Morgunblaðið - 10.10.1986, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986
25
Hálftóm veitinga-
hús í Reykjavík
„ Aðsókn mun minni en venjulega“ segir
framkvæmdastjóri SVG
„ÁSTANDIÐ er í einu orði sagt
skelfilegt. Veitingahúsin í
Reykjavík hafa verið hálftóm
alla vikuna og mun minni aðsókn
en venjulega“, sagði Erna Hauks-
dóttir, framkvæmdastjóri
Sambands veitinga- og gistihúsa,
er hún var spurð um aðsókn að
veitingahúsum í Reykjavík nú i
vikunni. „Þessi tilmæli til íslend-
inga um að halda sig heima,
hvaðan sem þau koma, hafa því
skaðað mjög alla starfsemi veit-
ingahúsanna" sagði Erna enn-
fremur.
Siglufjörður:
Smáhvala-
vaða í fjarð-
arbotninum
Siglufirði.
VAÐA af smáhvölum var
innst inni í fjarðarbotninum
hér í gær. Fréttaritari tók
eftir þessu í gærmorgun er
hann var staddur á svokölluðu
Hafnartúni á leiðinni af flug-
vellinum inn í bæinn. Rúnar
Sigmundsson frá Akureyri sá
þetta einnig frá flugvellinum.
Þetta voru þó nokkuð mörg
dýr, en þau virðast hafa komist
út aftur enda var stækkandi
flóð. Þau hefðu varla komist út
ef ekki hefði verið svona hátt í
sjónum. Fréttaritari hefur aldrei
áður séð þetta og eldri Siglfirð-
ingar sem spurðir -hafa verið
kannast heldur ekki við að hafa
séð hvalavöður svona langt inni
í firði. Matthías
Ema sagði að greinilegt væri,
að þorri hinna erlendu gesta, sem
hingað eru komnir vegna leiðtoga-
fundarins, borðuðu annars staðar
en á veitingahúsunum. í flestum
tilfellum fengju þeir senda matar-
bakka á staðinn þar sem þeir væru
að vinna. Eins hefðu Reykvíkingar
hefðu tekið áðumefnd tilmæli svo
hátíðlega að þeir létu ekki sjá sig.
„Það em tvær til þijár hræður í
hádegis og kvöldmat á stöðum, sem
venjulega em vel sótt“, sagði Ema.
Hún sagði að jafnvel á hótelunum,
þar sem erlendu gestimir gista,
væri ástandið verra en í venjulegri
viku.
Sömu sögu er að segja um
skemmtistaði, sem aðeins bjóða upp
á kvöldverð og skemmtanir um
helgar. Þar hafa pantanir verið
dræmari en venjulega. Veitinga-
stjóri eins þessara veitingahúsa
sagði í samtali við Morgunblaðið
að undanfamar helgar hefðu verið
vel sóttar í mat og pantanir borist
snemma. Nú brygði hins vegar svo
við að fáar pantanir hefðu borist
og stórir hópar hefðu afpantað.
„Það er greinilega ástæðulaust að
óttast átroðning þessara útlend-
inga. Þeir hafa allt annað að gera
en að sækja matarveislur og
skemmtanir", sagði veitingastjór-
inn.
Erna Hauksdóttir kvaðst ha.fa
verið erlendis þegar tilmælin til ís-
lendinga um að halda sig heima
hefðu borist og sagðist hún enn
ekki hafa fengið botn í hvaðan þau
komu. „Veitingamenn em æfir út
af þessu sem von er. Það eina sem
við getum gert úr því sem komið
er, er að hvetja Reykvíkinga til að
fara út áð borða og skemmta sér
um helgina", sagði Ema.
Aðilar úr landsnefnd Banda-
lags jafnaðarmanna hafa sent
Þorvaldi Garðar Kristjánssyni,
forseta sameinað þings, formlegt
erindi, þessefnis, að Alþingi taki
til meðferðar réttarstöðu BJ til
þingsæta, samkvæmt 46. grein
stjórnarskrárinnar og anda
hennar, eins og komist er að
orði í erindinu. Undir bréfið rita
Þorsteinn Hákonarson og Orn S
Jónsson.
Bréfritarar vitna til 31. greinar
stjómarskrár lýðveldisins, sem fjall-
ar um úthlutun 11 landkjörinna
þingsæta til jöfnunar milli þing-
flokka, samkvæmt niðurstöðum
kosninga. Þá „algildu reglu að
landskjömir þingmenn taki sæti á
Alþingi", segir í bréfinu, „er ekki
hægt að taka af þingflokki, né er
hægt að úthluta þingflokki, sem er
ekki til, þingsæti".
Bréfritarar benda á þann mögu-
leika að varaþingmaður eða vara-
þingmenn verði kallaðir til þings í
forföllum þingmanna, sem sagt
hafa skilið við BJ. Slíkur þingmaður
eða þingmenn geti myndað þing-
Gott ferskfisk-
verð erlendis
TVÖ fiskiskip seldu afla sinn
erlendis á fimmtudag. Gott verð
fékkst í báðum tilfellum; fyrir
karfa í Þýzkalandi og þorsk í
Bretlandi.
Snæfugl SU seldi 165,5 lestir, mest
karfa í Bremerhaven. Heildarverð
var 9.228.000 krónur, meðalverð
55,76. Stakfell ÞH seldi 91,2 lestir,
mest þorsk í Hull. Heildarverð var
5.772.600 krónur, meðalverð 63,27.
. ' Morgunblaðið/Þorkell
Undirbúningur við upptöku á ávarpi Jóns Öttars Ragnarssonar í gær, þegar Stöð 2 var formlega opnuð
*
I fyrstu fjarlægur draum-
ur en Stöð 2 er nú veruleiki
- segir Jón Ottar Ragnarsson, sjónvarpsstjóri
HIN nýja sjónvarpsstöð, Stöð 2, hóf útsendingar í gærkvöldi með
ávarpi sjónvarpsstjóra, Jóns Ottars Ragnarssonar. Það var hama-
gangur í öskjunni í allan gærdag eins og svo marga undanfarna
daga hjá starfsmönnum sjónvarpsstöðvarinnar. Þó svo að enn
vantaði nokkur tæki til landsins og að húsgögn og endanlegar
innréttingar væru ekki komnar á sinn stað, fannst mönnum þar
á bæ allt i lagi að hefja útsendingar enda ákafinn mikill og allir
samtaka um að gera sitt besta.
Alþingi kanni
réttarstöðu BJ
flokk, „sem þá er orðinn lögaðili til
að hægt sé að framfylgja stjómar-
skrá, þannig myndar einn kjör-
dæmakjörinn þingmaður í reynd
þingflokk ef hann er kosinn af lista
sem er til viðmiðunar um úthlutun
á landskjömum þingmönnum til
jöfnunar þingsæta eftir atkvæða-
tölu“. Varaþingmaðurmaður geti
því krafist endurreisnar þingflokks-
ins. Sama máli gegni ef einhver
þingmanna BJ, sem gengið hafa til
liðs við aðra flokka, sjái sig knúinn
af sannfæringu til að hverfa á ný
til fyrri pólitískrar stöðu.
Um hádegisbilið í gær var verið
að farða Jón Óttar fyrir fyrstu
upptökuna og koma upptökusaln-
um í eðlilegt horf. „Það koma upp
mörg af vandamálum á hveijum
degi, en þau em leyst á stund-
inni. Þetta er mjög fámennur en
samstilltur hópur sem hjálpast að
gjð að greiða úr þeim málum sem
upp koma. Það er ekki bara einn
úr hópnum sem drífur þetta áfram
heldur leggjast allir á eitt um
það,“ sagði Valgerður Matthíás-
dóttir, listráðunautur og yfírmað-
ur hönnunardeildar Stöðvar 2, í
samtali við Morgunblaðið á milli
þess sem hún var að leggja síðustu
hönd á upptökusalinn fyrir ávarp
sjónvarpsstjórans.
„Vala, hvernig em þessi föt -
em gráu jakkafötin í lagi - og
bleika bindið, eða á ég að hafa
það bláa,“ spurði Jón Ottar list-
ráðunaut Stöðvar 2 fyrir upptök-
una og tæknimennirnir vom á
þönum, stillandi ljós, vélar, hljóð
og annað það sem við kom upptök-
unni. „Horfðu beint í linsuna, sittu
með beint bak og gráu jakkafötin
passa vel í settið," svaraði Vala
að bragði og þar með hófst upp-
takan.
„Gott kvöld, góðir íslendingar.
Frelsi í íslenskri fjölmiðlun er orð-
in staðreynd. Einokun ríkissjón-
varpsins á öldum ljósvakans hefur
verið afnumin. Stöð 2 er orðin að
vemleika. Eg óska öllum lands-
mönnum, ijær og nær, til ham-
ingju á þessum tímamótum," hóf
Jón Óttar mál sitt.
Og hann hélt áfram:, „Það er
orðið talsvert um liðið síðan fá-
mennur hópur hóf að undirbúa
þessa starfsemi. I fyrstu var þetta
aðeins fjarlægur draumur því
margir vom kallaðir til að stofna
fyrstu einkastöðina í sjónvarpi.
Hvaða hending réði því að við
stöndum nú í þessum spomm er
Mjólkurframleiðslan í september:
Aukning á Norðurlandi
INNVEGIN mjólk hjá mjólk-
ursamlögunum í september
var 10.054 þúsund lítrar sam-
kvæmt bráðabirgðatölum
Framleiðsluráðs landbúnað-
arins. Er þetta svipuð fram-
leiðsla og var í ágúst, en 130
þúsund lítrum, eða 1,28%,
minna en í september 1985.
í september varð samdráttur
miðað við sama mánuð í fyrra í
stærstu samlögunum suðvestan-
lands. Innvegin mjólk hjá
Mjólkurbúi Flóamanna á Selfossi
var 3,4 milljónir lítra, 10,7%
minni en í fyrra. Samrátturinn
var 6,08% hjá Mjólkurstöðinni í
Reykjavík og 4,71% hjá Mjólkur-
samlagi Borgfirðinga í Borgar-
nesi. Hjá norðlensku mjólkurbú-
unum varð aftur á móti aukning
á milli ára, 4,16% á Hvamm-
stanga, 5,65% á Blönduósi,
2,51% á Sauðárkróki, 7,86% á
Akureyri og 12,93% á Húsavík.
Einnig varð aukning á Pátreks-
fírði og Austfjörðum svo dæmi
séu tekin.
Rafmagnslaust vegna
mannlegra mistaka
ALLT rafmagn fór af austur-
hluta Reykjavíkurborgar í
gærmorgun um klukkan
10.00. Komst það ekki á aftur
fyrr en hálftíma til klukk-
utíma síðar.
Breiðholt, Árbær, Vogarnir,
Fossvogur og svæðin þar í kring
urðu öll rafmagnslaus og að sögn
HaUks Pálmasonar, aðstoðarraf-
veitustjóra hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, var orsökin mann-
leg mistök er verið var að vinna
við spennustöðina í Elliðavogi,
sem sér austurhluta borgarinnar
fyrir orku.
álíka erfítt að útskýra og hvers
>vegna Gorbachev og Reagan
völdu Island fyrir sinn leiðtoga-
fundinn.
En við stöndum ekki ein: Að
bakhjarli höfum við alla þá íslend-
inga frá aldanna öðli sem kusu
frelsi fram yfír ófrelsi, andóf fram
yfír undirokun; fólkið sem var
sífellt reiðubúið að minna á áð
frelsi er manninum í blóð borið
og af öllum þess tilbrigðum er
tjáningafrelsið æðst. Þessari
framvarðasveit ber ég í kvöld
síðbúnar kveðjur okkar svo og
þeim stjómmálamönnum, sem
áttu heiðurinn af þeirri frjálslyndu
útvarpslöggjöf, sem Stöð 2 byggir
starfsemi sína á.“ _
Þá þakkaði Jón Óttar samstillt-
um hópi starfsmanna Stöðvar 2
fyrir vel unnin verk og minntist
lítillega á það efni, sem sjón-
varpsáhorfendur Stöðvar 2 eiga
von á að sjá. „Þrátt fyrir vissa
einokunartilburði keppinautar
okkar síðustu dagana, vonum við
að Golíat sætti sig við að tími ein-
okunar er liðinn og héðan í frá
verði allir að lúta lögmálum hins
frjálsa markaðar,“ sagði Jón m.a.
í ávarpi sínu.
Hann sagðist vona að Stöð 2
myndi ekki falla í þá gryfju að
verða stofnanaveldi eða skrif-
stofubákn, heldur yrði rekin á
grundvelli einstaklingsframtaks
og fijálslyndis. „Við skulum hafa
hugfast að það galdratæki sem
sjónvarpið er, getur það ekki að-
eins töfrað fram veröld sem var
og íjarlægar álfur, heldur er þar
rúm fyrir allar skoðanir og allir,
sem hafa hæfíleika, eiga rétt á
að fá að njóta sín.“ Að lokum vitn-
aði Jón Óttar til orða Davíðs
Stefánssonar frá Fagraskógi úr
leikriti hans Gullna hliðinu og
opnaði þar með fyrir dagskrá
Stöðvar 2:
Þér hneykslist ei, þótt djarft sé
myndin dregin
og dánir látnir tala - hinum
megin.
Síst er vort mark að særa þá
sem trúa,
en samt skal djúpið mikla reynt
að brúa.
Við blásum lífi í sálma og
sagnaspjöldin
og sýnum yður heiminn - bak
við tjöldin.