Morgunblaðið - 05.10.1986, Blaðsíða 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986
Málverk Jóns Stefánssonar af Skjaldbreið á trönunum.
Anddyri Kunsthallen og uppboðsgestir út að dyrum.
Málverki Svavars brugðið upp á trönurnar. T.v. er uppboðshaldarinn Jens Thygesen og aðstoðar-
kona hans, Hangen Johansen. Á fremsta bekk við myndina er listaverkasalinn sem bauð i hana.
Amiklu listaverkaupp-
boði hjá Kunsthailen í
Kaupmannahöfn 24 og
26. september sl. voru
m.a. boðin upp nokkur
íslenzk verk. Þama voru nútíma-
listaverk undir hamrinum. í
kynningu danskra blaða, var sér-
staklega tekið fram að þama
væra mörg verk eftir meðlimi
COBRA-hópsins, m.a. eftir Svav-
ar Guðnason. Þama vora tvö verk
eftir hann, mjög dæmigert olíu-
málverk frá 1941 og svo gullfalleg
vatnslitamynd frá 1964. Það var
eldra verkið, sem athygli uppboðs-
gesta beindist að. Auk þess var
þama verk eftir Siguijón Ólafs-
son, Jón Stefánsson, Jón Þorláks-
son og Ólaf Túbals, eitt verk eftir
hvem.
Meðan verkin héngu uppi til
sýnis fyrir uppboðið, hékk mál-
verk Svavars á áberandi stað fyrir
miðjum salnum. í veglegri upp-
boðsskránni var mynd af því, auk
þess sem það prýddi skrána að
utan. Þessi glæsilega mynd kom
úr safni dansks iðjuhölds, sem bjó
á Jótlandi, en er nú fluttur til
Spánar og hefur bragðið á það
ráð að selja fima stórt málverka-
safn sitt. Hann átti dijúgmikið
af verkum COBRA-manna.
Starfsstúlka uppboðsfyrirtækisins
fræddi blaðamann Morgunblaðs-
ins á, að fyrirtækið hefði metið
verkið á 60 þús. d.kr., sem hefði
verið mun meira en eigandinn
gerði ráð fyrir. Samt væri verkið
vfsast of lágt metið, þvf starfs-
fólkið fyndi greinilegan áhuga
fyrir myndinni. Danskt safn gimt-
ist hana og svo bæði íslendingar
og Danir.
Þá tvo daga, sem verkin vora
til sýnis fyrir uppboðið, var stöð-
ugur straumur fólks að skoða.
Húsakynnin era ekki stór en vina-
leg, minntu svolítið á gamla
listamannaskálann, en þó mun
veglegri. Þama var mynd drepið
á hvem auðan blett, auk þess sem
það héngu myndir í portinu fyrir
utan salinn.
Þegar að uppboðinu kom, vora
um 150-200 manns mættir. Mest
vora þetta Danir, en þó stöku
útlendingar. Myndimar vora
boðnar upp í stafrófsröð eftir
nöfnum málaranna og gengu
hratt út. Starfsfólkið miðar við
að það sé boðin upp ein mynd á
mínútu. Það vildi svo til að flest
þekktustu nöfnin vora boðin upp
fyrri daginn, svo sem verk eftir
Belgann Alechinsky, Hollending-
inn Appel, Danann Jom og
landann Guðnason. Það fór kliður
um salinn, þegar kom að þessum
og ámóta köppum. Þó heildarverð
myndanna yrði um 4,7 millj. d.kr.,
700 þús. yfir matsverðinu, þá fóra
flestar myndir á matsverði. En
það vora myndir þekktustu lista-
mannanna, sem fóru margar
hveijar yfír matsverði. Þó var
engin sem flaug jafii hátt upp
yfir það, eins og mynd Svavars
frá 1941. Hún fór á rúmlega þre-
földu matsverði, var metin á 60
þús., en slegin Listasafni Íslands
fyrir 183 þús. Þar við bættist svo
12,5% þóknun uppboðshaldara.
Áhorfendur fylgdust spenntir
með. í byijun buðu nokkrir, en á
endanum tókust á fulltrúi Lista-
safnsins og danskur listaverka-
sali. Sá hreppti svo vatnslitamynd
Svavars á matsverði, 10 þús.
d.kr., þegar boðin fóru yfir annan
tuginn, ultu þau oftast á heilum
tug, sjaldnar á hálfum.
I samtali við blaðamann á eftir
sagðist málverkasalinn hafa selt
fimm myndir eftir Svavar á sl.
einu og hálfu ári, en á mun lægra
verði. Hann hló og sagði að mynd-
in hefði sannarlega orðið dýr í
verslun hans. Ofan á uppboðs-
verðið hefði bætzt þóknun fyrir-
tækisins, 25—30% álagning hans
og svo 18,5% söluskattur. Nokkuð
laglegt reikningsdæmi.
Stórt og gott verk eftir Appel
fórþarnaá 130 þús., metiðá 100
þús. Einhveijir muna vfsast eftir
sýningu á verkum hans í Lista-
safninu fyrir nokkram áram.
Stærsta gallerí Danmerkur, Gall-
erí Modema í Silkiborg, hreppti
myndina. Á eftir uppboðið, þegar
starfsmaður gallerfsins labbaði út
með verkið undir handleggnum,
hitti hann fyrir hollenzka list-
verkakaupmenn, sem höfðu gefist
upp fyrir galleríinu að ná í mynd-
ina. Þeir ætluðu ekki að trúa
sínum eigin augum, þegar starfs-
maðurinn sagðist ætla að ganga
niður Kaupmangaragötu með
myndina óvarða. Slíkt væri ekki
hægt í Amsterdam. Alltof mikil
hætta á, að einhver fyndi hjá sér
hvöt til að draga upp kuta og
leggja í myndina.
Hollendingamirfræddu blaða-
mann á að þeir söfnuðu nútíma-
list, ekki sízt COBRA-verkum, og
fylgdust grannt með dönskum
uppboðum þennan dag dag keyptu
þeir fyrir 700 þús., m.a. gott verk
eftir Aleehinsky. Þeir tilheyra
hópi, sem kaupir listaverk saman,
bæði vegna ánægjunnar og eins
sem Qárfestingu. Verk COBRA-
mannanna, t.d. Jóns, ættu
tvfmælalaust enn eftir að hækka
mjög. Þau væra ódýr núna, miðað
við það sem yrði eftir aðeins tvö
ár. Ef einhver lesenda vill frekar
leggja peningana sína í listaverk
en fslenzka bankakerfíð, þá er hér
gullvæg ábending. Athugið, að ef
listaverkin era flutt úr landi,
sleppið þið við söluskattinn
danska!
Þó flestir kaupendur þama
væra vel klætt, miðaldra fólk, þá
vora þó ungir kaupendur inn á
milli. Blaðamaður talaði við einn
slíkan, sem hætti að bjóða í mynd
eftirþekktan listamann, þegar
verðið rauk langt yfir mat. Sá
sagðist ekki vera tilbúinn til að
eltast við þekkt nöfn fyrir hvaða
verð sem væri. Hann vildi þá held-
ur kaupa verk ungra og upprenn-
andi málara, styrkja listamennina,
frekar en styrkja eigendur
þekktra verka.
Seinni daginn vora svo verk
hinna íslendinganna boðin upp.
Þau fóra öll undir matsverði.
Listasafnið keypti mynd Jons
Stefánssonar. íslendingar keyptu
verk Jóns Þorlákssonar og Sigur-
jóns, en mynd Ólafs Túbals var
keypt af dönskum listaverkasala,
líklega þeim sama og keypti
vatnslitamynd Svavars. í Berl-
inske Tidende daginn eftir
uppboðið var sérstaklega tekið
fram, að verk Siguijóns Ólafsson-
ar, sitjandi maður úr brenndum
leir, hefði verið eitt mjög góðra
verka, sem fóra á lágu verði.
Líklega fara íslenzk verk á þokka-
legu verði á dönskum uppboðum,
svo fremi sem það bjóða ekki tveir
eða fleiri íslendingar á móti hver
öðram. Uppboðshaldari er fámáll
um seljendur og kaupendur, en
eftir því sem næst verður komist
vora öll verkin úr danskrí eigu.
Og enn er vísast af nógu að taka,
því það er töluvert af íslenzkum
verkum í dönskum einkasöfnum,
svo það er alltaf reytingur af þeim
á uppboðum hér.
TEXTI: SIGRÚN DAVÍÐSDÓTTIR