Morgunblaðið - 05.09.1986, Blaðsíða 47
MOlRGUNBLÁÐlb, POSTUDAGUR 5. SEPTÉMBÉR 1086'
Tap gegn Finnum
íjöfnum leik
FINNAR unnu íslendinga 2:0 í
Evrópukeppni U-21 i knattspyrnu
í gær eftir aö staðan hafði verið
0:0 í hálfleik. Leikurinn fór fram
í Kemi í Finnlandi og var jafnræði
með liðunum, en Finnar gull-
tryggðu sigurinn á sfðustu
mínútu leiksins úr vitaspyrnu.
„Liðin eru mjög jöfn, leika svip-
aða knattspyrnu, en að þessu sinni
fóru Finnar með sigur af hólmi,"
sagði Guðni Kjartansson, þjálfari
íslenska liðsins, í samtali við Morg-
unblaðið að leik loknum. Hvorugt
liðið náði aö skapa sér hættuleg
marktækifæri í fyrri hálfieik, en
Finnar skoruðu fyrra markið á 65.
mfnútu. Sending kom fyrir íslenska
markið, Hermann Haraldsson,
markvörður, greip knöttinn, en um
leið var stjakað við honum, knött-
urinn hrökk úr höndum hans og
Finnar náðu að skora úr mikilli
þvögu.
íslendingarnir hertu sóknina til
• Jón Sveinsson átti góðan leik
gegn Finnum.
muna eftir markið og reyndu hvað
þeir gátu til að jafna. Hlynur Birgis-
son komst einn inn fyrir vörn
andstæöinganna skömmu síðar,
en öllum til furöu var hann dæmd-
ur rangstæður og fór þar gott
færi forgörðum.
Á síðustu mínútu leiksins var
brotið á Siguróla Kristjánssyni, þar
sem hann var inni í vítateig Finna,
en ekkert dæmt. Finnar brunuðu
upp og komust inn í vítateig
íslenska liðsins, þar sem brotið var
á einum þeirra og dæmd víta-
spyrna. Finnar skoruðu sitt annað
mark úr vítaspyrnunni og leiktím-
inn var úti.
Að sögn Guðna lögðu íslensku
strákarnir sig alla fram í leiknum,
en þeir geta leikið betur. Jón
Sveinsson komst einna best frá
leiknum, en Guðni sagði að ýmis-
legt þyrfti að lagfæra. „Liðið á
framtíðina fyrir sér og það þarf að
fá fleiri æfingaleiki."
Enginn meiddist í leiknum og
eru allir tilbúnir í leiki helgarinnar,
en liðið kemur heim í dag.
Handknattleikur:
Rey kjavíku rmótið
hefst á morgun
MEISTARAMÓT Reykjavfkur í
handknattleik hefst á morgun í
meistaraflokki karla og kvenna
og lýkur keppni í þessum flokkum
29. september. Keppni í öðrum
flokkum hefst 28. september.
Þetta er 44. Reykjavíkurmótið
og vegna 200 ára afmælis Reykja-
víkur er meira lagt upp úr mótinu
en áður. ÍBR gefur vegleg verðlaun
til keppninnar í öllum flokkum, bik-
ara og sérstaka verðlaunapeninga.
í meistaraflokki karla leika sjö lið,
en sex í meistaraflokki kvenna og
leika allir við alla, en ekki í riðlum
eins og undanfarin ár. Leikskrá
liggur fyrir og verður farið eftir
henni í einu og öllu.
Reykjavíkurmótið er fyrr á ferð-
inni en áður og kemur það sér illa
fyrir þau félög, sem eiga leikmenn
í hinum ýmsu landsliðum, en öll
landsliðin leika erlendis á næstu
dögum. Leikjum í mótinu verður
ekki frestað vegna þessara lands-
leikjaferða og „því verður það ekki
endilega sterkasta liðið í meistara-
flokki karla eða kvenna, sem
verður Reykjavíkurmeistari, heldur
frekar það sem á fæsta menn í
landsliði" eins og Hallur Hallsson,
formaður Handknattleiksdeildar
Víkings, komst að orði á blaða-
mannafundi hjá HKRR í gær.
Allir leikirnir fara fram í Selja-
skóla nema þrjá sfðustu leikdag-
ana, þá verður leikið í Laugardals-
höllinni. Leikir í meistaraflokki
karla og kvenna eru:
Laugardagur 8. saptember:
Kl. 14.00 kvk. Fram — Vfkingur
kl. 15.15 ka. KR —(R
kl. 16.30 ka. Ármann —Valur
Sunnudagur 7. aeptember:
Kl. 18.45 kvk. Valur — Ármann
kl. 20.00 ka. Ármann —|R
kl.21.15 ka. Vikingur-Valur
Þrlðjudagur 9. eeptember:
Kl. 18.45 kvk. Þróttur — KR
kl. 20.00 ka. Fram — Vikingur
kl.21.15 ka. KR — Fylkir
Fimmtudagur 11. aeptamber:
Kl. 18.45 kvk. Vikingur —Þróttur
kl. 20.00 ka. Fram —Fylkir
kl.21.15 ka. KR — Ármann
Laugardagur 13. aeptember:
Kl. 14.00 kvk. Valur —Fram
kl. 15.15 ka. Víkingur —(R
kl. 16.30 ka. Fylkir —Valur
Sunnudagur 1«. aeptember:
Kl. 18.45 kvk. Ármann — KR
kl. 20.00 ka. Fram — KR
Id. 21,15 ka. Ármann — Vikingur
Miðvlkudagur 17. aeptember:
Kl. 18.45 kvk. Valur —KR
kl. 20.00
kl. 21.15
IR-Fylkir
Fram—Valur
Laugardagur 20. aeptember:
Kl. 14.00 kvk. KR — Vikingur
kl. 15.15 kvk. Fram—Ármann
kl. 16.30 ka. Vikingur - Fylkir
Sunnudagur 21. aeptember:
Kl. 18.45 kvk. Fram — Þróttur
kl. 20.00 ka. KR-Víkingur
kl. 21.15 ka. Ármann — Fylkir
Fimmtudagur 25. aeptember:
Kl. 19.00 kvk. Ármann — Vikingur
kl. 20.15 ka. Fram — (R
kl. 21.30 ka. KR —Valur
Laugardagur 27. aeptember.
Kl. 14.00 kvk. KR-Fram
kl. 15.15 kvk. Þróttur — Valur
kl. 16.30 ka. Fram—Ármann
Mánudagur 29. aeptember.
K1.19.00 kvk. Víkingur — Vaiur
kl. 20.15 kvk. Þróttur—Ármann
kl. 21.30 ka. Valur — IR
• Goir Sveinsson og fólagar
hans f handknattleiknum fara af
stað um helgina.
Morgunblaðið/Þorkell
• Seglbrettaaiglingar elga vaxandi fylgi að fagna en íslandsmótið
fer fram um helgina.
Siglingar:
íslandsmót verða
haldin um helgina
EM íhandknattleik:
Verða allir
leikirnir sex
leiknirytra?
MIKLAR líkur eru á, að Vfking-
ur, Stjarnan og Valur semji um
að leika leiki sfna í 1. umferð
Evrópukeppni meistaraliða, bik-
arhafa og IHF-keppninni að
heiman.
Hallur Hallsson, formaður
Handknattleiksdeildar Víkings,
staðfesti í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að Víkingur myndi
leika báða leikina í Færeyjum
fyrstu helgina í október.
Jón Pétur Jónsson, þjáifari
Vals, sagöi að Valsmenn hefðu
ekki enn tekið ákvörðun í málinu,
en líkiega yrði ofan á að leika
báða leikina í Noregi, en hann
væri samt hlynntari því að leika
heima og að heiman.
Birkenhead, andstæðingar
Stjörnunnar, hafa boðið Garð-
bæingum að leika báða leikina i
Liverpool og er málið enn á við-
ræðustigi, en miklar líkur eru á
að Stjarnan taki tilboöinu og leiki
báða leikina ytra um næstu mán-
aðamót.
EINS OG innan annarra fþrótta-
greina eru f siglingum fiokka-
keppnir um hina ýmstu tltla.
Flokkakeppnir eru oftast miðaðar
við tegund báta eða seglbretta.
Þekktastir eru Ólympfuflokkar
svo sem 470, sem ein fslensk
áhöfn keppir í en þar eru þeir
Gunnlaugur Jónasson og Harald-
ur Ólafsson sem hafa æft og
keppt, mest f Noregi sfðastliðinn
vetur og á hinum ýmsu mótum í
Evrópu. Fremst náðu þeir félagar
f keppni f A-flokki Kflarmótsins f
sumar eða 23. sæti. í því móti
voru sigldar 5 umferðir og bestur
árangur þeirra varð 11. sæti í
tveim keppnanna.
Á morgun, föstudag, hefst
keppni um íslandsmeistaratitil á
TUR-bátum. Þar munu mæta til
leiks bátar sem eru smíðaðir hér-
lendis og hafa reynst mjög vel.
Bátarnir eru 28 feta langir meö
stóran seglflöt og gott rými fyrir
5—6 manna áhöfn. Um 20 bátar
hafa verið smíöaðir hérlendis og
þeim verið siglt mikið utan keppna.
Meðal annars hefur þeim verið
siglt til Noregs og Skotlands
asamt tveimur bátum sem siglt var
umhverfis landið í sumar. Þá eru
Breiðafjörður og Vestmannaeyjar
áfangastaðir siglingamanna og
fjölskyldna þeirra þegar lagt er i
sumarfrí og áhugi er fyrir náttúru-
skoðun.
Islandsmeistarar 1985 á EVA
úr Keflavík, munu mæta til leiks
með harðsnúna áhöfn og er víst
að fast verður að titli þeirra sótt i
ár.
Á laugardag hefst íslandsmót á
MICRO-bátum en þeir eru 18 feta
bátar, sem flestir hafa verið
smíðaðir hériendis. Allu jafna
keppa 3 á þeim bátum en þar mun
Bláa dísin úr Reykjavík verja titil
sinn sem íslandsmeistari 1985.
Vitað er um 7 báta sem mæta
þannig að væntanleg er lífleg og
hörð barátta.
Einnig verður um helgina keppt
um íslandsmeistaratitil á segl-
brettum 1986. Seglbrettakeppnin
verður á Fossvogi, hvar allt að 50
fleytur af ýmsu tagi munu sigla.
Fredriksborg vann
ÍSLENSKA piltalandsliAið í hand-
knattleik hélt til Noregs f gær og
lék gegn Fredríksborg Ski í gær-
kvöldi. Norðmennirnir tóku leik-
inn strax f sfnar hendur og
sigruðu með miklum yfirburðum,
30:18.
Að sögn Helga Ragnarssonar,
þjálfara norska liðsins, hafði hann
búist við meiri mótspyrnu, en svo
virtist sem ferðaþreyta sæti i
íslensku strákunum og þeir náðu
sér aldrei almennilega á strik.
Sigurður Sveinsson og Berg-
sveinn Bergsveinsson voru
atkvæðamestir í íslenska liðinu.
Island leikur gegn Noregi í kvöld,
Vestur-Þýskalandi á morgun og
Frakklandi á sunnudaginn.
Lokahóf
FÉLAG íslenskra knattspyrnu-
kvenna, FÍKK, heldur uppskeru-
hátíð í veitingahúsinu Hollywood
á sunnudaginn kemur og hefst
hófið klukkan 19. Það verða leik-
menn 1. deildar karía sem taka á
móti stúlkunum fklæddir búning-
um félaga sinna og eftir að gestir
hafa matast verða veitt verðlaun
þeirrí stúlku sem kosln verður
besta knattspyrnukona og einnig
þeirri efnilegustu.
Sigurdur Mattíasson yf ir 70 m í spjótkastinu
SIGURÐUR Matthfasson spjót-
kastari úr UMSE náði sfnum
bezta árangrí á stórmóti í Osló f
gærkvöldi, kastaði 70,80 metra.
Þetta er í fyrsta sinn sem Sig-
urður kastar nýja spjótinu yfir 70
metra. Strax í fyrstli tilraun kastaöi
Sigurður 70,10 metra og síðan
70,80 í annarri.
Kastsería Sigurðar var mjög
góð, þvi þrjú köst önnur mældust
yfir 69 metra. Átti hann 69,90
metra frá því fyrr í sumar.
Sigurður hefur verið búsettur í
Osló frá síðustu áramótum og
stundað þar æfingar af kappi.
Hann er mjög vaxandi spjótkastari
og stefnir að því að bæta árangur
sinn enn frekar á næsta ári og
nálgast þá 80 metrana.