Morgunblaðið - 05.09.1986, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1986
3
Gagngerar viðgerðir hafa farið fram á byggingum og listaverkum Siguijóns Ólafssonar í Sundaborg.
Sundaborg styrkir Listasafn Sigurjóns Ólafssonar;
Vottur um hlýhug og
virðingu fyrir list hans
— sagði ekkja listamannsins, frú Birgitta Spur
„MÉR þykir ákaflega vænt um þann hlýhug og virðingu við list Sigur-
jóns, sem húseigendur í Sundaborg hafa nú sýnt,“ sagði frú Birgitta
Spur, ekkja Siguijóns Ólafssonar myndhöggvara, er hún fyrir hönd
styrktarsjóðs listamannsins, veitti viðtöku 100 þúsund krónum frá
húsfélagi Sundaborgar í gær. Fjórtán listaverk eftir Siguijón eru á
suðurhlið Sundaborgar og nýverið lauk gagngerum viðgerðum á
húsunum og listaverkunum.
Við úthlutun lóðarinnar við
Sundaborg árið 1971 var það skil-
yrt af skipulagsyfirvöldum að
suðurhlið bygginganna er sneri að
Kleppsvegi yrði án glugga. Var þá
leitað til Siguijóns Olafssonar,
myndhöggvara, um að annast vegg-
skreytingar og gerði Siguijón 14
listaverk á suðurhliðina. í sumar
hefur verið unnið að viðgerðum á
byggingunum og að ráði Birgittu
Spur var Kristján Davíðsson, list-
málari, fenginn til að velja liti á
listaverkin í anda hins látna lista-
manns. Viðgerð lauk í síðustu viku
og af því tilefni ákvað stjóm félags
húseigenda í Sundaboig að veita
styrktarsjóði Siguijóns Ólafssonar
100 þúsund krónur.
Jón Magnússon, formaður stjóm-
ar húsfélagsins, afhenti frú Birgittu
Spur féð á heimili hennar í Laugar-
nesi í gær og sagði meðal annars
við það tækifæri: „Tilefni þessarar
gjafar er tvíþætt. Annars vegar er
það vegna þakklætis fyrir þau
ómetanlegu listaverk sem Siguijón
setti á byggingamar við Sundaborg
og virðingarvottur við minningu
þessa mikla listamanns. Hins vegar
viljum við með þessu hvetja önnur
fyrirtæki og stofnanir að gera meira
að því að prýða lóðir sínar og hús
með listaverkum, ekki síst verkum
eftir Siguijón, sem að mínum dómi
eiga að vera úti í umhverfínu, svo
að sem flestir geti notið þeirra. Þá
viljum við með þessari gjöf leggja
fram okkar skerf, til að hraða fram-
kvæmdum við Listasafn Siguijóns
Ólafssonar hér í Laugamesi."
Ekkja listamannsins, frú Birgitta
Spur, veitti gjöfínni viðtöku fyrir
hönd Styrktarsjóðsins og afhenti
hún síðan húsfélagi Sundaborgar
afsteypu af listaverkinu Hermes.
Skildinum verður komið fyrir í
fundaherbergi húsfélags Sunda-
borgar. Ennfremur gerði húsfélagið
pöntun á afsteypu á listaverkinu
Víkingur, sem einnig mun prýða
húsakynni Sundaborgar.
MorgunblaðiÓ/Þorkell
Jón Magnússon, formaður stjómar húsfélags Sundaborgar, afhendir
ekkju Siguijóns Ólafssonar, frú Birgittu Spur, 100 þúsund krónur
í styrktarsjóð Listasafnsins.
Þú færð
hvergi meira
_ úrval!
NýVmbcr -
198
og
ojaþer
Beint
Ur fíugi
.00
pr.kg.
Agúrkur 0 -5° V
ísLade,ns J_ prV \ i
KjúWingar
pr.
Eitt verka Sigurjóns, sem skreytir suðurhlið bygginganna við Sunda-
borg.
Trésmiðjan Víðir hf.:
Húseignin seld
fyrir 97 milljónir
FASTEIGNIN nr. 2 við Smiðjuveg í Kópavogi, áður eign Trésmiðjunn-
ar Víðis hf., hefur verið seld Stálhúsgagnagerð Steinars hf. í
Reykjavík fyrir 97 millj. kr.
Kaupverð eignarinnar skiptist í Tvö önnur tilboð bárust. Frá
7 milljóna kr. útborgun og em eftir- Þorsteini Steingrímssyni, Dögun sf.
stöðvar lánaðar til 17 ára, verð- og Trésmiðjunni Viðjunni hf. en
tryggðar miðað við lánskjaravísitölu eign var slegin Iðnaðarbankanum,
og með hæstu lögleyfðu vöxtum af Iðnlánasjóði og Iðnþróunarsjóði við
verðtryggðum lánum. nauðungarsölu 29. maí sl. fyrir
73,5 miiy. kr.
Besta verðið
' b°rginni:
‘JÖg'tfst
Sportsokkar áZf \ .00
parið
179
Pf.
AÐEINS
Toppdjús
1 líter
63
.00
'J rúllur WC
ZPapP,r2950
Odíö á moreun írá kl. 10—16 í Mióddinni en til kl. 13 í Austurstræti
Opið til kl l. 20 ÍM jóddinni entii ^ kl.19 Austurstræti.
AUSTURSTRÆT117
VIÐIR
STÓRMARKAÐUR MJÓDDINNI