Morgunblaðið - 19.07.1986, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 19.07.1986, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 450 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 40 kr. eintakiö. Verðbólga mæld með einum tölustaf Ifyrsta skipti frá árinu 1971 er hægt að mæla verðbólgu á Islandi með einum tölustaf. Því er spáð að verðbqlga á þessu ári verði frá upphafí til loka árs undir 10%. Þetta eru breyttir tímar og betri. Fyrir aðeins þremur árum, þegar núverandi ríkisstjóm tók við vöidum, var verðbólguhraðinn 130% og á einu ári hækkaði verðlag um rúmlega 80%. Ríkisstjómin þurfti að grípa til nokkuð harkalegra aðgerða og hefði henni ekki tekist ætlun- arverk sitt blasti gjaldþrot við mörgum fyrirtækjum, stómm sem smáum. Árið 1984 var verð- bólgan farin niður í tæplega 30% á ári. Árið eftir hallaði nokkuð undan fæti en eftir kjarasamn- ingana í febrúar síðastliðnum virðist sem takmark ríkisstjóm- arinnar að koma verðbólgu niður fyrir 10% náist. En þó era ýmsar blikur á lofti. Að undanfömu hafa margir hvatt til kosninga á útmánuðum. Rökin sem færð era fyrir kosn- ingum era fyrst og fremst þau að kjarasamningar renna út um næstu áramót og til að unnt sé að fylgja eftir þeim árangri sem náðst hefur í efnahagsmálum sé ríkisstjórn nauðsynlegt að hafa meiri tíma til stefnu en fjóra til fímm mánuði. Hvort sem kosningar verða í haust eða á næsta ári þá era stjómmálaflokkamir þegar fam- ir að undirbúa þær. Og óróa á vinnumarkaði er þegar farið að gæta, sérstaklega hjá háskóla- menntuðum rikisstarfsmönnum. „Við þurfum að lýsa yfír stríði á öllum vígstöðvum," sagði Þor- steinn A. Jónsson formaður Launamálaráðs ríkisstarfs- manna í Bandalagi háskóla- manna á fundi ráðsins fyrir skömmu vegna niðurstöðu Kjaradóms. Kjaradómur dæmdi háskólamenntuðum starfsmönn- um ríkisins 9,3-16% hækkun umfram almennar launahækkan- ir. Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ segir að þessi niðurstaða auki þrýsting á að laun annarra stétta hækki. En það eru ekki aðeins aðstæður á vinnumarkaði sem kunna að stefna markmiði stjórnvalda í hættu. Fall dollar- ans á erlendum mörkuðum getur reynst okkur þungbært áfall og þróun efnahagslífsins ræðst einnig að miklu leyti af því hvem- ig til tekst með stjóm ríkisfjár- mála. Andstæðingar þessarar ríkis- stjómar munu reyna að nýta sér og kynda undir óánægju á vinnu- markaðnum. Þeir léku þann leik fyrir átta áram þegar Sjálfstæð- isflokkurinn og Framsóknar- flokkurinn sátu í ríkisstjóm. Það er eftirtektarvert að vinstri stjómir hafa alltaf tekið við eftir að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur hafa myndað ríkisstjóm, eins og bent var á í síðasta Reykjavíkurbréfí. Og aldrei hafa þær setið út kjörtíma- bilið. Það er einnig dómur sögunnar að vinstri stjómum hefur ekki farist stjóm efnahags- mála vel úr hendi. Á þremur áram frá 1971 til 1974 tókst vinstri stjóm að koma verðbólgu upp í um 50%. Þegar hún tók við völdum var verðbólgan innan við 10%. Og frá 1978 til 1983 tókst þeim að tvöfalda verðbólg- una úr rúmlega 40% í yfír 80%. Nú þegar hyllir undir stöðugleika í íslenskum efnahagsmálum sem er forsenda framfara og bættra lífskjara yrði hörmulegt að fá enn eina mistæka vinstri stjóm. Við höfum ekki efni á slíkum stjóm- arháttum er gera að engu þær fómir sem færðar hafa verið fyr- ir bjartari framtíð. Bókaþjóð Bókin hefur löngum verið okkur íslendingum kær. í seinni tíð hafa margir haft af því áhyggjur að tími bókarinnar væri liðinn og í stað lesturs góðra bóka kæmi sjónvarps- og mynd- bandagláp. Svo virðist sem sé ástæða þessa ótta sé ekki lengur fyrir hendi. Við íslendingar eram enn bókaþjóð. Fyrir réttu ári réðst bókaút- gáfan Svart á hvitu í það þrekvirki að gefa út í heild ís- lendinga sögumar með nútíma- stafsetningu í tveimur bindum. Síðara bindi þessa verks sendi bókaútgáfan frá sér fyrir skömmu. Á fímmta þúsund ein- taka hafa selzt af fyrra bindinu. Annað dæmi um góðar við- tökur á bókamarkaðnum er útgáfa Almenna bókafélagsins á íslenskum úrvalsljóðum sem Kristján Karlsson ritstýrði. Mörg þúsund eintök af þessu merka safnriti hafa þegar selzt. Bókin hefur verið í sókn og ljóðið einnig. Á undanfömum áram hafa komið fram ung og efnileg ljóðskáld og merkja má aukinn áhuga ungs fólks á Ijóð- list. Margt manna sækir upp- lestrarkvöld. Ljóðið er aftur að komast í tízku og er það vel. Við íslendingar verðum áfram bókaþjóð svo Iengi sem góðar og athyglisverðar bækur era gefnar út. ÉQaisiM ffláö Umsjónarmaöur Gísli Jónsson í sjónvarpsfréttum 11. þ.m. las ungur maður hluta frétta og gerði það á margan hátt vel og prúðmannlega. En gleymst hef- ur að kenna honum rétt áherslu- lögmál móðurmálsins. Látum nú vera, þótt hann segði Mósam- BÍK, í stað MÓsambík, það er þó alútlent orð. Hitt var lakara, þegar hann margsagði Suður- AFFRíka, með aðaláherslu á þriðja atkvæði, stuttu a-i og tvö- földu effí. Eitt höfuðeinkenni máls okkar er aðaláhersla á fyrsta atkvæði, og aukaáhersla á þriðja atkvæði, ef svo ber und- ir. Heimsálfan heitir og A-fríka, með löngu a-i og einföldu effí. I samsetningunni Suður-Afríka á aðaláhersla að koma á suð, enda þótt orðið sé samsett og seinni hlutinn erlendur. ★ Næst set ég hér á blað gamla lýsingu á knattspymuleik. Hún er héðan úr blaðinu fyrir 67 árum. Það er stundum gaman og fróðlegt og bera saman það málfar sem menn temja sér á vissum sviðum, þótt ekki sé lengra liðið á milli heldur en hér. Engir stafír vora undir þess- ari grein, en fastir blaðamenn Morgunblaðsins 1919 vora a.m.k. Vilhjálmur Finsen rit- stjóri, Ámi Ola og Jón Bjömsson skáld frá Dalvík. En hér á eftir fer grein Morgunblaðsins frá árinu 1919: „Lokasennan milli Fram og KR Varla hefír öðrum kappleik verið fylgt með meiri eftirvænt- ingu nú á þessu vori, en úrslita- leiknum milli Fram og KR á sunnudaginn. Reykvíkingar skeyttu því lítt, þótt grátt væri í lofti, lágt til himins og úða- regn, þegar leikar hófust, en íjölmenntu suður á völl, skipuðu sér þétt á palla og sæti og fylgdu leiknum með æstum áhuga. Það var auðséð, að Frammar- ar hugðu á hefndir fyrir ófarim- ar, þá er bikarinn frægi var af þeim tekinn. Allan fyrri hálfleik- inn var sóknin nær eingöngu þeirra, og gaf að líta mörg snörp og fræknleg áhlaup á KR- markið. Hvað eftir annað virtist ekki muna nema hársbreidd að þeir gerðu mark, - áhorfendum- ir stóðu á öndinni af óþreyju. Þeir Osvald Knudsen og Frið- þjófur [Thorsteinsson] skoruðu nú hvor sitt mark og fagnað- arópin glumdu við um völl allan, - lengi og ákaft. Laust eftir síðara markið gerði Friðþjófur enn á ný hið fegursta áhlaup og rann með knöttinn fram hjá hveijum andstæðinga sinna á fætur öðrum. Hrópin dundu við á eftir honum, - nú áttu allir von á einhveijú sögulegu. En þá var hlaupið á hann svo hrotta- lega af einum verðinum, að hann féll niður á völlinn og náði ekki andanum um stund. Eftir þetta virtist oss af honum dregið. Fram fékk ekki fleiri mörk þenn- an hálfleik. Síðari hálfleikinn var sóknin jöfn á báða bóga og lá hvað eftir annað við marki beggja- megin. Gunnar Schram skoraði eitt mark hjá Fram og lauk þá leiknum svo, að Fram vann hom- ið með 2 mörkum gegn einu. Fram lék gullfallega allan leikinn og hefði eflaust fagnað meiri sigri, ef Friðþjófur hefði ekki orðið fyrir áfalli sínu. Vöm- in hefír líka stórbatnað þeim megin við það að Vidar Vik hef- ir verið settur í liðin sem bakvörður. - Þá er og skylt að geta annars bakvarðar KR, nefnilega Eiríks Símonarsonar, og höfum vér ekki séð öðram bakverði sjaldnar skeika en hon- um né annan spilla fleiri áhlaup- um hjá andstæðingum sínum. Það er tillaga vor, að hann verði settur í liðið, er keppa á við A[kademisk] B[oldklub]. Ann- ars era þeir vængmennimir Gunnar. Schram og Kristján Gestsson mesta prýði KR. Hinn fyrri sparkar svo vel úr homi, að enginn hérlendur gerir það honum betur. Hinn síðari hleyp- ur svo fagurlega, að engu er líkara en gassaviljugum vekringi á snarpaskeiði." 346. þáttur Þannig var knattspymu lýst hér í blaðinu 1919. Viðbætur innan homklofa eru frá umsjón- armanni, og þykir honum gaman að bera saman stflinn á þessu og þeim knattspymulýsingum sem nú tíðkast. ★ Flokkun rímnabragarhátta er flókið viðfangsefni. Það kerfí, sem ég fer eftir um sinn og sótt er í smiðju Sveinbjamar á Drag- hálsi, er sjálfsagt umdeilanlegt að sumu leyti. Þetta er vanda- samt efni, og fyrirvara hafði ég um flokkunina í 343. þætti. Magnús Jónsson í Hafnarfirði hefur skrifað mér mikið og fróð- legt bréf um rímnahætti og er ekki alveg á sömu slóðum og við Sveinbjöm. Ég þakka Magn- úsi kærlega fyrir, en læt hjá líða að svo stöddu að birta bréf hans, enda er það taisvert fræðilegt. Enn skal þó ítrekað að lesenda- bréfín eru líftaug þáttarins og gleðileg staðfesting áhuga al- mennings á móðurmálinu. Bragarháttur vikunnar er svo skammhenda (ferskeytluætt IV): Allar raddir óma glaðar, einn ég raula mér; lestin brunar hraðar, hraðar, húmið ljósrák sker. (Jón Helgason) „Enginn skyldi skáldin styggja, skæð er þeirra hefnd“. Að því skaltu ætíð hyggja, úthlutunarnefnd. (Leifur Haraldsson pijónaði við frægar Ijóðlínur eftir Grím Thomsen) ★ Erfíðlega gengur mönnum enn að kenna tölvunni að skipta rétt á milli lína. í síðasta þætti íslensks máls skiptist „lýðveldi- stöku“ í stað lýðveldis-töku, og Dagur hefur tvö dæmi úr DV. Annað var það að fyrir kom „happdrætti-smiða" fyrir happ- drættis-miða, hitt að prentað var „rok-klögunum“ í staðinn fyrir rokk-lögunum. Happ- drætti smiða er auðvitað allt annað en happdrættismiði o.s.frv. Háskólamenn þegar famir að segja upp — segir hagfræðingur BHMR „HÁSKÓLAMENN í þjónustu ríkisins eru þegar farnir að segja upp störfum í beinu framhaldi af niðurstöðu Kjaradóms um kaup okkar og kjör. í uppsagnarbréfum sinum segja menn sem svo, að þeir geti ekki sjálfsvirðingar sinnar vegna unnið þar sem störf þeirra séu jafn litils metin og raun ber vitni og auk þess leyfi fjárþörf þeirra til eigin framfærslu hreinlega ekki að þeir vinni hjá hinu opinbera," sagði Birgir Björn Sigurjónsson, hagfræðingur launa- málaráðs ríkisstarfsmanna i Bandalagi háskólamanna (BHMR), í samtali við blm. Morgunblaðsins í gær. „Það er því ljóst, að ákveð- inn hópur okkar félaga mun segja upp störfum strax þótt við viljum hvetja fólk til samstöðu um uppsagnirnar. Slík aðgerð tcljum við að hafi meiri áhrif en einstaklingsbundnar uppsagnir." Forystumenn launamálaráðsins svaraði Þorsteinn, „meðal annars gengu á fund fjármálaráðherra í gærmorgun og sögðu formlega upp gildandi samningum ráðsins við ráðuneytið. Jaftiframt óskaði BHMR-forystan eftir skýrum svör- um ráðherrans varðandi samnings- rétt ráðsins og krafðist bættra launakjara þegar í stað. En ber raunverulega svo mikið í milli BHMR og ríkisstjómarinnar um samningsréttarmálin, Þorsteinn A. Jónsson, formaður launamála- ráðs BHMR? „Við spurðum ráðherrann ítar- lega um hugmyndir hans um samningsrétt okkur til handa," með tilliti til samþykktar ríkis- stjómarinnar. Við fengum ekki skýr svör — önnur en þau, að það væri hlutverk • ríkisstjómarinnar að leggja fram stjómarframvörp. Ráð- herrann hótaði raunar að leggja fram framvarp um samningsrétt okkar í haust án þess að hafa um það nokkurt samráð við okkur. Ráðherrann kvað ríkisstjómina ætla að standa við þau loforð, sem fyrrverandi fjármálaráðherra hafði gefíð okkur um að laun okkar skyldu vera sambærileg við laun háskólamenntaðra manna í þjón- ustu einkafyrirtækja — en hann gaf í skyn, að Kjaradómur hefði þegar séð til þess að svo væri orðið. Það kom hinsvegar í ljós á fundi, sem við áttum með Steingrími Her- mannssyni forsætisráðherra á miðvikudaginn, að þeim tveimur ber ekki saman. Steingrímur kvaðst telja ríkisstjómina skuldbundna til að standa við gefin loforð um kjör okkar — þótt það yrði að vera í áföngum — en hann var ekki eins viss um að Kjaradómur hefði efnt þau loforð fyrir ríkisstjórnina," sagði Þorsteinn. Þess misskilnings gætti í frétt um ákvörðun ríkisstjórnarinnar um samningsrétt BHMR-félaga í blað- inu á ftmmtudaginn, að launamála- ráð BHMR hefði engar samþykktir gert í framhaldi af úrskurði Kjara- dóms. Hið rétta er, að BHM sem slíkt hefur ekki ályktað um málið, það hefur BHMR hinsvegar gert ítarlega, eins og fram hefur komið í blaðinu undanfama daga. Sjá einnig fréttatilkynningu fjármálaráðuneytisins á bls. 9.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.