Morgunblaðið - 01.02.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.02.1987, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 26. tbl. 75. árg. SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Spenna á Filippseyjum: Þjóðar- atkvæða- greiðsla á morgun Manila. AP. Reuter. BARÁTTU Corazon Aquino, forseta Filippseyja, fyrir því að ný drög að stjórnarskrá verði samþykkt i þjóðaratkvæða- greiðslu sem fram fer á morgun, lauk með fjölmennum fundi í Manila, höfuðborg eyjanna í gær. Nokkur hundruð þúsund stuðnings- menn forsetans söfnuðust saman í garði í miðborginni, báru spjöld er á stóð„ segjum já“ og veifuðu gulum fánum, en gult er litur Aquino. I ræðu sinni lýsti forsetinn því yfir, við mikinn fögnuð áheyrenda, að framvegis yrði tekið harðar á and- stöðu við stjómvöld og að yfirmenn hersins myndu sjá til þess, að losa herinn við óæskilega menn. „Þið vitið að ég vil ekki drepa neinn“, sagði Aquino, „en ég vil heldur ekki láta drepa okkur“. Spenna lá í lofti í Manila í gær og miklar öryggisráðstafanir við- hafðar m.a. á fundinum. Einnig gerðu herlögreglumenn húsleit í úthverfi nokkru í höfuðborginni, a.m.k. tveir vopnaðir hermenn, er falið höfðu sig þar eftir misheppn- aða uppreisnartilraun í síðustu viku, voru handteknir og orðrómur um sprengjuárásir á raforkustöðvar og yfirvofandi uppreisnartilraun, gekk ljósum logum manna í millum. sé haldið í gíslingu 25 milljónir manna hafa rétt til að taka þátt í þjóðaratkvæða- greiðslunni á morgun. í gær var birt niðurstaða skoðanakönnunar, sem gerð var í vikunni þar sem 71% aðspurðra sögðust myndu sam- þykkja drögin að nýrri stjórnarskrá. Beirút, London, AP. Reuter. ENSKA Biskupakirkjan ákallaði í gær öfgamenn shíta í Líbanon og hvatti þá til að skýra nákvæm- lega frá hver staða Terry Waite, sendimanns kirkjunnar, væri. Fregnir frá Líbanon og Wash- ington herma að hann sé fórnar- lamb innbyrðis togstreitu í röðum öfgamanna og því í raun og veru í gíslingu. Hefur ekkert heyrzt frá Waite í 11 daga og sagðist fjölskylda hans i gær leggja trúnað á fregnir um að honum hefði verið rænt. Ameríkubikarinn: Conner vann fyrstu kappsig’linguna Fremantle, AP. Bandaríska skútan Stars & Stripes sigraði í fyrstu kappsigling- unni i úrslitakeppninni um Amerikubikarinn enda þótt aðstæður allar væru taldar áströlsku skútunni Kookaburra III hagstæðari. Skútumar voru hnífjafnar þegar rásmerki var gefið, en fljótlega náði Dennis Conner skútustjóri á Stars & Stripes forystunni og þótt vindurinn væri aðeins 8 hnútar var Conner 1 mínútu og 15 sekúndum á undan við lyrstu bauju, eftir 5,2 km siglingu af 39 km. Iain Murray, skútustjóri á Kook- aburra III, komst aldrei nægilega nálægt Conner til að geta neytt hann í krókasiglingu og þar með hrifsað hugsanlega forystuna af honum. A þriðja kafla leiðarinnar, í beitivindi, náði Murray að minnka forystu Conners í 41 sekúndu, en síðan jók vindinn í 14-18 hnúta og eftir það jók Conner forskot sitt jafnt og þétt. Var hann um tíma 2 mínútum á undan en í markinu munaði 1,41 mínútu. Ameríkubikarinn vinnur sá skútustjóri sem fyrri verður til að vinna fjórar kappsiglingar. Geta siglingamar því orðið sjö talsins. Conner hefur tvisvar unnið sigl- Reuter Dennis Conner sigri hrósandi eftir fyrstu kappsiglinguna í úrslitakeppninni um Ameríku- bikarinn. ingakeppnina en er þó frægastur fyrir að hafa tapað bikamum síðast, árið 1983. Heimildir herma að mikil tog- streita sé innan öfgasamtaka múhameðstrúarmanna í Beirút og hafi af þeim sökum ekki verið gefin út yfirlýsing um stöðu Waite. Ágreiningur sé einkum milli Hezb- ollah-samtakanna, sem Iranir styðja, og Walids Jumblatt, leiðtoga drúsa, en hann hvatti Waite til síðustu samningalotu. Drúsískir lífverðir gættu Waite en skildu við hann þegar hann hitti mannræn- ingja, sem hann hugðist fá til að sleppa tveimur Bandaríkjamönnum. Enging skýring hefur verið gefin á því hvers vegna lífverðimir yfirgáfu hann, en þeir hafa jafnan ekki vik- ið frá Waite í fyrri ferðum hans. Vikuritið Al-Shiraa sagði í gær að líklega væri Waite í gíslingu. Blaðið bar háttsetta klerka fyrir fréttinni. Það varð á sínum tíma fyrst til þess að skýra frá fréttinni um vopnasölu Bandaríkjamanna til íran. Um tíma var því haldið fram í gær að Waite myndi snúa til Beirút úr Bekadalnum um helgina, en heimildir úr ýmsum áttum lögðu lítinn trúnað á það og töldu nær ömggt að hann væri nú fangi mannræningja. Samstaða vill láta af- létta viðskiptahömlum Varsjá. Reuter. LECH WALESA, leiðtogi Sam- stöðu, hinna bönnuðu samtaka frjálsra verkalýðsfélaga í Pól- landi, sagði fyrir fund sinn með John Whitehead, varautanríkis- ráðherra Bandarikjanna, á föstudag að samtökin vildu að viðskiptahömlum milli ríkjanna yrði aflétt og að hann myndi leita eftir stuðningi Bandaríkjastjórn- ar við Samstöðu. „Við viljum ekki gera pólsku ríkis- stjórninni erfitt fyrir“, sagði Walesa, „en við viljum fá að koma skoðunum okkar á framfæri". Whitehead, er heldur í dag til Tékkóslóvakíu, hefur undanfama daga dvalið í Póllandi og átt viðræður við forystumenn Samstöðu, yfirmenn kaþólsku kirkj- unnar. Zbigniew Messner, forsætis- ráðherra og Wojciech Jaruzelski, leiðtoga pólska kommúnistaflokks- ins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.