Morgunblaðið - 19.07.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.07.1986, Blaðsíða 1
48 SIÐUR STOFNAÐ 1913 159. tbl. 72. árg. LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986 Prentsmiðja Morgxinblaðsins Bólivía: Arásirnar byrjaðar La Pai, AP. BANDARÍSKIR hermenn og sveitir bólivísku fíkniefnalög- reglunnar hófu á föstudag árásir á kókaínverksmiðjur í frum- skógum Bólivíu. Árásimar hófust rétt fyrir hádegi og voru sex bandarískar þyrlur notaðar tii starfans. Árásunum var stjómað frá Josu- ani-búgarðinum, en þar var áður ein stærsta kókaínverksmiðja Bólivíu. Stjómvöld gerðu árás á hann í fyrra og gerðu hann upptæk- an. Búgarðurinn er í um 220 km fjarlægð norðvestur af borginni Trínidad. Ekki var hægt að fá neinar upp- lýsingar um árásimar, en bólivísk stjómvöld hafa gagnrýnt embættis- menn í Washington fyrir að hafa verið of örlátir á upplýsingar um árásimar, og þannig gert eiturlyfja- framleiðum viðvart um hvað í vændum var. Á kajökum kringum landið Morgunblaðið/Sveinn Andrí Tveir bandarískir ævintýramenn, Harry House (til vinstri) og John Bauman, eru nú að sigla á kajökum í kringum ísland. Þeir voru á Akureyri í gær en síðdegis héldu þeir áfram för sinni til Húsavíkur. Blaðamaður ræddi við þá í gær og er samtalið að finna á Akureyrarsíðunni á bls. 28. Hér gefur að líta eina af sex Blackhawk-þyrlum Bandaríkjahers, sem nú eru í Bólivíu. Ef grannt er skoðað má sjá bandaríska her- menn við hana. Sovétríkin: Yfirmaður kjarn- orkuvama rekinn — vegna kjarnorkuslyssins í Chernobyl Moskvu, AP. YFIRMANNI kjarnorkuvarnanefndar Sovétríkjanna, Yevgeny V. Kulov, hefur verið vikið úr starfi og allar áætlanir þar í landi varð- andi hagnýtingu á kjarnorku til raforkuframleiðslu teknar til endurskoðunar. Skýrði sovézka fréttastofan TASS frá þessu í gær. Kulov, sem er 57 ára að aldri, hafði verið yfirmaður nefndarinnar síðan 1983. TASS greindi ekki frá ástæðun- um fyrir brottvikningu Kulovs, en talið er víst, að aðalástæða hennar sé kjamorkuslysið í Chemobyl 26. apríl sl. Ekki var heldur sagt, hver tæki við af Kulov, en hann er hátt- settasti embættismaður Sovétríkj- anna til þessa, sem látinn er víkja vegna kjarnorkuslyssins. Margir lægra settir embættismenn hafa Kína: Chiang Kai-Sheks getið að góðu í nýju sagnfræðiriti Peking, AP. CHAING Kai-Shek, sem eitt sinn var fyrirlitinn af kínverskum kommúnistum, hefur nú hlotið einhverja uppreisn æru í nýrri bók, þar sem fjallað er um tímabilið frá árunum 1912 til 1949 í kínverskri sögu. í sömu bók er einnig skrifað um það, sem Bandaríkjamenn hafa lagt af mörkum til Kínveija, en um þau framlög hefur um langt skeið ríkt þögn. Telja má að þessi bók sé af- sprengi aukins frelsis í ástundun fræðigreina. Kínverjar em nú að reyna að þurrka út gamlan fjand- skap við þjóðemissinnana, sem fylgdu Chiang til Taiwan eftir að þeir töpuðu fyrir kommúnistum 1949. „Bók okkar er fyrst og fremst fræðirit og við drógum okkar nið- urstöður af staðreyndum máls-. ins," segir Zhang Xianwen, prófessor við háskólann í Nan- king. Hann er einn níu sagn- fræðinga, sem skrifuðu þetta sagnfræðirit. Að hans sögn tengist þessi bók ekki herferð Kínveija til að taka upp samskipti við og ef til vill sameinast Taiwan. Hann sagði aftur á móti að þetta viðhorf sagn- fræðinganna að reyna að finna sannleikann í staðreyndum máls- ins hjálpað til að binda Taiwan böndum við meginlandið. „Að leita sannleikans í stað- reyndum," .eru einkunnarorð Chiang Kai-Shek Dengs Xiaoping, leiðtoga Kína. Deng hefur komið á ýmsum end- urbótum í efnahagsmálum í stjómartíð sinni og einnig hefur hann opnað Kína fyrir umheimin- Sagnfræðingurinn Zhang segir að í bókinni sé farið lofsamlegum orðum um Chiang fyrir að fylkja liði með kommúnistum á þriðja áratugnum í herferð gegn stríðsherrum norðursins og aftur 1937 eftir áratug innbyrðis átaka í stríði Japana og Kínveija. Þar er Bandaríkjamönnum einnig hælt fyrir að veita Kínveij- um bæði efnahags- og hemaðar- aðstoð í styijöldinni við Japani og fyrir að þjálfa kínverska hermenn. verið reknir úr starfi og úr komm- únistaflokknum fyrir vanrækslu og mistök í tengslum við kjamorku- slysið. Kjamorkuver hafa verið reist á mörgum stöðum í grennd við bæi og borgir í Sovétríkjunum og sums staðar í grennd við stórborgir. Eftir slysið í Chemobyl er talið óhjá- kvæmilegt, að sovézk stjómvöld taki allar áætlanir um staðsetningar kjarnorkuvera í framtíðinni til gagngerrar endurskoðunar. I tímaritinu „Novoye Vremya", sem út kom i gær, var það gefíð í skyn, að ekki hefði enn tekizt að fullu að koma í veg fyrir hættulega útgeislun frá kjamorkuverinu í Chemobyl. Sviþjóð: Sáutvo kafbáta Stokkhólmi, AP. FIMM Svíar, sem voru á vélbáti, sögðust hafa séð tvo erlenda kafbáta í sjónum ekki fjarri Hud- iksvall á austurströnd Svíþjóðar. Skýrði sænska blaðið Aftonblad- et frá þessu í gær. Sænski herinn hefur miklar bækistöðvar við Hudiksvall og er svæðið umhverfis því bannsvæði. Svíamir fímm, sem töldu sig hafa séð kafbátana, sögðust hafa fylgzt í einar 20 mínútur með sjónpípu kafbáts úr um 500 metra fjarlægð, er sjónpípa annars kafbáts kom skyndilega upp úr sjónum. Stefndu kafbátarnir báðir síðan beint til hafs og hurfu í djúpið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.