Morgunblaðið - 19.07.1986, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.07.1986, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986 T|aldbúar i Laugardal: „Ekki sama tíu mínútur TJALDBÚAR sem gista Laugardalinn eru talsverður hluti af ferða mönnum hérlendis. Tjaldstæðið var opnað 1975 og er nú eini staður- inn í Reykjavík fyrir fólk sem ferðast með tjald. Það er opið frá síðustu viku maí fram í fyrstu viku september ár hvert. Blm. Morgnn- blaðsins heilsaði upp á fólk á tjaldstæðinu. „Þetta er mjög kyrrlátur og þrifalegur staður og það eru nær eingöngu útlendingar sem hér gista," sagði Kristján Sigfússon, sem er annar tvegggja tjaldstæðis- varða þar. „Ég fer hér daglega um og get ekki sagt að ég hafi orðið að fjarlægja neitt rusl af svæðinu í viku. Það er helst að eitthvað hafi fokið inn á stæðið frá nágrenn- inu.“ „Það er sjaldan yfirfullt hjá okk- ur en tjaldstæðið þyrfti samt að vera stærra. En það sem mest vant- ar er að bæta aðstöðuna hér. Eins og er, er hér ekkert afdrep þar sem fólk getur komist í skjól ef hann rignir. Það þyrfti að vera skýli hér þar sem fólkið gæti komist inn til að elda sér mat, skrifa kort o.þ.h. Það er að vísu iiðin tíð að fólk fari á flot héma, það er búið að ræsa fram. Það hefur ekkert komið upp á í sumar, en samt er alls ekki nógu góð aðstaða héma. Eins og er getur fólk fengið hér heitt og kalt vatn, úr útikrönum, rafmagn getur það fengið og svo er hér salemi. Ef fólk vill fara í sturtu verður það að kaupa sig inn í sundlaugina. Á einu er bagaleg vöntun hér í Reykjavík, ekki síst í vætutíð, en það er þvottahús þar sem ferðafólk gæti gengið inn, fengið þvegið og þurrkað á staðnum strax. Annað leiðindamál er að bæklingur sem ferðamálaráð gaf út er villandi. Þar em sett tákn við ýmis tjaldstæði sem gefa til kynna ýmsa þjónustu, sem svo kemur fram í texta að er ekki á staðnum, held- ur í nágrenninu. Erlendis tíðkast ekki að merkja annað en það sem er á tjaldstæðinu sjálfu. Það kom hér einn öskuvondur þjóðveiji sem hafði gagngert komið með bilaðan bíl sinn hingað á bílaverkstæðið sem hér var rnerkt." sagði Kristján að lokum. „Fyrst fengnm við sól, svo kvéf “ Tjaldstæðið var u.þ.b. hálfskipað og bar þar mest á litlum eins- og tveggjamanna tjöldum, en nokkur stærri skáru sig úr. Milli tveggja samliggjandi var strengd snúra sem föt héngu á til þerris og í öðru þeirra sýslaði kona við eldhúsáhöld. Hún kvaðst heita Phyllis Hooper og vera frá Bretlandi. Hún er kokk- ur í ferðum sem Bretinn Allan Mytton stendur fyrir. Hann hefur rekið litla ferðaskrifstofu í áraraðir og farið um með ferðalanga úr öll- um heimshomum. Mest hefur hann samt verið á íslandi, eða í sextán sumur. Gistir hann með ferðahópa sína á tjaldstæðinu í Laugardai við komu og brottför, en fer með þá um landið' í „ábyggilega lang-elstu rútu Guðmundar Jónassonar hf.“, eins og Phyllis komst að orði. Þetta er sjöunda sumarið sem hún er á íslandi. „Pyrst fengum við veður nema * • LL i emu Morgunblaðið/Árni Sæberg Allan Mytton, sem hér hugar að búnaði sínum ásamt kokki sínum, Phyllis Hooper, er enginn viðvaningur hér á landi. Hann hefur í sextán ár ekið um landið með ferðahópa í rútu, og gist með þá í tjöldum. í Reykjavík er alltaf gist á tjaldstæðinu í Laugardal. sól, en svo fengum við kvef,“ hafði hún um fyrstu ferðina í sumar að segja. AUan Mytton sagði að hann gætti þess að láta þá sem hann færi með um landið vita hvað þeir þyrftu að hafa með sér af útbún- aði, en hann hefði oft á ferli sínum séð mjög vanbúna ferðalanga hér á landi. Fólk yrði að hafa tjöld með vatnsþéttum himni og botni. Ai- gengustu mistökin væru samt að fólk væri með of þunna svefnpoka með sér. Island er ekki kalt, heldur svalt í kringum tjald Myttons stóðu tjöld þeirra 23 ferðamanna sem hann fór með um landið. Vel búin eldri hjón voru að huga að tjaldi sínu. Þau kváðust heita John og Betty Barrett og vera frá Bristol á Englandi. Þættir Magnúsar Magn- ússonar um „land elds og ísa“ í breska sjónvarpinu um síðustu jól, höfðu lokkað þau til ísiands. JÚ, landið hafði staðið undir öllu sem hafði verið lofað í landkynning- unni, allt ósnortin náttúra, en það ætti að vara ferðamenn við loftslag- inu. í auglýsingum væri talað um að hér væri loftslagið „cool“, svalt, en í raun væri það „cold“, kalt. Því væru margir óviðbúnir því hvað væri í raun kalt hér.;Þá væri fólk ekki viðbúið því hvað veðrið væri breytilegt, þau hefðu reynt hita- sveiflur frá tveggja gráðu frosti til yfír 30 stiga hita. Þau eru þraut- reyndir ferðamenn, hafa heimsótt öll lönd Evrópu, Norður-Ameríku og Norður-Afríku að auki. þótt þau segðust hrifin af norðlægum lönd- um ætla þau á heitari stað næst, til Krítar. Eina landið sem er dýr- ara en Sviss Út úr einsmannstjaldi þar skammt frá stóðu tvennir vel skóað- ir fætur. Við athugun kom í Ijós að þá áttu tveir ungir Svisslending- ar sem voru nýkomnir til landsins. Þeir heita Franz Stössel og Andreas Mosimann. Ekki er hægt að segja að landið hafi tekið hlýlega á móti þeim, þótt þeir væru vel búnir. Kváðust þeir vanir kuldum frá Sviss, en ekki að sumarlagi. Hér þyrftu þeir að ganga í vetrarfatnaði um mitt sumar. Franz kvaðst hafa reynt á sjálfum sér hvað kuldinn sé lúmskur, en Andreas var hress- ari, enda hefur hann ttalska kærustu sína, Marcellu Danelli með sér. Hvað dró þá til íslands. Auðvitað náttúrufegurðin. Þeir ætla að fara norður um með rútum og á puttan- um í mánuð. Þeir sögðust ekki hafa áhyggjur af veðrinu, þótt það tæki illa á móti þeim, þeir hafi verið við- búnir því, enda hafi þeir heyrt að SIMAR 21150-21370 Sýnishorn úr söluskrá: SOLUSTJ LARUS Þ VALOIMARS LOGM JOH ÞOROARSON HDL Reisulegt steinhús í gamla bænum skammt frá Hlemmtorgi. Húsiö er tvær hæöir og góð rishæö. Grunn- flötur um 75 fm. Vel meö fariö. Margs konar nýtingarmöguleikar. Teikn. á skrifst. Nánari uppi. aöeins á skrifstofunni. í gamla bænum - laus strax Sérhœð 3ja herb. um 60 fm í þríbýlish. viö Lindargötu. Þarfnast nokk- urrar standsetningar. Verð aðeins kr. 1,6 millj. Glæsileg eign á góðu verði Nýtt steinhús á útsýnisstað í Selási. 142x2 fm meö glæsil. 6 herb. íb. á efri hæö. Á neðri hæð eru 3 rúmg. herb., snyrting og skáli. Enn- fremur innb. bílsk. og stór geymsla. Húseign með tveimur íbúðum á sunnanverðu Seltjarnarnesi með 5 herb. íb. á tveim hæöum. Sam- þykkt sóríb. 2ja herb. i kj. Grunnfl. hússins er um 77 fm. Ræktuö lóö. Góður bílsk. um 30 fm. Einbýlishús — vinnupláss og bflsk. Við Hólaberg nýtt steinhús hæð og rishæð. 108 + 81,6 fm með 6 herb. ib. Ekki fullgerö. Vinnuhúsn. og bflsk. samtals 90 fm fylgir. Margs konar eignaskipti mögul. Laust nú þegar. Skammt frá Háskólanum Á Melunum 1-2 herb. lítil kjíb. Bílsk. fylgir. Mjög gott verð. Góð eign á gjafverði á útsýnisstað í borginni skammt frá Grafarvogi. Húsið er 131,4 fm nettó meö 4ra-5 herb. íb. Ný endurbyggt og stækkað. Nýr bflsk. 51,8 fm. Leigulóö 1200 fm. Verö aðeins kr. 3,3-3,5 millj. Fjársterkir kaupendur óska eftir sárhæð eða raðhúsi í Selási, Ártúnsholti eða Kóp. Skipti mögul. á 5 herb. úrvalsíb. viö Hraunbæ. 3ja-4ra herb. fb. við Fannborg eöa Hamraborg i Kóp. Rúmgóðu einbýlish. helst v. Klapparás, Kleifarás, Lækjarás, Malarás, Mýrarás eöa við Hólagöturnar gegnt Árbæjarhverfinu. Skipti mögui. á góðu einnrar hæðar einbýlish. viö Árbæjarhverfi. Opið f dag, laugardag, kl. 1-5 sfðdegis. ALMENNA FASTEiGHASAlAH LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 Krakkarnir sporðrenndu einum 200 pylsum yfir daginn. 5H v m Sumargleði í Grandaborg Glatt var á hjalla á barnaheimilinu Granda- borg áBoðagranda 9 á fimmtudaginn. Krakkamir voru öU máluð í framan og með hatta því þau voru að halda „Sumargleði". Ymislegt var gert til skemmtunar; sungið og farið í leiki og svo voru grillaðar pylsur og allir fengu djús með. Svona „Sumargleði" mun vera orðin fastur liður í starfi flestra bamaheimila borgarinnar og má nærri geta að þær falla í góðan jarðveg hjá krökkunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.