Morgunblaðið - 10.10.1986, Side 63

Morgunblaðið - 10.10.1986, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986 63 Morgunblaöið/Bjami • Valsstúlkur unnu í Vestmannaeyjum nú í vikunnl en KR-ingar töpuðu fyrir Fram. Myndin er tekin f leik Vals og KR í fyrstu umferðinni en þar vann KR. Dœmið snérisst við hjá liðunum í vikunni. Luzern á upp- leiðíSviss LUZERN, lið Ómars Torfasonar og Sigurðar Grétarssonar í sviss- nesku knattspyrnunni, vann mikilvœgan sigur á Vevey, 5:1 á heimavelli á miðvikudagskvöld. Ómar Torfason lék með og átti góðan leik en Sigurður er sem kunnugt er meiddur. Luzern hefur nú 9 stig í deildinni og er í 9. sæti. Xamax náði efsta sætinu er liðið vann Wettingen, 3:1, á sama tíma og Sion, sem hafði forystu fyrir þessa umferð, tapaði fyrir Zúrich, 0:1. Úrslit leikja í svissnesku 1. deild- inni voru þessi: Aarau — La Chaux 4—4 Basel — Grasshoppers 0—3 Lausanne — Servette 3—2 Locarno — St. Gall 0—0 Luzern —Vevey 5—1 Xamax — Wettingen 3—1 YoungBoys — Bellinzona 0—2 Zurich —Sion 1—0 Staðan er þessi eftir 10 umferðir: Xamax Grasshoppers Sion Bellinzona Lausanne Zurich St. Gall Young Boys Lucern Servette Aarau Basel Locarno Wettingen Vevey La Chaux 10 7 2 1 22: 5 16 10 7 2 1 22:10 16 10 7 1 2 25:12 15 10 5 2 3 16:14 12 10 5 2 3 18:16 12 10 4 3 3 17:15 11 10 4 3 3 15:14 11 10 3 4 3 16:13 10 10 4 1 5 20:18 9 10 4 1 5 20:18 '9 20 3 3 4 9:14 9 10 2 4 4 13:17 8 10 2 3 5 17:18 7 10 2 3 4 13:15 7 10 2 3 5 12:23 7 10 0 1 9 8:38 1 Leikur Sigurður með Sheffield I slandsmeistarar Fram án taps ÍSLANDSMÓTIÐ f 1. deild kvenna í handknattleik er nýbyrjað. 2. umferð var spiluð nú f vikunni. Úrslit leikja f tveimur fyrstu um- ferðunum benda til þess að keppnin verði jöfn og skemmtileg f vetur. íslandsmeistarar Fram eru eina liðið 4 stig eftir 2 leiki. Valur vann ÍBV f Eyjum, FH sigr- aði Ármann, Fram vann KR og Stjarnan vann Vfking. ÍBV-Valur 15:23 Nýliðar ÍBV í 1. deild töpuðu fyrir Val í sínum fyrsta leik í deild- inni í vetur. Eyjastúlkur mættu ákveðnar til leiks og tóku eina aðaldriffjöður Valsliðsins Ernu Lúðvíksdóttur úr umferð frá fyrstu mínútu. Það dugði þó ekki til, því við það riðlaðist vörn ÍBV mikið og Valsstúlkur gengu á lagið. Vals- liðið náði góðu forskoti í byrjun, en þegar líða tók á fyrri hálfleik, náði lið ÍBV að þétta vörnina og staðan í hálfleik var 12—8 fyrir Val. í síðari hálfleik leit lengi vel út fyrir að Valsstúlkur myndu stinga lið ÍBV af, en herslumuninn vant- aði og endaði leikurinn 23—15 fyrir Val. Skólamót í golfi SKÓLAMÓTI í golfi, sem fram átti aö fara sl. föstudag í Grafar- holti, varö að fresta sökum hríms á vellinum þar. Ef veður leyfir nk. sunnudag, þá verður mótið haldið í Grafarholti og reynt að notast við þann völl, þar sem unglingunum hefur verið synjað um afnot af öðrum völlum á Reykjavíkursvæðinu, þó svo að þeir hefðu verið heppilegri vegna legu sinnar. Leikinn verður höggleikur með og án forgjafar, auk sveitakeppni milli einstakra skóla. Bókaútgáfan Örn og Örlygur gefur öll verðlaun til keppninnar. Ræst verður út kl. 9.00 til 11.00 og skráning fer fram í Golfskálan- um í Grafarholti í símum 84735 og 82815. Þátttökugjald er ekkert. I liði ÍBV var Ragna Birgisdóttir atkvæðamest. Liöiö vantar þó af- gerandi meiri skyttur, svo fjöl- breytni náist í spilið. i Valsliðinu bar mest á þeim Katrínu Friðriksen og Guðrúnu Kristjánsdóttir, en liöið í heild átti ekki góðan dag. Mörfc (BV: Ragna Birgisdóttir 4, Þ. Dóra Jóhannsdóttir 4, Ingibjörg Jónsdóttir 3, Anna Sigurðardóttir 3 og Ásta Kristjóns- dóttir 1 mark. Mörk Vals: Katrín Friöriksen 7, Guðrún Kristjánsdóttir 7, Erna Lúövíksdóttir 3, Rósbjörg Jónsdóttir 3, Birna Björnsdóttir 2 og HrafnhildurSigþórsdóttireitt mark. FH — Ármann 40:10 í Hafnarfirði spilaði FH við nýliöa Ármanns. Leikurinn var einstefna að marki Ármanns, að undanskild- um fyrstu mínútunum, þegar liöin voru að þreifa fyrir sér. Staðan í hálfleik var 15—5. FH-liðið átti í heild góðan leik. Mikil breidd var í spilinu, sem sést best á því að allir útispilararnir skoruðu mark. Ekki er þó hægt að dæma getu liðsins út frá þessum leik, því til þess var mótspyrnan allt of lítil. í liði Ármanns var Margrét Haf- steinsdóttir langatkvæðamest. Það er greinilegt að liðið mun eiga mjög erfitt uppdráttar í vetur. Mörfc FH: Rut Baldursdóttir 7, Hildur Harðardóttir og Arndis Aradóttir 6 hvor, Anna Ólafsdóttir 5, Eva Baldursdóttir 5, Kristín Pótursdóttir og Sigurborg Eyjólfs- dóttir 3 hvor, Inga Einarsdóttir og María Sigurðardóttir 2 mörk hvor og Helga Sig- urðardóttir eitt mark. Mörk Ármanns: Margrét Hafsteinsdóttir 7, Halla Grótarsdóttir, Ellen Einarsdóttir og Margrét Hjartardóttir eitt mark hver. KR — Fram 16:21 KR-stúlkur mættu grimmar til leiks á móti íslandsmeisturum Fram. Þær höfðu yfirhöndina fram- an af, en þegar komiö var fram í miðjan fyrri hálfleik náði Fram að jafna leikinn. Eftir það var sem all- an kraft vantaði í spil KR-liðsins, og sigur Fram var aldrei í hættu. Þrátt fyrir tapið sýndu KR-stúlk- ur að þær eru til alls líklegar í vetur. Liöið er skipað ungum og efnilegum stelpum, sem vafalítið eiga eftir að láta mikið aö sér kveða í framtíðinni. I liði Fram var Guðríður langat- kvæðamest, en auk hennar sýndu þær Arna og Ingunn ágætan leik. Framliðið mætir sterkt til leiks eins og venjulega, og með þessum sigri sínum á KR tylltu þær sér í topp- sæti deildarinnar. Mörfc KR: Sigurbjörg Sigþórsdóttir 6, Eisa Ævarsdóttir, Aldís Arthúrsdóttir og Elín Eiríksdóttir tvö mörk hver og Annetta Scheving, Snjólaug Benjamínsdóttir, Arna Garöarsdóttir og Bryndis Harðardóttir eitt mark hver. Mörk Fram: Guöríöur Guðjónsdóttir 10, Arna Steinsen 5, Ingunn Bernódusdóttir 3, Ósk Víðisdóttir, Súsanna Gunnars- dóttir og Margrót Blöndal eitt mark hver. Víkingur — Stjarnan 23:20 Víkingur og Stjarnan spiluðu í Seljaskóla. Jafnræði var með liðun- um í fyrri hálfleik, og var staðan í hálfleik 10—10. í seinni hálfleik náði Stjarnan fljótlega forystunni, og hélt henni til leiksloka þrátt fyr- ir mikla pressu Víkingsliðsins. Þegar ca. 10 mínútur voru til leiks- loka og staðan var 19—16 fyrir Stjörnunni, tóku Víkingsstúlkur það til ráða að taka þær Margréti og Erlu úr umferð. Við það jafnað- ist leikurinn, en Vikingar náðu þó ekki að minnka muninn, og endaði leikurinn 23—20 fyrir Stjörnunni. í liði Víkings bar mest á línuspil- aranum knáa, Jónu Bjarnadóttur, að þessu sinni. Þrátt fyrir tap í þessum leik, hefur Víkingsliðið sýnt það undanfarið að það hefur alla burði til þess að taka þátt í toppbaráttunni í vetur. Erla Rafnsdóttir var atkvæða- mikil í liði Stjörnunnar að venju. Aðrar voru frekar mistækar í leik sínum. Stjörnuliðið hefur á að skipa góðri blöndu af reyndum leik- mönnum og ungum og efnilegum stelpum, og þær hafa eflaust fullan hug á að gera betur en í fyrra, en !>á höfnuðu þær í 2. sæti bæði í slandsmóti og Bikarkeppninni. Mörfc Víklngs: Jóna Bjarnadóttir 5, Svava Baldvinsdóttir 4, Inga Lára Þórisdóttir 3, Eiríka Ásgrímsdóttir, Rannveig Þórarins- dóttir og Sigurrós Björnsdóttir tvö mörk hver, Valdís Birgisdóttir 2 mörk. Mörk Stjörnunnar: Erla Rafnsdóttir 9, Margrót Theodórsdóttir 6, Hrund Grótars- dóttir 4, Drífa Gunnarsdóttir 3 og Steinunn Þorsteinsdóttir eitt mark. KF/ÁS DREGIÐ var í 3. umferð enska deildarbikarsins f knattspyrnu f gær. Mjólkurbikarmeistararnir frá f fyrra, Oxford United, voru heppnir og leika gegn 3. deildar- liðinu Sheffield United. Lið Sigurðar Jónssonar, Shef- field Wednesday, fær Everton og verður það án efa hörkuleikur. Önnur 1. deildarliö sem leika sam- an í næstu umferð eru þessi: Liverpool - Leicester Man. United - Southampton Arsenal - Manchester City Watford - West Ham Charlton - QPR Cardiff City, sem fékk gefins leikinn við Luton í fyrri umferð, mætir 1. deildarliðinu Chelsea. Friðarhlaup hélendis Á MORGUN gengst alþjóðlegur friðarhópur fyrir friðarhlaupi f til- efni komu leiðtoga stórveldanna til íslands. Hlaupið verður með friðarkyndil frá Keflavfk til Reykjavíkur þar sem stór kyndill verður tendraður f Hljómskála- garðinum. Kyndillinn kemur hingað til lands með flugvél frá London um kl. 7.00 í fyrramálið. (slenskur íþróttamað- ur hleypur með kyndilinn fyrsta spölinn en síðan taka íþróttamenn frá flestum sérsamböndum ÍSÍ við og skiptast á að hlaupa til Reykja- víkur. Þarna koma einnig frægir erlendir hlauparar við sögu eins og Lyudmila Bragina frá Sovétríkj|— unum, sem er fyrrum heimsmet^ hafi í langhlaupum, Phillip Winegarner frá Bandaríkjunum og Selina Cherdir frá Kenýa. Um 1.000 skólabörn á aldrinum 10 til 14 ára munu hlaupa með kyndilberanum síðasta spölinn kringum Hljómskálagarðinn. Áætl- að er að kyndillinn verði kominn að Hljómskálagarðinum um kl. 11.30. Eftir að stór kyndill hafi verið tengdraður verða flutt ávörp. Kyndillinn verður afhentur Steingrími Hermannssyni forsæt- isráðherra og forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur. Haukar styrktir SPARISJÓÐUR Hafnarfjarðar afhenti f gær handknattleiks- deild Hauka f Hafnarfirði 300.000 kr. Upphæðin er gjöf eins viðskiptavinar sparisjóðs- ins til minningar um Guðmund Guðmundsson, sparisjóðs- stjóra, sem lést 13. desember 1985. Gefandinn vildi ekki láta nafns síns getið en fór þess á leit viö Sparisjóð Hafnarfjarðar að hann annaðist þetta fyrir sig. Þór Gunnarsson, bankastjóri, afhenti Birni Björnssyni, formanni hand- knattleiksdeildar, þessa pen- ingaupphæð í hófi sem efnt var til að þessu tilefni. Ekkja Guðmundar Guðmunds- sonar, Elsa Magnúsdóttir, vildi koma á framfæri þakklæti til hins ónefnda gefanda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.