Morgunblaðið - 19.07.1986, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986
Frostskemmdir
í kartöflugörðum
á Eyrarbakka
Selfossi.
KARTÖFLU GRAS í nokkrum
görðum á Eyrarbakka fraus í
byrjun júlí þegar gerði kulda-
kast. í sumum görðunum er
kartöflugras illa farið og óvist
hvort það nær sér á strik aftur.
Kuldakastið sem um ræðir varð
Lækjargata:
íbúum fjölgar
umhelming
EFTIR mánuð fjölgar íbúum
við Lækjargötu um hebning
þegar Gísli Ferdinandsson
skósmiður og fjölskylda hans
flytja inn í Lækjargötu 6a. Þar
hefur skósmíðavinnustofa
Gisla verið til húsa i fjölmörg
ár. „Mér finnst full ástæða til
að lífga upp á miðbæinn,"
sagði Gisli í samtali við Morg-
unblaðið. „Eg hef sjálfur
dvalið í húsinu undanfarinn
mánuð. Það er ágætt en á
kvöldin og um helgar er oft
mjög mikið um að vera fram
eftir nóttu.“
Húsið númer 6a var byggt af
Guðmundi Gamalíelss^mi. Það er
ekki friðað, og nýleg skipulags-
tillaga gerir ráð fyrir 5 hæða
nýbyggingu á lóðinni. Gísli hefur
innréttað íbúð á 3. hæðinni. Bak-
húsið sem lengi hefur verið
ónotað hefur einnig verið gert
upp. Á næstunni verður opnuð
þar vinnustofa í ortopedískri
skósmíði. Eftir því sem næst
verður komist hafa aðeins 2-3
Reykvíkingar haft búsetu við
Lækjargötuna.
að kvöldi 6. júlí en þá kólnaði mjög
hratt eftir að sterkan norðanvind
hafði lægt. Hitinn var þá kominn
niður í 3 stig upp úr miðnætti.
Böðvar Siguijónsson kartöflu-
bóndi á Eyrarbakka ræktar kartöfl-
ur á tveimur og hálfum hektara.
Hann varð fyrir því að kartöflu-
grasið fraus í görðum hans. „Eftir
kuldakastið var garðurinn brúnn
jrfír að líta,“ sagði Böðvar. Hann
sagði blöðin farin af stönglunum
sem þó væru sæmilega heilir og
einhver vöxtur gæti haldið áfram
en ljóst væri að sprettan yrði ekki
mikil. Hugsanlegt væri að stöngl-
amir næðu sér eitthvað á löngum
tíma. Böðvar kvaðst vera með tvær
tegundir í garðinum, Penta sem
hefði verið komin með falleg grös
og fór mjög illa í kuldanum, og
Ólafsrauð, þar sem grösin voru
styttra á veg komin og stóðu sig
betur.
Böðvar Siguijónsson sagði að
sandgarðar á Bakkanum hefðu
staðið sig betur en moldargarðamir
sem líklega stafaði af því að þeir
væm hlýrri en hinir. Einnig væm
frostskemmdimar mismunandi í
heimagörðum. Núna, 12 dögum
seinna, væri lítinn bata að sjá á
garðinum.
Frostskemmdir í kartöflugörðum
hafa ekki orðið víðar en í kringum
Eyrarbakka en í görðum heima við
bæi í Sandvíkurhreppi fóm kart-
öflugrös mjög illa í rokinu sem gerði
5. og 6. júlí, hreinlega sviðnuðu þar
sem vindurinn náði að næða um
þau. „Rabbarbarinn varð eins og
snúið roð í hund,“ sagði ein bónda-
konan um afleiðingamar.
Sig. Jóns.
Georg Ólafsson verðlagsstjórí:
Bensínverðið
lækkar ekki
„ÉG HEF ekki trú á því að
bensínverðið lækki úr þessu. Við
megum þakka fyrir ef það helst
svona lágt í einhvem tíma, og
hef ég raunar trú á því,“ sagði
Georg Ólafsson verðlagsstjóri
þegar blaðamaður spurði hann
um hugsanlega lækkun á olíuvör-
um á næstunni.
Georg sagði að fyrirsjáanlegt
væri að verð á gasolíu myndi lækka
enn frekar. Um það yrði fjallað í
ágúst þegar verð á nýjum fíjrmum
verður ákveðið. í frétt Morgun-
blaðsins á fímmtudag kom það fram
að gasolíuverð í Bretlandi er nú
helmingi lægra en hér. Á Rotter-
dammarkaði er skráð verð nú 3,65
krónur lítrinn, en hér 7,60 krónur
lítrinn.
Morgunblaðið/Einar Falur
Hús númer 63 við Lindargötu var rifið í gær, en á meðan missti grafan, sem þar var að verki,
jafnvægið um stund en var fljótlega bjargað aftur á réttan lgöl.
Skúlagötuskipulagið:
Fyrsta húsið rifið í gær
Reykjavíkurborg keypti nýlega þijú hús tíl Pétur Hannesson, yfírmaður hreinsunardeildar
niðurrifs við Lindargötu til að rýma fyrir hinu borgarinnar, sagði í samtali við blaðamann að ekki
svokallaða Skúlagötuskipulagi. Fyrsta húsið var hefði verið búið að ganga frá öllum leyfum vegna
rifið í gær, hús númer 63, og verður hús númer niðurrifs hússins númer 63, en ekki var lengur talið
63A rifið í dag. Þá verður hús númer 61 rifið stætt á því að hafa húsið þama í því ásigkomulagi
fljótlega. sem það var í vegna ágangs krakka og útigangsfólks.
*
Islenskt grænmeti á markaðinn:
Nýjar kartöflur
í lok mánaðarins
NÝTT íslenskt grænmeti kom í
verslanir í vikunni og verður
allsráðandi á markaðnum í næstu
viku. í lok mánaðarins koma
þijár tegundir af íslenskum kart-
öflum í verslanir.
Níels Marteinsson sölustjóri hjá
Sölufélagi garðyrkjumanna sagði
að kflóið af íslensku hvítkáli kost-
aði 76,00 krónur í heildsölu og
blómkál 180,00 krónur en gulrófur
kosta 70,00 krónur kflóið. Af nýj-
ungum sem væru væntanlegar
nefndi hann spergilkál og kínakál.
í vikunni varð verðlækkun á tómöt-
um vegna offramleiðslu og kostuðu
þeir 90,00 krónur í heildsölu. Ný
uppskera er væntanleg af agúrkum,
sem lítið hefur verið af að undan-
fömu. íslenskur blaðlaukur er
kominn á markaðinn og kostar
190,00 krónur í heildsölu.
Ólafur Sveinsson fjármálastjóri
Ágætis sagði að búið væri að dreifa,
hvítkáli, blómkáli og rófum í versl-
anir og er verðið í heildsölu það
sama og hjá Sölufélagi garðyrkju-
manna nema á rófum. Hjá Ágæti
kosta þær 100,00 krónur kflóið í
heildsölu. Sala á kínakáli hófst í
síðustu viku og kostar það 135,00
krónur kflóið í heildsölu og íslenskt
íssalat kostar 135,00 krónur kflóið
og í næstu viku er von á útiræktuð-
um gulrótum. „Þetta heildsöluverð
verður ekki nema á fyrstu sending-
unum og kemur til með að lækka
með auknu magni á markaðnum
seinni hluta mánaðarins," sagði
Ólafur.
íslenskar kartöflur koma í versl-
anir 28. júlí og verður þá boðið upp
á þijár tegundir. Svokallaðar
„premier" sem em fljótsprottnar en
eru ekki jafngóðar og „gullauga"
og „rauðar" og verða því seldar á
lægra verði en þær. „Við viljum
gefa neytandanum tækifæri til að
bera saman gæðin og sýna fram á
að hægt er að fá góðar sumarkart-
öflur eins og „gullauga" og „rauð-
ar“ sem ekki eru jafn fljótsprottnar
og „premier“,“ sagði Ólafur. Hann
bjóst við að kflóið af nýjum íslensk-
um sumarkartöflum yrði á bilinu
80,00 til 90,00 krónur í heildsölu
en innfluttu ítölsku kartöflumar
sem nú fást í verslunum kosta 61,
00 krónu kflóið.
Hvalveiðar:
Bandaríkjaforseti fær tillögur
um aðgerðir gegn Norðmönnum
Frá Jóni Ásgeiri SigurðBByni, fréttaritara Morgunbladains í Bandaríkjunum.
„VIÐSKIPTARÁÐHERRA á S dag að afhenda forsetanum tillögur annars í bréfí til Bandaríkjafor-
sínar um aðgerðir gegn Norðmönnum," sagði Brian Gorman talsmað- seta 10. júlí síðastliðinn: „3. júlí
ur sjávarútvegsdeildar bandaríska viðskiptaráðuneytisins í gær. 1986 lýsti norska ríkisstjómin því
„Tillögugerðinni var frestað eftir ákvörðun norsku ríkisstjórnarinn- yfír að hún hyggðist binda endi á
ar 3. júlí, að binda enda á hrefnuveiðar Norðmanna," sagði Brian hvalveiðar í viðskiptaskyni eftir
Gorman S viðtali við fréttaritai
Tillögur bandaríska viðskipta-
ráðherrans geta samkvæmt
svonefndu Pelly-ákvæði í banda-
rískum lögum verið um engar
aðgerðir, einhveijar takmarkanir
á fískinnflutningi Norðmanna eða
algjört hafribann. Bandaríkjafor-
seta er skylt að taka ákvörðun
um aðgerðir og gefa þinginu
skýrslu fyrir 8. ágúst næstkom-
andi.
Morgunblaðsins.
„Við lögðum mikla áherslu á
að gripið verði til einhverra að-
gerða gegn Norðmönnum," sagði
Dean Wilkinson talsmaður Green-
peace við fréttaritara Morgun-
blaðsins í gær, „þegar við ræddum
við dr. Calio frá viðskiptaráðu-
neytinu í þessari viku. Fjölmörg
náttúruvemdarsamtök áttu full-
trúa á þeim fundi.“ Baldrige
viðskiptaráðherra sagði meðal
sömu tímaáætlun og við féllumst
á viðvíkjandi Japan." Síðan segir
í bréfínu að í kjölfar viðræðna við
norska sendiherrann í Washing-
ton og með hliðsjón af því sem
þar komi fram, muni Baldrige „í
samráði við utanríkisráðuneytið
þann 18. júlí leggja fyrir þig tillög-
ur um aðgerðir samkvæmt Pelly-
ákvæðinu og drög að skýrslu
þeirri sem skylt er að gefa Banda-
ríkjaþingi." Þann 7. og 8. júlí
skýrði Kjell Eliassen sendiherra
Noregs afstöðu norsku ríkis-
stjómarinnar á fundum með
fulltrúa bandaríska utanríkisráðu-
neytisins, Rozanne Ridgway
sendiherra, og Anthony J. Calio
forstöðumanni sjávarútvegsdeild-
ar viðskiptaráðuneytisins. Engar
samningaviðræður áttu sér stað á
þessum fundum, sem fóru fram
sömu daga og rætt var við Hall-
dór Ásgrímsson sjávarútvegsráð-
herra.
Sjá grein um afskipti Banda-
ríkjanna af hvalveiðimálum
á bls. 29.
Innflutt grænmeti er nær undan-
tekningarlaust ódýrara en það
íslenska þegar það kemur fyrst á
markaðinn og sagði Ólafur að neyt-
endur virtust frekar fara eftir verði
en gæðum þegar um hvítkál, blóm-
kál eða kínakál væri að ræða. Öðru
máli gegnir um agúrku og tómata.
Þegar íslensk framleiðsla kemur á
markaðinn vilja menn hana frekar.
Sveppir eru ekki lengur fluttir inn
til landsins því íslensk framleiðsla
fyllir markaðinn allan ársins hring.
„Sennilega er Reylcjavlk eina
höfuðborgin í heimi sem getur boð-
ið upp á allt að því lifandi sveppi
með matnum á veitingahúsum."
Léttir til
suimanlands
í dag er spáð skýjuðu veðri um
sunnan- og vestanvert landið, en
bjart veður norðaustanlands,
líklega skúrir syðst.
Á sunnudag má búast við að það
fari að létta til sunnanlands með
norðvestan eða vestanátt en skýjað
verður þá norðanlands.