Morgunblaðið - 05.09.1986, Page 36
36
3»P
Minning:
Jón H. Oddsson
Akureyri
Fæddur 24. júlí 1912
Dáinn 30. ágúst 1986
í dag, 5. september, verður jarð-
settur frá Akureyrarkirkju Jón H.
Oddsson húsgagnasmíðameistari
og lengi framkvæmdastjori Einis
hf., húsgagnaverkstæðis og hús-
gagnaverslunar á Akureyri. Um
árabil hafði Jón að vísu kennt dal-
andi líkamshreysti, en vel var hann
ferðafær og hress í anda sem ung-
ur væri. Fyrir fáum vikum varð
hann fyrir heilsufarsáfalli, sem ekki
varð við ráðið. Hann lést í Landspít-
alanum í Reykjavík aðfaranótt 30.
ágúst sl., 74 ára að aldri.
Jón var einn af kunnustu iðnað-
armönnum á Akureyri og átti orðið
langa starfsævi, þegar hann féll
frá. Má heita að ævistarf sitt allt
ynni hann á Akureyri. Þangað flutt-
ist hann um tvítugsaldur, nam
húsgagnasmíði, fyrst hjá Haraldi
I. Jónssyni, en síðar Ólafí Ágústs-
syni, gekk í Iðnskóla Akureyrar og
brautskráðist þaðan. Varð hann
gróinn og gegn borgari í Akureyrar-
bæ og einn af þeim sem settu svip
á bæinn um áratuga skeið.
Jón Halldór Oddsson fæddist 24.
júlí 1912 á Kálfanesi í Steingríms-
firði. Voru foreldrar hans Oddur
Lýðsson frá Skriðnesenni og kona
hans Sigríður Jónsdóttir frá Trölla-
tungu, bæði af þekktum ættum þar
vestra, enda margt þjóðkunnra
manna meðal ættmenna þeirra
beggja, þótt hér verði ekki rakið
nánar. Oddur og Sigríður bjuggu
stutt á Kálfanesi, fluttust þaðan að
Klúku í Tungusveit, en síðan að
Hlíð í Kollafirði og bjuggu þar
lengst af sínum búskap. Árið 1935
flytjast þau hjón með bömum
sínum, sem þá voru enn heima og
mörg ung að árum, að Glerá við
Akureyri. Þar andaðist Oddur Lýðs-
son ári síðar, mjög um aldur fram,
en Sigríður hélt áfram búskap á
Glerá, fyrst með Magnúsi syni
sínum, byggingameistara á Akur-
eyri, en síðar töku þar við búi
Ásgeir og Sigurður Oddssynir og
bjuggu þar Iengi. Sigríður lést á
Akureyri árið 1958. Alls voru böm
þeirra hjóna 10 að tölu, og var Jón
næst-elstur systkinanna.
Eftir að Jón lauk iðnnámi sínu
vann hann lengi á verkstæði Ólafs
Ágústssonar og um eitt skeið hjá
Þórði Jóhannssyni, en báðir vom
þeir Ólafur og Þórður afbragðsiðn-
meistarar, og hjá þeim og undir
þeirra handaijaðri óx upp hópur
ágætra smiða á Akureyri, og var
Jón Oddsson meðal þeirra, enda
mat hann þá mikils. Stuttan tíma
á heimsstyijaldarámnum vann Jón
að smíðum í Reykjavík, en gekk
úr því í félagsskap með Sigurbimi
Ámasyni og Kára Hermannssyni
um rekstur húsgagnaverkstæðis á
Akureyri og nefndu Nýja kompa-
níið. Þeir félagar byijuðu smátt, en
komu sér allvel fyrir, reistu m.a.
húsnæði fyrir verkstæðið í Hafnar-
stræti 81. Stafaði Nýja kompaníið
þannig nokkur ár fyrir og eftir
1950, en 1952 varð sú breyting á
að þeir félagar stofnuðu nýtt hús-
gagnafyrirtæki með Þórði Jóhanns-
syni og Gunnlaugi Jóhannssyni og
nefndu Eini hf. Smíðaverkstæði
Einis var í Kaupvangsstræti 19, þar
sem verið hafði verkstæði Þórðar,
en húsgagnaverslun Einis var rekin
í húsi Nýja kompanísins við Hafnar-
stræti. Rekstur Einis hf. var hinn
myndarlegasti. Eftir nokkur ár kom
þó að því að ýmsir fmmheijanna
að þessum félagsskap hurfu að öðr-
um störfum. Jón Oddsson varð
nánast einn eftir hinna upphaflegu
Einismanna. Þá (1959) keypti Guð-
brandur Sigurgeirsson húsgagna-
smíðameistari hlut í fyrirtækinu og
störfúðu þeir Jón saman að rekstri
þes_s í bliðu og stríðu næstu 15 ár.
Á ámnum um og eftir 1970 vom
að gerast miklar breytingar á þeim
gmndvelli sem húsgagnasmíðin
hafði byggt á hér á landi. Rekstrar-
vandi tók að hijá húsgagnaiðnaðinn
K 1986
og fóm Einismenn ekki varhluta
af því. Erlend samkeppni tók að
segja til sín og opinber aðstoð til
endurskipulagningar smíðaiðnaði
engan veginn fullnægjandi. Einis-
menn freistuðu þess eigi að síður
að endurskipuleggja rekstur sinn
frá rótum, réðust í húsbyggingu og
hugðu á vélakaup, en skilyrði
reyndust ekki fyrir hendi til þess
að láta drauma rætast um framtíð-
arrekstur Einis hf. Urðu það þeim
félögum, Jóni og Guðbrandi, mikil
vonbrigði, og kom að því að nýbygg-
ingin var seld og áreiðanlega ekki
að skaðlausu. Enn varð Jón einn
síns liðs í Eini, og tók sér nú fyrir
hendur að reka áfram húsgagna-
verslun undir Einisnafni næstu ár.
Að því kom að hann varð að draga
sig í hlé frá störfum, enda heilsan
farin að bila.
Síðustu ár vom Jóni friðsæl.
Þrátt fyrir nokuð rénandi líkams-
hreysti og andbyr í atvinnurekstrin-
um bar hann allt slíkt með stakri
prýði og lét sem ekkert amaði að
sér, enda var það sanni næst. Hann
hefði að sjálfsögðu haft meiri fjár-
ræð, ef Einir hefði gengið nógu vel
og eftir þeim áætlunum, sem hann
hafði látið gera um reksturinn. Í
þeim efnum var þó við öfl og að.-
stæður að glíma, sem ekki var
hægur vandi að kljást við. Þessar
sviptingar í iðnrekstrarmálum bitn-
uðu á fleirum en Jóni á þessum
ámm, og gekk á ýmsu hvemig úr
rættist.
Jón H. Oddsson var hamingju-
maður í einkalífi sínu. Til er
spakmæli síðan úr fomöld sem seg-
ir „Hver er sinnar gæfú smiður".
En það merkir blátt áfram að hver
maður ræður því sjálfur hvort hann
er „hamingjusamur" eða ekki, þ.e.
hvort hann er sáttur eða ósáttur
við hlutskipti sitt í lífinu. Jón Odds-
son var þannig skapi farinn að hann
var fúllfær um að smíða sér — í
þessari merkingu — gæfu af sjálfs-
dáðum. En hann var líka svo
lánsamur að kona hans, Sigurveig
Ámadóttir frá Þverá í Svarfaðar-
dal, stóð honum ekki að baki í
gæfusmíð. Vita allir sem til þekkja
að hún er meistari í þess háttar
smíðum. Hjá þeim Jóni var sérstak-
ur heimilisandi, eins konar opið
hús, sem margir fengu að njóta.
Vom þau hjón með fádæmum vin-
sæl, enda svo hjálpfús og góð vinum
sínum að seint verður þakkað. Við
hjónin og böm okkar áttum vináttu
þeirra Jóns og Veigu í ríkum mæli.
Sérstaklega em Jóni færðar þakkir
frá Siggu Ingvars, sem nú er langt
í burtu og í fjarlægu landi, en naut
á sínum tíma frábærs atlætis á
heimili Veigu og Jóns. Allt er það
geymt en ekki gleymt.
Að líkum lætur að þau vom böm-
um sínum og fjölskyldum þeirra
sannir heillavættir. Jón og Sigur-
veig eignuðust 3 böm, elsta barn
sitt misstu þau í fmmbemsku,
dreng sem Ami hét. Eftirlifandi
böm þeirra em Ámi Sævar og
Sigríður, sem bæði em gift og bú-
sett á Akureyri og eiga afkomend-
ur.
Jón Oddsson gaf sig ekki að opin-
bemm málum í venjulegum skiln-
ingi, en hafði vakandi áhuga á
pólitík, fylgdi Framsóknarflokknum
og tók mikinn þátt í flokksstörfum,
einkum fyrr á ámm. Þótt honum
væri eiginlegt að búa að sínu upp
á gamla bændavísu, þá var hann
félagslyndur og samhyggjumaður.
Hann hafði trú á samtakamætti
fólksins því til mannheilla og kjara-
bóta. En um fram allt var hann
góðviljaður og óhlutdeilinn, en hafði
sínar skoðanir fyrir sig. Um hann
eiga vinir hans og samferðamenn
ekkert nema góðar minningar.
Ingvar Gíslason
[ raðauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Raðveggir
Samlokuveggir í íbúðina, skrifstofuna og lag-
erinn. Auðveld lausn. Veggirnir hafa verið
beygju- og brotprófaðir hjá Rannsóknastofu
byggingariðnaðarins. Niðurstöður prófanna
eru að veggirnir lenda í 2. flokki. Veggir í
þessum flokki eru taldir vandaðir þegar um
íbúðarhús er að ræða.
Reykjavík, söluskrifstofa s. 672725.
Trésmiðjan Fjalar,
Húsavík,
s. 96-41346.
Til sölu
Úr þrotabúi Afls. hf. Svínabökkum, Vopna-
firði eru til sölu:
Casl 1150 jarðýta árgerð 1980. Bröyt X2B
grafa árgerð 1971. Scania 85 vörubifreið
ógangfær árgerð 1972. Scout jeppi árgerð
1974. Cat D 4 jarðýta árgerð 1949. 4
sprengimottur. Tvöfalt herfi.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Lögfræði-
stofunni sf. Tryggvagötu 26, Reykjavík.
Sigurður G. Guðjónsson hdl.
bústjóri til bráðabirgða.
Kvóti
Óska eftir að kaupa 35 tonn af karfa-, ufsa-,
eða grálúðukvóta.
Upplýsingar í síma 93-6697 á kvöldin.
Lopapeysur
Fallegar lopapeysur óskast keyptar í stórum
karlmannsstærðum. Tekið á móti í Skipholti
9 frá kl. 13-18 laugardaginn 6. september.
Ráðstefna um atvinnu-
mál á Suðurnesjum
með sérstöku tilliti til kvenna
verður haldin í Glóðinni, Keflavík, laugar-
daginn 6. september 1986.
Dagskrá:
Kristín Halldórsdóttir alþingismaður setur
ráðstefnuna kl. 10.00.
Nýjar leiðir í fiskvinnslu, dr. Alda Möller.
Orkan í Svartsengi, Albert Albertsson verk-
fræðingur.
Iðnaður á Suðurnesjum, Jón Unndórsson
iðnráðgjafi.
Hefðbundin kvennastörf, Þórunn Friðriks-
dóttir kennari.
Hádegisverðarhlé.
Ferðaþjónusta á Suðurnesjum, Guðrún
Eyjólfsdóttir leiðsögumaður.
Fiskeldi á Suðurnesjum, Sara Harðardóttir
kennari.
Keflavíkurflugvöllur og væntanlegar breyt-
ingar, Valdís Tómasdóttir kennari.
Konur og hugbúnaður, Helga Sigurjónsdóttir
kerfisfræðingur.
Stofnun fyrirtækja, Úlla Magnússon fram-
kvæmdastjóri.
Ráðstefnustjórar: Guðný Guðmundsdóttir og
Ragnhildur Eggertsdóttir.
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Kvennalistinn.
Lionsfélagar/
Lionessur
Fyrsti samfundur starfsársins verður í Lions-
heimilinu í Reykjavík í dag kl. 12.00. Fjölbreytt
og fróðleg dagskrá. Vekjum athygli Lions-
félaga í Reykjavíkurferð á samfundum, þeir
eru öllum opnir.
Fjöiumdæmisráð.
WFIMDAL1.UR
Sjálfstæðisfólk
óskast
Enn á ný eru auglýst laus til umsóknar hin margettirspurðu em-
bætti innan skólanefndar Heimdallar. Þar er um aó ræða:
1. Ritstjóra Nýs skóla, framhaldsskólablaös Heimdallar.
2. 3 menn í ritnefnd N.S.
3. Formann skólanefndarinnar.
4. Forseta neðri deildar Valhallar (félagsheimili Heimdallar).
Við leitum enn sem fyrr að ungu, áhugasömu, frjóu og framkvæmda-
sömu skólafólki sem er tilbúiö til átaka og fórna fyrir sjálfstæðisstefn-
Umsóknum skal skilaö á skrifstofu Heimdallar i Valhöll, Háaleitis-
braut 1, fyrir 13. september. Þar fást einnig nánari upplýsingar i
sima 82900. Skólanefnd Heimdallar.
Félag sjálfstæðismanna
í Nes- og Melahverfi
Félag sjálfstæöismanna í Nes- og Melahverfi fer sína árlegu skemmti-
ferö með eldri borgara hverfisins sunnudaginn 7. september nk.
Farið verður frá Neskirkju kl. 12.40 og ekiö um borð i Akraborg.
Siglt til Akraness og ekiö þar um og m.a. byggðasafn skoðaö.
Ekiö verður að Islenska járnblendifélaginu, þegnar kaffiveitingar og
fyrirtækiö skoöað, en síðan ekið til Reykjavikur.
Þeir aðilar sem áhuga hafa á að koma meö eru beðnir aö tilkynna
þátttöku eigi síðar en kl. 17.00 nk. föstudag í Valhöll, Háaleitis-
braut, sími 82900.