Morgunblaðið - 05.10.1986, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 05.10.1986, Blaðsíða 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR’ 5. OKTÓBER 1986 Rætt við Kerstin Guldbrandsen, blaðamann sem nýlega gaf út bók um lausnir á fólksflótta frá nyrstu svæðum Svíþjóðar svo að hæstráðendur fínni upp á einhveiju fyrir það fólk að gera, þá vill svo oft gleymast að það er ekki nóg að fólk hafí einhverja vinnu, það verður að hafa vinnu sem leyfír því um leið að efla umhverfí sitt og það verður að sjá framfarir í sinu umhverfi. Það verður að skapa aðstæður sem gefa fólki ástæðu til að vera áfram í sínu umhverfí og öðrum til að flytja þangað. „ÞAÐ ER mjög athyglis- vert að koma til Islands, þó að við séum nú ekki svo ólík, íslendingarnir og fólkið í Norður-Svíþjóð. Samt er mikiil munur á. Þið eruð stolt en við erum ekki stolt. Hjá ykkur ríkir þetta skapandi andrúms- loft í þjóðfélaginu sem okkur vantar svo sárlega, allar bækurnar, óperan, búðirnar, nýsköpunin í at- vinnulífinu, svo ég nefni af handahófi. En við erum ekki stolt af því að geta ekki látið hlutina ganga betur og að peningarnir okkar þurfi að koma ann- ars staðar frá, ekki til að byggja upp, heldur til að halda sænskum lífskjörum í sama horfinu. Þetta á við um marga í Norrbotten og á öðrum svæðum sem eru að deyja út.“ Sú sem þetta segir er þó ekki á því að láta umrædd svæði „deyja út“, eins og sænski blaðamaður- inn Kerstin Guldbrandsen orðaði það í viðtali við blaðamann Morg- unblaðsins þegar hún kom hingað til lands nýverið, en heimsóknin var afmælisgjöf frá vinum og samst? rfsmönnum á sænska ríkisútvarpinu/sjónvarpinu. Heimsóknin var sú fyrsta til Is- lands, en samskipti íslands og Norrbotten hafa löngum verið við lýði, sérstaklega í tíð Ragnars Lassinantti, fyrrum landshöfð- ingja þar, sem var mikill íslands- vinur, en Kerstin dvaldi hér hjá Önnu Einarsdóttur sem hefur haft mikið að gera með samskipti ís- lands og Norrbotten, eins og annarra svæða Norðurkollu. Reyndar á Kerstín fleira sam- eiginlegt með fyrrum landshöfð- ingja sínum en áhuga á íslandi, uppbygging á öllum sviðum á heimasvæðinu er henni ofarlega í huga í heimsókn sinni, eins og berlega kemur fram í bók sem hún gaf út fyrir réttum mánuði og nefnir „Jomen visst! — Min bok om Norrbotten". í bókinni fjallar hún um það mál, sem að hennar mati er það mikilvægasta í sænsku þjóðlífí nú, fólksflótta af landsbyggðinni til Stokkhólms og lamandi áhrifum hans á mannlífið í stijálbýlinu. Reyndar gerir hún meira í bók sinni en að segja frá stöðu mála, hún bendir á leiðir til lausnar og kveðst hafa fundið lausn til að spyma við þróuninni. MANNLAUST SVÆÐIER ERFITT AÐ VERJA „Ef við byijum á að skoða stað- reyndir þá búa í Norrbotten 260.000 manns á svæði seyn er svipað að stærð og ísland. í allri Svíþjóð eru þó um átta og hálf milljón íbúa og í sannleika sagt er svæðið að tæmast. Ef ekki verður að gert hið bráðasta sitjum við uppi með mannlaust svæði í náinni framtíð og mannlaus svæði er erfítt að veija, hvort heldur er í hemaðarlegu, menningarlegu eða öðru tilliti." BÚA TIL SKAPANDI ANDRÚMSLOFT — Hver er þá lausnin? „Lausnin er í stuttu máli sú, að í fyrsta lagi verður fólk að gera sér grein fyrir þróuninni, setjast niður og ræða málin. Burtséð frá því hvemig umgengni manna í milli er, þá verður fólk að geta rætt málin án allra hindrana. Slík umræða hjálpar fólki til að gera sér grein fyrir stöðunni og hvem- ig má breyta og styrkjá framfarir á svæðinu, búa til skapandi and- rúmsloft, eins og ég vil kalla það. Skapandi andrúmsloft er ná- kvæmlega það sem okkur vantar til að hlutimir breytist — við skul- um ekki gleyma því að þegar fólksflótti verður frá einum stað til annars og fólk flýr á vit tæki- færanna, þá er það fólkið með kunáttuna, sköpunargleðina og framtakssemina sem fer fyrst. Við emm engin undantekning þama nyrst í Svíþjóð, en okkur vantar mjög sárlega þessa kunn- áttu, framtakssemi og sköpunar- gleði til að gera svæðið freistandi til búsetu. Það gerist ekkert í landi þar sem skapandi andrúmsloft er ekki fyrir hendi — og þá á ég ekki við skapandi andrúmsloft á sviðum lista, heldur á öllum svið- um. LÖMUNÍ MANNLÍFINU Núna ríkir hjá okkur eins konar lömun í allri uppbyggingu og áhuga á því að breyta til batnað- ar. Það er lömun í mannlífínu og fólk vantar allan metnað fyrir hönd síns svæðis og allar forsend- ur fyrir slíkum nauðsynlegum metnaði. Þess vegna gerist ekk- ert.“ — Hvemig koma atvinnumál inn í myndina? „Meirihluti íbúanna er í vinnu á vegum ríkisins, ýmist við jám- brautimar, póst og síma, sjúkra- húsin og svo framvegis. Fólk sem vinnur sín tilteknu störf vel, en veit á hinn bóginn mjög lítið um hvemig á að byggja verksmiðju eða efla atvinnulífíð með nýjung- um. Okkur vantar fólkið með hugmyndimar og framtakssem- ina, því að í raun er mjög gott að búa á svæði eins og Norrbotten og mannlífið getur verið mjög þægilegt. Ég hef að minnsta kosti verið þar í 17 ár og vil hvergi annars staðar búa. Sjálfsagt hugsa margir svona, jaftivel af þeim sem fara. ALGENGT AÐ UNG- ARKONURFARI Það er til dæmis mjög algengt að ungar konur flytji á-braut og þar skipta atvinnumálin miklu, atvinnuframboð fyrir ungar konur á svæðinu er afskaplega fátæk- legt, á sama tíma og Stokkhólmur hefur upp á talsverða fjölbreytni að bjóða í öllum þjónustugreinun- um. Svo ég taki mín þijú böm sem dæmi, þá búa þau öll í Stokkhólmi og ég fæ ekki séð hvemig þau gætu búið og unnið í norðrinu þar sem um er að ræða söngkennara, danskennara og þáttagerðarmann hjá útvarpi, sem sé fólk sem ólík- iegt er að fengi vinnu við sitt hæfí í Norrbotten. FÓLKIFINNST SVÆÐIÐ SITT HAFATAPAÐ Astæðan hins vegar fyrir þess- ari ríkjandi lömun, sem ég vil kalla svo, held ég að sé að fólki fínnst sitt svæði hafa tapað, fínnst of mikið hafa farið úrskeiðis og vantar allan þrótt til að leggja út í breytingar. Þó em allir sammála um að breytinga sé þörf.“ — Hver var aðdragandi þess að þú settir þínar hugmyndir um breytingar á blað? ALLTÍLAGIAÐ SKRIFABÓKUM LANDBÚNAÐ, EN ... „Mínar vangaveltur um þessi efni hófust út frá fremur persónu- legum málum í mínu lífi. Faðir bamanna minna og fyrrverandi eiginmaður minn, sem er hag- fræðingur með landbúnaðarmál sem sitt sérsvið, gaf út bók árið 1966 þar sem hann fjallaði um nýjar leiðir í landbúnaði og boðaði grundvallarbreytingar í þeim efn- um. í raun fínnst mér ekkert at- hugavert við að §alla um slíkt, en ég er ekki eins ánægð með það sem gerðist í framhaldi af útkomu bókarinnar. Landbúnaður hafði áður byggst á fremur litlum ein- ingum, sveitabýlum sem voru í eigu fjölskyldnanna sem þar bjuggu, en þær breytingar urðu á að sveitabýlin urðu stærri og bændumir mikið færri og mikið ríkari. Þessi breyting varð byijun- in á þeirri röngu þróun að fólk flutti af landsbyggðinni í borgim- ar. NÝJUNGAR Á KOSTNAÐ LANDS- BYGGÐARINNAR Þetta er nú ekki eina dæmið, það er alltaf verið að koma með nýjungar og breytingar á kostnað landsbyggðarinnar. Núna er til dæmis mikið í umræðu að stöðva nýtingu skóganna, en það er eins og enginn hafí hugsað fyrir því hvaða lífsviðurværi býðst fólkinu sem hefur átt allt sitt undir skóg- arhöggi og viðarvinnslu. Og þó Hins vegar má ekki misskilja mig svo þegar ég tala í upphafi um sveitabýlin og það allt, að ég sé að óska eftir einhverri grænni byltingu með rómantískum blæ, þ.e. að fólk flykkist á bóndabæ- ina, alls ekki. Við höfum gert eina slíka græna byltingu með misjöfn- um árangri og þurfum ekki aðra. Ég er mikið fremur að tala um litlu bæina, eins og þann sem ég bý í, með 8.000 íbúum og mögu- leikum á mjög þægilegu og góðu mannlífí. Að mínu mati veltur það fyrst og fremst á fólkinu sjálfu, með aðstoð frá Stokkhólmi, því það þarf talsvert fjármagn til að breyta stöðu mála og hjálpa okkur til að standa á eigin fótum enn á ný. Við misstum nefnilega undan okkur fætuma á árunum 1965-67.“ — Heldur þú að þú eigir eftir að sjá slíkar breytingar verða að veruleika? ÞRÓUNINA VERÐUR AÐSTÖÐVA „Ég hlýt að gera það, þó að ég geri mér litlar vonir um að sjá þær breytingar gerast fyrirhafíi- arlítið. Én ef menn vilja halda í menningu og lifnaðarhætti á norðurslóðum Svíþjóðar þá er engin spuming um að þróun und- anfarinna tuttugu ára verður að stöðva. En hún verður ekki stöðv- uð með því að láta íbúa lands- byggðarinnar halda útréttri hendinni eftir matarpeningum frá Stokkhólmi, heldur með því að nota fjármagnið í uppbyggingu atvinnulífs og menningar og um leið blómlegra mannlífs á land- svæði sem er svo vel til þess fallið." Erfitt að verja mannlaus svæði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.