Morgunblaðið - 05.10.1986, Side 29
SJ
Urvals norskir tog- og
snurpuvírar frá A scanRo,
Júlíus Skúlason skip
stjóri á skuttogaran-
um Hegranes frá
Sauðárkróki notaði
togvírana frá Scan-
Rope í 14 mánuði.
Tók vírana þá í land
og notar nú í grand-
ara.
Að fenginni góðri
reynslu hefur Júlíus
ákveðið að nota ein-
göngu víra frá
4 ScanRope
íframtíðinni.
Ananaustum, GrandagarAi 2, afmi 28855.
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986
Af hverju er umframmjólk-
in ekki seld á lægra verði?
Tvítug Ghana-stúlka með áhuga
á íþróttum, tónlist, frímerkjum,
póstkortum o.m.fl.:
Emml. Baah jnr.,
Golden Home Club nr. 1,
P.O.Box 295,
Tarkwa,
Ghana.
Sautján ára japönsk stúlka með
áhuga á tónlist, lestri, frímerkjum,
matargerð:
Kazuyo Maruyama,
2-403 Tsuto-hozhu-cho
11-chome,
Nishinomiya-shi,
Hyog,
663 Japan.
Sænsk 35 ára kona, enskukenn-
ari, vill skrifast á við 25-40 ára
íslenzkar konur. Áhugamálin eru
margvísleg. Kveðst geta skrifað á
ensku og þýzku auk sænsku:
Ingrid Rahe,
Nordostpassagen 25,
S-41311 Göteborg,
Sverige.
Átján ára Ghana-stúlka með
áhuga á íþróttum, dýrum, tónlist,
frímerkjum, Qölmiðlum, póstkort-
um o.fl.:
H. Agyeman,
Golden Home Club nr. 5,
P.O.Box 295,
Tarkawa,
Ghana.
Hagbarður skrifar:
Annað slagið heyrir maður í fjöl-
miðlum nefnd hugtök eins og
fullvirðisréttur, fullvirðismark, bú-
mark o.sv.frv. þegar fjallað er um
málefni landbúnaðarins í dag. Fýrir
þá sem að mestu standa utan við
þessa umræðu er ekki alltaf svo
auðvelt að átta sig á öllum þessum
nýyrðum, sem upp hafa verið tekin
í tengslum við stjóm á framleiðslu
búvara, nú á allra síðustu árum.
Undirritaður þykist þó vera
nokkuð viss um að orðið fullvirðis-
réttur í landbúnaðarframleiðslu eigi
við það magn mjólkur sem hverjum
bónda er úthlutað og þá um leið
tryggt að hann fái fullt verð fyrir.
Þá mjólk, sem bóndinn síðan fram-
leiðir umfram þennan fullvirðisrétt
og leggur inn hjá viðkomandi mjólk-
urbúi, fær hann því sáralitið greitt
fyrir. Ekki er undirrituðum að fullu
kunnugt um hversu mikið bændur
fá fýrir innlagða mjólk umfram
fullvirðisrétt sinn, en telur sig þó
hafa séð eða heyrt að sú upphæð
nemi ekki nema einhvers staðar á
bilinu 15—25% af raunvirði mjólk-
urinnar. Heyrst hefur af bændum
sem heldur vildu henda þessari
umframframleiðslu sinni en að
leggja hana inn til mjólkurbúanna
fyrir nánast ekkert verð og lái þeim
það hver sem vill, en til slíks mun
helst vera gripið er líða tekur á hið
svokallaða verðlagsár, sem heQast
Orðsendinga til áskrif-
enda tímaritsins Mannlífs
í Velvakanda Morgunblaðsins
hinn 2. október sl. er að finna nafn-
laust bréf frá einum hinna 9.400
áskrifenda að tímaritinu Mannlífi.
Viðkomandi áskrifandi kvartar yfir
því, að sent var út bréf til þeirra
áskrifenda, sem voru í vanskilum
við tímaritið, og þeir beðnir að gera
skil á áskriftargjöldum.
í þessu sambandi óskar undirrit-
aður eftir því að koma eftirfarandi
á framfæri við Velvakanda: Mannlíf
mun nú vera útbreiddasta tímarit,
sem út hefur komið á íslandi frá
upphafi. Upplag ritsins er nú
17—18 þúsund eintök, og áskrif-
endur eru um 9.400 talsins.
Langflestir áskrifendur hafa greitt
áskriftargjöld sín skilvislega, en
alltaf eru nokkrir, sem draga
greiðslur, sumir lengur en góðu
hófí gegnir. Þessum síðamefnda
hópi var sent bréf, þar sem óskað
var eftir því að skil yrðu gerð sem
fyrst. — Bréfið átti aðeins að fara
til þeirra, sem voru í vanskilum.
Þó var tekið fram í bréfinu, að
væri um mistök að ræða, væru við-
komandi beðnir velvirðingar á þeim,
og þeir jafnframt beðnir að hafa
samband við innheimtudeild
Mannlífs, til að unnt yrði að leið-
rétta þau. Nokkrir áskrifendur
höfðu samband við innheimtudeild-
ina vegna slíkra mistaka, og voru
þau öll leiðrétt og viðkomandi beðn-
ir velvirðingar á þeim.
Velvakandabréfið ber það ekki
með sér, hvort hinn nafnlausi
áskrifandi að Mannlífi, hafði greitt
áskriftargjaldið skilvíslega, áður en
bréfið barst. En sé gert ráð fyrir
því að svo hafi verið, þá er viðkom-
andi væntanlega þegar búinn að fá
leiðréttingu sinna mála ásamt af-
sökunarbeiðni frá innheimtudeild-
inni. Hafi viðkomandi verið jafn
ánægður með Mannlíf frá upphafi
og fram kemur í bréfinu í Velvak-
anda, ætti innheimtuáminningin því
varla að gefa tilefni til uppsagnar,
hvað þá til blaðaskrifa um málið.
Viðkomandi er á hinn bóginn vel-
kominn á ný í hóp áskrifenda að
Mannlífí, hvenær sem er.
Virðingarfyllst,
f.h. timaritsins Mannlífs,
Anders Hansen,
útgefandi.
enna-
vinir
mun 1. september ár hvert, en áður
en að þeim degi kemur mun kvóti
margra vera uppurinn og meira en
það. Það virðist samt vera ljóst að
þeir bændur sem telja slíkt raun-
hæfasta leikinn í stöðunni, eru
aðeins brot af heildarfjölda þeirra
mjólkurframleiðenda sem í um-
framframleiðslu lenda, því verð-
skerðing á innlagðri mjólk á árinu
1984/1985 mun hafa numið meira
en 16.000.000. króna.
Ekki hefur undirritaður rekist
neins staðar ennþá á áætlaðar sam-
bærilegar tölur fyrir verðlagsárið
1985/1986, en vel mætti ætla að
þær yrðu hærri að krónutölu ef
framleiðslan hefur ekki minnkað.
Þess vegna vaknar nú sú hin stóra
spuming um það hvað varð og verð-
ur um þessar rúmlegu 16.000.000.
króna. Ekki trúir undirritaður því
að mjólkurbúin helli niður þessari
mjólk sem berst til þeirra umfram
fullvirðisréttinn, því varla er hún
neitt síðri að gæðum en sú mjólk
sem bændum er greitt fyrir að fiillu
samkvæmt þessum reglum. Og sem
neytandi á almennum markaði hef-
ur undirritaður ekki orðið þess var
að honum stæði þessi umframmjólk
til boða á lægra verði, og er þó
vart við öðru að búast en að það
hefði spurst fljótt út ef einhver stað-
ur væri með til sölu mjólk með um
eða yfir 75% afslætti. Telur han því
víst að slík kostaboð hafí ekki átt
sér stað. Og ekki er heldur líklegt
að 16.000.000. króna taki upp á
því að gufa upp rétt si svona, því
hlyti einhver að taka eftir.
Það hefur stundum verið rætt
um milliliði, sem myndast hafa á
milli framleiðenda í landbúnaði og
hins almenna neytanda á þéttbýlis-
svæðum landsins. Eru það þeir sem
hagnast á þessu öllu saman? Getur
það verið að bændur telji sjálfsagt
að rétta þessum aðilum, eða hveij-
um þeim sem þessi óhjákvæmilegi
hagnaður lendir hjá, slíkar upphæð-
ir í hendur. Sem neytanda og þá
um leið þess sem endanlega greiðir
fyrir þess vöru sem framleiðandinn
leggur til á svo lágu verði, þætti
undirrituðum vægast sagt réttast
og eðlilegast að hún skilaði sér eins
og til er stofnað í upphafi, til hans.
Með þessum orðum er ekki verið
að áfellast orsökina fyrir því að
þessi mismunur skapast, þ.e. stjóm-
un á framleiðslu landbúnaðaraf-
urða, því sjálfsagt á hún rétt á sér,
heldur það að þessi ódýra mjólk
skuli ekki skila sér til neytenda, og
þá t.d. í formi beinna verðlækkana
eða aukinna niðurgreiðslna, sem
næmi þessum íjárhæðum. Fróðlegt
væri að heyra frá einhveijum sem
til þekkir um þetta mál, hvort það
er í raun svona vaxið. Og hvað
fínnst bændum? Telja þeir söluaðila
sína svona illa stadda fjárhagslega
að nauðsynlegt sé að rétta þeim í
hendur þetta fjármagn, nánast á
silfurbakka, og meira að segja án
nokkurrar fyrirhafnar eða frekari
þjónustu af þeirra hálfu?
VISAVIKUNNAR
| Bandalag.jafnaðarmanna lagt niður á sögulegum fundi i nótt:
Þingmenn BJ í
Alþýðuflokkinn]
I næiilu alþingmkiwningar, og aU-fnal
á þnðjn aælið Talið cr að <iuð-T
munður muni laka þitt I pnSfhjön I
flnkkaina I Ri'ykjancakýmlæmi "
Guðmundur
Torfason ferl
Skín í bera þingmenn þijá
þunnan gegnum kjólinn.
Hugsjónunum flýja frá
fyrir von um stólinn.
Hákur