Morgunblaðið - 19.07.1986, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986
13
Um Indland
Erlendar bœkur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Insight Guides: India
Utg. APA productions
Ritstj.: Samuel Israel og Bik-
hram Grewal.
Utlit: Hans Johannes Hoef-
er.
Góðar ferðabækur sem sam-
eina margt í senn gefa
aðgengilegt en upplýsandi
yfírlit um sögu og menningu,
pólitík og atvinnuvegi, stjóm-
arfar og að auki aímennar
upplýsingar fyrir ferðamenn
er einhver ánægjulegasta lesn-
ing sem rekur á mínar fjörur.
Insights-bækumar hafa það
svo enn sér til ágætis, að þær
em ákaflega vandaðar að öll-
um ytri búnaði og jafnan
prýddar mörgum myndum.
Leiðrétting
I GREININNI „Innri-Njarðvík-
urkirkja hundrað ára“, sem
birtist i Morgunblaðinu á
fimmtudag, féll niður hluti af
setningu.
Viðkomandi setning á að vera:
„Sunnudaginn 20. júlí nk. kl 14:00
verður guðsþjónusta í kirkjunni þar
sem séra Þorvaldur Karl Helgason
og einn fyrrverandi prestur sóknar-
innar séra Bjöm Jónsson á Akranesi
þjóna fyrir altari. Sr. Bragi Frið-
riksson úr Garðabæ predikar."
Margir hafa lagt hönd á
plóginn við gerð þessarar bók-
ar. Hún skiptist í fjóra kafla:
Geography, History and Pe-
ople er sá fyrsti. í þeim næsta,
Places and travel, er farið ítar-
lega um þetta risastóra land
og næstfjölmennasta ríki
heims.
Þriðji kaflinn heitir Special
Features og er þar meðal ann-
ars sagt frá trúarhátíðum,
rakin saga indverska dansins,
sagt frá listum og menningu,
listiðnaði og er þá aðeins
minnzt á nokkur atriði. í
síðasta kaflanum em síðan
hagnýtar upplýsingar fyrir
ferðamenn, og nokkur kort em
í þessari bók.
Allur þessi fróðleikur er
settur fram á mjög læsilegan
hátt þótt mér persónulega
fyndist sá fyrsti einna fróðleg-
astur og gefur þar ótrúlega
skýra og greinargóða mynd
af þessu margbreytilega landi,
sögu þjóðarinnar og samtím-
anum. Síðastur en ekki síztur
er kaflinn um trúarmál Ind-
veija og er til þess fallinn að
auka skilning manns á þessari
flóknu indversku þjóðarsál, og
er þó reyndar á mörkunum að
hægt sé að hafa sálina í ein-
tölu.
Bækur af þessu tagi er
óhugsandi að lesa í einum
hvelli, hér hefur verið safnað
saman svo miklum sögulegum
fróðleik á einn stað að tíma
þarf til að melta hvem og einn
kafla, eigi gagn og gaman að
vera að.
Insights-bækur em til um
þijátíu. Ég hef aðeins lesið um
Nepal og Burma, áður en ég
fór að glugga í Indlands bók-
ina, enda þessar bækur því
miður of sjaldséðar hér. Fyrir
alla þá sem hafa áhuga á Ind-
landi er fengur að því að lesa
þessa bók. Og fyrir þá sem
þekkja Indland er hún gagnleg
upprifjun og endurfundur.
Fyrir þá sem hafa hug á að
fara þangað - eða þá sem
fara þangað aldrei er hún
hreinasta perla.
Gljáaírena i garði Einars Vernharðssonar í Kópavogi. Hæðin er rúmlega 3 metrar.
GLJÁSÍRENA
árið. Blómklasamir eru uppréttir,
fjólubláir, 10-15 sm. langir og
ilma vel. í flestum árum blómgast
hún um miðjan júlí og eru stærstu
runnamir orðnir 3—4 m á hæð,
með 5—6 stofna frá rót og em
oft með mörg hundruð blómklasa.
Þessi umrædda sírena lifði vel af
vonda hretið 1963, en blómstraði
þó ekki það ár, enda ung þá.
Sírenur vaxa í flestum jarðvegi
sem er hæfilega djúpur, h.u.b. 0,5
m eða meira og áburð má þær
ekki skorta ef þær eiga að ná
góðum þroska.
Einn óvin eiga sírenumar en
það er flðrildalirfa sú, sem nefnd
er haustfeti og gerir oft talsverðan
skaða á tijágróðri. Til vamar er
gott að úða með vetrarúðunarefni
seinni hluta vetrar, en sé það ekki
gert er reynandi að úða þær að
vori til eða sumri eins og annan
trjágróður. Óhætt er að segja að
þeir sem velja sér þessar harð-
gerðu sírenur til ræktunar verði
ekki fyrir vonbrigðum með blómg-
unina. Ýmsir halda því fram að
vonlaust sé að rækta þær nema
í skjóli við húsveggi, en það er
ekki mín reynsla. Þær fara mjög
vel í homi á grasflöt þar sem
nægilega rúmt er um þær. Vaxi
þær óhindrað verða þær mjög
þéttar, þarf því oft að fækka
greinum og grisja rækilega ár-
lega.
Einar Vernharðsson
Sírenur em af smjörviðarætt
(Oleaceae). Heimkjmni þeirra em
einkum Ungveijaland/Karpata-
fiöll, en nokkrar em ættaðar frá
Kína og talið að þær hafí breiðst
út um Evrópu eftir 1550. Hér á
iandi hafa sírenur verið þekktar
og ræktaðar um alllangt skeið en
einkum orðið kunnar á síðustu
ámm. Oft var kvartað yfir því að
þær fyrstu sem hér komu á mark-
að væm tregar að blómstra og
mun það einkum hafa átt við
Syringa vulgaris og í einni blóma-
bók er þess getið að þær séu
tregar að blómstra nema helst
norðanlands. Mikill fjöldi af síren-
um em í ræktun, en hér á landi
em það einkum Gljásírena (Syr.
josikaea) og Fagursirena (Syr.
prestoniae) og ýmsir blendingar
af þeim, sem rejmst hafa best (t.d.
Elinor). í plöntulexikon með lit-
mjmdum, sem m.a. hefur verið
geflnn út á norsku og margir eiga,
em taldar yflr 30 tegundir og
afbrigði, misjafnlega harðgerðar,
og samkvæmt því gefín einkunn
sem tilgreind er með tölunum frá
1-8. Þar fær Sjrringa josikaea
hæstu einkunn (8) sem harðgerð-
asta tegundin samkvæmt nor-
skum tilraunum.
Blóm sírenanna em í 10-20 sm
löngum klösum, ýmist uppréttum
eða drúpandi í litunum hvítu,
bleiku, fjólubláu og rauðu og
ýmsum fleiri litbrigðum og ilma
Syringa josikaea
BLÓM
VIKUNNAR
12
Umsjón:
Agústa Björnsdóttir
þau mjög mikið.
Fjrrir rúmum 25 ámm fékk
undirritaður eina plöntu af gljásír-
enu, sem flutt var inn frá
Danmörku af Agnari Gunnlaugs-
sjmi garðjrrkjumanni og hefur hún
verið afar dugleg að blómstra og
búin að eignast marga afkomend-
ur, sem vaxa nú víða um
Reykjavík og Kópavog og jafnvel
komnir í Qarlæga landshluta.
Mjög er auðvelt að Qölga henni
með græðlingum og einnig rótar-
skotum. Blómin koma á endabmm
árssprotanna og ef þeir verða fyr-
ir kali bera þeir engin blóm það
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Dómkórinn syngur. Organisti
Marteinn H. Friðriksson. Sr.
Hjalti Guðmundsson.
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL:
Messa kl. 11 í Bústaðakirkju.
Organisti Daníel Jónasson. Sr.
Lárus Halldórsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Lárus Halldórsson
messar. Organisti Daníel Jónas-
son. Sr. Ólafur Skúlason.
ELLIHEIMILIÐ Grund: Messa kl.
10. Sr. Lárus Halldórsson.
FELLA— og HÓLAKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11. Altaris-
ganga. Sr. Helga Soffía Konráðs-
dóttir.
FÍLADELFÍA Hátúni 2: Almenn
guðsþjónusta kl. 20. Ræðumað-
ur Einar J. Gíslason, organleikari
Árni Arinbjarnarson. Samskot
verða fyrir kirkjuna.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Almenn
samkoma kl. 20. Sverrir Sigurðs-
son talar.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
Þriðjudaginn 22. júlí: Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 10.30.
LANDSPÍTALINN: Guðsþjón-
usta kl. 10. Sr. Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Arngrímur Jónsson.
KFUM & K: Samkoma í kvöld kl.
20.30. Ræðumaður Skúli Svav-
arsson. Gjafir til kristniboðsins.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
usta í Kópavogskirkju kl. 11
árdegis. Sr. Árni Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Messa
fellur niður. Sóknarnefndin.
LAUGARNESPRESTAKALL:
Laugardaginn 19. júlí: Messa
Hátúni 10b 9. hæð kl. 11. Munið
messuna í Áskirkju sunnudag kl.
11. Sóknarprestur.
LANDAKOTSKIRKJA: Lágmessa
kl. 8.30, hámessa kl. 10.30 og
lágmessa kl. 14.00. Rúmhelga
daga er lágmessa kl. 18.00 nema
laugardaga, þá er hún kl. 14.00.
Á hátíðisdegi heilags Þorláks,
verndardýrlings íslendinga verð-
ur hátíðlegur aftansöngur úr
Þorlákstíðum.
KAPELLA ST. JÓSEFSSYSTRA
GARÐABÆ: Hámessa kl. 14.00.
KAPPELLA ST. JÓSEFSSPÍT-
ALA HAFNARFIRÐI: Hámessa
kl. 10.00. Rúmhelga daga er lág-
messa kl. 18.00.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30. Lágmessa er rúmhelga
daga kl. 8.00.
MARÍUKIRKJA Breiðholti: Há-
messa kl. 11.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11 árdegis. Orgel- og kórstjórn
Reynir Jónasson. Sr. Frank M.
Halldórsson.
SELJASÓKN: Guðsþjónusta í
Ölduselsskóla kl. 11. Sóknar-
prestur.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11. Organisti
Örn Falkner. Prestur sr. Solveig
Lára Guðmundsdóttir.
SKÁLHOLTSKIRKJA: Skálholts-
hátíðin 1986. Hátíðamessa kl.
2. Sr. Gunnar Kristjánsson Reyni-
völlum prédikar. Altarisþjónustu
annast sr. Ólafur Skúlason
vígslubiskup, sr. Guðmundur Óli
Ólafsson og sr. Sigurður Árni
Árnason. Skálholtskórinn syngur
undir stjórn Glúms Gylfasonar
organista. Samkoma kl. 4.30.
Markús Örn Antonsson útvarps-
stjóri flytur ræðu og sr. Guð-
mundur Óli Ólafsson minnist
tímamóta í sögu Skálholts,
(1056—1956—1986). Sólrún
Bragadóttir og Bergþór Pálsson
syngja og sr. Sveinbjörn Svein-
björnsson prófastur annast
helgistund.
GARÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 11.00. Séra Harald-
ur M. Kristjánsson prédikar. Séra
Bragi Friðriksson.
VÍÐISTAÐASÓKN: Guðsþjón-
usta í Garðakirkju sunnudag kl.
11.00. Séra Haraldur M. Krist-
jánsson prédikar. Séra Sigurður
Helgi Guðmundsson.
INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 14.00 í tilefni
vígslu kirkjunnar fyrir 100 árum.
Sóknarprestur sr. Þorvaldur Karl
Helgason og sr. Björn Jónsson
Akranesi, þjóna fyrir altari. Sr.
Bragi Friðriksson prófastur í
Garðabæ prédikar.
Fyrrverandi organistar kirkj-
unnar leika við messuna ásamt
Gróu Hreinsdóttur, núverandi
organista. Kirkjukórar Njarðvík-
ursókna syngja og Guðmundur
Sigurðsson syngur einsöng. Alt-
arisganga. Eftir messu býður
sóknarnefnd viðstöddum að
þiggja veitingar í safnaðarheimil-
jnu. Hörður Agústsson listmálari
mun þar flytja ræðu í tilefni
vígsluafmælisins. Sr. Þorvaldur
Karl Helgason.
HVERAGERÐISKIRKJA: Messa
verður kl. 14.00. Sr. Stefán
Snævarr prédikar. Félag fyrrver-
andi sóknarpresta.