Morgunblaðið - 19.07.1986, Side 7

Morgunblaðið - 19.07.1986, Side 7
Guðmundur Viggósson Sjónstöð íslands: Guðmundur Viggósson skipaður yfirlæknir GUÐMUNDUR Viggósson hefur verið skipaður yfirlæknir hjá Sjónstöð Islands. Þetta er ný staða en áður hafði Guðmundur verið settur um eins árs skeið til að vinna að undir- búningi starfseminnar. Guðmundur fæddist árið 1946, varð stúdent frá MR árið 1966, stundaði nám við læknadeild Há- skóla íslands og útskrifaðist þaðan 1973. Hann varð sérfræðingur í augnlækningum árið 1980. Guðmundur er kvæntur Sigríði Kristínu Ragnarsdóttur lyflafræð- ingi og eiga þau tvö böm. Reykjavík 200 ára: Afsláttur af flugi til borgarinnar FLUGLEIÐIR ætla að bjóða öllum landsmönnum upp á sérstakt afmælisfargjaJd á flugi til Reykjavíkur í tilefni 200 ára afmælis borgarinnar. Með þessu vilja Flugleiðir gera landsmönnum jafnhátt undir höfði með heimsókn til Reykjavíkur á afmælinu en þá verður sem kunnugt er mikið um dýrðir í borginni. Fargjald verður það sama frá öllum viðkomustöðum, 2.800 kr. fram og til baka. Ferðast má á afmælisfargjaldinu til Reykjavíkur 17. og 18. ágúst. Til baka gilda afmælisfarmið- amir til miðvikudagskvölds, 20. ágúst. Byggingarvísitalan: Hraði verð- bólgunnar er nú 11,7% HAGSTOFAN hefur reiknað vísi- tölu bygingarkostnaðar eftir verðlagi í júlí 1986. Reyndist hún vera 272,77 stig, eða 1,08% hærri en í júní (desember 1982 = 100). Samsvarandi vísitala miðuð við eldri grunn (október 1975 — 100) er 4.042 stig. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaar hækkað um 24%. Undanfama þijá mánuði hefur vísitalan hækkað um 2,8% og jafngildir sú hækkun 11,7% verðbólgu á heilu ári. Hækkun á verði steypu um 8,9% olli tæplega 0,8% hækkun vísi- tölunnar en örlítil hækkun ýmissa annarra efnisliða olli um 0,3% •hækkun. MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986 Dómsmálaráðuneytið og Umferðarráð taka höndum saman: Aukið eftirlit með öku- þórum og ölvunarakstri Lögreglustjórar og sýslu- menn um allt land hafa verið hvattir til að efla eftirlit með ökumönnum á vissum tíma- bilum næstu vikurnar. Einkum er þeim ætiað að gæta betur að ölvuðum öku- mönnum og ökuþórum. Dómsmálaráðuneytið hefur tekið höndum saman við umferðarráð um átak í þess- um efnum - en Hjalti Zóphaníasson, skrifstofu- stjóri í dómsmálaráðuneyt- inu, vill ekki skýra frá hvaða tímabil hafa verið valin í þessu skyni. „Ökumenn verða að eiga það yfír höfði sér alla daga að sérstak- lega sé verið að fýlgjast með hvort þeir aki drukknir eða of hratt," sagði Hjalti. „Með áskorun okkar til lögreglustjóra og sýslumanna erum við að ganga fram fyrir skjöldu ásamt umferðarráði um bætta umferðarmenningu um allt land. Ráðið hyggst setja af stað herferð í Ijölmiðlum og það er svo ætlunin að lögreglumenn í öllum landshlutum fylgist sérstaklega með umferðinni á ákveðnum tímum og haldi skrá yfir hana.“ Fyrirmæli dómsmálaráðuneytis- ins um þetta voru send bréflega í byijun þessarar viku til lögregl- unnar í öllum sveitum, byggðum og kaupstöðum. Nýtt tölublað komið á alla biáðsölustaði. segir Þorgeir Ast valdsson. ú Myndir frá ELITE Hverergaldranornin í Laugarnesinu? Eru svæðanuddararskottulæknar? Eru svaladrykkir óhollir? Um þetta og margt annað fróðlegt og forvitnilegt geturðu lesiðíNÝJU LÍFI. NÝTT LÍF - BLAÐ í TAKT VIÐ TÍMANN NÝTT LÍF - METSÖLUBLAÐ í NÍU ÁR LIFANDIBLAÐ TA TÖLUBLAÐ LDIST UPP MMUM TÍI A

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.