Morgunblaðið - 16.07.1986, Page 23

Morgunblaðið - 16.07.1986, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 1986 23 Dagblað þjóðarinnar í Kína: „Vaknið fél- agar, vaknið“ Peking, AP. KÍNVERSKIR skrifræðisvinir og kerfisþjónar þvermóast marg- ir við hvers kyns breytingum. Þeir andvarpa og stynja, romsa upp úr sér stofnanamáli og þrasa i það endalausa í stað þess að koma einhveiju í verk, að þvi er dagblað kommúnistaflokks- ins, Renmin Ribao (Dagblað þjóðarinnar), sagði í forsíðugrein á þriðjudag. „Réttast væri að hrópa í eyru þeirra: „Vaknið, félagar, vakn- ið!““ sagði í greininni. Ný stefnumál flokksins eiga ekki upp á pallborðið hjá sumum kerfísþjónum. Hvort sem þá er að fínna í hópi embættismanna eða almennra borgara, er háttur þeirra að „deila um keisarans skegg og andvarpa og stynja" yfír breytingum, sagði í greininni. Margur kerfísþjónninn „fer sér hægt við vinnu“, er sár og „sökkv- ir sér í fundafen", sem skilur ekkert bitastætt eftir, sagði enn- fremur. „Fólk rökræðir án þess að kom- ast að niðurstöðu, og jafnvel þótt komist sé að niðurstöðu í ein- hverju máli er ekkert hugsað um að hrinda því f framkvæmd," sagði í greininni. Kínverska skriffínnskubáknið, sem á stundum gerir jafnvel ein- földustu úrlausnarefni óhemju- flókin og seinunnin, veldur almenningi vonbrigðum og gremju. Málgögn stjómarinnar og æðstu embættismenn hafa látið þau orð falla upp á síðkastið, að þvergirðingamir haldi mörgum framfarasinnanum í heljargreip- um kerfisins vegna andstöðu sinnar við breytingar. Stakk sápustykki upp í kennarann Doncaster, Englandi, AP. MAÐUR EINN i Doncaster játaði fyrir rétti í gær að hann hefði ráðist á kennara og stungið upp í hann sápustykki, eftir að kenn- arinn hefði gert slíkt hið sama við sex ára gamlan son hans. Þannig var að kennarinn, Elsie Sherratt, neyddi son Normans Time til að bíta stykki úr sápu í október í fyrra, í refsingarskyni fyrir að hafa hrækt á annað barn. Time Sri Lanka: sagði fyrir rétti að hann hefði reynt í íjóra mánuði að fá skólayfírvöld til að refsa kennaranum, en ákveð- ið að taka málið í sínar hendur þegar sonur hans kom heim einn daginn niðurbrotinn og blautur eft- ir að kennarinn hafði ekki leyft honum að fara á klósettið meðan á kennslustund stóð. Dómarinn í málinu sleppti Nor- man Time lausum án þess að þurfa að borga sekt, svo fremi sem hann yrði ekki til vandræða í nánustu framtíð. (2) SILFURBUÐIN Laugavegi 55, Reykjavík Sími 11066 Mannvíg á báða bóga þrátt fyrir friðar- viðræður Colombo, Sri Lanka, AP. TAJLSMAÐUR stjórnarinnar á Sri Lanka sagði í gær, að her landsins hefði fellt ellefu tamílska skæruliða á Jaffna- skaganum á mánudag. í tilkynn- ingu frá Frelsisfylkingu Tamíla, aðalskæruliðahreyfingunni, sagði, að tundurdufl, sem skæru- liðar hefðu komið fyrir, hefði gereyðilagt fallbyssubát á þriðju- dagsmorgun og tólf sjóliðar Iátið lífið. í tilkynningu skæruliða sagði enn fremur, að fallbyssubáturinn hefði verið eyðilagður í hefndarskyni fyr- ir dauða 37 tamflskra sjómanna, sem sjóher Sri Lanka hefði myrt á eynni Mandaithivu 10. júní sl. Að sögn skæruliða lenti báturinn á duflinu, þegar hann var á leið til flotastöðvarinnar í Karainagar. Stjómvöld tilkynntu á mánudag, að 39 manns hefðu fallið í átökum víðs vegar um landið þann dag. Herskáir Tamílar hafa hafnað friðartillögum Jayewardene forseta, sem undanfarið hefur átt viðræður við sendinefnd tamflskra leiðtoga, sem flestir hafa aðsetur í Madras á S-Indlandi. Stjómarandstöðu- þingmenn úr hópi Sinhala sögðust ætla að hunsa friðarráðstefnu, sem hófst í Colombo í gær. Þeim þykir stjómin hafa gengið bf langt tij móts við kröfur Tamfta. SUMARFERÐ FRAMSÓKNARFÉLAGANNA VERÐURIÞÓRSMÖRK Sumarferð Framsóknarfélaganna í Reykjavík verður laugardaginn 19. júlí n.k. Lagt verður af stað frá Rauðarárstíg 18 kl. 8,00 f.h. Farmiðasala er á skrifstofu Framsóknarflokksins að Rauðarárstíg 18, og er síminn þar 24480. Aðalfararstjóri verður Jón R. Hjálmarsson fræðslu- stjóri. Aðrir í fararstjórn eru: Jón Helgason ráðherra, Þórarinn Sigurjónsson alþ.m., Sigrún Magnúsdótt- ir borgarfulltrúi og Steinþór Þorsteinsson form. fulltrúa- ráðs Framsóknarfélaganna í Reykjavík. Haraldur Ólafsson alþ.m. mun flytja stutt ávarp í ferð- inni. Fólk er minnt á að taka með sér nesti og góðan ferðafatnað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.