Morgunblaðið - 19.07.1986, Síða 5

Morgunblaðið - 19.07.1986, Síða 5
MORGUNBLADID, LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986 5 Eru þeir aö fá 'ann m Góð veiði í Hrútunni Veiðimenn í HrútaQarðará eru yfirleitt hressir með gang veiðimála, veiði hefur gengið vel það sem af er, en hún hófst ekki fyrr en 1. júlí. Síðast er fréttist höfðu veiðst milli 70 og 80 laxar, flestir eða allir vænir og sá stærsti 20 punda hængur sem Guðmundur Vikar Einars- son læknir veiddi fyrir skömmu. Þá hafa nokkrir fískar vegið allt að 18 pundum. Veitt er með tveimur stöngum í Hrútunni og væsir ekki um menn þar, plássið er nóg. Skot í Stóru Laxá Menn hafa verið að bíða eftir því að það lifni eitthvað yfír Stóru Laxá og í fyrradag gerð- ist það, að 12 laxar veiddust á 3 stangir á svæðum 1 og 2. í gærmorgun var svo hreyfíng á efsta svæðinu og eitthvað veidd- ist, þar á meðal íjórir stórir boltar sem Sverrir Þorsteinsson dró á land. Eitthvað hefur veiðst til viðbótar og áin skríður hægt og bítandi að þriggja stafa tölu. Allt hefur þetta verið rokvænn lax til þessa, smálax vart sést í aflanum. Eitthvað mun vera enn til af veiðileyfum á efsta svæðið hjá SVFR, en uppselt er á neðri svæðin. Róast í Þverá, Pjallið sækir sig „Það eru komnir á tólfta hundrað laxar á land úr allri ánni, rúmlega helmingurinn hér á neðra svæðinu, en Fjallið hefur verið að sækja sig. í gær veidd- ust þar til dæmis 27 laxar, en aðeins 5 á sama tíma hjá okkur. Þess ber þó að geta að vísu, að nú er talsvert um óvana menn að veiðum hér neðra,“ sagði Halldór Vilhjálmsson kokkur við Þverá í samtali í gær. Halldór sagði jafnframt, að síðasti hópur í Þverá hefði hald- ið heim með 63 laxa, en núver- andi hópur hefði aðeins veitt 18 laxa og lyki veiðum á hádegi í dag. „Þeir eru þó allir stórir, upp í 17 pund hjá þeim og það er bót í máli,“ sagði Halldór. Þess má geta, að í fyrradag veiddu menn á Fjallinu laxa sem voru nýrunnir og lúsugir. Veiði- menn í neðri ánni urðu ekki varir við gönguna þannig að hratt hefur verið gengið fram. Dagsveiði úr Langá fyrir fáum dögum, næstum 40 stykki, eða rétt tæplega kvótinn. Það stefnir í toppsumar í Langá. Skuld Arnarflugs við flugmenn hækkar um V2 milljón á mánuði: Forsljórinn neitar að ræða við Félag atvinnuflugmanna FÉLAG atvinnuflugmanna kærði Arnarflug til Rannsóknarlög- reglu ríkisins fyrir tveimur mánuðum. Flugfélagið dregur gjald í eftirlaunasjóð flugmanna frá launum þeirra en hefur siðan sl. haust ekki skilað þessum pen- ingum, né framlagi sínu, til réttra aðila. Skúli Guðjónsson, formaður Félags atvinnuflug- manna, sagði að þegar hann gekk á fund stjórnenda Arnarflugs í vor hefði þvi verið lofað að skuld- in yrði greidd hið fyrsta. „For- stjórinn gaf okkur loforð um að leggja fram greiðsluáætlun, en hann hefur ekki enn staðið við það. Síðan þá hefur hann ekki svo mikið sem svarað okkur þeg- ar við höfum reynt að ná í hann í sima. Þetta er ein af ástæðunum til þess að við neyddumst til að fara þessa leið,“ sagði Skúli. Blaðamaður Morgunblaðsins spurði Agnar Friðriksson, forstjóra Amarflugs, hver væri afstaða flug- félagsins í þessu máli. Hann stað- festi að það sem Skúli sagði væri rétt en sagði síðan: „Ég hef ekki orð um mál þetta að segja við Morg- unblaðið.“ Skuld Amarflugs við eftirlaunasjóð flugmanna hækkar um liðlega 500.000 kr. á mánuði. Gjald hvers flugmanns nemur 11% af launum hans, og er atvinnurek- andinn skuldbundinn til að leggja fram sömu upphæð á móti. GÆÐA- VEIÐIVÖRUR ÁGÓÐU VERÐI Flugur og kaststangir 8—15 feta fluguhjó! — kasthjól — spúnahjól. Nýtt á markaönum Daiwa rúlluhjól með segulbremsu. „Kastið ekki agni ykkar þar sem enginn fiskur er.“ Opið í dag 9-1. TJöföar til 11 fólks í öllum starfsgreinum! Daihatsuumboðið s. 685870 — 681733

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.