobrynin var sendiherra Sov-
étríkjanna í Washington um 24 ára
skeið, en var kallaður heim til
Moskvu í mars sl., og hefur síðan
verið ritari miðstjómar Sovéska
Kommúnistaflokksins. Talið er að
Dobrynin sé einn helsti ráðgjafí
Gorbachevs í málefnum Vestur-
landa, og þá sérstaklega Banda-
ríkjanna.
Áður en Nixon fór til Moskvu,
hringdi hann í Reagan forseta, en
ekki var látið uppi hvað þeim fór
á milli, að öðru leyti en því, að
sagt var að þeir hefðu rætt sam-
skipti ríkjanna. Blaðafulltrúi
Nixons, John Taylor, sagði að Nix-
on hefði ekki verið beðinn fyrir
nein skilaboð frá Reagan til Kreml-
arbænda.
Nixon, sem er 73 ára gamall,
mun væntanlega fara frá Moskvu
á föstudag.
Kafað
niður að
Titanic
Woods Holc, AP.
FIMMTÍU og sex vísindamenn
og sjómenn eru nú komnir að
flaki farþegaskipsins Titanic og
fór foringi leiðangursins, Robert
Ballard, niður að flakinu í dverg-
kafbát á sunnudag ásamt tveim-
ur leiðangursmönnum öðrum.
Ballard var einnig foringi leið-
angursins, sem hafði upp á flaki
Titanic á síðasta ári. Bandaríski
sjórherinn kostar leiðangurinn og á
hann að standa í ellefu daga.
Noregur:
Fyrsta erlenda
lánið í sex ár
Osló, AP.
NORSKA fjármálaráðuneytið tilkynnti á mánudag, að tekið yrði 500
millj. dollara lán i Vestur-Evrópu. Verður það í fyrsta sinn í sex ár,
sem Norðmenn taka erlent lán.
Norska stjómin hefur veitt heim-
ild til að tekið verði lán að fjárhæð
890 millj. dollarar alls, en ekki hef-
ur verið ákveðið enn, hvort og þá
hvemig það verður nýtt, það sem
eftir er af lánsheimildinni.
Athygli vekur, að tilkynning §ár-
málaráðuneytisins var birt samtímis
því, sem enn varð veruleg lækkun
Sg legg nú til í fyrsta sinn, að
þetta hemumda svæði verði lagt
undir yfírsljóm Sameinuðu þjóð-
anna,“ sagði Arafat í viðtalinu. „Ég
er reiðubúinn að ábyrgjast öryggis-
hlið þessarar ráðstöfunar. Hið eina,
sem ég hef áhuga á, er, að þjóð
mín fái loksins land, þar sem hún
getur notið frelsis."
f tímaritinu sagði, að viðtalið
Tíu Afganar
bíða bana í
sprengingu
Islamabad, AP.
TÍU Afganir létust og fimmtán
særðust þegar öflug sprengja
sprakk í gistihúsi í búðum í Pak-
istan, skammt undan landamær-
um Afganistan. Afganskir
skæruliðar starfa mikið á þessu
svæði.
Pakistanskur hermaður lét lífíð
í stórskotaliðsárás afganska hersins
á landamæravarðstöð. Að sögn
stjómar Pakistans gáfu landa-
mæraverðimir afganska sljómar-
hemum tilefni til árásarinnar.
hefði verið tekið í Vínarborg í
síðustu viku, f kjölfar þeirrar
ákvörðunar Husseins Jórdaníukon-
ungs að loka 25 skrifstofum PLO
í Jórdaníu og takmarka vemlega
ferðafrelsi æðstu aðstoðarmanna
Arafats.
í viðtalinu neitar PLO-leiðtoginn
því, að hann hafí átt í illdeilum við
Hussein, en sakar Jórdaníukonung
um að „beygja sig undir" kröfu frá
Bandaríkjamönnum um að hunsa
PLO-samtökin í friðarviðræðunum.
„Jórdaníustjóm leitar nú leiða til
að sniðganga samtökin, en það
tekst henni ekki, einfaldlega vegna
þess að þau gegna mikilvægu hlut-
verki í málinu. Deilumar fyrir botni
Miðjarðarhafs verða ekki til lykta
leiddar án aðildar okkar."
Um 850.000 Palestínumenn búa
á Vesturbakkanum. Arafat útskýrði
ekki nánar, hvemig haga bæri
stjóm S.þ. þar samkvæmt tillögu
hans.
Arafat kom til Bagdad á laugar-
dag til viðræðna við fraska ráða-
menn. Þar var fyrir PLO-leiðtoginn
Khalil Wazir, sem rekinn var frá
Jórdanfu í síðustu viku, og tók hann
þátt í viðræðunum. Jórdaníumenn
hafa stutt dyggilega við bakið á
írökum í Persaflóastríðinu.
Norræn fegurð íPanama
Um þessar mundir stendur Miss Universe-fegurðarsamkeppnin
yfir i Panamaborg. Um síðastliðna helgi sátu fegurðardísirnar
fyrir hjá ljósmyndurum, og hér sjást fulltrúar Norðurlandanna:
Helen Christensen, Danmörk (lengst t.v.), Tuula Polvi, Finn-
landi, Þóra Þrastardóttir, íslandi, Tone Henriksen, Noregi, og
Anna Rahmberg, Svíþjóð.
á norsku krónunni gagnvart erlend-
um gjaldmiðlum. Gengi hennar var
ákveðið f gengislækkuninni f maí
sl. en hún lækkaði enn frá síðasta
föstudegi til mánudags gagnvart
flestum gjaldmiðlum nema sterl-
ingspundinu.
Þannig var Bandaríkjadollar
seldur á 7,44 n. kr. á fimmtudag í
síðustu viku, á 7,535 n. kr. á föstu-
dag og á 7,64 n. kr. á mánudag.
Haft var eftir Birger Langerland,
framkvæmdastjóra erlendu lána-
deildarinnar í Den Norske Credit-
bank, eins stærsta banka Noregs,
að lágt olíuverð og vaxandi verð-
bólga væru meginorsakimar fyrir
lækkandi gengi norsku krónunnar.
Samt væri þess enn langt að bíða,
að ástandið yrði svipað og það var,
er gengi norsku krónunnar var
fellt. „En 1,5 % lækkun norsku
krónunnar á örfáum dögum er okk-
ur ekki að skapi," sagði Langerland.
Spánn:
Viðræður
um fækkun
hermanna
Madrid, AP.
HAFNAR eru viðræður um
fækkun í herliði Bandaríkja-
manna á Spáni. Að sögn tals-
manns spænska utanrikisráðu-
neytisins vonast Spánveijar til
að samkomulag náist um veru-
lega fækkun hermanna þar án
þess þó að öryggi iandsins rask-
ist.
Talsmaðurinn kvaðst eiga von á
löngum og ströngum viðræðum.
Arið 1953 gerðu ríkin með sér
gagnkvæman vamarsamning og
var hann endumýjaður fyrir stuttu.
Bandaríkjaher ræður yfír tveimur
flugstöðvum, flotahöfn og sex fjar-
skiptastöðvum á Spáni og telur
herlið þeirra þar um 12.500 manns.