Morgunblaðið - 19.07.1986, Qupperneq 28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986
28
AKUREYRI
Mikil aðsókn
í reiðskólann
REIÐSKÓLI Akureyrar er
starfræktur í sumar eins og
undanfarin sumur síðan 1960.
Skólinn er rekinn i samvinnu
Hestamannafélagsins Léttis og
Æskulýðsráðs Akureyrarbæj-
ar, og eru brúkaðir við kennsl-
una lánshestar frá félagsmönn-
um Léttis.
Aðalkennari við skólann er Jón
Matthíasson og hefur hann gegnt
því starfi undanfarin sex sumur.
Honum til aðstoðar er ungur
danskur maður, Morten Pedersen.
Að sögn Jóns hefur aðsóknin
að námskeiðinu verið mjög mikil
í sumar og eru þrjú námskeið í
sumar. Fyrsta námskeiðið hófst
18. júní, en að því loknu var gert
hlé vegna landsmótsins. Annað
námskeiðið hofst 14.júlí og lýkur
næstkomandi föstudag, en síðasta
námskeiðið 28.júlí. Hvert nám-
skeið stendur yfir í tíu daga og
er krökkunum skipt upp í þijá
hópa og er hver hópur tvo tíma
í senn. Fyrsti hópurinn byijar kl.
9.00 á morgnana og eru vanari
krakkar f þeim hóp. Annar hópur-
Jón Matthíasson, leiðbeinandi á reiðnámskeiðinu, veitir góð ráð.
inn látinn tölta í hring með taum, honum. Er þetta gert til þess að
og hefur kennarinn taumhald á krakkamir venjist hestinum og
Anna Aðalsteinsdóttir á Gamla
Brún. „Ég fór líka á fyrra nám-
skeiðið og mér þykir mjög
gaman. Mamma ætlar kannski
að gefa mér hest,“ sagði Anna,
sem er níu ára.
inn er kl. 13.00 en sá þriðji kl.
15.30. í seinni hópunum tveimur
eru krakkar, sem skemmra eru
komin. Hér er því um tvö nám-
skeið að ræða; fyrir byrjendur og
lengra komna.
A fyrra námskeiðinu er hestur-
læri að halda jafnvægi á honum.
Síðar læra þau að leggja á og
leggja við og undirstöðuatriði í
stjómun og ásetu. Einnig er farið
í reiðtúr með þau og er mjög vin-
sælt að fara upp í fjall eða fara
reiðleiðir í nágrenninu.
Á síðara námskeiðinu era
krakkamir famir að geta gert
meira, Ieggja jafiivel sjálf á og
við. Þá era famar lengri ferðir
og krökkunum leyft að hleypa úr
spori. Að sögn Jóns bjóða hestam-
ir ekki upp á miklar æfingar í
mismunandi reiðtegundum.
Sumir þátttakendanna eiga
sjálfir sína eigin hesta og jafnvel
er til í dæminu að þau komi með
sína hesta á námskeiðið.
Jón taldi þessi námskeið mjög
gagnleg og hefðu margir fengið
hestadellu í kjölfar slíks nám-
skeiðs. Sem dæmi mætti nefna
að margir félaga Léttis hefðu stig-
ið sín fyrstu spor í Reiðskóla
Akureyrar.
Æskulýðsráð Akureyrar leggur
til húsnæði skólans, sem er neðan
við Breiðholt þeirra Akureyringa,
sem er þyrping hesthúsa efst í
bænum. Að sögn Jóns stendur til
að flytja skólann suður í Hamra-
borg. „Mjög brýnt er að fá nýja
aðstöðu enda era reiðleiðir hér á
hörðum götum og mikil umferð
hér í kring. Eina almennilega reið-
leiðin liggur upp í fjall,“ sagði Jón
Matthiasson að lokum.
„Dýrt að
eiga hesta
í Dan-
mörku“
— seg-ir Morten
Pedersen
Aðstoðarkennari við Reið-
skóla Akureyrar er ungur
maður frá Danmörku, Morten
Pedersen.
Morten hefur dvalist á Akur-
eyri í flóra mánuði og heldur heim
á leið f ágúst nk. Morten kveðst
eiga tvo hesta í Danmörku, „en
það er dýrt að eiga hesta i Dan-
Morten Pedersen
mörku," segir hann og bætir þvi
við að sér þyki mjög gaman að
kenna hestamennsku hér á Akur-
eyri og hefur hann í hyggju að
dveljast hér á landi næsta sumar.
Morten má ekkert vera að því að
ræða við blaðamann og lýkur
samtalinu, enda þarf hann að
hjálpa krökkunum að leggja á.
„Eg kalla
hestinn
Brúnka“
— segir Maren
Eik, 8 ára
MAREN Elk Vignisdóttir 8 ára
þátttakandi í reiðnámskeiðinu
var tekin tali í þann mund sem
hún var að leggja á hestinn.
Maren kvaðst hafa verið á nám-
skeiðinu í Qóra daga og þætti
henni mjög gaman; skemmtileg-
ast væri í útreiðartúram. Maren
sagðist aldrei hafa dottið af hest-
baki, enda væri hesturinn sem hún
Maren Eik Vignisdóttir á Brúnka.
lærði á mjög gæfur, en til vonar inn heitir, en ég kalla hann
og vara væra þau alltaf með Brúnka. Heitasta óskin er að eign-
hjálm. „Ég veit ekki hvað hestur- ast einhvem tíma eigin hest.“
Tveir bandarískir ævintýramenn:
A kajökum kringum
TVEIR Bandaríkjamenn, John Bauman 33 ára húsasmiður frá
Anchorage í Alaska og Harry House 29 ára verkfræðingur frá
Madison í Wisconsin eru nú á ferðalagi í kringum landið á kajök-
um og voru staddir á Akureyri í gær er blaðamaður Morgun-
blaðsins ræddi við þá. Þeir tjölduðu við fiskihjallana við mynni
Glerár meðan á Akureyrardvölinni stóð.
Þeir félagamir lögðu af stað við getum alltaf skilið bátana og
þann 4. júní frá Reykjavík og
sigldu þeir norður með mynni
Hvalfjarðar og Borgarfjarðar,
vestur fyrir Snæfellsnes og um
Breiðafjarðareyjar. Þeir sigla yfir-
leitt ekki inn í firðina, t.d. slepptu
þeir Hvalfirði og Hvammsfirði og
yfirleitt á þeir á nesjum.
„íslendingar mjög
vinsamlegir“
10. júní, eða daginn áður en
þeir komu að Búðum hrepptu
sæfaramir mikla hríð. Að Búðum
lentu þeir í þriggja daga stormi
og í Flatey tepptust þeir vegna
storms í tvo daga.
Á Vestfjörðum var m.a. áð á
Vatnseyri, ísafirði og Hombjargi.
Á Hombjargi hlutu ferðalangamir
góðar veitingar. „Hvar sem við
höfum komið, hafa móttökumar
verið alveg stórkostlegar og era
íslendingar mjög vinsamlegir. Og
það sem okkur þykir best, er að
farangurinn eftir, án þess að
þurfa að hafa af því áhyggjur."
Þann 5. júlí vora Bandaríkja-
mennimir staddir við Gjögur og
þegar þeir sigldu meðfram
Ströndum lentu þeir í hafís, en
ísinn var þó gisnari en svo að það
ylli erfiðleikum.
Grjóthnullungur
gegnum tjaldið
I Skagafírði var m.a. áð í Málm-
ey. Þar gerðist það atvik að
grjóthnullungur féll úr bjarginu í
gegnum tjaldið og lenti hálfum
metra frá Bauman. Við þennan
atburð pökkuðu þeir félagamir
hið snarasta og fóra á brott. Svip-
aður atburður varð í Hælavík þar
sem félagamir voru að snæða
hádegismat. Þegar grjóthran
byijaði, átu þeir í hasti.
Kajakar þeirra félaganna era
30 kg að þyngd og má hluta þá
sundur í þijá hluta. Með manni
og farangri vegur hvor kajak um
það bil 200 kg. Unnt er að setja
upp hjálparsegl og þegar best
lætur geta þeir náð sex hnúta
hraða. Að sögn þeirra félaganna
fara þeir um 20-30 mílur á dag,
eftir því hvemig viðrar.
Hrifnir af
Stuðmönnum
í Eyjafirði fengu þeir mjög
hagstæðan vind og sigldu þeir frá
Dalatá til Hjalteyrar á einum degi.
Bandaríkjamennimir tóku sér
viku hvíld á Akureyri vegna kvefs
og annars slappleika. Notuðu þeir
þá tækifærið og skrappu að Mý-
vatni. Á Akureyri sáu þeir
Stuðmenn í Sjallanum og eru
ákveðnir í að kaupa sér plötu með
hljómsveitinni áður en þeir fara
heim.
í gær lögðu þeir John og Harry
af stað frá Akureyri og ætla þeir
að vera komnir til Húsavíkur eftir
þrjá daga. Félagamir vonast til
þess að vera komnir til Reykjaví-
kur í lok ágúst.
Þess má geta að bandarísku
ferðalangamir era í stöðugu sam-
bandi við Slysavamafélagið
meðan á ferðalaginu stendur.
ndi
Morgunblaðið/SAS
Bandarísku ævintýramennirnir Harry House (t.v.) og John Bau
man.