Morgunblaðið - 05.09.1986, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1986
ur leika lausum hala, þarf ekki að
óttast um örlög leikhússins.
Lifandi máiverk
Eins og framrásin í þáttum Bog-
osians er frá fögrum hugsjónum til
ófagurs veruleika, þannig er fram-
rásin í Vienna: Lusthaus frá
samræmi til misræmis, sakleysi til
siðleysis. Vienna: Lusthaus, sem
leggja mætti út á íslensku Vín:
Gleðihús, fjallar. um lífið í Vínar-
borg um síðustu aldamót og þar á
eftir. Þetta er með frumlegri og
óvenjulegri leikhúsverkum sem hér
hafa sést, þó ekki sé af öðru en að
það er samansett úr mörgum grein-
um lista: leiklist, orðlist, dansi,
tónlist, myndlist. Kannski er helst
hægt að líkja því við lifandi,
síbreytilegt málverk, því að ljós og
skuggar, myndbygging, leikur lína
og forma er mjög mikilvægur þátt-
ur sýningarinnar.
Skapari þessa verks er Martha
Clarke, fyrrum dansari og dansa-
höfundur (choreographer), sem í
samvinnu við leikfiokkinn samdi
verkið jafnóðum og það var æft —
bætti við, felldi niður, slípaði og
kristallaði þann kjama sem hún
vildi halda eftir uns allt var nálægt
fullkomnun.
í upphafi er staður og stund gef-
in til kynna með hægum valsi og
stílíseraðri eftirlíkingu á fótaburði
hinna frægu Lippizaner-hesta í
Fræðslustund hjá Dan frænku: Pamela Reed í hlutverki Dan og
Kathy Whitton Baker sem Anganóra.
spænska reiðskólanum. Þetta setur
byijunaratriðunum rómantískan
tón. Við sjáum stílfærða ástaleiki,
bæði milii manns og konu og per-
sóna af sama kyni og í einu atriðinu
leikur jafnvel sami maðurinn bæði
kynin í hvflubrögðum með svo
snilldarlegri notkun líkamans að
hreina furðu má kalla. Við sjáum
samkvæmislíf, leikhús, hermennsku
og heimilislíf, allt í mjög stflfærðum
og oft draumkenndum atriðum með
undirleik tónlistar og stundum sam-
fara lestri texta, sem ekki er alltént
í samtalsformi eins og vepjulegur
sjónleikur, heldur er til þess gerður
að beina hug áhorfandans á
ákveðna braut, skapa stemmningu.
Atburðalýsingar sem gætu verið
(og eru ef til vill) teknar upp úr
draumaritum Sigmundar Freud,
eða frásagnir af ástarævintýrum
• sem minna á Arthur Schnitzler gefa
til kynna meira en þær segja. Innan
stundar fer áhorfandinn að verða
áskynja þeirra myrku afla sem und-
ir hámenningaryfirborðinu leynast,
og smám saman bijótast þessi öfl
Pening’a markaihirinn
GENGIS-
SKRANING
Nr. 166 - 4. september 1986
Kr. Kr. Toll-
Ein.Kl. 09.15 Kaup Sala gengi
Dollarí 40,380 40,500 40,630
SLpund 60,610 60,791 60,275
Kan.dollari 29,110 29,197 29,122
Dönskkr. 5,2621 53777 5,2536
Norsk kr. 5,5440 5,5605 5,5540
Sænskkr. 5,8760 5,8935 5,8858
Fi. mark 8,2695 83941 8,2885
Fr.franki 6,0745 6,0925 6,0619
Belg. franki 0,9614 0,9643 0,9591
Sv.franki 24,6415 24,7147 24,6766
Holl. gyllini 17,6501 17,7026 17,5945
V-þ.mark 19,9112 19,9704 19,8631
ít. lira 0,02886 0,02894 0,02879
Austurr. sch. 23282 2,8366 2,8220
Portescudo 0,2780 03788 03783
Sp.peseti 0,3036 0,3045 0,3037
Jap.yen 0,26094 0,26171 0,26272
Irsktpund 54,735 54,898 54,641
SDR (SérsL 49,0676 49,2131 49,1764
ECU, Evrópum.41,8317 41,9560 41,7169
INNLÁNSVEXTIR:
Sparísjóðsbækur
Landsbankinn.................9,00%
Útvegsbankinn................8,00%
Búnaðarbankinn.............. 8,50%
Iðnaðarbankinn.............. 8,00%
Verzlunarbankinn..............8,50%
Samvinnubankinn............. 8,00%
Alþýðubankinn.................8,50%
Sparisjóðir.................. 8,00%
Sparísjóðsreikningar
með 3ja mánaða uppsögn
Alþýðubankinn.............. 10,00%
Búnaðarbankinn.............. 9,00%
Iðnaðarbankinn.............. 8,50%
Landsbankinn............... 10,00%
Samvinnubankinn ..............8,50%
Sparisjóðir...................9,00%
Útvegsbankinn................9,00%
Verzlunarbankinn............ 10,00%
með 6 mánaða uppsögn
Alþýðubankinn......"....... 12,50%
Búnaöarbankinn............... 9,50%
Iðnaðarbankinn.............. 11,00%
Samvinnubankinn............. 10,00%
Sparisjóðir................. 10,00%
Útvegsbankinn............... 10,00%
Verzlunarbankinn............ 12,50%
með 12 mánaða uppsögn
Alþýðubankinn............... 14,00%
Landsbankinn................ 11,00%
Útvegsbankinn............... 13,60%
með 18 mánaða uppsögn
Búnaðarbanki................ 15,50%
Iðnaðarbankinn............. 14,50%
Verðtryggðir reikningar
miðað við lánskjaravisitölu
með 3ja mánaða uppsögn
Alþýðubankinn................ 1,00%
Búnaðarbankinn...... ..... 1,00%
Iðnaðarbankinn...... ........ 1,00%
Landsbankinn................. 1,00%
Samvinnubankinn.............. 1,00%
Sparisjóðir.................. 1,00%
Útvegsbankinn................ 1,00%
Verzlunarbankinn............. 1,00%
með 6 mánaða uppsögn
Alþýðubankinn................ 3,00%
Búnaðarbankinn...... ..... 2,50%
Iðnaðarbankinn............... 2,50%
Landsbankinn................ 3,50%
Samvinnubankinn...... ...... 2,50%
Sparisjóðir............... 3,00%
Útvegsbankinn............... 3,00%
Verzlunarbankinn..... ..... 3,00%
með 18 mánaða uppsögn:
Samvinnubankinn.............. 7,50%
með 24 mánaða uppsögn:
Samvinnubankinn...... ....... 8,00%
Að loknum binditíma 18 mánaða og
24 mánaða verðtryggðra reikninga
Samvinnubankans er innstæða laus
tvisvar á ári eins og á 6 mánaða reikn-
ingum.
Ávisana- og hiaupareikningar
Alþýðubankinn
- ávisanareikningar...........7,00%
- hlaupareikningar........... 3,00%
Búnaðarbankinn............... 3,00%
Iðnaðarbankinn............... 3,00%
Landsbankinn................. 4,00%
Samvinnubankinn.............. 4,00%
Sparisjóðir................... 3,00%
Útvegsbankinn................ 3,00%
Verzlunarbankinn')............ 3,00%
Eigendur ávísanareikninga í Verzlun-
arbankanum geta samið um ákveðna
lágmarksinnstæðu á reikningi sinum og
af henni eru reiknaðir almennir spari-
sjóðsvextir auk uppbótar.
Stjömureikningar:
Alþýðubankinn1)...........8-9,00%
Alþýðubankinn býður þrjár tegundir
Stjömureikninga og eru allir verð-
tryggðir. I fyrsta iagi eru reikningar fyrir
ungmenni yngri en 16 ára, með 8%
vöxtum. Reikningurinn er bundinn þar
til eigandinn hefur náð 16 ára aldri. í
öðru lagi eru reikningar fyrir aldraða —
lifeyrisþega — með 8% vöxtum. Upp-
sagnarfrestur er mismunandi eftir aldri
eiganda, 3 til 9 mánuðir. Vextir og verð-
bætur eru lausar til útborgunar í eitt
ár. Þá eru þriggja Stjömureikningar
með 9% vöxtum. Hver innborgun er
bundin i tvö ár. Vextir og verðbætur
eru lausar til útborgunar í ertt ár.
Afmælisreikningur
Landsbankinn............... 7,25%
Afmælisreikningur Landsbankans er
bundinn i 15 mánuði og ber 7,25%
vexti og er verðtryggður. Innstæða er
laus í tvo mánuði eftir að binditíma lýk-
ur. Heimilt er að leggja inn á reikninginn
til 31. desember 1986.
Safnlán - heimilislán - IB-tán - piúsián
með 3ja til 5 mánaöa bindingu
Alþýðubankinn................ 10-13%
lönaðarbankinn...... ......... 8,50%
Landsbankinn................. 10,00%
Sparisjóðir................... 9,00%
Samvinnubankinn............... 8,00%
Útvegsbagkinn................. 9,00%
Verzlunarbankinn............. 10,00%
6 mánaða bindingu eða lengur
Alþýðubankinn................ 13,00%
lönaðarbankinn................ 9,00%
Landsbankinn................. 11,00%
Sparisjóðir...................10,00%
Útvegsbankinn................ 10,00%
Innlendir gjaldeyrísreikningar:
Bandaríkjadollar
Alþýðubankinn................. 7,50%
Búnaðarbankinn....... ........ 6,00%
lönaðarbankinn....... ........ 6,00%
Landsbankinn........ ......... 6,00%
Samvinnubankinn............... 6,50%
Sparisjóðir................... 6,00%
Útvegsbankinn................. 6,00%
Verzlunarbankinn.............. 6,50%
Sterlingspund
Alþýðubankinn................ 11,50%
Búnaöarbankinn....... ....... 9,00%
Iðnaðarbankinn................ 9,00%
Landsbankinn..................9,00%
Samvinnubankinn............. 10,00%
Sparisjóðir...................9,00%
Útvegsbankinn.................9,00%
Verzlunarbankinn............ 10,50%
Vestur-þýsk mörk
Alþýðubankinn................ 4,00%
Búnaðarbankinn............. 3, 50%
Iðnaðarbankinn............... 3,50%
Landsbankinn....... ......... 3,50%
Samvinnubankinn...... ....... 3,50%
Sparisjóöir.................. 3,50%
Útvegsbankinn................ 3,50%
Verzlunarbankinn............. 3,50%
Danskar krónur
Alþýðubankinn................ 8,00%
Búnaðarbankinn...... ...... 7,50%
Iðnaðarbankinn...... ........ 7,00%
Landsbankinn....... ....... 7,50%
Samvinnubankinn.............. 7,50%
Sparisjóðir.................. 7,00%
Útvegsbankinn................ 7,00%
Verzlunarbankinn..... ...... 7,00%
ÚTLÁNSVEXTIR:
Almennirvíxlar(forvextir).. 15,25%
Skuldabréf, almenn............... 15,50%
Afurða- og rekstrarlán
í islenskum krónum.......... 15,00%
í bandaríkjadollurum......... 7,75%
í sterlingspundum........... 11,25%
í vestur-þýskum mörkum..... 6,00%
ÍSDR..........................7,75%
Verðtryggð lán miðað við
lánskjaravísitölu
í allt að 2V2 ár.............. 4%
Ienguren2'/2ár.................. 5%
Vanskilavextir................. 27%
Óverðtryggð skuldabréf
útgefin fyrir 11.08. '84.. 15,50%
Skýringar við sérboð
innlánsstofnana
Landsbankinn: Ársvextir af Kjörbók eru
14,0% — ávöxtun hækkar eftir því sem inn-
stæða er lengur óhreyfð. Á þriggja mánaða
fresti er ávöxtun Kjörbókar borin saman við
ávöxtun á sex mánaða verðtryggðum reikning-
um og sú ávöxtun valin sem reynist hærri.
Vextir eru reiknaðir tvisvar á ári á höfuðstól.
Kjörbók er óbundinn reikningur, en frá út-
borgaðri fjárhæð dregst 0,7% gjald en þó
ekki af vöxtum liðins árs.
Útvegsbankinn: Ábót er óbundinn reikning-
ur. Borin er saman ávöxtun á óverðtryggöum
reikningum og þriggja mánaða verðtryggöum
reikningum og hærri ávöxtunin valin. Ef inn-
stæða hefur verið hreyfð, reiknast almennir
sparisjóðsvextir á reikninginn. Vextir eru færð-
ir einu sinni á ári á höfuðstól, en verðbætur
bætast við höfuðstól ef ávöxtun þriggja mán-
aða reikninga er valin.
Búnaðarbankinn: Guilbók ber 14,0% vexti
á ári — ávöxtun fer hækkandi eftir því sem
innstæða er lengur óhreyfö. Gerður er saman-
burður við ávöxtun þriggja mánaða verð-
tryggöra reikninga og ef hún er betri er hún
valin. Vextir eru færðir tvisvar á ári á höfuö-
stól. Ef tekið er út af reikningnum er reiknað
0,75% úttektargjald og er það dregið frá áunn-
um vöxtum.
Metbók Búnaðarbankans er bundinn reikning-
ur til 18 mánaða. Hverju innleggi er hægt að
segja upp með 18 mánaða fyrirvara. Vextir
eru lausir til útborgunar í 6 mánuði. Nafn-
vextir eru 14.50% og höfuðstólsfærslur vaxta
tvisvar á ári. Gerður er samanburður á ávöxt-
un 6 mánaða verðtryggðra reikninga og
Metbókar. Ávöxtun Metbókar er aldrei lakari
en ávöxtun 6 mánaða reikninga.
Verzlunarbankinn: Kaskóreikningur. Meg-
inreglan er að innistæða sem er óhreyfð í
heilan ársfjórðung nýtur kjara 6 mánaöa bund-
Eríc Bogosian f einu hlutverki
sínu i Drykkju í Ameríku.
til yfirráða: Ástaleikimir fara að
draga dám af kvalalosta (sado-
masochism), orð með ívafi gyðinga-
haturs eru látin falla og fótaburður-
inn tekur að minna á gæsagang
þýska hersins. „Hvaða litbrigðum
tekur líkaminn eftir dauðann?" er
loks spurt og sýningin endar á svari
við þeirri spumingu.
Þessi fátæklega lýsing er vita-
skuld ekki svipur hjá sjón. Sýningin
er ein samhangandi heild, án hlés,
og hvert atriði rennur samskeyta-
laust inn í það næsta. Framrás
umskiptanna er svo fingerð að varla
greinist frá einu atriði til annars.
Búningar, ljósabúnaður og gagnsæ
slæða framan við sviðið, sem mildar
allar línur „málverksins" — allt
leggst á eitt til að gera verkið að
veislu fyrir augað. Eg hef sjaldan
verið viðstaddur leiksýningu þar
sem þögnin í áhorfendasalnum var
svo alger. Það em kannski bestu
meðmæli sem sviðsverk getur hlot-
ið. Samt ætti ég að láta þess getið
að það hlaut einnig svokölluð Obie-
verðlaun sem besta verk ársins utan
Broadways.
Það einkennilega var að þegar
ég sá þessa ágætu sýningu, lét hún
mig einkennilega ósnortinn tilfinn-
ingalega. Ég mat strax til fulls hinn
sýnilega hluta — uppstillingar,
þokka hreyfinganna, línur og liti —
og eins tónlistina sem alltaf fór svo
prýðilega við aðra þætti: Framrásin
þar var frá Strauss til Schönberg.
Samt fannst mér sem eitthvað vant-
aði á, sennilega vegna þess að orð
höfða miklu sterkar til minna til-
finninga en myndir eða tónar og
textinn, saminn af Charles Mee jr.,
var stundum svo torræður — súrre-
alískur — að hann náði ekki að
snerta mig. Þrátt fyrir það er þetta
sennilega eitthvert heilsteyptasta
og fullkomnasta sviðsverk sem ég
hef séð. Því miður er sýningum lok-
ið. Annars hefði ég hug á að sjá
það í annað sinn.
(Frh.)
ins óverðtryggðs reiknings eða 6 mánaða
verðtryggð reiknings, eftir þvi hvor gefur
hærri ávöxtun fyrir þann ársfjórðung. Vextir
og verðbætur færast á höfuðstól í lok hvers
ársfjórðungs, hafi reikningur notið þessara
,kaskókjara“. Reikningur ber kaskókjör þótt
teknir séu út vextir og verðbætur, sem færðar
hafa veriö á undangengnu og liðandi ári. Út-
tektir umfram það breyta kjörum sem hér
segir: Við eina úttekt i fjórðungi reiknast al-
mennir sparisjóðsvextir af úttekinni fjárhæð,
en kaskókjör af eftirstöðvum. Við fleiri úttekt-
ir fær öll innistæða reikningssins sparisjóðs-
bókarvexti. Sé reikningur stofnaður fyrsta eða
annan virkan dag ársfjórðungs fær innistæðan
hlutfallslegar verðbætur m.v. dagafjölda í inn-
leggsmánuði, en ber síðan kaskókjör út
fjórðunginn. Reikningur sem stofnaður er
siðar fær til bráðabirgða almenna sparisjóðs-
vexti en getur áunnið sér kaskókjör frá
stofndegi að uppfylltum skilyrðum.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur. Eftir
því sem innstæða er lengur óhreyfð reiknast
hærri vextir. Fyrstu tvo mánuði 8% vextir,
eftir tvö mánuði 8,25%, eftir þrjá mánuði 8,5%
o.s.frv. uns innstæða hefur verið óhreyfð í 6
mánuði þá reiknast 12% vextir. Frá og með
12 mánuöum eru vextir 12,5% óg frá og með
18 mánuðum 13%. Aunnar vaxtahækkanir
reiknast alltaf frá því að lagt var inn. Vaxta-
færsla á höfuðstól er einu sinni á ári.
Alþýðubankinn: Sérbók ber allt að 16%
vexti en vextir hækka eftir því sem innstæða
er lengur. Hver innstæða er meðhöndluö sér-
staklega. Höfuðstólsfærslur vaxta eru fjórum
sinnum á ári. Þá er einnig gerður saman-
burður á ávöxtun Sérbókar og þriggja mánaða
verðtryggðra reikninga og sú hagstæðari val-
in.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og ber auk þess grunvexti 6 mánaða
verðtryggs reiknings. Vextir eru færðir á höf-
uðstól tvisvar á ári. Hreyfingar innan mánaðar
bera sérstaka Trompvexti 12,5% ef innistæða
hefur verið án útborgunar i þrjá mánuði eða
lengur, en annars almenna sparisjóðsbókar-
vexti. Ársfjórðungslega er ávöxtun lægstu
innistæðu á liðnum þremur mánuðum borin
saman við sérstaka Tropmvexti og ef þeir
gefa hærri ávöxtun er mismun bætt við vaxta-
stöðu Tropmreiknings.
Sparisjóður Vélstjóra ert með Sparibók,
sem er bundin í 12 mánuði og eru vextir
15,5%, eru þeir færðir á höfuðstól einu sinni
á ári. Þegar útborgun hefur staðið í stað í 12
mánuði er hún laus til útborgunar næstu 30
daga, eftir það binst hún á ný næstu 11 mán-
uði. Eiganda sparibókar er tryggt að bókin
gefi aldrei lægri ávöxtun á ári en sex mánaða
bundinn verðtryggður reikningur.
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis,
Sparisjóður Kópavogs, Sparisjóður Hafnar-
fjarðar, Sparisjóðurinn i Keflavik, Sparisjóður
Mýrarsýslu og Sparisjóður Akureyrar eru með
Topp-bók, sem er bundin i 18 mánuði og eru
vextir 14,5%, eru þeir færðir á höfuðstól tvi-
svar á ári. Þegar innborgun hefur staðið í 18
mánuði er hún laus til útborgunar næstu 30
daga, eftir það binst hún á ný og er laus til
útborgunar í 30 daga á sex mánaða fresti.
Eiganda Topp-bókar er tryggt að bókin gefi
aldrei lægri ávöxtun á ári en sex mánaða
bundinn verðtryggður reikningur.
Iðnaðarbankinn Bónusreikningur er óverð-
tryggður reikningur og ber 11% vexti. Óverð
tryggð Bónuskjör eru 2,5%. Á sex mánaða
fresti eru borin saman verðtryggð og óverð-
tiyggð bónuskjör og ávöxtun miðuö við þau
kjör sem eru hæm' á hverjum tíma. Vextir eru
færðir á höfuðstól tvisvar á ári.
Samanburðartí-
mabil eru þau sömu og vaxtatímabil. Heimilt
er að taka út tvisvar á hverju sex mánaða tíma-
bili.
Sparisjóðsreikningur með 18 mánaða upp-
sögn. Hægt er að velja um bókarlausan
reikning eða reikning tengdan sparisjóðsbók.
Reikningurinn er bundinn til 18 mánaða og
er laus einn mánuð í senn eftir 18 mánuði eða
síðar, eftir vali reikningseigenda. Innstæða
er laus til útborgunar eftir það einn mánuð í
senn á 12 mánaða fresti. Vextir em reiknaðir
eftir á og eru lagðir við innstæðu 31. desemb-
er ár hvert og eru lausir til útborgunar næstu
12 mánuði eftir það.
Líféyrissj óðslán:
Lrfeyríssjóður starfsmanna ríkisins:
Lánsupphæð er nú 500 þúsund krónur og er
lánið vísitölubundið með lánskjaravísitölu, en
ársvextir eru 5%. Lánstími er allt að 25 ár,
en getur verið skemmri, óski lántakandi þess,
og eins ef eign sú, sem veð er í er lítilfjörleg,
þá getur sjóðurinn stytt lánstímann.
Greiðandi sjóðsfélagar geta sótt um lán úr
lífeyrissjóðnum ef þeir hafa greitt iðgjöld til
sjóðsins i tvö ár og tvo mánuði, miöað við
fullt starf. Biðtími eftir láni er fjórir mánuðir
frá þvi umsókn berst sjóðnum.
Lrfeyrissjóður verzlunarmanna:
Lánsupphæð er nú, eftir a.m.k. 3ja ára aðild
að lífeyrissjóönum og fimm árum eftir síðustu
lántöku, 150.000 krónur.
Höfuðstóll lánsins er tryggður með láns-
kjaravísitölu, en lánsupphæðin ber nú 5%
ársvexti. Lánstíminn er 3 til 5 ár að vali lántak-
anda.
Lánskjaravísrtala fyrir september 1986 er
1486 stig en var 1476 stig fyrir ágúst 1986.
Hækkun milli mánaðanna er 0,95%. Miðað
er við visitöluna 100 i júní 1979.
Byggingavísitala fyrir júlí til september
1986 er 270 stig og er þá miðað við 100 í
janúar 1983.
Handhafaskuldabréf í fasteignaviðskipt-
um. Algengustu ársvextir eru nú 18-20%.
Sérboð Nafnvextir m.v. óverðtr. verðtr. Verðtrygg. Höfuðstóls fœrsi.
Óbundið fé kjör kjör tímabil vaxta á árí
Landsbanki, Kjörbók: 1) ?—14,0 3.5 3mán. 2
Útvegsbanki.Abót: 8-14,1 1,0 1 mán. 1
Búnaðarb.,Gullbók1) ?-14,0 1,0 3mán. 2
Verzlunarb., Kaskóreikn: 8,5-12,5 3,0 3mán. 4
Samvinnub., Hávaxtareikn: 8-13,0 1-2,5 3mán. 1
Alþýðub., Sérvaxtabók: 10-16,0 1.0 4
Iðnaðarbanki, Bónus: 11,0 2,5 6mán. 2
Sparisjóðir.Trompreikn: Bundið fé: 12,5 3,0 1 mán. 2
Búnaðarb., Metbók: 15,50 3,5 6mán. 2
Sparisj. vélstj: 15,5 3,0 6mán. 1
Iðnaðarb. 18mán: 14,5 1
1) Vaxtaleiörétting (úttektargjald) er 0,75% í Búnaðaðrbanka og 0,7% í Landsbanka.