Morgunblaðið - 10.10.1986, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986
Háskólaerindi:
Metsölubiad á hverjum degi
Brenndu beinin í stein-
þró Páls í Skálholti
SÍÐASTA háskólaerindið í röð
þeirra fyrirlestra sem haldnir
hafa verið að undanförnu í
tengslum við 75 ára afmæli
Háskólans verður haldið í
Odda klukkan 17.00 í dag. Þar
mun dr. Jón Steffensen, pró-
fessor og heiðursdoktor, fjalia
um staðsetningu stöpuls Páls
biskups Jónssonar í Skálholti.
Dr. Jón er kunnur fyrir störf sín
á mörgum sviðum, en meðal ann-
ars hefur hann unnið að rannsókn-
um á lækningasögu, á sviði
mannfræði og fomleifafræði, en í
erindi sínu í dag mun hann meðal
annars fjalla um rannsóknir sínar
á brenndu beinunum í steinþró
Páls biskups.
Dr. Jón Steffensen fæddist í
Reykajavík árið.1905 og 25 ára
að aldri lauk hann kandídatsprófi
í læknisfræði frá Háskóla íslands.
Hann stundaði síðan framhalds-
verslun landsins
hefur að sjálfsögðu
mesta úrvalið
og
hæginda
stólum
af
fallegum
þægilegum
Bestu greiðslukjör í bænum.
^ húsgagna höllin
BÍLDSHÖFÐA 20—112 RE YKJAVÍK-91-681199og 681410
nám í lyflækningum og líffæra-
fræði í Noregi, Danmörku og
Þýskalandi. Hann varð prófessor
við læknadeild Háskólans árið
1937 og gengdi hann því embætti
í 33 ár.
Dr. Jón hefur aðallega starfað
að rannsóknum á sviði þar sem
sagnfræði annars vegar og líkams
og Iæknisfræði hins vegar mætast.
Þá hefur hann einnig skrifað um
lækningasögu, um uppruna íslend-
inga út frá líffræðilegum heimild-
um, um líkamshæð þjóðarinnar og
fólksfjölda. Megnið af rannsóknum
hans hafa birst í tímaritum og
öðrum safnritum, en árið 1975 var
meginhluti þeirra gefín út í bók-
inni „Menning og meinsemdir"
Dr. Jón starfar um þessar mund-
ir við að skrá safn um sögu
lækninga og læknisfræði á íslandi.
Rosanne Klass á fundi með fréttamönnum
Fékkst þú þér