Morgunblaðið - 05.09.1986, Blaðsíða 48
SEGÐU
RMARHÓLL
ÞEGAR
ÞÚ EERÐ ÚTAÐ BORÐA
SÍMI18833------
SEM
íuwuowj
FOSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1986
VEM) í LAUSASÖLU 50 KR.
Fljúgandi
hálka á
fjallveg'-
*um Norð-
anlands
FUÚGANDI hálka var komin á
veginn í Víkurskarði og Ólafs-
fjarðarmúla í gærkvöld og
ökumenn varaðir við því að fara
þær leiðir á illa útbúnum bifreið-
um eða á bílum, sem ekki voru
annaðhvort á keðjum eða snjó-
dekkjum.
Slydda var í gær fyrir norðan
og myndaðist hálka á flallvegum
og snjó festi í íjöll allt í kring, t.d.
var jörð hvít niður að skíðahótelinu
í Hlíðarfjalli. Kl. 21.00 í gærkvöld
•^ar tveggja stiga hiti á Akureyri,
en á samá tíma í fyrrakvöld var
hitastigið 10 gráður.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Húsavík, var komin
slydda þar seinnihiuta dagsins og
grátt í fjöllum niður undir byggð.
Réttirnar
að hefjast
SEPTEMBER er mánuður
gangna og réttá um land allt.
Fyrstu reglulegu réttimar verða
um næstu helgi, meðal annars
Hrútatunguréttir í Hrútafirði og
Miðfjarðarréttir. Síðan koma hveij-
ar réttimar á fætur öðmm næstu
vikur.
Morgu nblaðið/RAX
Tvöfalt gos í Haukadal
ÞAÐ er ekki oft, sem Strokkur og Geysir í Haukadal gjósa á sama augnablikinu. Það gerðist þó
á þriðjudaginn þegar ræðismenn íslands víðsvegar um heimsbyggðina fóru þangað austur í skoðun-
arferð. Á sama tíma voru þar fjölmargir starfsmenn IBM á ferðalagi hérlendis. Þá var sett sápa
í Geysi og um leið og hann tók við sér með þokkalegu gosi skvetti Strokkur úr sér. Þegar myndin
var tekin var gosinu í Geysi að Ijúka en Strokkur var enn i fullu fjöri, eins og sjá má.
Sjúkraliðarn-
ir ákváðu að
segja störf-
um sínum
lausum
Á FJÖLMENNUM fundi í Sjúkra-
liðafélagi ísiands, sem haidinn
var í gærkvöldi, samþykktu
sjúkraliðar að segja upp störfum
til að leggja áherslu á kröfur
sinar um bætt launakjör og leið-
réttingu réttindamála. Fyrir-
hugað er að skila uppsögnunum
inn fyrir 1. október, þannig að
þær geti hætt 1. janúar, en þá
eru kjarasamningar félagsins
jafnframt lausir.
í ályktun sem samþykkt var sam-
hljóða á fundinum segir, að megn
óánægja ííki meðal sjúkraliða í
Reykjavík og nágrenni vegna kjara-
mála og margs konar annarra
réttindamála. Segjast sjúkraliðamir
hafa dregist aftur úr öðrum stéttum
og nefna hjúkrunarfræðinga og
meinatækna sem dæmi þar um, og
geta um misrétti á fleiri sviðum.
Síðasti hluti ályktunarinnar er á
þessa leið: „Við sjúkraliðar vitum
að á meðan við þegjum þunnu hljóði
þá koma engar kjarabætur til okkar
á silfurfati. Því verðum við nú að
grípa til þeirra neyðarúrræða að
segja upp störfum til að leggja
áherslu á að það er full alvara á
ferðum. Sjúkraliðar geta ekki leng-
ur sætt sig við þau kjör og þá
starfsaðstöðu sem þeim er boðið
upp á, sérstaklega það mikla
vinnuálag sem þeir búa við.“
Morgunblaðið/Þorkdl
TF-HRO til Reykjavíkur
Flugvélin TH-HRO sem skemmdist af völdum veðurs á Sauðár-
króksflugvelli aðfaranótt miðvikudags var flutt á bíl til Reykja-
víkur í gær.
Kínverjar vilja
kaupa minkalæður
íslendingar ekki aflögufærir í ár en vilja
halda möguleikanum opnum fyrir framtíðina
ÍSLENSKIR loðdýrabændur hafa undanfarin ár að mestu verið inn-
flytjendur refa og minnka, en á næstu árum er útlit fyrir að
mögulegt verði að snúa dæminu við. Meðal annars hefur borist fyrir-
spurn erlendis frá um möguleika á útflutningi 5-6 þúsund minkalæða
til Kína.
Samband íslenzkra loðdýrarækt-
enda svaraði fyrirspuminni á þá
’Hanna 240 íbúð-
ir fyrir varnarliðið
TVÖ íslensk fyrirtæki hafa fengið það verkefni að hanna 240 íbúð-
ir fyrir varnarliðið á Keflavikurflugvelli, ásamt götum og lagnakerf-
um. Er verkið unnið í samvinnu við bandaríska arkitekta.
íslensku fyrirtækin tvö eru Verk-
fræðistofa Stefáns Ólafssonar og
Teiknistofa Ingimundar Sveinsson-
ar og Gylfa Guðjónssonar. „Hér er
um að ræða hönnunarstörf sem
hingað til hafa alltaf verið í höndum
Bandaríkjamanna sjálfra," sagði
Bjami Frímannsson, framkvæmda-
^tjóri Verkfræðistofu Stefáns
Ólafssonar. „Það var óskað eftir
tilboðum í hönnun þessa íbúðar-
húsnæðis og við ákváðum að eiga
samstarf við bandarískt fyrirtæki,
Shriver and Holland Associates.
Það fór svo að tilboði okkar var
tekið. Mér finnst ánægjulegt að
íslendingar fái að taka þátt í þessu
verkefni og heppilegt að íslenskir
og bandarískir aðilar starfi saman
að verkefnum sem þessu. Banda-
ríkjaher vill láta byggja fyrir sig
með ákveðnum hætti, en íslending-
ar þekkja hins vegar alla staðhætti
vel.“
Bjarni kvaðst ekki hafa umboð
tii að gefa upp hve háa þóknun
íslensku fyrirtækin fengju fyrir
starf sitt. íbúðimar, sem byijað
verður að byggja á næsta ári, eru
flestar tveggja og þriggja herbergja
og um 90-110 fermetrar.
leið að vegna mikillar uppbyggingar
í loðdýraræktinni hér væru Islend-
ingar ekki aflögufærir á þessu ári,
en vildu halda sambandi við kaup-
andann vegna hugsanlegra við-
skipta síðar. Góð lífdýr em seld
talsvert dýrar en skinn, og gæti
þama því orðið um hagstæð við-
skipti að ræða.
Undanfarin ár hefur gamli
minkastofninn á loðdýrabúunum
verið felldur vegna skæðs veiru-
sjúkdóms sem hetjað hefur á hann
og nýr stofn verið keyptur inn í
landið. Hefur loðdýrabændum
gengið vel í ræktun dýra af nýja
stofninurn og er útlit fyrir að tekist
hafi að losna við veirusjúkdóminn
plasmacytose úr búunum. Þessi
sjúkdómur er sá skæðasti sem heij-
ar á minkabændur um allan heim
og er ísland fyrsta landið sem losn-
að hefur við hann út úr öllum
loðdýrabúum. Þess vegna og vegna
þess hvað stofiiinn er góður gætu
verið möguleikar á útflutningi
lífdýra héðan á næstu árum.
Islendingar hafa mest verið
þiggjendur í samstarfi norrænna
loðdýraræktenda, en nú gæti orðið
á því einhver breyting. íslenskir
vísindamenn sem standa fyrir sam-
starfsverkefninu „íslenski melrakk-
inn“ flytja erindi um rannsóknirnar
á Norðurlandafundi. Eru loðdýra-
ræktendur á hinum Norðurlöndun-
um spenntir fyrir árangri þessara
rannsókna.
Þá er verið að skoða möguleika
á norrænu samstarfi í fóðurmálum
loðdýraræktarinnar. Finnar hafa
sýnt mikinn áhuga á að fá keyptan
fiskúrgang hér og hafa verið í við-
ræðum við einstök fyrirtæki um
það. Islenskir loðdýrabændur voru
famir að óttast samkeppni um hrá-
efnið, samkeppni sem þeir telja sig
ekki geta staðist, og fór fram-
kvæmdastjóri loðdýraræktarsam-
bandsins því á fund hjá norrænu
loðdýraræktarfélögunum til að
ræða þessi mál þar. Samþykktu
samtökin að fara ekki út í sam-
keppni við íslenska loðdýrarækt-
endur með fiskkaupum hér nema í
samvinnu við samtök þeirra hér.
Aftur á móti var rætt um samvinnu
við hráefnisöflun hér og hugsanleg-
an útflutning ef íslendingar væru
aflögufærir, og byggingu sameigin-
legrar aðstöðu til söfnunar og
fiystingar á hréfninu.
Sjá einnig fréttir frá aðalfundi
Sambands íslenskra loðdýra-
ræktenda á blaðsíðu 28.