Morgunblaðið - 19.07.1986, Page 44

Morgunblaðið - 19.07.1986, Page 44
44 MOKGUNBLAÐIÐ, LÁUGÁRDAGUR 19. JÚlJí 1986 murnnn ) 1986 Universal Press Syndicate cn C-u2 yécj „iá (Xj ch&,o£' jfSi noKjujr/v tlfioii ícyft uS> \ k.iric.'j- Kó»"nuin." w % Ég þakka þér ráðlegging- arnar læknir. Nú heyrist aldrei neinn tala um að ég ætti að halda aftur af mér í mat! Með morgunkaffirtu Foreldrafundinum er ekki lokið. Ég bíð hér eftir for- eldrum Búdda til að fá skýringu á óstundvísi hans! HÖGNI HREKKVÍSI > Þessir hringdu . . . Og enn tapast úr A.B.J. hringdi: „Ég tapaði úri 28. júní. Óhappið mun hafa átt sér stað einhvers stað- ar á leiðinni frá Þyrli í Hvalfírði upp í Svignaskarð, með viðkomu á Shellstöðinni í Borgamesi. Urið er gyllt að lit og af gerðinni Pier- point. Þeir sem geta gefíð upplýs- ingar um afdrif úrsins eru beðnir um að hringja í síma 75432“. Hvar eru vinnings- númerin? Kona úr Hafnarfirði hringdi: “Eg hef hringt áður út af þessu en ekki fengið neitt svar. Fyrir all- nokkru síðan keypti ég happdrætt- ismiða frá Landssamtökum um byggingu tónlisarhúss, en það var dregið í október. A miðanum var gefíð upp símanúmer 13007 sem maður átti að hringja í til að fá uppgefín vinningsnúmer. Nú fæ ég þau svör að þetta númer sé ekki í notkun. Venjulega hafa happdrætt- in nú símsvara með númerunum. I október nk. fellur miðinn svo úr gildi og því þætti mér vænt um að fá að vita hvar hægt er að fá upp- lýsingar um vinningsnúmer. Eg veit til þess að fleiri hafí reynt að hringja í þetta númer, árangurs- laust. - Það er ekki að furða að happdrættin hirði alla vinningana þegar maður getur ekki einu sinni fengið að vita vinningsnúmerin." Enn um katta- pláguna Steinunn hringdi: “ÉG tek heilshugar undir með J.J. sem hringdi í Velvakanda á fímmtudag. Ég hef auk þess ýmsu við frásögn hennar að bæta. Kettir eru kærulausir. Enda þótt margir eigendur hugsi vel um þá flækjast þeir úti vetur, sumar vor og haust. Það er oft voðalegt að sjá þá. Ef bíll er stöðvaður að vetri til í miklu kattarhverfí hópast þessi grey að bílnum tilað oma sér, en á sumrin keppast sumir kettir við að gera þarfír sínar í garða nágrannanna, veiða smáfugla og ófleyga unga,- að ógleymdum blómunum sem þeir eru mjög iðnir við að slíta upp og tæta í sig. Ég veit um dæmi þess að köttur hafí farið inn í kjallara og eyðilagt þriggja mánaða vinnu fyrir íbúa hans. Er eigandi kattarins var kallaður á vettvang og honum sýnd öll ósköpin var viðkvæðið þetta:„Maður getur nú ekki haft köttinn í bandi“(!)“ Tölvuúr saknar eiganda síns Kristinn Björnsson hringdi: “Ég fann tölvuúr á Miklatúni á laugardag fyrir viku síðan. Þeir sem kunna að sakna þess háttar tækis geta hringt í síma 37365 og fengið nánari upplýsingar. Kodakfilma í óskilum Jóna B. Guðjónsdóttir hringdi: “Ég fann fílmu í ferð Náttúru- fræðifélagsins á Rauðasandi um síðustu helgi. Filman fannst við tjaldstæðið og er af gerðinni Kod- ak, hún er 35 mm og 100 ASA. Þeir sem hafa verið á ferð á þessum slóðum og sakna fílmu af þessari gerð geta hringt í mig í síma 52614.“ Týnt gull hálsmen L.J hringdi: “Gullhálsmen tapaðist í miðbæ Reykjavíkur fimmtudaginn 7. júlí. Þetta er gullhálskeðja með kúlu, sem þakin er blágrænum steinum. Þeir sem kunna að hafa orðið mens- ins varir eru beðnir um að hringja í síma 12278. Hefjið sýningar á Dallas að nýju Guðrún Jónsdóttir hringdi: “Mig langar til að svara nýstúd- ent sem heldur því fram að Dallas- þættimir séu eitthvað ómerkilegir og að þá eigi ekki að sýna í sjón- varpinu. Eg er ómenntuð og hef mikla ánægju af því að horfa á Dallas og fínnst að taka eigi upp þráðinn á sýningu þeirra þar sem frá var horfíð. Það er sjaldan neitt ógeðslegt eða ljótt sýnt í þeim þátt- um og því þarf maður ekki að hafa áhyggjur af því að bömin sjái neitt miður æskilegt. Mér þykir einkenni- legt að fólk skuli ekki fá að horfa á það sem það vill. Þetta er jú iýð- ræðisríki og það er staðreynd að íjöldi fólks hefur anægju af að horfa á Dallas og því ekki að fara eftir vilja meirihlutans?" Hvar eru ódýr- ustu rósirnar? Hrafnhildur Nielsen hringdi: “Ég hlýddi á útvarpsþáttinn „í Víkverji skrifar Eftir fréttum að dæma virðist nýjasta dellan á íslandi vera bflasíminn. Innflutningsfyrirtækin hafa undanfarið keppst um að næla sér í umboð fyrir farsíma og aug- lýsa ágæti þeirra. Svo vel hefur þeim orðið ágengt í sölumennskunni að búið er að sprengja nýja farsima- kerfí Pósts & síma áður en það er raunverulega komið í notkun — gott ef ekki kom einhvers staðar fram að hér væru komnir jafn- margir farsímar í notkun á fáeinum vikum og em nú í notkun á ein- hveiju hinna Norðurlandanna eftir þijú ár. Við sem erum ekki á þeim buxun- um að fá okkur farsíma eða bílasíma alveg á næstunni, brosum auðvitað góðlátlega að írafárinu í hinum, sem hafa nú rokið til og þar með sprengt nýja farsímakerfíð. En þetta er ekki í fyrsta skipti sem stór hluti þjóðarinnar fær eitthvað þessu líkt á heilann. Einu sinni var það myndbandstæki inn á hvert heimili, því næst heimilistölvur og nú er það greinilega farsíminn. Horfí menn svo lengra fram í tímann má sjá glitta í næstu dellu — móttökudisk fyrir geivihnatta- sendingar á hvert húsþak eða húsagarð. Samt er að öðrum þræði ekki hægt annað en dást að þessari nýj- ungagirni sem býr með þjóðinni, og ef við lítum á hana sem ein- hvers konar auðlind, kann hún að verða okkur ekki lítils virði, þegar fram líða stundir. Fróðir menn halda því fram að við lifum nú á tímum sem séu afdrifaríkari fyrir alla þróun og framvindu mannkyns heldur en jafnvel iðnbyltingin var á sínum tíma. Upplýsingaöldin er í birtingu, segja þeir, og tímamótandi nýjungar ryðjast fram á sjónarsvið- ið svo ótt og títt að vísustu menn hafa tæpast svigrúm til að meðtaka eina þeirra áður en hin næsta hefur rutt henni úr vegi. Allt skal þetta þó færa okkur aukna hagsæld og betra líf sam- kvæmt gleðiboðskap þeirra sem enn aðhyllast tæknihyggjuna og trúa því að tæknilegar framfarir séu nærtækasta leiðin til að útrýma allri þeirri vesöld sem ríkir hér í heimi. Þá munu þeir væntanlega duga best sem skjótastir eru að til- einka sér nýjungarnar — og for- senda þess er auðvitað nýjungagim- in. Að öllu þessu athuguðu ættum við þess vegna kannski fremur að prísa bílasímadellu íslendinga en hæðast að henni. xxx Víkveiji hefur til skamms tíma ekki verið mesti sundlauga- garpur höfuðborgarsvæðisins eða í hópi þeirra sem stunda laugarnar á hveijum degi. Hins vegar er hann breiskur maður og hégómlegur að því leyti að hjá honum, líkt og svo mörgum öðram, koma þær stundir að hann finnur hjá sér hvöt til að rækta líkamlegt atgervi sitt, safna þreki og lappa upp á vaxtarlagið. Þá er stigið á stokk og strengt heit um að gera nú eitthvað í málun- um. Sú er skýringin að tiltölulega óvæntri heimsókn Víkveija nú á dögunum í sundlaugina í Laugar- dal. Og hvílík undur og stórmerki sem þar hafa orðið. Að vísu var Víkveija ekki alveg ókunnugt um að einhverjar endurbætur hefðu átt sér stað á Laugardalslauginni en óraði engan veginn fyrir því hversu ótrúleg breyting hefur orðið þar til batnaðar á allri búnings- og baðað- stöðu. Nýi potturinn er líka sérlega skemmtilegur og hönnun hans vel- heppnuð, eins og sagt er nú á dögum, með gosbrunnsklöppunum og bullandi vatninu. Hann nýtur greinilega mikilla vinsælda meðal sundlaugargesta og ferðamanna- segull er hann ótvíræður. Það er sannast sagna dálítið undarleg til- finning að sitja þarna í pottinum og heyra eiginlega öll tungumál önnur en íslensku. Maður er allt í einu eins og útlendingur í föður- landi sínu. Heita vatnið okkar úr iðram jarð- ar er án efa eitt af því sem hvað mest aðdráttarafl hefur fyrir þá eriendu ferðamenn, sem koma hing- að til landsins. Og . enda þótt ferðamálafrömuðir hafí nú í seinni tíð ötullega kynnt landið út á ýmiss sérkenni þess, sem útlendingar finna ekki á hefðbundnari ferða- mannaslóðum, sýnist manni langt í land að farið sé að nýta alla þá möguleika sem landið býður upp á í þessu efni. Hugmyndin um að koma upp heilsulindum fyrir útlend- inga hér og þar um landið og byija á Bláa lóninu, er ekki ný af nálinni en virðist ótrúlega þung í vöfum. Fátt virðist þó vænlegri kostur til að lengja ferðamannatímabilið hér á landi. Góður aðbúnaður og svolítið hugvitsamleg hönnun lauga og potta í líkingu við þá sem er að finna inni í Laugardal ætti að fleyta okkur langt, ef framkvæmdafé er fyrir hendi og markaðsmálin erlend- is í lagi. Einhvern tíma hafa menn sett hér nefnd á laggirnar og tekið sam- an skýrslu af minna tilefni en þessu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.