Morgunblaðið - 19.07.1986, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986
3
Atta Bandaríkjamenn hafa mokveitt í Laxá í Leirársveit:
ÁTTA Bandaríkjamenn hafa
síðan á laugardag- veríð við veið-
ar í Laxá í Leirársveit og um
hádegi í gærdag höfðu þeir veitt
tæplega 170 laxa á sjö stangir,
sem er óvenjugóð veiði.
Hoyt P. Steele, forsvarsmaður
Bandaríkjamannanna, hefur komið
hingað til lands undanfarin 20 ár
og síðustu 12 árin hefur hann ætíð
veitt í Laxá í Leirársveit. „Þetta
hefur verið alveg stórkostlegur tími
og við félagamir erum mjög ánægð-
ir með veiðina sem er stórum meiri
en til dæmis í fyrra, þegar við ein-
ungis fengum 57 laxa á heilli viku,"
sagði hann í samtali við blaðamann
í gær, en Steele og félagar hans,
sem allir hafa komið hingað nokkr-
um sinnum áður til veiða, ljúka
laxveiðinni í dag og halda til Banda-
ríkjanna siðdegis.
„Áður höfum við veitt mest 105
laxa á jafnmörgum dögum þannig
að mikil ánægja er með árangur-
inn. I fyrra fengu sumir ekki nema
tvo til þijá laxa allan tíman, og
voru samt mjög ánægðir en núna
hefur hver og einn veitt að minnsta
kosti tíu laxa. Sjálfur hef ég fengið
20 en einn félagi minn var búinn
að veiða 32 laxa um hádegisbilið,"
sagði Steele.
Steele hefur fengist við veiðar
víða, meðal annars í Kanada og
Alaska, og lauk hann miklu lofsorði
á íslenska laxinn og laxveiðiámar.
„Þetta er besti staðurinn í heimin-
um til að veiða lax,„ sagði hann,
en hann hefur einnig veitt í Hítará,
Norðurá og Laxá í Aðaldal í Þing-
eyjarsýslu.
Steele kvaðst vonast til að lax-
amir yrðu 200 áður en þeir hættu
veiðinni að þessu sinni, en laxamir
sem þeir hafa fengið að þessu sinni
hafa verið allt að 20 pund.
Þær upplýsingar fengust hjá Hauki
Garðarssyni, veiðiverði, að veiðin í
ánni í sumar hefði verið óvenjumik-
il og nú þegar veiðitímabilið væri
rúmlega hálfnað væri búið að veiða
um 650 laxa, en í allt fyrrasumar
veiddust 860 laxar.
Norðurstjarnan:
Hlutabréf
ríkisins
til sölu
MEIRIHLUTI hlutafjár í Norður-
stjörnunni hf. í Hafnarfirði er til
sölu. Það er Fjárfestingarfélag
íslands sem annast söluna, en það
eru hlutabréf Framkvæmdasjóðs
íslands, ríkissjóðs og Hafnar-
fjarðarbæjar. Nafnverð hlutafjár
þessara aðila er samtals rúmar
46 milljónir króna eða 94,92% af
hlutafé.
Þorsteinn Guðnason, hagfræðing-
ur Fjárfestingarfélagsins, sagði í
gær að hlutur Framkvæmdasjóðs
væri 31,4 milljónir króna (64,6% af
hlutafé), ríkissjóður á 12,7 milljónir
króna (25,99%) og Hafnarfjarðar-
bær 2,2 milljónir (4,47%). Sam-
kvæmt rekstrarreikningi Norður-
stjörnunnar fyrir síðasta ár var
hreinn hagnaður félagsins 1,2 millj-
ónir króna. Veltan nam tæpum 120
milljónum króna. Árið 1985 voru
starfsmenn fyrirtækisins að meðal-
tali 71.
Eigið fé var í árslok 67,7 milljón-
ir króna, þar af hlutafé upp á 48,7
milljónir króna. Skuldir voru 45,6
milljónir, þar námu lán til langs tíma
16,8 milljónum króna. Eignir alls
námu 113 milljónum.
Pjárfestingarfélagið mun auglýsa
eftir tilboðum í umrædd hlutabréf.
Þorsteinn sagði að ekki væri sett
lágmark, en áskilinn er réttur til að
taka hvaða tilboði sem er eða hafna
öllum. Frestur til að skila tilboðum
ertil 15 ágúst næstkomandi.
laxar á 6 dögnm
Morgunbladið/Bjarni
Hoyt P. Steele hefur komið hingað undanfarin tuttugu ár til lax-
veiða og síðustu tólf árin haldið sig við Laxá í Leirársveit. Hér
kastar hann flugu fyrír einn laxinn enn í ánni miðrí.
Veiðivörðurinn, Haukur Garðarsson, með afla morgunsins fyrir
framan sig, alls 18 laxa.
ÍÍÉÍÉl
100ÁRA AFMÆLl LANDSBANKA ÍSLANDS OG ÍSLENSKRAR SEÐLAÚTGÁFU
LANDSBAN KASÝNING
28.JUNI
mmmmmr
Ta780808I
*|A780808I
JL -v''
A7808081
Itilefni 100 ára afmælis Landsbankans og
íslenskrar seðlaútgáfu hefur verið sett upp
vegleg sýning í nýja Seðlabankahúsinu við
Kaikofnsveg. Þarerm.a. rakin saga gjaldmiðils
á íslandi allt frá landnámsöld, fyrsta afgreiðsla
bankans endurbyggð, skyggnst inn í
framtíðarbankann, sýndar gamlar gullfallegar
vélar og fylgst með hvernig peningaseðill
verður til.
rr
sýningunni verða seldir sérstakir
minnispeningar og frímerki, þarer vegleg
verðlaunagetraun og léttur útibúaleikur
og daglega eru sýndar kvikmyndir um
Landsbankann og sögu Islenskrar seðla- og
myntútgáfu.
Þá eru einnig sýnd saman opinberlega í fyrsta
sinn málverk í eigu bankans eftir marga bestu
listmálara þjóðarinnar.
Veitingasala er á sýningunni og leiksvæði
fyrir börn.
ýningln er opin virka daga frá
kl. 16.00-22.00 og frá 14.00-22.00
um helgar.
Við hvetjum alla til þess að sjá þessa
stórskemmtilegu sýningu.
Aðgangur er ókeypis.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna 1100 ár
—20.JÚLÍ í SEÐLABANKAHÚSINU