Morgunblaðið - 10.10.1986, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986
Dagur Leifs Eiríkssonar:
Andi Leifs lifir
meðal banda-
rísku þjóðarinnar
- segir í yfirlýsingn
frá Ronald Reagan
forseta Bandaríkjanna
DAGUR Leífs Eiríkssonar var
haldinn hátiðlegur við styttu Leifs
heppna á Skólavörðuholtinu i
gær. Nicholas Ruwe sendiherra
Bandarikjanna flutti yfirlýsingu
frá Reagan Bandaríkjaforseta og
Sigurður Helgason stjómarfor-
maður Flugleiða og formaður
Íslensk-Ameriska félagsins sagði
frá starfsemi félagsins og færði
sendiherranum blóm i tilefni dags-
ins.
Fjölmiðlafólk frá hinum ýmsu
sjónvarps og fréttastöðvum safnaðist
saman um eitt leytið við styttu Leifs
heppna til að vera viðstatt athöfnina,
en fáir aðrir voru á staðnum.
Sendiherrann las yfirlýsingu
Bandarílcj aforseta þar sem segir m.a.
að milljónir Bandaríkjamanna geti
rekið uppruna sinn til Norðurland-
anna. Forfeðumir hafí komið til
Bandaríkjanna í leit að nýjum tæki-
færum í fijálsu og réttlátu landi.
„Þeir voru hugrakkir ævintýramenn,
þrekmiklir og einbeittir og því kom-
ust margir þeirra til vegs og virðing-
ar. Leifur Eiríksson var einn þessara
manna, fyrsti Norðurlandabúinn sem
vitað er til að hafí komið til Norður
Ameríku."
í yfirlýsingunni segir ennfremur
Morgunblaðifl/Ami Sœberg
Bandaríski sendiherrann Nicholas Ruwe ies yfirlýsingu frá Ronald Reagan forseta undir styttu Leifs
Eiríkssonar. Við hlið hans er Sigurður Helgason for maður Íslensk-Ameríska félagsins.
VEÐUR
VEÐURHORFURIDAG:
YFIRLIT á nádegi i gaer: Skammt suðvestur af landinu ar 962
millibara iægð sem þokast austnoröaustur.
SPÁ: Vestan- og norðvestanátt ríkjandi um mest allt land. Skúrir
eða slydduél norðanlands en þurrt að mestu fyrir sunnan.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
LAUGARDAGUR og SUNNUDAGUR: Suðvestanátt ríkjandi og frem-
ur kalt. Slydduél um vestanvert landið en þurrt og sum staöar
léttskýjað um landið austanvert.
Heiðskírt
TÁKN:
O
m Léttskýjað
M Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
Vindörín sýnir vind-
stefnu og fjaðrimar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10° Hitastig:
10 gráður á Celsius
y Skúrir
*
V E'
= Þoka
— Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 ígær að ísl. tíma
hm /eftur
Akureyri 9 nétfskýjeð
Reykjavfk 11 skúr
Bergen 10 rigning
Helsinkl e skýjeð
Jan Mayen 5 súld
Kaupmannah. 11 alskýjað
Narssarsauaq 2 rigning
Nuuk 0 snjókoma
Oaló B þokumóóa
Stokkhólmur 7 skýjeð
Þórshöfn 12 skýjeð
Algarve 25 léttskýjað
Amsterdam 17 mlstur
Aþena 26 skýjað
Barcelona 22 þokomóða
Beriín 14 skýjað
Chlcago 11 alskýjað
Glasgow 15 skýjað
Feneyjar 21 rítýjað
Frankfurt 17 mistur
Hamborg 13 *ký|*ð
Las Palmas 26 skýjað
London 19 skýjað
LosAngeles 18 alakýjað
Lúxemborg 16 hátfskýjað
Madrid 22 léttskýjað
Malaga 24 skýjað
Mallorca 26 Mttakýjað
Miami 27 akýjað
Montreal 5 akúr
Nlce 24 lóttskýjað
NewYork 17 þokumóða
Paris 20 léttskýjað
Róm 23 þokumóða
Vín 16 skýjað
Washington 18 alskýjað
Winnipeg -6 reykur
í DAG kl. 12.00:
Heimild: Veöurstofa íslands
(Byggt á veöurspá kl. 16.15 i gær) |
Forsvarsmenn íslensku skipafélaganna:
Erum ánægðir
með samþykkt öld-
ungadeildarinnar
FORSVARSMENN íslensku skipafélaganna lýstu í gær yfir ánægju
sinni með staðfestingu öldungadeildar Bandaríkjaþings á millirikja-
samningi milli íslands og Bandaríkjanna um flutninga til landsins á
vegum Varnarliðsins. Þeir sögðust ekkert geta fullyrt um hvenær
flutningarnir yrðu boðnir út, þar sem það ætti eftir að fullgilda
samninginn.
„Það er fagnaðarefni að þessi deila
íslendinga og Bandaríkjamanna hef-
ur verið sett niður. Eg tel að sú
niðurstaða sem fengist hefur sé
skynsamleg og ef framkvæmdin
verður í samræmi við samninginn
ætti þetta að ganga áfallalaust fyrir
sig. Við erum hóflega bjartsýnir á
að við getum keppt við bandaríska
aðila um þessa flutninga," sagði
Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eim-
skipafélags íslands.
„Við höfum lagt höfuðáherslu á
að það eigi að gilda ftjáls og eðlileg
samkeppni á jafnréttisgrundvelli um
þessa flutninga og fyrir þvf höfum
við barist frá upphafi. Við erum
ánægðir með að þessu máli virðist
lokið á þann veg, sem við höfðum
lagt áherslu á í öllum aðalatriðum,"
sagði Ómar Jóhannsson, fram-
lcvæmdastjóri skipadeildar Sam-
öands íslenskra Samvinnufélaga.
„Við höfum alltaf haldið því fram
að íslensk skipafélög eigi að vera
fyllilega samkeppnisfær við aðra
aðila um flutningana og sú skoðun
hefur ekkert breytst. Samkeppnin
hér innanlands er svo aftur annað
mál og framtíðin mun leiða í ljós
hvað verður í þeim efnum. En það
er ánægjulegt að þessum óvissutíma,
sem hefur verið allt of langur, skuli
nú lokið.
Mokkaflíkur á
leiðtogahjónin
Akureyrt
Á SKINNASAUMASTOFU Sam-
bandsins á Akureyri hafa nú
verið framleiddar mokkaflíkur á
leiðtoga stórveldanna, sem funda
hér á landi um helgina, og eigin-
Amfetamín
frá Hollandi
FÍKNIEFNALÖGREGLAN
handtók á þriðjudag mann sem
er grunaður um að hafa smyglað
amfetamíni inn í landið.
Maðurinn er talinn hafa sent
amfetamín frá Hollandi í mörgum
bréfum, sem hann sendi til kunn-
ingja og annarra. Fíkniefnalögregl-
an hefur lagt hald á tæplega 100
grömm af efninu í sambandi við
mál þetta. í gær var maðurinn úr-
skurðaður í gæsluvarðhald í tvær
vikur meðan unnið er að rannsókn
málsins.
konur þeirra.
Hér er um að ræða kápur og
frakka, sérstaklega framleidda
vegna leiðtogafundarins - en
Steingrímur Hermannsson, forsæt-
isráðherra, hyggst færa Ronald
Reagan Bandaríkjaforseta og Mik-
hael Gorbachev, aðalritara sovéska
kommúnistaflokksins, flíkumar að
gjöf.
Frakkinn sem Reagan fær að
gjöf er mógrár að lit en frakki
Gorbachevs grár. Kápan sem Nancy
Reagan fær er drapplit en Raisa
Gorbachev fær ljósgráa kápu.
Innan á flíkumar verða festir
silfurskildir með nöfnum tilvonandi
eigenda.
„Við vönduðum okkur að sjálf-
sögðu eins og við mögulega gátum
og vonum að flíkumar nýtist leið-
togunum vel í kuldanum syðra um
helgina - þó við vonum að hlýtt
verði á milli þeirra," sagði einn
starfsmaður Iðnaðaeildar SÍS í
samtali við Morgunblaðið í gær.