Morgunblaðið - 19.07.1986, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 19.07.1986, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986 19 9 nemendur sótt um skólavist næsta vetur. Ákvörðun menntamálaráðherra, Sverris Hermannssonar, um lokun skólans var tekin einhtiða án sam- ráðs við heimaaðila. Skólanefnd fékk að vita um málið tveimur dög- um eftir að bréfið er dagsett sem sent var skólanum varðandi þessa ákvörðun og sameignaraðilar að skólanum lásu um þessa ákvörðun ráðherra í blöðum. Af hálfu menntamálaráðherra hefur verið skipuð nefnd til að ræða málefni_ skólans við aðila á Suður- landi. Á fundi þeirrar nefndar og skólanefndar Hússtjómarskólans kom fram að það er vilji ráðherra að Hótel- og veitingaskólinn flytjist að Laugarvatni og nýti húsnæði Hússtjómarskólans. Einnig kom þar fram að engu fjármagni verður veitt til reksturs skólans á næsta ári. Á þessum fundi fékk skóla- nefndin engin svör frá ráðherra- nefndinni um það hvort einhver samræming hefði átt sér stað af hálfu ráðuneytisins varðandi hús- stjómarfræðslu í skólakerfínu. Skólanefndin lagði það til á fundin- um að staða skólastjóra Hússtjóm- arskólans á Laugarvatni yrði auglýst og skólastarf undirbúið fyr- ir næsta vetur. Einnig að reglugerð yrði sett um nám í skólanum, það samræmt öðru framhaldsskólanámi og gert einhvers gildandi. „Ráðherra er ekki að hugsa um hússtjómarfræðsluna heldur er hann að leita eftir húsnæði fyrir Hótel og veitingaskólann," sagði Þórarinn Siguijónsson formaður skólanefndar í framsöguerindi sínu. Hann benti á að það væri enginn skóli betur til þess fallinn en skólinn á Laugarvatni að sinna hússtjómar- fræðslunni. Hann sagði að skólinn hefði í upphafí verið byggður með það fyrir augum að nýta mætti húsnæðið fyrir hótelrekstur. Hann væri af þeim sökum 700 fermetrum stærri en hann þyrfti að vera. Vand- að hefði verið til hans að öllu leyti og nú væri hann metinn á nærri milljarð króna af menntamálaráðu- neytinu. Heimaaðilar eiga þar 25% sem er veruleg fjárhæð. Skólanefnd Husstjómarskólans hefiir ekki fengið nein svör frá ráðu- neytinu við fyrirspumum varðandi skólann og neitar alfarið að ræða við skóianefnd Hótel- og veitinga- skólans um afnot þess síðamefnda af skólanum. Hreppsnefnd Laugar- dalshrepps skrifaði ráðherra strax mótmælabréf og óskaði eftir við- ræðum um málefni skólans. Ekki tókst henni að ná fundi ráðherra en fékk skilaboð um að ákvörðun hans stæði óhögguð. Þetta kom fram í máli Þóris Þorgeirssonar frá Laugarvatni. í máli hans kom einn- ig fram að vísa þyrfti frá nemendum Iþróttakennaraskólans fengi hann ekki inni fyrir nemendur á heima- vist Hússtjórnarskólans. Þetta mál væri mjög alvarlegt í augum ráða- manna á Laugarvatni. Þór Vigfússon skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands gerði grein fyrir því hvemig hugsanlega mætti tengja hússtjómamám öðru framhaldsskólanámi og nefndi í því sambandi að skólinn á Laugarvatni gæti starfað eins og hver annar fagskóli sem nemendur sæktu eftir að hafa stundað gmnnnám við aðra skóla. Áður en það gæti orðið yrði að fara fram skilgreining námsins þannig að fella mætti það að öðm námi. í máli sínu benti Þór á vax- andi þörf fyrir nám 1 hússtjómar- fræðum og þekkingu á þjóðfélaginu og neysluvömm sem á boðstólum em. „Þetta er kjaftshögg í andlitið á okkur konum," sagði Olafía Ingólfs- dóttir formaður orlofsnefndar kvenfélaganna á Suðurlandi. Hun gagnrýndi ráðherra fyrir að leggja niður alla hússtjómarskóla nema þann sem væri í hans eigin kjör- dæmi. Hún lagði á það áherslu að sett yrði reglugerð um skólann og kennsla í honum færð til nútíma horfs og námið metið. „Ég vil að konur á Suðurlandi standi vörð um þennan skóla," sagði Ólafía. Hún benti á að konur á Suðurlandi hefðu nýtt húsnæði skólans til orlofs- dvalar á hverju ári eftir að starfsemi Edduhótelsins lýkur og kvaðst vona að konur á Suðurlandi hefðu áfram aðgang að skólanum til orlofsdval- ar. í lok fundarins var samþykkt eftirfarandi ályktun: „23. for- mannafundur SSK haldinn í Seli, Selfossi 15. júlí 1986, mótmælir Þeirri ákvörðun menntamálaráð- herra að hætt skuli rekstri Hús- stjómarskólans á Laugarvatni, Varmalandi og Laugum, og skorar á hann að endurskoða þá afstöðu. Fundurinn telur að námsefni Hús- stjómarskólanna þurfi að endur- skoða og laga að kröfum tímans, jafnframt verði það metið í menntun til réttinda og launa." Einnig var samþykkt tillaga þess efnis að SSK stæði áfram að því að lagfæra lóð Hússtjóraarskólans og var nefndum falið að skipu- leggja þá vinnu. Þessa samþykkt gerðu konumar í minningu syst- ranna Rögnu og Helgu Sigurðar- dætra sem unnu mikið að fegrun og ræktun í héraðinu. — Sig Jons. Sveinbjörn Oddsson stöðvarstjóri þjá Pólarlaxi fyrir framan klaktjörnina. Vogalax í Vogum við Vatnsleysuströnd. Húsmæðraskólinn á Laugarvatni. Formannafundur Sambands sunnlenskra kvenna: Ráðherra gagnrýndur fyrir einhliða ákvörðun um lokun Húsmæðraskóla Suðurlands Selfossi. Akureyri: Tryggvi Arnason sýnir í Laxdalshúsi í DAG kl. 15 opnar Tryggvi Árnason sýningu á graf íkverkum í Laxdalshúsi á Akureyri. Þetta er önnur einkasýning Tryggva en hann hefur auk þess tekið þátt í nokkmm samsýningum. Síðasta einkasýning hans var á Kjarvalsstöðum í júní í fyrra. Tryggvi stundaði nám í Mynd- listaskólanum í Reykjavík og við Myndlista- og handíðaskólann en þaðan útskrifaðist hann úr grafík- deild árið 1983. Á sýningunni verða ýmsar gerðir grafíkverka, aðallega silkiþrykk, mezzotínta og ný tegund grafíkur sem ekki hefur verið sýnd hér á landi áður og kallast collograph. Myndefni Tryggva er aðallega landslag, konulíkaminn og svokall- aðar húsastemmur frá eldri hverf- um Reykjavíkur. Myndimar em allar unnar á síðustu þremur ámm. nefndar Hússtjomarskóla Suður- lands. Lýstu þau öll áhyggjum yfír því að með lokun skólans væri lögð niður hússtjómarkennsla í stað þess að efla hana og færa til nútíma- legra horfs. Aðsókn að Hússtjómarskóla Suð- urlands hefur verið sveiflukennd. Sum árin hefur skólinn verið full- skipaður og færri komist að en vildu. Skólinn getur tekið 75 nem- endur með því að fullnýta húsnæði sitt en 1978 var íþróttakennara- skóla íslands leigð aðstaða á heimavist skólans þannig að nú er hægt að taka við 35 nemendum í skólann. Vetuma 1983-84 og 84-85 var fullskipað í skólann, 35 nemend- ur.Skólaárið 1985-86 vom 25 nemendur í skóianum til áramóta og 15 luku prófí. Eftir áramótin héldu 16 nemendur áfram námi og 15 luku prófí. Þegar menntamála- ráðherra tilkynnti ákvörðun sína 28. maí sl. um lokun skólans höfðu Á FUNDI formanna allra kven- félaga á Suðurlandi sem haldinn var á Selfossi 15. júlí var ákvörð- un menntamálaráðherra um lokun hússtjórnarskólanna á Laugarvatni, Varmalandi og Laugum mótmælt. Á fundinum var ráðherra gagnrýndur fyrir einhliða ákvörðun um lokun Hús- stjórnarskóla Suðuriands án samráðs við heimaaðila sem eiga 25% í skólanum. Á þessum formannafundi Sam- bands sunnlenskra kvenna vora mættir fulltrúar frá öllum kven- félögum á Suðurlandi. Aðalmál fundarins var Hússtjómarskóli Suð- urlands og framtíð hans. Kvenfé- lagskonur á Suðurlandi láta málefni skólans til sín taka þar sem það voru konur á Suðurlandi og kven- félög sem áttu stærstan þátt í því að skólinn var settur á stofn. Á fundinum héldu framsöguerindi Halla Aðalsteinsdóttir formaður sambandsins, Sigurveig Sigurðar- dóttir og Þórarinn Siguijónsson alþingismaður og formaður skóla-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.