Morgunblaðið - 19.07.1986, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 19.07.1986, Blaðsíða 45
MQRGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1986 45 Hefur þú eitthvað á samviskunni? loftinu" síðastliðinn þriðjudag. í þsettinum var forvitnast um verð á rósum hér í bæ. Þeir fundu eina blómaverslun þar sem rósimar voru seidar á sérlega lágu verði, en því miður man ég ekki hvað hún heitir eða hvar er hún er. Getið þið veitt mér einhveijar upplýsingar um það?“ Velvakandi hafði samband við Hallgrím Thorsteinsson, annan stjómanda þáttarins. Hann kvað lægsta verðið vera í versluninni Stráinu á Laugavegi. Er til skattlagn- ing eftir dauðann? Einn hneykslaður skrifar „Mér var gengið út í búð um daginn að kaupa mér bók. Fyrir valinu varð bók sem kostar um 1.000 krónur og hafði ég á orði við afgreiðsludömuna að mér þætti það verð allhátt. Þá sagði hún að mér færist að kvarta og sundurliðaði verð gripsins fyrir mig. Svo sagði hún mér að verðlagningin á bókinni væri sök sér, enda væm menn yfir- leitt ofar foldu er þeir keyptu sér bækur; spurði mig svo hvort ég vissi hvort dánir menn slyppu við skattlagningu? Eg kvað auðvitað nei við og varð hvumsa, en þá sagði hún mér að jarðarför mágkonu hennar hefði farið fram fyrir skemmstu og þá hefði þurft að greiða söluskatt af kistunni sem sú látna kvaddi hérvistina í. Getur þetta staðist: Að ríkið krefli fólk um söluskatt af líkkistum? Ef svo er þá þykir mér skattheimtan farin að ganga ansi langt,- er ekki nóg að greiða söluskatt af öllu sem maður kaupir Iífs - þarf maður líka að greiða skattinn dauður? „Þú sem keyrðir yfír hvítan kött á Þorragötu (til/frá Reykjavíkur- flugvelli) aðfaranótt 1. júlí hvers vegna í ósköpunum lést þú ekki eigendur vita af þessu? Var það svo mikið mál að skrúfa í sundur tunn- una sem hékk um hálsinn á kisu? Ert þú kannski einn af þeim sem ekki stoppar til að vita hvort dýrið sé lífs eða liðið og veita því þá að- stoð ef lífsmark er með því? Ert þú kannsk einn af þeim sem heldur að dýr hafí ekki sársaukatilfinning- ar? Mér þætti gaman að vita á hvaða hraða þú varst. Ert þú kannski einn af þeim sem heldur að óhætt sé að aka á ólöglegum hraða að nóttu til? Myndir þú hafa gert það sama ef um bam hefði verið að ræða. Gerir þú þér ekki grein fyrir því að gæludýr geta verið jafn dýrmæt fyrir eiganda sinn og böm? Mér þætti vænt um ef þú gætir svarað þessu bréfí, annaðhvort með því að skrifa til Velvakanda eða hringja í síma 622136 eftir klukkan 6 á daginn. Þá gætir þú ef til vill líka sagt mér hvemig þetta atvikað- ist. Jóna Simonía Bjarnadóttir Búum öldruðum áhyggjulaust ævikvöld Heiðraði Velvakandi Vegna þess að mitt starf um þessar mundir er næturvarsla hér í Reykjavík kemst ég ekki hjá að sjá ýmislegt sem fer fram hjá öðr- um. Eitt af því sem fyrir augu ber um helgar er viss hópur gamal- menna sem gengur eða hjólar um götur í morgunsárið í leit að flösk- um og öðru sem til fellur — eftir- hretum næturinnar. í fyrstu áleit ég þetta fólk vera „skrýtið fólk“ vegna þessarar hegðunar. En nú hef ég kom.ist að því að þetta em ósköp venjulegir aldraðir borgarar, sem em að reyna að drýgja sínar lágkúmlegu tekjur á þennan hátt. Ég þykist vita að ellilaun dugi illa eða ekki fyrir nauðsynjum. Þetta fólk hefur unnið allt sitt líf hörðum höndum og hefur því vænt- anlega lagt sinn skerf til þjóðar- búsins. Þetta fólk er af hinni svokaliaðri lýðveldiskynslóð — var ungt þegar ísland varð lýðveldi. Það særir mitt unga hjarta að horfa uppá þessa ósvinnu. Ég skora á viðeigandi yfírvöld að hlúa að hinum öldmðu og létta undir með þeim á sínu ævikvöldi. Launum lýðveldiskynslóðinni á við- eigandi hátt. Annars fer ég að halda að ísland hefði verið betur sett sem Velvakanda hefur boríst eftir- farandi bréf frá Rafmagnsveitu Reylgavíkur: Halldór Vigfússon skrifar um óskammfeilni í innheimtu orku- reikninga í Velvakanda 17. júlí sfðastliðinn. Rafmagnsveita Reykjavíkur vill í þessu sambandi taka eftirfarandi fram. Því miður ber það við að tilkynn- ing um greiðslu orkureiknings í gíró, þ.e. í banka eða pósthúsi, berst ekki Rafmagnsveitunni á réttum hluti af Danmörku — þar sem þjóð- félagið launar öldmðum á þann hátt sem er til fyrirmyndar. Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna SK tíma. Ef þetta hendir og dráttar- vextir em reiknaðir þar sem ekki liggur fyrir vitneskja um greiðslu orkureikningsins em vextimir að sjálfsögðu felldir niður, undantekn- ingalaust, þegar hinn rétti greiðslu- dagur kemur í ljós. Misskilningur hefur orðið milli Halldórs og starfs- manns Rafmagnsveitunnar, þegar mál Halldórs bar á góma og er Halldór hér með beðinn velvirðingar á að upplýsingar um þetta atriði komust ekki til skila. Virðingarfyllst Misskilningur milli Halldórs og Rafmagnsveitunnar Bóksölukönnun Kaupþings hf Emil og Skundi, ís- fólkið og Fuglar ís- lands í efstu sætunum KAUPÞING hf. hefur nýverið lokið sjöttu mánaðarlegn könnun sinni á sölu bóka fyrír Félag islenskra sölu júní-mánaðar. í þessari könnun tóku þátt 12 verslanir og er áætluð markaðshlut- deild þeirra samtals nálægt 20-25%. Kannanimar ná eingöngu til sölu almennra verslana. Eins og í fyrri könnunum var sala einstakra titla mjög misdreifð eftir verslunum án þess að það megi skýra með stærðarmun þeirra ein- göngu. Því ber að varast að draga of ákveðnar ályktanir af niðurstöð- unum, þrátt fyrir það hversu stórt úrtakið er. Eftirfarandi eru fimm söluhæstu bækumar í hveijum flokki: Bama- og unglingabækun 1. Emil og Skundi — Guðmundur Ólafsson 2. Einar Áskell — Gunilla Bergs- tröm 3. Kóngar í ríki sínu — Hrafn- hildur Valgarðsdóttir bókaútgefenda og er um að ræða 4. Klukkubókin — Vilbergur Jú- líusson 5. Frank/úlfagrenið — J. Martin og B. De Moor Skáldsögur: 1. ísfólkið — Margrit Sandemo 2. Stórbók Þórbergs — Þórbergur Þórðarson 3. Refsifangamir — William Stu- art Long 4. Grasið syngur — Doris Lessing 5. Jörð í Afríku — Karen Blixen Aðrar bækun 1. Fuglar íslands — Hjálmar R. Bárðarson 2. Samheita orðabókin — Útg.: Háskóli íslands 3. Spámaðurinn — Kahlil Gibran 4. Sálmabók 5. fslendingasögur — Útg.: Svart á hvítu Ættarmót í Hrísey Afkomendur og venslafólk Guðrúnar Jón- asdóttur og Arna Sigurðssonar, Akri í Hrísey, hafa ákveðið að koma saman að Akri helgina 25.-27. júlí til að minnast þeirra hjóna. Þvottavélar og þurrkarar eins og hlutirnir gerast bestir: Árangur náinnar samvinnu sænsku neytendastofnunarinnar KONSUMENTVERKET, textilrannsóknastofnunarinnar TEFO og tæknirisans ASEA. Nýsköpun sem fær hæstu einkunnir á upplýstasta og kröfuharðasta markaði heims fyrir árangur, taumeðferð og rekstrarhagkvæmni. ASEA CYLINDA tauþurrkari Skynjar sjálfur hvenær tauið er þurrt, en þú getur líka stillt á tima. 114 lítra tromla, sú stærsta á markaðin- um. Það þarf nefnilega 2,5 sinnum stærri tromlu til að þurrka í en til að þvo í. Tekur því úr þvottavélinni í einu lagi. Mikið tromlurými og kröftugt útsog í stað innblásturs stytta þurrktíma, spara rafmagn og leyfa allt að 8m barka. Neytendarannsóknir sýna að tauið slitnar ekki né hleypur í þurrkaranum, heldur losnar aðeins um lóna af notkunarslitinu. Það er kostur, ekki síst fyrir ofnæmisfólk. Sparar tíma, snúrupláss og strauningu. Tauið verður mjúkt, þjált og slétt, og æ fleiri efni eru gerð fyrir þurrkara. Getur staðið á gólfi eða ofan á þvottavél- inni. ASEA CYUNDA þvottavélar Rvo best, skola best, vinda best, fara best með tauið, nota minnst rafmagn. Vottorð upp á það. Gerðar til að endast, og í búðinni bjóðum við þér að skyggnast undir glæsilegt yfirborðið, því þar er ekki siður að finna muninn sem máli skiptir: trausta og stöðuga undirstöðu, vöggu á dempurum í stað gormaupphengju, ekta sænskt ryðfrítt krómnikkelstál, SKF-kúlulegur á 35 mm öxli, jafnvægisklossa úr járni í stað sandpoka eða brothætts steins o.fl. Athyglisverð er líka 5-laga ryð-og rispu- vörn, hosulaus taulúga, hreinsilúga, grófsia, sápusparnaðarkerfi með lyktar- og hljóðgildru, stjórnkerfi með framtíð- arsýn og fjölhraða lotuvinding upp i 1100 snúninga. ASEA CYLINDA er nú eini framleiðandi heimilisþvottavéla á Norðurlöndum. Með stóraukinni framleiðslu og tollalækkun er verðið hagstætt. Og víst er, að gæðin borga sig, STRAX vegna betri og ódýrari þvottar, SÍÐAR vegn betri endingar. „ /?onix HÁTÚNI6A SlMI (91)24420

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.