Morgunblaðið - 01.02.1987, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.02.1987, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. FEBRUAR 1987 Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík: Framboðslistinn á- kveðinn á þriðjudag' TILLAGA kjörnefndar fulltrúa- ráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík um skipan lista Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík við næstu alþingiskosningar verður tekin til afgreiðslu á fundi full- trúaráðsins næstkomandi þriðju- dagskvöld. Kjörnefnd er bundin af niðurstöðum prófkjörs um skipan 10 efstu sætanna og gerir því tillögu um að Albert Guð- 20 milljónir til framkvæmda í Viðey í fjárhagsáætlun Reykjavíkur- borgar er gert ráð fyrir 20 milljónum króna til framkvæmda í Viðey á árinu. Að auki er gert ráð fyrir rúmlega 3 milljónum til að leggja neðarsjávar vatns- Iögn út í eyna og 6 til 8 milljónum fyrir bryggju. „Viðeyjarstofa er orðið elsta hús Reykjavíkur og hefur verið ákveðið að endurbyggja hana í upprunan- legri mynd,“ sagði Þórður Þ. Þorbjarnason borgai'verkfræðingu. Gert er ráð fyrir veitingarstað í stofunni og ráðstefnusal á loftinu sem rúma á 250 manns. Á þessu ári verður væntanlega gengið frá bitum í gólfi og stofan múruð að innan. Byggt verður jarðhýsi norð- an við stofuna og þess gætt að það skyggi ekki á aðrar byggingar. Þar verður snyrtiaðstaða, fatahengi og matargeymslum fyrir væntanlegan veitingarstað. Öllum framkvæmd- um á að vera lokið árið 1988. mundsson iðnaðarráðherra skipi l. sæti listans. Kjörnefndin gerir tillögu um öll 36 sæti listans. Ákvörðun fram- boðslistans verður eina mál fundar- ins. Fundurinn verður í Valhöll og hefst klukkan 20.30. í fulltrúaráð- inu eiga sæti um 1.400 manns. Frá því prófkjör flokksins fór fram hafa verið umræður um hugs- anlegar breytingar á skipan efsta sætis listans. Ekki er vitað hvort fulltrúaráðsmenn leggi fram breyt- ingartillögur við tillögu kjörnefnd- ar. Albert Guðmundsson segir í viðtali við Vikuna, sem nýlega er komin út, að það hafi aldrei hvarfl- að að sér að fara úr fyrsta sætinu og færast aftar. „Auðvitað eru margir sem hefðu viljað einhvern annan en mig í fyrsta sæti ... Fólk- ið hefur ákveðið listann. Það er farið eftir ákveðnum reglum við val á frambjóðendum. Þess vegna verð- ur listinn óbreyttur. Annars getur það gerst að fólkið snúist gegn flokknum. Sjálfstæðisflokkurinn má ekki haga sér á þann hátt,“ sagði Albert. Hann sagði einnig að það hefði oft verið nefnt við sig að fara í sérframboð, en hann vildi síst af öllu grípa til þess. í viðtali við tímaritið Mannlíf þar sem mikið er fjallað um Sjálfstæðis- flokkinn, segir Helena Albertsdótt- ir, dóttir Alberts Guðmundssonar, að hún sjái ekki að það sé gerlegt að Albert víki af listanum nema með samþykki hans sjálfs, eða laga- breytingum innan flokksins. „Þegar búið er að fara í gegnum prófkosn- ingu, eiga ekki einhvetjir menn að geta tekið sig til og fært frambjóð- endur til á listanum," segir Helena m. a. Baldvin Einarsson við rúðugötin. Morgunbiaðið/ÓÚ K. Magnússon Kjöt og fiskur, Breiðholti: Skotið á rúður með loftriffli SKOTIÐ var á rúður verslunar- innar Kjöt og fiskur í Breiðholti með loftriffli laust eftir mið- nætti aðfaranótt laugardags. Ytra glerið á fimm rúðum skemmdist, en kúlurnar náðu ekki að skemma innri glerin. Baldvin Einarsson, verslunar- stjóri, sagði í samtali við Morgun- blaðið að líklega hefðu einhveijir prakkarar verið þarna á ferðinni, en ekki hefur enn tekist að ná þeim. „Það er orðið mjög óalgengt að brotist sé inn í verslunina úr því við höfum nú öryggiskerfi í verslun- inni og einnig heyrir það orðið nú til undantekninga sé brotist inn hér í Seljahverfinu. Hinsvegar fyrir um það bil fjórum árum, var nánast brotist inn um hveija helgi hjá okk- ur. Þeir sem þar voru að verki náðust yfirleitt alltaf." Baldvin sagði að sem betur fer hefðu stærri rúðurnar verið látnar í friði, en hann vissi ekki að svo stöddu hve mikið tjónið væri. „Ég get ímyndað mér að einhveijir stráklingar hafi nýfengið loftbyssu og talið freistandi að prófa hann á rúðurnar." Færri skip á sóknarmarkið Frá fundinum á Húsavík, á innfelldu myndinni eru Sverrir Hermanns- son menntamálaráðherra og Þorvaldur Vestmann fundarstjóri. Sverrir Hermannsson á Húsavíkurfundinum: Ekkert til lausnar nema dómstólaleiðin „ENDURRÁÐNING Sturlu get- ur ekki verið umtalsefni af minni hálfu, en líklega er hún á blaði hjá viðmælendum mínum, fræðsluráðinu," sagði Sverrir Hermannsson mennta- málaráðherra meðal annars á fundi sínum um fræðslumál í félagsheimilinu á Húsavík á föstudagskvöld en fundurinn var haldinn fyrir fullu húsi. Þetta kom fram í svari við nokkrum fyrirspumum sem Stef- án Skaftason frá Aðaldal bar fram til ráðherra. Ellefu fundarmenn, auk Sverris, tóku til máls og var áberandi í máflutningi þeirra flestra að þeir vildu kenna starfs- mönnum menntamálaráðuneytis- ins um hvemig farið hefði í samskiptum ráðherra og Sturlu Kristjánssonar, fyrrverandi fræðslustjóra. Nefndu þeir til dæmi um samskipti sín við deild- arstjóra í ráðuneytinu. I máli Sverris Hermannssonar kom meðal annars fram að hann hefði átt „friðsamlega fundi" með fræðsluyfírvöldum kjördæmisins á Akureyri á föstudag og að hann hefði fullan hug á að ná sam- komulagi. Hann taldi þá viðmæ- lendur sína líklega ætla, að inn í hugsanlegu samkomulagi þeirra fælist endurráðning Sturlu, en slíkt kæmi ekki til tals af hans hálfu. Þá sagði Sverrir fræðslustjóra- málið svo vaxið að hans mati, að ekkert yrði til lausnar nema dóm- stólaleiðin. Aðspurður sagðist hann auðvitað víkja úr ráðherra- stóli ef hann yrði dæmdur sekur í því máli fyrir dómstólum. Fund- inum lauk um miðnætti. ÁHUGI útgerðarmanna á út- gerð eftir sóknarmarki hefur heldur dvínað frá síðasta ári. Færri togarar og bátar munu í ár stunda veiðar með þeim hætti en á því síðasta. Frestur til ákvörðunar um útgerðar- hætti er runninn út. Samkvæmt upplýsingum veiða- eftirlits sjávarútvegsráðuneytisins verða 72 togarar á sóknarmarki nú, en voru um 80 á því síðasta. 34 verða því á aflamarki. Svipað- ar breytingar hafa orðið hvað varðar bátaflotann. Skýringar þessa eru ýmsar. Mörgum skipum verður breytt á árinu og fyrir útgerð þeirra er hagstæðara að vera á aflamarki. Þau geta þá sótt mikið til óheft þann tíma, sem þau eru frá vegna breytinganna eða flutt eða selt hluta kvótans. Nú verða rækju- veiðar í fyrsta sinn taldar til sóknardaga og skerðast þá á móti bolfiskveiðidagar viðkomandi skipa og hefur það nokkur áhrif. Ennfremur gildir áfram sú regla að sala eða millifærsla á kvóta er ekki leyfileg hjá sóknarmarks- skipum. Góð loðnuveiði út af Norðurlandi: 5 þúsund tonn til Siglufjarðar Siglufirði. GÓÐ loðnuveiði var út af Norð- urlandi í fyrrinótt og segja menn að það sé úr „týnda“ loðnustofn- inum, sem svo hefur verið kallaður. í gær voru væntanleg hingað skip með 5.000 tonn, auk fjölda skipa sem sigldu til Rauf- arhafnar og á fleiri hafnir. Sumir af þeim loðnubátum sem lönduðu á Siglufirði í gær náðu því að landa fullfermi tvisvar á sama sólarhringnum. Eitt skyggir á þessa góðu loðnuveiði, en það er verkfall farmanna. Olían hér er orðin heldur lítil og er verið að aka olíu hingað með bílum. Eitthvað mun vera um að bílarnir taki bensín með sér til Áskorun hreppsnefndar Gerða- hrepps til ríkisstjórnarinnar: Gautur verði áfram gerður út frá Garði HREPPSNEFND Gerðahrepps hefur samþykkt að beina þeim tilmælum til ríkisstjómarinnar að hún beiti sér fyrir því að tog- arinn Gautur verði áfram gerður út frá Garði. Eigandi Gauts, Út- garður hf. í Garði, hefur sem kunnugt er í hyggju að selja skip- ið til Hraðfrystihúss Gmndar- fjarðar. í ályktun sinni vísar hrepps- nefndin til mikilvægis togarans fyrir byggðarlagið. Jafnframt kem- ur fram að sala skipsins er á því stigi að ef hjálpa eigi fyrirtækinu til að halda skipinu þoli aðgerðir enga bið. Hraðfrystihús Grundarfjarðar hefur fengið lánsloforð hjá Byggða- sjóði vegna kaupa á togaranum og Samband íslenskra samvinnufélaga hefur einnig heitið því að auka hlutafé sitt í félaginu vegna togara- kaupanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.