Morgunblaðið - 10.10.1986, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986
37
Kirkjur opn-
ar til bæna-
stunda meðan
Reagan og
Gorbachev
funda
KIRKJURNAR í Reykjavíkur-
prófastsdæmi verða opnar á
þeim sömu tímum sem leið-
togar stórveldanna, Reagan
og Gorbachev, eiga viðræður
hér í Reylgavík. ^
Biskup og dómprófastur hvetja
fólk til þess að koma til kirkju
sinnar á þessum stundum til íhug-
unar og bænar fyrir árangri
fundanna til friðar í heiminum.
í mörgum kirknanna verður
sitthvað um að vera á þessum
tímum, enda vetrarstarf safnað-
anna hafíð. En það á ekki að hamla
fólki frá að eiga bænarstund í
kirkjunni, þótt böm kunni að vera
í kirkjuskólanum í næsta her-
bergi, tónlistarfólk við æfíngar eða
hjón gefín saman.
Fundartímar leiðtoganna og þar
með bænastundimar í kirkjunum
verða sem hér segir:
Laugardagur kl. 10.30—12.30
og kl. 15.30-17.30
Sunnudagur kl. 11.00—13.00
Biskup beinir þeim tilmælum til
presta og sóknamefnda um land
allt, að kirkjur þeirra verði opnar
á þessum stundum til bæna og
íhugunar þar sem því verður við
komið.
Guðsþjónustur sunnudagsins
munu væntanlega taka nokkurt
mið af fundum leiðtoganna í pre-
dikun og fyrirbæn. Utvarpsguðs-
þjónustan verður frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík og verður þar
fundarins minnst sérstaklega sem
fer fram á sama tíma og guðs-
þjónustan. Verður þar með lands-
mönnum öllum, hvar sem þeir
búa, gefínn kostur á að sameinast
í fyrirbæninni fyrir friði og af-
vopnun.
(Frá Biskupsstofu.)
Lionessuklúbb-
urinn Ýr selur
heimilispoka
Laugardaginn 11. október munu
eldhressar konur úr Lionessu-
klúbbnum Ýr í Kópavogi bjóða
til sölu tvær gerðir af heimilis-
pokum. AUur ágóði af sölunni
rennur til liknarmála.
Samúel Jóns-
son trésmiður
er á myndinni
Á myndinni úr garðinum bak við
Kirkjustræti 8b, sem fylgdi grein
Leifs Sveinssonar í Morgunblað-
inu í gær, var ranglega farið
með nafn eins af fjölskylduvinum
Sveinbjörns Jónssonar, húseig-
anda. Ellert Schram, skipstjóri,
er ekki á myndinni heldur Samú-
el Jónsson trésmiður, faðir
Guðjóns Samúelssonar, húsa-
meistara ríkisins.
INNLENT
AKUREYRI
Morgunblaðið/Skapti Hallgrimsson
Þeir úr framkvæmdanefnd áhugamannahóps um framkvæmdir við Sel, sem mættir voru á blaða-
mannafundinn, í grunni viðbyggingar milli húfsanna tveggja. Frá vinstri Halldór Jónsson fram-
kvæmdastjóri FSA, Þorkell Guðbrandsson yfirlæknir, Olafur H. Oddsson héraðslæknir, Jón
Kristinsson forstöðumaður, Valgerður Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur, Antonía Lýðsdóttir og Krist-
ján Baldursson umdæmistæknifræðingur.
Kennsla í sjávarút-
vegs-, iðnrekstrar-
og viðskiptafræðum:
Veruleg
samnýting
SIGFÚS Jónsson, bæjarstjóri,
hefur gert athuganir á möguleik-
um kennslu í sjávarútvegsfræð-
um og lagt fram skriflega
samantekt þar um í háskóla-
nefnd.
í athugunum bæjarstjórans kem-
ur fram að samnýting sjávarútvegs-
fræða við iðnrekstrarfræði og
viðskiptafræði séu veruleg, en
minni er tekur til matvælafræði.
Inga Bjömssyni, framkvæmda-
stjóra Iðnþróunarfélags Eyjafjarð-
ar, hefur verið falið að leggja ram
ákveðnar tillögur um nám í sjávar-
útvegsfræðum og viðskiptafræðum
og tengsl þeirra námssviða við iðn-
rekstrarfræði og hjúkrunarfræði.
Seli II breytt í hjúkrunardeild:
Deild með 10 rúmum tekin í
notkun á miðiu næsta ári
safna þarf 4-5 milljónum króna til verksins
NÚ ERU hafnar framkvæmdir
við breytingar á Seli II við
Fjórðungssjúkrahúsið en Seli
verður breytt I hjúkrunardeild
og þar bætast við 10 rúm. Það
er áhugamannahópur um fram-
kvæmdir við Sel sem er f
forsvari fyrir þessum fram-
kvæmdum.
I fréttatilkynningu frá fram-
kv^emdanefnd þessa áhuga-
mannahóps, segir: „árið 1980 var
hafist handa um að breyta Systra-
seli sem svo var kallað í hjúkr-
unarrými. Fyrri hluta árs 1983
tók þar til starfa 20 rúma deild.
Hjúkrunardeildin í Seli hefur
sannað ágæti sitt og sýnt fram á
nauðsyn á frekari uppbyggingu.
Ljóst er, að þörf á rými fyrir aldr-
aða hjúkrunarsjúklinga er vax-
andi á svæðinu. Þetta fínna þeir
gleggst sem vinna við að hjálpa
öldruðum, t.d. við heimilishjúkrun
og heimilishjálp og við bráðaþjón-
ustu á Fjórðungssjúkrahúsinu,
einkum á Lyflækningadeildinni.
Mjög biýnt er orið að fínna lausn
á vanda aldraðra hjúkrunarsjúkl-
inga, en mikilvægasti þátturinn
er augljóslega útvegum meira
rýmis til hjúkrunar, þ.e. bygging
nýrra hjúkrunardeilda, eins og
margoft heur verið bent á af
mörgum aðilum sem til málsins
þekkja, t.d. Halldóri Halldórssyni,
yfirlækni Kristnesspítala. Það er
yfirleitt viðtekið að þörf hjúkrun-
arrýmis miðist við 70 rými á 1.000
íbúa, 70 ára og eldri. Vitað er, að
á svæðinu eru u.þ.b. 2.000 íbúar
í þessum aldrusflokki og mundi
því þurfa u.þ.b. 140 rými til hjúkr-<*
unar samkvæmt þessari viðmiðun.
Núverandi hjúkrunarrými teist
110 pláss og vantar því u.þ.b. 30
pláss til að fullnægja þörfínni.
Þetta kemur vel heim og saman
við athugum sem þjónustuhópur
aldraðra hefur gert að u.þ.b. 20
hjúkrungarsjúklingar þyrftu rými
nú þegar ef vel ætti að vera og
um aðra 30-40 einstaklinga má
segja að lítið megi út af bera til
að þeir þurfti á plássi að halda.
Árið 2000 er gert ráð fyrir að
fjöldi einstaklinga 70 ára og eldri
verði um 3400 á svæðinu og
þyrfti þá samkvæmt viðmiðunar-
reglunni hjúkrarými fyrir 240
einstaklinga."
Skv. framansögðu er ljóst að
sú 10 rúma viðbót sem verður á
Seli II er engan vegan nóg til að
fullnægja þörfínni en engu að
síður mikilsvert spor, að sögn
framkvæmdanefndarmanna, sem
kynntu breytingamar fyrir blaða-
mönnum í vikunni.
Það 'er von nefndarinnar að
hægt verði að taka þessa nýju
hjúkrunardeild í notkun á miðju
næsta ári. Kostnaðaráætlun þessa
verkefnis hljóðar upp á 11,2 millj-
ónir króna á verðlagi september
1986. Á þessu ári leggur Fram-
kvæmdasjóður aldraðra fram 2
milljónir til verksins og sögðust
nefndarmenn vonast til að sú upp-
hæð tvöfaldaðist á næsta ári - að
sjóðurinn legði þá fram 4 milljón-
ir króna. Sala hvíta pennans fyrr
á þessu ári gaf af sér rúma hálfa
milljón króna og einnig var um
hálf milljón til frá því að Seli I
var breytt 1983. Samkvæmt
þessu er ljóst að til þess að ná
endum saman þarf að safna 4-5
milljónum. Þetta er svipuð upp-
hæð og safnaðist með fijálsum
framlögum þegar Seli I var breytt
á sínumtíma. I fréttatilkynning-
unni segir ennfremur: „Þær mjög
svo jákvæðu undirtektir allra, sem
til var leitað þá, gefa sterkar von-
ir um að einnig í þetta sinn takist
að ljúka þessu mikla nauðsynja-
verki með fullum sóma, undir
kjörorðinu „réttum hjálparhönd,
margar hendur vinna létt verk“.“
Að sögn nefndarmanna munu
þeir treysta mikið á sveitarfélög
á Norðurlandi varðandi fjárstuðn-
ing. Búið er að skrifa öllum
oddvitum á svæðinu þar sem ósk-
að hefur verið eftir að þeir komi
inn í dæmið - að hver hreppur
greidi 100 krónur á íbúa á þessu
ári og því næsta. Þá sögðu nefnd-
armenn að þeir vændust verulegs
stuðnings frá almenningi. „Al-
menningur brást mjög vel við
síðast - þegar unnið var að breyt-
ingum á Seli I. Þá kom mikill
fyöldi fólks til okkar með fjárfram-
lög,“ sagði Jón Kristinsson,
formaður nefndarinnar, „og þar
var oft um verulegar fjárhæðir
að ræða. Að sögn Jóns er ekki
vitað hvemig staðið verður að
söfnuninni - hvort gengið verður
í hús og fé safnað þannig.
í framkvæmdanefnd áhuga-
mannahóps um framkvæmdir við
Sel em: Jón Kristinsson, forstöðu-
maður, sem er formaður, Anontía
Lýðsdóttir, Halldór Halldórsson
yfírlæknir, Halldór Jónsson fram-
kvæmdastjóri, Kristján Baldurs-
son umdæmistæknifræðingur,
' Ólafur H. Oddsson héraðslæknir,
Ólafur Sigurðsson yfirlæknir,
Valgerður Jónsdóttir hjúkmnar-
fræðingur og Þorkell Guðbrands-
son yfirlæknir.
Steypuskemmdir í Leirubrúnni:
Minniháttar og fullt
samkomulag um hvernig
úr skemmdum skuli bætt
- segir í yfirlýsingu vegna skrifa Akureyrartíðinda
STEYPUSKEMMDIR hafa
komið í ljós í Leirubrúnni svo-
kölluðu, yfir Leirumar á
Eyjafirði. Blaðið Akureyrartíð-
indi fjallaði um málið í fyrra-
dag og vegna þeirra skrifa
sendu Vegagerð rikisins, Norð-
urverk hf. sem vann verkið og
eftirlitsaðili, Verkfræðiskrif-
stofa Sigurðar Thoroddsen, frá
sér svohljóðandi yfirlýsingu í
gær:
„Vegna „æsifréttar" í Akur-
eyrartíðindum vilja undirritaður
koma eftirfarandi á framfæri:
Steypugallar þeir sem þar er
rætt um em minniháttar og er
fullt samkomulag um hvemig úr
skuli bætt. Vegagerð ríkisins og
eftirlitsaðili, Verkfræðiskrifstofa
Sigurðar Thoroddsen, vilja jafn-
framt taka fram að tæknilegur
yfírstjómandi og yfirsmiður
verksins hafa unnið verkið eins
og þeim ber og er ekkert upp á
þá, tækjabúnað við verkið, né
aðra framkvæmd verksins að
klaga, þá vill verktaki að fram
komi að samskipti við eftirlit og
verkkaupa hafa veið með ágæt-
um.“
Undir þessa yfírlýsingu rita
Pétur Ingólfsson f.h. Vegagerðar
ríkisins, Pétur Torfason f.h. eftir-
litsaðija og Franz Ámason f.h.
Norðurverks hf.