Morgunblaðið - 05.10.1986, Page 10
10 B
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986
Af Anheuser-fjölskyldunni
og framleiðslu hennar
Ánægðir
með
vínsmekk
íslendinga
Grein/Myndir: Anna
Bjarnadóttir
eldri, sér um útflutning og kynning-
arstarf en Hubertus um vínfram-
leiðslu. Birgit, systir þeirra, býr í
Miinchen og hefur lítinn áhuga á
vínviðskiptum.
Tilviljun að vínin
fást á Fróni
Anheuser og Fehrs eiga mest
viðskipti við Bandaríkin en ísland
er ótrúlega stór viðskiptaaðili. Við-
skiptin komust á fyrir fullkomna
tilviljun. Sigurður Tómasson, um-
boðsmaður fyrirtækisins, rakst á
nokkrar auglýsingar frá vínútflutn-
ingsfyrirtækjum í hollensku blaði
fyrir um tuttugu árum og hafði
samband við þau. Honum leist best
á svarið sem barst frá Anheuser
og Fehrs og gerðist umboðsmaður
þess á íslandi. „Þetta bytjaði nú í
smáum stíl,“ sagði hann í símtali,
„en jókst mikið fyrir flórum til fímm
árum. Ég var svo heppinn að hitta
á eitt besta fyrirtækið þama fyrir
algjöra tilviljun."
Herbert Anheuser lítur á
vínþrúgur á vínekrum
Anheuser-fjölskyldunnar.
Við samanburð á vínum er rétt gefinn botnfyllir i glösin, vínin
eru brögðuð og afganginum hellt í stóra könnu á borðinu. „Við
notum afgangsvínin til að elda með,“ sagði Herbert Anheuser
hlæjandi.
Anheuser Liebfrau-
milch selst eins og heit-
ar himmur í „Ríkinu“
„Leiðin til að læra að meta
þýsk vin er að hætta að drekka
Liebfraumilch,“ segir i Hugh
Johnson’s Wine Companion,
vínuppsláttarbókinni góðu. Þýsk
hvítvín hafa orð á sér fyrir að
vera sæt og jafnvel væmin. Þurr
og hálfþurr vín eru i tisku og
margir fussa við Liebfraumilch
og þýskum vínum yfirleitt. En
ekki Islendingar. Afengis- og
tóbaksverslun ríkisins seldi
168.058 litra af Liebfraumilch
Anheuser í fyrra, en það er bara
ein af sex Liebfraumilch-tegund-
um sem einokunarverslunin er
með á boðstólum. AIls seldust
678.358 litrar af hvitvíni hjá
versluninni árið 1985. Þar af
voru 404.910 lítrar Rínar- og
Móselvín. 47% þess magns kom
frá vestur-þýska vínútflutnings-
fyrirtækinu Anheuser og Fehrs
i Bad Kreuznach við ána Nahe.
Afkomendur Augusts E. An-
heusers reka það og stunda auk
þess vínyrkju og -framleiðslu.
Þeir eru ánægðir með vínsmekk
Islendinga, segja að þeir kunni
að meta góða Liebfraumilch þeg-
ar þeir bragða það.
Vínakrar svo langt
sem augað eygir
Anheuser-fjölskyldan stundaði
enn venjulegan landbúnað með
vínyrkjunni þegar Herbert Anheus-
er, sá bræðranna tveggja sem sér
um söluhlið Anheuser-fyrirtækis-
ins, var að alast upp snemma á
sjötta áratugnum. Hún er nú alveg
hætt kvikfjárrækt og vínframleiðsla
er hennar „lifíbrauð". Hún ræktar
vínþrúgur á sólríkum ökrum í Na-
he-dalnum og í nágrenni hans, en
Nahe er eitt af 11 vínræktarsvæð-
um Vestur-Þýskalands.
Áin Nahe fellur í Rín sunnan við
Koblenz og vestan við Mainz. Dalur-
inn er lítilfjörlegur f samanburði við
Rínar- og Móseldalina en fallegur.
Áin fellur hægt í gegnum hann og
vínakrar teygja sig upp hlíðamar.
Hann er úr alfaraleið og því róleg-
ur. Bad Kreuznach er stærsti
bærinn í dalnum. Hann er aldagam-
all heiisustaður með gufur og
geisla, sölt og böð sem eru sögð
vera allra meina bót.
Anheuser-flölskyldan framleiðir
sín vín, tappar á, merkir og geymir
flöskumar í virðulegri byggingu í
útjaðri bæjarins. Hún er gamalgró-
in „vínfjölskylda" í Nahe og á þar
alla bestu blettina. Vínökmnum var
skipt árið 1888 og nú yrkja fyrir-
tækin Paul Anheuser og August
E. Anheuser um 60 hektara hvort.
I þessari grein er ávallt átt við af-
komendur Augusts Anheusers
þegar talað er um Anheuser fjöl-
skylduna af því að það em þeirra
vín sem falla Islendingum svo vel
í geð.
Fjórði ættliður
tekinn við
August Anheuser var 24 ára árið
1869 þegar hann ákvað að stofna
vínútflutningsfyrirtækið Anheuser
og Fehrs með vínkaupmanninum
Adolf Fehrs. August missti foreldra
sína ungur og ólst upp hjá Bech-
told Anheuser, afa sínum, sem átti
ógrynni lands og stundaði vínrækt
með öðm. Hann dvaldist langdvöl-
um hjá frændfólki sínu í St. Louis
í Bandaríkjunum, en Eberhard An-
heuser, forfaðir hans, stofnaði
Anheuser-Busch-ölgerðarhúsið sem
er þekkt fyrir bandaríska bjórinn
Budweiser. August var því vel
kunnur vínframleiðslu og hafði góð
sambönd í Bandaríkjunum þegar
hann fór út í eigin vfnviðskipti.
Adolf Fehrs lést árið 1902 og
August varð einn eigandi fyrirtæk-
isins. Hann lést þremur ámm seinna
og August, sonur hans, tók við.
Hann hafði viðskiptamenntun og
sá um sölu fyrirtækisins í Banda-
ríkjunum, eins og faðir hans hafði
gert. Hann kynntist eiginkonu
sinni, Stellu Nicolaus, hjá Anheus-
er-Busch-fjölskyldunni í St. Louis,
hún var einnig af ölgerðarfólki kom-
in.
Þessi góðu tengsl í Bandaríkjun-
um komu Anheuser og Fehrs mjög
vel. Velta fyrirtækisins á Banda-
ríkjamarkaði var um milijón dollar-
ar á ári þegar fyrri heimsstyijöldin
braust út. Þá hmndi markaðurinn
f Bandaríkjunum og bannárin eftir
stríðið bættu ekki úr. En August
gafst ekki upp. Hann lét vínræktina
til sín taka og bætti við sig landi í
kringum Bad Kreuznach.
Hann reyndi aftur fyrir sér í
Bandaríkjunum eftir að áfengis-
banninu var aflétt 1930 og var
kominn vel á veg þegar heimsstyij-
öldin síðari skall á. Hann lést árið
1939 og lifði því ekki hörmungar
stríðsins. Ekkja hans og Herbert,
eldri sonurinn, héldu fyrirtækinu
gangandi eftir besta megni en lét-
ust bæði um stríðslok.
Egon, yngri sonurinn, var þá
33ja ára. Hann tók við fyrirtækinu
í rústum og byggði það upp. Veiðar
em líf hans og yndi og hann gegndi
trúnaðarstörfum fyrir vestur-þýska
veiðimannasambandið og önnur
veiðimannafélög í áraraðir. Hann
er virtur þorgari í Rheinland-Pfalz.
Kona hans er dóttir Seitz flölskyld-
unnar sem er heimsþekkt fyrir
Seitz-vínkjallaratæki og -pressur.
Synir þeirra hjóna hafa nú tekið
við rekstri beggja Anheuser-fyrir-
tækjanna, August E. Anheuser og
Anheuser og Fehrs. Herbert, hinn
Eftirlit með vínframleiðslu i
Vestur-Þýskalandi er nokkuð
strangt og hneykslismál á við
vínskandalana í Austurríki og Ítalíu
eiga ekki að geta komið fyrir.
Vínunum er skipt í tvo flokka, Ta-
felwein og Qualitatswein. Tafelwein
em einföld vín sem em mest dmkk-
in þar sem þau em framleidd en
Qualitatswein em notuð í útflutn-
ing.
Þau skiptast í tvo gæðaflokka:
Qualitatswein bestimmter An-
baugebiete, QbA, gæðavín frá
ákveðnu svæði, og Qualitatswein
mit Pradikat, QmP, gæðavín með
vissum eiginleika. Liebfraumilch er
dæmigert QbA-vín. Það er framleitt
á svasðunum í kringum Rín úr
þremur mismunandi þrúgutegund-
um og þess eins er krafíst af því
að það sé „gott vín“. Það getur því
verið mjög misjafnt eftir framleið-
anda. Nahe Liebfraumilch, sem
Anheuser-fjölskyldan framleiðir úr
sínum eigin þrúgum og þrúgum frá
öðmm vínbændum á Nahe-svæð-
inu, selst vel á íslandi, eins og áður
kemur fram. Áfengisverslunin er
með þijár aðrar gerðir QbA-vína
frá Anheuser og Fehrs til sölu, tvær
em frá Mosel-Saar-Ruwer-svæðinu
og ein er Rieslingvín frá Rheingau.
Fjölskyldan framleiðir þessi vín sjálf
úr aðkeyptum, pressuðum vínbeij-
um. Qualitatswein em létt og
frískandi. Þau em dmkkin ung og
þykja góð borð- og hversdagsvín.
Qualitatswein mit Pradikat hafa
einn af sex eiginleikum: Kabinett,
Spatlese, Auslese, Beerenauslese,
Eiswein og Trockenbeerenauslese.
Anheuser-hvítvínsflöskur merktar í húsakynnum fyrirtækisins í Bad Kreuznach.