Morgunblaðið - 16.07.1986, Side 46
- V
1
' x
Körfubolti:
Þrjú lið f
úrvalsdeild
FRESTUR til að tilkynna þátt-
töku í íslandsmót Körfuknatt-
leikssambands íslands rann
út 4. júlí sl. Einungis þrjú liö
hafa tiikynnt þátttöku í Úrvals-
deild og enn fœrri í aðrar
delldir.
Þar sem gert er ráð fyrir því
að niðurröðun íslandsmóts
hefjist strax upp úr 15. júlí þá
er allt útlit fyrir að fjöldinn allur
af liðum, sem þátt tóku I Is-
landsmótinu sl. ár, verði ekki
með þetta árið.
Ef svo fer verður íslandsmót-
ið fremur fámennt.
Opna
Hagkaups-
mótið
í golf i
OPNA Hagkaupsmótið verður
haldið i þriðja sinn dagana 19.
og 20. júlí. Keppnisfyrirkomu-
lag verður með þvf sniði að
leikið verður af gulum teigum
höggleikur án forgjafar og af
hvrtum teigum höggleikur
með forgjöf.
Heildarverölaun eru vöruút-
tektir hjá Hagkaup og IKEA að
verðmæti 125.000 þús. kr.
Verðlaun skiptast sem hór seg-
ir: Fyrir lægsta skor af hvítum
teigum verða veitt sérstök
verðlaun að upphæð 10.000 kr.
Aukaverðlaun verða átta, fyrir
að vera næstur holu á öllum
par þrjú holum á vellinum,
hvorn dag, aö upphæö 3.000
kr. Skráning i mótið fer fram
fimmtudaginn 17. júlí og föstu-
daginn 18. júlí, i síma 92-4100
og 92-2908, og í golfskálanum
í Leiru. Æfingadagar fyrir mótið
eru fimmtudagur og föstudag-
ur.
Tennis-
fréttir
Tennisáhugafólki gefst
fljótlega kostur á aukinni iðk-
un þessarar skemmtilegu
íþróttar. í byggingu eru 4
tennisvellir á skjólsælum stað
innst f Fossvogi á fþrótta-
svæði Vfkings.
Samkomulag hefur veriö
gert við stjórn Víkings um að
selja áskriftarkort til 5 ára til
einstaklinga á 10 þúsund krón-
ur en tjölskyldna á 12 þúsund
krónur. Gjöld þessi fjármagna
vallargeröina. Vellirnir verða
malbikaöir og afgirtir. Hér er
kjörið tækifæri til hollrar hreyf-
ingar og útivistar, en tennis
má leika á öllum aldri og aldrei
of seint að byrja. Söfnun er í
gangi og öllum opin og þeir
sem hafa áhuga geta hringt í
síma 11879 (Einar Thorodd-
sen), 38525 (Börkur Aðal-
steinsson), 33137 (Margrét
Svavarsdóttir), 31497 (Stein-
gerður Einarsdóttir) eða 17292
(Árni Tómas Ragnarsson).
Leiðrétting
í fréttum Morgunblaðsins í
gær af úrslitum í meistara-
mótum golfklúbanna er rangt
farið með nöfn tveggja kylf-
inga úr Nesklúbbi.
Það var Jóhannes Gunnars-
son, sem sigraði í 1. flokki og
Sverrir Einarsson, er varð í
þriðja sæti í 2. flokki. Þá er
Hannes Hall, sem fór holu í
höggi á Akranesi á dögunum,
úr NK, en ekki GK.
• Fulftrúar Vals, Fram og ÍA, sem voru viðstaddir er dregið var f Evrópukeppninni f knattspyrnu, segja álit sitt á mótherjum sfnum f keppn
inni. Þessi skemmtilega mynd er frá leik tveggja Evrópuliða, en hún hlaut verðlaun í Ijósmyndasamkeppni Adidas.
Skagamenn vilja leika á Akranesi
- Valsmenn fengu heillaskeyti frá framkvæmdastjóra
Real Madrid. Leikmenn Fram í fyrsta skipti til Póllands
FULLTRÚAR fslensku knattspyrnuliðanna, sem taka þátt f Evrópu-
keppni í haust, Vals, Fram og Akraness, voru viðstaddir, þegar dregið
var f Sviss f síðustu viku. Þeir eru komnir aftur heim og ræddi blaða-
maður Morgunblaðsins við þá af þvf tilefni.
„Stökk hæð mína
í loft upp“
Eggert Magnússon, formaður
Knattspyrnudeildar Vals, og Helgi
Magnússon voru fulltrúar Vals og
voru þeir að vonum ánægðir með
mótherjana. „Við sögðum áður en
við fórun að við fengjum Juventus,
en auðvitað var þaö óskhyggja.
Ég neita því ekki að við vorum
mjög spenntir og okkur leist ekki
á blikuna í byrjun, þegar þekkt og
sterk lið komu upp úr hattinum,
sem við misstum af. En svo kom
Juventus og síðan Valur. Ég stökk
hæð mína í loft upp og svo mikla
athygli vakti ánægja okkar, að um
kvöldið fékk ég skeyti frá fram-
kvæmdastjóra Real Madrid, þar
sem hann óskaði okkur til ham-
ingju, en hann var einmitt við-
staddur þegar dregið var,“ sagði
Eggert.
Eggert sagði að fjöldi manns
hefði verið þarna á vegum Juvent-
us og hefðu þeir verið mjög
vinsamlegir. Þeir voru kunnugir
aöstæðum á íslandi og vildu skipta
á leikdögum, en það gekk ekki
upp. „Juventus og Torino eru bæði
í Evrópukeppni og nota sama
heimavöll. Forseti Torino var harð-
ur fyrir og vildi að fariö yrði eftir
reglunum, en þar segir m.a. að
leikur í meistarakeppninni gangi
fyrir leik í UEFA-keppninni. Bæði
fengu fyrst heimaleik, en Torino
skipti við Nantes. Frakkarnir voru
á okkar bandi enda þekktum við
þá síöan í fyrra að við lékum gegn
þeim, en allt kom fyrir ekki. Við
leikum því úti 17. september og
heima 1. október.
Þess má geta að ísienskt lið
hefur aldrei leikið gegn ítölsku liði
í Evrópukeppni og landslið þjóð-
anna hafa ekki enn leikið saman.
En ítalirnir þekkja til íslensku knatt-
spyrnunnar og Boni Berti, fyrrum
fyrirliði ítalska landsliðsins og
starfandi forseti Juventus, bað fyr-
ir kveðjur til vinar síns, Alberts
Guðmundssonar," sagði Eggert
Magnússon.
„Tökum því sem að
okkur er rétt“
Halldór B. Jónsson, formaður
Knattspyrnudeildar Fram, var full-
trúi Framara. „Við áttu að leika
fyrst úti, en þar sem leikur Vals
var fastur, snerist okkar leikur
sjálfkrafa viö og ég þurfti ekki að
fara fram á breytinguna. Ég veit
ekki annað en að leikdagarnir
standi og þá leikum við gegn
Katowice á Laugardalsvellinum
17. september."
Halldór sagðist lítið vita um
pólska liðið, „en Pólverjar eru
sterkir og ég veit að í liðinu er að
minnsta kosti einn leikmaður, sem
var á HM í Mexíkó. Ég hitti Zbigni-
ew Kalinski, framkvæmdastjóra
pólska knattspyrnusambandsins,
og hann sendir okkur fljótlega nán-
ari upplýsingar um liðið."
Halldór sagði að Framarar
hefðu alveg eins gert ráð fyrir að
lenda á móti liði frá Austur-Evr-
ópu, því þau væru hlutfallslega
mörg í keppninni. „Við vorum und-
ir þetta búnir, tökum því sem að
okkur er rétt og gerum okkar
besta. Við fáum ef til vill ekki eins
marga áhorfendur og við hefðum
fengið gegn Barcelona eða Stutt-
gart, en þetta er ævintýri fyrir
strákana sem taka þátt í þessu.
Enginn leikmanna okkar hefur
komið til Póllands og þarna gefst
kærkomið tækifæri til að heim-
sækja nýja staði," sagði Halldór
B. Jónsson.
„Ánægður með að fá
Sporting Lissabon"
Jón Gunnlaugsson, formaður ÍA,
var fulltrúi Skagamanna. „Við átt-
um að leika seinni leikinn hér
heima en þar sem Benfica og
Sporting eru bæði frá Lissabon,
fengum við sjálfkrafa fyrri leikinn
hér þar sem Benfica fékk fyrri leik-
inn heima gegn Lilleström frá
Noregi í Evrópukeppni bikarhafa.
Okkur var sama þótt við hefðum
fengið seinni leikinn heima ef Vals-
mönnum hefði tekist að skipta á
sínum leik. Það er mikið upplifelsi
að vera viðstaddur drátt í Evrópu-
keppni. í UEFA-keppninni er
liðunum 64 skipt fyrirfram í 8 riðla.
Við vorum í 1. riðli og komum upp
úr hattinum er tvö lið voru eftir
og var ég ánægður með að fá
Sporting sem mótherja. Eftir drátt-
inn var sest niður og samið um
leikdaga. Sporting Lissabon er
mjög stór íþróttaklúbbur með um
130 þúsund meðlimi í fjölmörgum
íþróttagreinum. Þeir eiga glæsileg
íþróttamannvirki og leikvöll sem
tekur 70 þúsund manns í sæti."
DREGIÐ var f þýsku bikarkeppn-
inni í knattspyrnu um helgina og
drógust „íslendingaliðin“ saman.
Aðeins einn leikur verður á milli
tveggja liða úr Bundesligunni í 1.
umferð í bikarkeppninni, leikur „ís-
lendingaliðanna Bayer Uerdingen
og VfB Stuttgart. Atli Eðvaldsson
og Lárus Guðmundsson leika á
heimavelli gegn Ásgeiri Sigurvins-
syni og félögum. Þetta verður
aðalleikur umferðarinnar.
Sá furðulegri atburður gerðist
að draga þurfti tvisvar í bikar-
keppninni. I fyrra skiptið hafði
miðinn með nafni Stuttgarter Kick-
— Verður heimaleikurinn á
Laugardalsvelli eða á Akranesi?
„Stjórn ÍA hefur samþykkt að
leikurinn skuli fara fram á Akranesi
ef hægt verður að uppfylla öll skil-
yrði. Við höfum sent bréf til
bæjarstjórnar sem tekur málið fyr-
ir á morgun. Það þarf að uppfylla
ákveöin skilyröi svo leikurinn geti
farið fram á Skaganum. Eins og
að setja upp öryggisgirðingar og
svo aðstöðu fyrir fjölmiöla svo sem
beinar sjónvarpssendingar til
Portúgals og fleira. Við getum
reiknað með að fá um 2.000
manns á leikinn hér uppfrá."
Leikurinn verður að öllum líkind-
um 17. september á Akranesi og
1. október í Lissabon. Blaðamaður
frá Portúgal er væntanlegur til
landsins til að skoða aðstæður á
Akranesi og kynna sér liðið, nú í
lok vikunnar.
ers dottið upp úr hattinum og var
ákveðið að liðið spilaði á móti
Tennis Borussia Berlin, sem var
síðast upp úr hattinum. Stuttgart-
er Kickers kærði og var dregið
aftur. Svo undarlega vildi til að lið-
in drógust saman og leika á
heimavelli T. B. Berlin.
Bikarmeistarar Bayern Munch-
en leika á útivelli gegn áhuga-
mannafélaginu Hertha BSC,
Werder Bremen heima gegn 2.
Bundesligaliðinu Alemannia Aach-
en og 1. FC Köln gegn áhuga-
mannaliði FC Emmendingen á
útivelli svo nokkrir leikir séu nefnd-
ir.
Þyska knattspyrnan:
íslendingaslagur
íbikarkeppninni
Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni, fróttaritara Morgunblaösins f Vestur-Þýskalandi