Morgunblaðið - 19.07.1986, Síða 17
MORGUNBLÁÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986
17
í blaðagreininni á þá lund, að þeir
menn, sem teljast eiga „skips-
skrokk“ eigi ekki meiri rétt á
fiskimiðunum, en hinir, sem engan
eiga. Og þetta á náttúrlega eins við
um þá sem róa á miðin á þessum
„ skipsskrokkum".
Líklega hefur það verið þessi
kenning í boðskap Fálkans unga
sem mestu olli um upphlaup mitt.
Margur af þessum „skipsskrokks-
eigendum" á allt sitt undir „skips-
skrokknum", hefur hætt öllu til að
eignast hann og gera hann út á
miðin. Mér fínnst þessi maður eiga
meiri rétt til miðanna en ég sem
engu hef hætt til og líka meiri rétt
en forstjóri SH, þótt ég viti að löng
finnst honum biðin eftir afla skips-
ins,_ ef Coldwater vantar físk.
Eg er þó öllu meira að hugsa um
mennina um borð í „skipsskrokkun-
um“, hvort þeir eigi ekki einnig
eitthvað meiri rétt til miðanna en
ég eða forstjórinn. Mér er hlýtt til
„skipsskrokka" síðan á þeim árum
að mér fannst stundum ég ætti líf
mitt undir því að þeir héldust á
floti. Vissulega stöndum við oft í
ströngu, ég og forstjórinn: ég á oft
langan vinnudag með pennann
minn og hugsa svo brakar í mér,
en það fer heldur notalega um mig,
hitaveitan sér um velgjuna og þeir
eru famir að smíða ágæta skrif-
stofustóla, ég vona að forstjóri SH
eigi einn með góðu baki, því ekki
erfiðar hann minna en ég, mæðist
í mörgu í einu og hugsar svo brak-
ar í skrokknum þvi ekki er það
léttast að mishugsa. En þó við höf-
um það erfítt, ég og forstjórinn, þá
blotnar ekki á okkur í skvettu og
ekki tekur hún okkur fyrir borð,
ekki heldur þurfum við að standa
klárir af toghlerum, að þeir ekki
Iemstri okkur, ekki heldur netinu,
að það grípi okkur, þegar það span-
ast út, og ekki eru fíngur okkar eða
handleggir í hættu af að kremjast
undir vír á lunningu eða í blökk.
Af þessu verð ég að játa, að ég
geri ekki lengur sama tilkall til
fiskimiðanna og sá sem sækir á þau
í „skipsskrokkunum". En ég er
heldur ekki með allar taugar
spenntar að bíða eftir afla til að
selja, hugsandi stíft um „þjóðar-
hag“.
Höfundur er rithöfundur.
Auglýsingar
22480
Afgreiðsla
83033
** *
Frá gróðursetningunni. Ragnhildur Helgadóttir (Tómassonar) leggur sitt af mörkum i lundi sem
ber nafn föður hennar.
Sumarbúðir skáta við Úlfljótsvatn:
Tré gróðursett til minningar
um Helga Tómasson yfirlækni
SKÁTAHREYFINGIN á Islandi
gróðursetti fyrr í þessum mánuði
200 tré við Úlf(jótsvatn til að
minnast Helga Tómassonar yfir-
læknis, fyrrverandi leiðtoga
skátahreyfingarinnar á íslandi
og til að leggja grundvöll að
skógrækt við Ulfljótsvatn.
Nú eru 45 ár síðan skátar fengu
jörðina Úlfljótsvatn í Grafningi til
afnota. Það var fyrir tilstilli dr.
Helga Tómassonar þáverandi
skátahöfðingja og borgarstjórans í
Reykjavík, Bjama Benediktssonar,
að Rafmagnsveita Reykjavíkur lét
skátum landið eftir til afnota.
Síðan hafa tugir þúsunda ung-
menna dvalið við Úifljótsvatn í
sumarbúðum, á skátamótum og f
skálaferðum. Þessi hópur stækkar
á hveiju ári og uppbygging á staðn-
um heldur áfram.
Skógræktarfélag Reylqavíkur
lagði til plöntumar og rúmlega 100
manns önnuðust gróðursetningu,
sem framkvæmd var 5. júlí sl. Jón-
as B. Jónsson fyrrverandi skáta-
höfðingi bauð gesti velkomna og
sagði að minnismerki um Helga á
þessum reit yrði skátum hvatning
Edith Nícolaisdóttir og Eyjólf-
ur Snæbjörnsson önnum kafin.
til þróttmikils ræktunarstarfs. Með-
al viðstaddra var ekkja Helga,
Ragnheiður Biynjólfsdóttir, öll böm
hans og fjölmargir afkomendur.
Við þetta tækifæri tók Ragn-
hildur Helgadóttir ráðherra til máls
og þakkaði þann hlýhug og virðingu
sem föður hennar væri sýnd og
sagði tvö helstu áhugamál hans ein-
mitt hafa verið skátastarf og
skógrækt, áhugamál sem fælu í sér
aðhlynningu ungviðis.
Næsta vor er ætlunin að halda
þessu starfí áffam og geta þeir sem
vilja styðja skógræktina keypt
merki hennar á skrifstofu Banda-
iags skáta og f Skátabúðinni við
Snorrabraut. Einnig er hægt að
leggja framlög inn á reikning skóg-
ræktarskáta, nr. 87700 í Alþýðu-
bankanum.
Bíóhúsið frumsýnir:
Allt í hönk
BÍÓHÚSIÐ hefur tekið til sýn-
iiigar grínmyndina „ Allt í Hönk“.
Myndin byggir á sögu um pilt
sem kjmnist stúlku og verður svo
hrifínn af henni að hann er sann-
færður um að þama sé hin eina
sanna ást á ferðinni. Hann telur
hana sama sinnis en svo snýr hún
við blaðinu og verður hrifín af öðr-
um. Er lífið nokkurs virði þegar svo
er komið?
I “Allt í Hönk“ er reynt að fínna
nýja fleti á þessu viðfangsefni.
Einnig em famar nýjar leiðir í leik-
aravali með því að blanda saman
nýliðum í leikarastétt sem aldrei
hafa leikið áður og gamalreyndu
fólki.
Aðalhlutverkin eru f höndum
John Cusack, David Ogden Stiers,
Diane Franklin, Kim Darby,
Amanda Wyss, Aron Dosier og
Curtis Armstrong.
(Úr f réttatilkymiingii)
Höfðar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!
[h]heklahf
Laugavegi 170 -172 Simi 695500
GÆÐINGARNIR FRÁ
MITSUBISHI
1987
ERU AD KOMA
...og hafa aldrei veríö betrí
PRISMA